Morgunblaðið - 02.09.2000, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 B 3
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari íslands vill grafa Danadrauginn í eitt skipti fyrir öll
Að fólk
rauli með
þjóðsöngn-
um og fái
gæsahúð
ATLA Eðvaldssyni hefur gengið einstaklega vel sem landsliðs-
þjáifara síðan hann tók við liðinu snemma vors. Liðið gerði jafn-
tefli í fyrsta leiknum gegn Dönum og síðan hefur það sigrað
Finnland, Færeyjar, Möltu og Svíþjóð. Það er því mikil eftir-
vænting í kringum leikinn gegn Dönum í dag því sigri liðið verður
það Norðurlandameistari, en það sem meira og mikilvægara er,
þá nær það þremur stigum f þriðja riðli heimsmeistarakeppninn-
ar.
að er rosa tilhlökkun í landslið-
inu vegna leiksins. Þetta er
svolítið sérstakt vegna þess að frá
því að þessir strákar
fæddust hefur verið
frisiBjörk talað um stóra skell-
Eysteinsdóttur a moti Donum
og einnig er marka-
talan skelfileg í þeim 16 leikjum
sem við höfum átt við þá. Það hefur
alltaf verið svolítið sérstakt að spila
gegn danska liðinu. Þetta er leikur
á nýrri öld. Á þessari öld höfum við
ekki spilað við þá - og ekki tapað
fyrir þeim.“
Það þarf ekki að minna á mikil-
vægi þessa leiks. Hvernig eru taug-
arnar hjá strákunum ?
„Þeir eru bara afslappaðir og fín-
ir. Vægið er náttúrulega tvöfalt í
þessu. í fyrsta lagi erum við að
byrja HM og í öðru lagi erum við að
ljúka Norðurlandamótinu. Með
sigri erum við orðnir fyrstu Norð-
urlandameistararnir og síðan eru
stigin þrjú í HM alveg ofboðslega
mikilvæg. Við erum á heimavelli og
stefnum á að fara í þennan leik með
sterkan stuðning áhorfenda, að
gera það sem við kunnum og ef við
náum því þá erum við í góðum mál-
um eins og sýndi sig á móti Svíun-
um. í fyrri hálfleik voru menn
kannski ekki alveg að skila þessu
sem við vorum sammála um að
gera. í síðari hálfleik fórum við
bara yfir þetta aftur og menn sáu
það að vinnan skilaði sér og eftir
það vorum við að spila eins og kóng-
ar. Við þurfum að fækka þessum
mínútum í leikjum sem við erum að
gera okkur þetta erfitt. Við verðum
að sama skapi að fjölga mínútunum
í leik sem allir vita hvað þeir eiga að
gera því þannig verðum við betri.“
Hefurðu kynnt þér leik Dananna
mikið, legið yfír spólum og annað
slíkt?
„Ég á spólu en ég er enn ekki
búinn að sjá hana. I fyrsta lagi er
Margir að
fylgjast með
FJOLMARGIR útsendarar frá erlendum liðum og erlendir umboðs-
menn voru á leik 21-árs landsliða fslands og Danmerkur í Kapla-
kríka í gærkvöld. Margir komu frá Englandi og í þeim húpi var
Dave Watson, þjálfarí og Ieikmaður Everton, og eiimig menn frá
Arsenal og Nottingham Forest. Lið í efstu deildum í Noregi og Aust-
urríki áttu fulltrúa á leiknum og umboðsmenn komu meðal annars
frá Danmörku, Svíþjúð ogÞýskalandi. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var Guðmundur Viðar Mete, miðvörðurinn efnilegi frá
Malmö, víða undir smásjánni og margir hrífust af innkomu Veigars
Páls Gunnarssonar úr Stjörnunni síðustu 20 mínútur leiksins.
lítill tími og í öðru lagi finnst mér
ekki rétt að búa til eitthvað í kring-
um það sem hinir eru að gera þótt
auðvitað séu þar eitt og eitt atriði.
Yfirleitt er verið að tala um sóknar-
og varnarmöguleika. Við gefum
okkur forsendur og þær byggjast á
því að það er alveg saman hvar bolt-
inn er, það er ekki hægt að skora ef
varnarmaðurinn stendur rétt. Þeir
skora ekki nema við gerum mistök.
Tony Schúmacher, hinn frægi þýski
markvörður, sagði að það væri ekk-
ert skot óverjandi, heldur væri það
staðsetningin sem skipti máli.
Fram á við veltur þetta svo á eigin
frumkvæði leikmanna. Framherj-
arnir verða að hafa leyfi til að gera
eitthvað skapandi. Þeir verða að lifa
á því stundum að gera hluti sem við
skiljum ekki en hinir leikmennirnir
fyrir aftan verða að vinna saman.
Þess vegna hef ég ekki verið að fara
of mikið í það sem Danir og aðrir
andstæðingar okkar gera.“
Hvernig er íslenska leikaðferðin ?
„Hún byggist á því að við gefum
okkur forsendur og vinnum útfrá
þeim. Við eigum að vera með svör
við öllu í varnarleiknum. Við líkjum
þessu oft við veiðimenn. Við lokkum
andstæðingana inn í svæði þar sem
vitað er að þeir tapa. Þeir tapa
kannski ekki boltanum í fyrstu
skiptin en um leið og það gerist þá
erum við tilbúnir."
Er búinn að vera mikill höfuð-
verkur að velja í liðið?
„Erfiðasta ákvörðun sem þjálfari
tekur er að stilla upp liði. I fyrsta
lagi þarf að velja 18 af þeim 25-30
sem koma til greina í hópinn, svo að
velja þessa 11 sem byrja inná. Ég
get alveg sagt að ég treysti öllum
strákunum. Við höfum líka sýnt
það, hvort sem það er á móti Sví-
þjóð, Möltu eða Noregi, að allir sem
teknir voru inn stóðu sig mjög vel í
þessu kerfi sem við leikum eftir. Ég
vel 11 en hver einasti í þessum hóp
Morgunblaðið/Amaldur
Atli Eðvaldsson var þungt hugsi á æfingu landsliðsins síðdegis í gær.
er jafn mikilvægur. Ef liðið breyt-
ist, þarf ég að hafa þá sem eru fyrir
utan klára þannig að ef einhver
meiðist þá verður næsti að vera til-
búinn. Þess vegna er allur hópur-
inn, þótt það sé oft klisja, jafn mik-
ilvægur. Það langar alla að spila en
ég vona að stákarnir styðji mig og
hver annan og veiti hver öðrum
sjálfstraust."
Nú er þetta fyrsti leikur íslands í
undankeppni HM. Ertu búinn að
setja þér eitthvert markmið í þess-
um riðli?
„Já, markmiðið er að komast upp
í þriðja styrkleikaflokk úr þeim
fjórða og ef það tekst getum við lit-
ið á stöðuna. í fyrra náðum við ofsa-
lega góðum árangri en komumst
samt ekki upp um styrkleikaflokk,
við erum enn í fjórða sæti. Það þýð-
ir líka að ef við komum okkur upp
um styrkleikaflokk þá verður gam-
an að kíkja á stöðuna í riðlinum. Að-
alatriðið fyrir næstu keppni er að
komast upp um styrkleikaflokk."
Finnst þér umfjöllun um liðið
hafa verið meiri nú en áður?
„Hún er búin að vera mikil og góð
og sýnir það náttúrulega að Danir
eru sérstakir. Það eru gömlu erj-
urnar þar á millli á jákvæðan hátt.
Danir hafa verið okkar uppáhalds
landslið á Norðurlöndum til að
fylgjast með, liðið sem við höfum
stutt. Okkur finnst þeir „ligeglad,“
svona léttir og skemmtilegir og
aldrei neikvæðir þannig að það er
jákvæði punkturinn. Þetta er Norð-
urlandaþjóð og við erum nýbúnir að
vinna Svíana og höfum unnið Norð-
mennina. Við erum ofar en Svíar,
Norðmenn og Danir í Norðurlanda-
mótinu, af hverju er ekki kominn
tími til að grafa 14:2 drauginn og þá
getum við sagt að síðustu úrslit
gilda?“
Hvernig eru tímarnir með lands-
liðinu núna miðað við þegar þú
varst að spila?
„Þetta er svipað en fjölmiðlaum-
fjöllun er mun meiri núna. Þetta
eru meiri „stjörnur". Strákar sem
eru að spila í dag þurfa ekki að vera
risastjörnur til að leggja grunn að
fjárhagslegu öryggi alla ævi með
kannski einum samningi. Nú eru
strákarnir kannski að þéna á einu
ári það sem venjulegur maður þén-
ar kannski á tíu árum. Þetta gefur
egóinu mikið. Þegar fjárhagsleg
vandamál eru úr sögunni eru menn
miklu öruggari með sig og það er
kannski aðalmunurinn."
Liðið kemur saman fyrir leiki og
æfír. Á hvað er lögð áhersla á þess-
um æfíngum?
„Fyrst er verið að kanna hvort
allir séu heilir og svo er bara að
létta á hópnum. Þeir vinna dags
daglega oft undir rosalegri pressu.
Við erum í fyrsta lagi að láta þeim
líða vel. Síðan förum við bara í
grunnatriði, við gefum okkur
kannski sex til átta atriði til að
vinna í og förum í þau aftur og aftur
og þau mega aldrei gleymast. Þetta
veitir okkur visst öryggi og þegar
við erum búnir að þjálfa okkur í því
getum við farið að leita eftir öðrum
leiðum, meira skapandi og slíkt. Til
þess að fara út í það þarf öryggið að
vera til staðar. Þú tryggir þig fyrst
og síðan ferðu að spila frjálst. Við
reynum alltaf að fara í sömu atriðin,
því öll mörk sem eru skoruð er gerð
á svipaðan hátt.“
Hverju viltu bæta við?
„Ég vil bæta við að áhorfendur
sneru leiknum við á móti Svíum, við
fengum á okkur eitt mark og þeir
byrjuðu að hvetja okkur. Ég vonast
til þess að íslensku áhorfendurnir
taki við sér. Hver sem leikmaðurinn
er, það skiptir ekki máli, ég skipti
ekki máli, það eina sem skiptir máli
er að ísland er að spila og fólk á að
koma með metnað á völlinn. Að
hvetja þjóðina, finna stoltið þegar
þjóðsöngurinn er spilaður, raula
með ef menn kunna ekki að syngja
og finna gæsahúðina og finna þjóð-
erniskenndina frá fyrsta flauti til
þess síðasta, það er það sem ég
óska mér.“
Fullir sjálfstrausts
HERMANN Hreiðarsson hefur leikið 30 leiki fyrir íslands hönd
ásamt því að vera lykilmaður í enska úrvalsdeildarliðinu Ipswich
og því tilbúinn í slaginn gegn Dönum i dag. „Undirbúningurinn
hefur verið fínn hjá okkur. Þetta verður hörku erfiður leikur. Við
vitum það að við eigum á brattann að sækja en við höfum verið að
ná góðum úrslitum hérna heima þannig að við förum fullir sjálfs-
trausts í leikinn."
Þegar landsliðið kemur saman
keppa jafnan ungir leikmenn
gegn þeim eldri í liðinu og er Her-
mann einn af þeim
Eftjr ungu. í gær náðu
Irisi Björk ungu strákarnir að
Eysteinsdóttur hafa sigur. „Það er
mjög mikill léttleiki í
liðinu. Við rúlluðum þeim upp og ger-
um það yfirleitt. Hópurinn er búinn
að vera mjög lengi saman og orðinn
samheldinn og skemmtilegur. Það er
rosalega góður andi og samheldni í
hópnum og það verður að teljast
styrkleiki. Menn eru að vinna hver
fyrir annan, sem liðsheild, það ætlar
enginn að vera hetjan."
Hermann leikur í vörninni en þeg-
ar liðið fær auka- eða hornspyrnur þá
laumar hann sér oftast inn í teig and-
stæðinganna og það var einmitt eftir
hornspyrnu sem hann skoraði fyrsta
markið sitt fyrir ísland gegn And-
orra í fyrra.
„Það er eins og í hverjum leik, það
finnst öllum gaman að skora og fara
fram þannig að við verðum örugglega
sendir fram þama einhverjir úr vöm-
inni,“ sagði Hermann.
Hermann skipti úr Wimbledon og
yfir í Ipswich í síðasta mánuði og hef-
ur þegar leikið gegn risunum úr
Manchester United. „Þetta hefur allt
gerst dálítið hratt. Ég held ég sé
búinn að spila fleiri leiki en æfingarn-
ar hafa verið. Ég hef bara verið á hót-
eli en þegar ég fer út aftur róast þetta
aðeins og þá komum við til með að
leigja til að byrja með og kaupa
kannski síðar. Stjórn og þjálfari og
bara allir em mjög vingjarnlegir
þarna og líka leikmennirnir en þeir
hafa tekið vel á móti mér. Það sem er
enn betra er að áhorfendur hafa tekið
vel á móti mér líka sem er mjög mikil-
vægt í byrjun," sagði Hermann sem
hlakkar mikið til að leika í dag. „Þetta
er orðið reynslumikið lið hérna hjá
okkur, flestir eiga í kringum 20-30
leiki og sumir mikið fleiri. Síðan eru
allir að spila erlendis eða hafa spilað
erlendis og það kemur til með að nýt-
ast okkur,“ sagði Hermann.