Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 B 3
"^QT>o OOp
Vonbrigði hjá Jóni
MEIÐSL í aftanverðu vinstra
læri tóku sig upp hjá Jóni Arnari
Magnússyni tugþrautarmanni í
annarri grein, langstökki, í tug-
þrautarkeppni Ólympíuleik-
anna, sem hófst seint í gær-
kvöldi að íslenskum tíma og á
fyrsta tímanum í nótt mátti telj-
ast nær fullvíst að Jón Arnar
hætti keppni af þeim sökum.
Hann gerði öll stökk sín í lang-
stökkinu ógild og þótt hann
gæti hugsanlega þrælað sér
áfram í næstu grein, kúluvarpi,
þá er Ijóst að hann er alveg úr
keppni um efstu sætin. Jón hélt
áfram í kúluvarpið en reiknað
var með að hann og Gísli Sig-
urðsson, þjálfari, myndu meta
stöðuna að því loknu, en þá var-
gert stutt hlé á tugþrautinni áð-
ur en að hástökkinu kom klukk-
an sjö í morgun.
Meiðslin komu upp í öðru stökki
Jóns í keppninni. Hann fékk
mjög greinilega sáran sting aftan-
vert í vinstra lærið í
uppstökkinu og
Benediktsson haltraði frá lang-
skrifar stökksgryfjunni.
fráSydney Fyrir þriðja stökkið
var lærið reifað og gerði hann tilraun
til að stökkva, en atrennan passaði
illa og stökkið varð ógilt eins og þau
tvö hin fyrri. Eftir þriðja stökkið var
Jón Arnar enn haltari en fyrr og
ljóst að hann var verulega þjakaður.
Það hafði rignt nærri sem hellt væri
úr fötu, með þrumum og eldingum,
síðasta hálfa sólarhringinn fyrir
keppni og var langstökksbrautin
mjög blaut og hál. Var því meiri
hætta á meiðslum en ella og það hef-
ur væntanlega haft sitt að segja fyrir
Jón Arnar. Sökum aðstæðnanna áttu
keppendur í mesta basli með lang-
stökkið þannig að margir þeirra
gerðu stökk sín ógild þótt flestir hafi
komist slysalaust í gegnum keppn-
ina þegar dæmið var gert upp.
„Jón Arnar varð fyrir þessum
meiðslum í vinstra lærinu í vikunni
eftir að hann kom heim frá Frakk-
landi þar sem hann meiddist í ilinni,“
sagði Vésteinn Hafsteinsson, flokks-
stjóri frjálsíþróttamanna í samtali
við Morgunblaðið á íyrsta tímanum í
nótt að íslenskum tíma. „Síðan hann
meiddist hefur hann verið í meðferð
hjá lækni og sjúkraþjálfara og var
alveg hættur að finna til, þannig að
við vorum að vona að allt yrði í lagi í
keppninni, ekki síst þar sem æfingar
hafa gengið vel upp á síðkastið, með-
al annars náði hann einni sinni bestu
langstökksæfingu fyrir örfáum dög-
Jón var grimmur á svip og ákveðinn í að gera sitt besta eftir 100 metra hlaupið, en hann meiddist
í langstökkinu og fékk ekkert stig fyrir það, en hélt þó áfram keppni.
Morgunblaðið/Sverrir
um og þá bar ekkert á meiðslunum,"
sagði Vésteinn ennfremur.
Meiðslin eru gríðarlegt áfall fyrir
Jón Arnar og þjálfara hans Gísla
Sigurðsson en allur þeirra undirbún-
ingur undanfarin fjögur ár hefur
miðast við að hann yrði í fremstu röð
á Ólympíuleikunum. Undanfarin tvö
ár hafa verið þyrnum stráð fyrir þá
félaga og eftir að Jón Arnar varð í 5.
sæti á heimsmeistaramótinu innan-
húss í Japan í mars 1999 hefur Jóni
aðeins tekist að ljúka keppni í einni
tugþraut, það var í júní í Götzis.
Hver meiðslin, minni sem meiri, hafa
rekið önnur og fiest allt gengið í mót.
Þegar Morgunblaðið hitti Gísla
þjálfara rétt undir kl. eitt í nótt, beið
hann þess að hitta lærisvein sinn.
Greinilegt var að Gísli var mjög sleg-
inn vegna þessa nýjasta áfalls enda
höfðu hann og Jón gert sér vonir um
að nú myndu hlutirnir breytast til
betri vegar, enda æfingar gengið af-
ar vel í Astralíu síðasta mánuðinn.
Baðst Gísli undan viðtali þar til hann
hefði hitt Jón Amar.
Þegar meiðslin komu upp hafði
Jón Arnar lokið einni grein, 100 m
hlaupi.
Þar kom hann í mark á 10,85 sek-
úndum sem var níundi besti tími sem
keppendur náðu.
Kamerúnar stefndu
alltaf að gullinu
SPÁNN og Kamerún munu mætast í úrslitaleik knattspyrnunnnar
30. október á Ólympíuieikvanginum í Sydney. Kamerún vann sig-
ur á Chile á lokamínútunni í undanúrslitum og endaði þar með 01-
ympíudraum Chile. Chile sem hefur aldrei áður komist í úrslit á
Ólympíuleikum leikur um bronsið við Bandaríkjamenn sem lutu
lægra haldi fyrir Spáni 3:1 í hinum undanúrslitaleiknum.
Kamerún sigraði Chile mjög
naumlega 2:1 þar sem
Stephane Bre skoraði úrslitamark-
ið úr vítaspyrnu á lokamínútu leiks-
ins. Er aðeins um 15 mínútur lifðu
leiks tók Chile forystuna með
sjálfsmarki Kamerúna. Kamerúnar
jöfnuðu leikinn um tíu mínútum síð-
ar. Patrick Mboma fiskaði síðan vít-
ið sem tryggði Kamerúnum sigur-
inn.
Fyrri hálfleikur var slakur af
hálfu beggja liða. Leikmenn Chile
KNATTSPYRNA
voru mun sprækari í síðari hálfleik
og fengu fjölda tækifæra til að gera
út um leikinn en hinn 16 ára gamli
markvörður Kamerún, Carlos
Kameni, varði nokkrum sinnum
meistaralega.
„Þetta var góður leikur tveggja
góðra liða sem bæði hafa leikið vel
til þessa á leikunum," sagði Jean-
Paul Akono þjálfari Kamerún eftir
leikinn. „Leikurinn var opinn og
skemmtilegur fyrir áhorfendur. Við
höfum allan tímann stefnt að gull-
verðlaunum. Nígería opnaði leiðina
fyrir fjórum árum með því að verða
fyrsta Afríkuþjóðin til að vinna sig-
ur á Ólympíuleikum og nú vonumst
við til að feta í fótspor þeirra,“ sagði
Kameni.
„Það var aðallega okkur að kenna
að vinna ekki leikinn því við nýttum
ekki þau fjölmörgu marktækifæri
sem við fengum. Við gátum heldur
ekki haldið forystunni. Kamerún
var betra liðið,“ sagði Nelson
Acosta þjálfari Chile sem náð hefur
stórkostlegum árangri með liðið.
Öruggt hjá Spánverjum
Spánverjar unnu öruggan 3:1
sigur á Bandaríkjamönnum í hinum
undanúrslitaleiknum. Spánn hafði
algjöra yfirburði í fyrri hálfleik og
skoraði tvö mörk. Þeir leyfðu
Bandaríkjamönnum þó að komast
inní leikinn með því að fá á sig víta-
spyrnu sem Bandaríkjamenn skor-
uðu úr rétt fyrir lok hálfleiksins.
Spánverjar gátu því ekki andað ró-
legar fyrr en Jose Mari skoraði
þriðja mark þeirra aðeins fjórum
mínútum fyrir leikslok.
Spánverjar unnu gullið á eftir-
minnilegan hátt á heimavelli á Ól-
ympíuleikunum 1992 í Barcelona og
munu nú reyna að endurtaka leik-
inn í Sydney. Þeir verða þó að leika
án fyrirliðans Toni Velamazan sem
fékk sitt annað gula spjald í tveim-
ur leikjum og verður í leikbanni.
Gottog
ódýrtá
íslandi
ARNE Erlendsen, þjálfari
norska knattspymufélagsins
LiUeströni, sagði f gær að
verðlag á norskum ieikmönn-
um væri alltof hátt og þess
vegna sneri hann sér til Is-
lands til að fá góða leikmcnn
á vægu verði. Gylfi Einarsson
úr Fylki samdi við Lilleström
í fyrrakvöld og kaupverð
hans hefur ekki verið gefið
upp en talið er að það sé í
kringum 25 milljónir króna.
„Við hjá Lilleström höfum
ekki efni á að kaupa norska
leikmenn og þvf snúum við
okkur annað. Munurinn á
okkur og Rosenborg er sá að
þeir geta keypt leikmenn inn-
anlands. Það er líka ómögu-
legt að halda góðum leik-
mönnum. Við urðum að selja
Heiðar Helguson í fyrra og
nú emm við að missa Rúnar
Kristinsson,“ sagði Erlends-
en við Nettnvisen í gær.
Sagt er að Erlendsen sé
með mjög góð sambönd á ís-
Iandi og fari oft þangað til að
skoða leikmenn. Um Gylfa
segir hann:
„Gylfi er sóknart engiliður
sem skorar mörk og er mikill
vinnuhestur. Ég vænti mikils
af honum, en liann þarf sinn
tíma. Við kaupum alltaf leik-
menn með framtíðina í
huga.“