Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 12
Kvefið
kostaði
Raducan
gullið
RÚMENSKA fimleikakonan And-
reea Raducan var svipt gullverð-
íáunum sínum í íjölþrautar-
keppninni eftir að fundist hafði
ólöglegt lyf í lyfjaprófi sem tekið
var af henni strax að lokinni fjöl-
þrautarkeppninni 21. september
síðastliðinn. Raducan fær að
halda gullverðlaununum í liða-
keppni sem hún vann til nokkrum
dögum fyrir fjölþrautarkeppnina
og einnig silfurverðlaunum í
stökki sem hún vann til þremur
dögum eftir fjölþrautina. Efnið
sem fannst í þvagsýni Raducan,
F]eeudoephidrine, er örvandi og
má rekja til kvefmeðals sem fim-
leikakonan notaði í upphafi Ól-
ympíuleikana og læknir rúm-
enska liðsins, Joachim Onana, lét
henni í té pillur gegn kvefpest-
inni rétt fyrir fjölþrautarkeppn-
ina. Onana hefur nú verið meinuð
þátttaka á ÓL næstu fjögur árin
og þykir sæta furðu að læknirinn
skuli hafa gefíð Raducan-lyfið og
ljóst að hún hafi ekki haft neinn
hag af inntöku lyfsins. Raducan
vann silfur í stökki 24. september
og var tekin í lyfjapróf að keppni
lokinni og ekkert athugavert
fannst í því prófi.
Rúmenar íhuga nú að áfrýja
úrskurði Alþjóða Ólympíunefnd-
arinnar, IOC, þar sem Raducan
var ekki ljóst hvernig lyf læknir
liðsins hafi gefið henni og tals-
maður IOC sagði að ákvörðunin
hefði verið ekki létt þar sem aug-
ljóst væri að þarna hefði verið um
mistök að ræða og íþróttamaður-
inn hefði ekki ráðið þar neinu um.
Andreea Raducan fagnaði sigri í fjölþraut.
BANDARÍSKI kúluvarparinn og eiginmaður Marion Jones, C.J.
Hunter, felldi tár á blaðamannafundi sem haldinn var á þriðjudag
í kjölfar þeirra fregna að Hunter hefði fallið á lyfjaprófi í lok júlí.
Frjálsíþróttastjarnan, Marion Jones, sat við hlið Hunters og sagði
hún að þessar fréttir myndu ekki raska hennar þátttöku á Olymp-
íuleikunum í Sydney.
Afjölmiðlaíúndinum í Ástralíu
kom í ljós að Hunter hefði fallið
á þremur öðrum lyfjaprófum sem
tekin voru af bandaríska frjáls-
íþróttasambandinu utan keppnis-
tímabilsins og í öllum prófunum var
magn nandrónóls-hormónsins langt
yfir leyfilegum mörkum eða í þúsund
sinnum meira magni en í meðal-
manneskju. Hunter sagði við fjöl-
miðla að hann hafi ekki takið inn
nein ólögleg lyf og næringarfræðing-
ur kúluvarparans kennir ónefndu
fæðubótarefni um. Norski lyftinga-
maðurinn, Stian Grimseth, féll sem
kunnugt er rétt fyrir ÓL á lyfjaprófi
vegna of mikils magns nandrónóls og
við nánari athugun á fæðurbótarefn-
inu sem Grimseth tók inn kom í ljós
að nandrónól-hormónið mátti rekja
til fæðubótarefnisins.
Margir forkólfar í alþjóðlegu
íþróttahreyfingunni gruna nú
Bandaríkjamenn um græsku og
undrast það að niðurstöður fyrri
lyfjaprófa Hunters hafi ekki verið
gerðar opinberar fyrr en í gær. Ger-
hard Heiberg fulltrúi í Alþjóða Ól-
ympíunefndinni viðurkenndi að hann
hefði verið afar ósáttur við að upp-
lýsingarnar um fyrri lyfjapróf Hunt-
ers voru ekki tilgengileg og Heiberg
sagðist hafa í gremju sinni lekið upp-
lýsingum til fjölmiðla um niður-
stöður fjórða lyfjaprófsins sem tekið
var í Ósló 28. júlí síðastliðinn. Sam-
kvæmt fregnum frá Bandaríkjunum
eru 10 aðrir íþróttamenn en Hunter
á lista bandaríska frjálsíþróttasam-
bandsins sem falllið hafa á lyfjaprófi
að undanförnu en nöfn þeirra hafa
ekki verið birt að svo stöddu.
C.J. Hunter og Marion Jones áttu erfiðan dag í gær.
Reuters
Hunter grét við
hlið Marion Jones
Hunter þurrkar tárin.
Grikkir
,ráða
Astrala
GRIKKIR, sem munu halda
28. Ólympíuleikana árið
2004, hafa leitað til nokkurra
Ástrala og beðið þá um að að-
stoða sig við framkvæmd
leikanna. Þetta kemur fram í
ástralska blaðinu Daily Tele-
graph á sunnudaginn. Þar
segir að Alþjóðaólympíu-
nefndin hafi rætt við yfir-
mann lögreglunnar og beðið
hann að hafa yfírumsjón með
öryggismálum á leikunum í
' Aþenu. Einnig segir að
Grikkir og Ástralar hafi und-
irritað nokkurs konar sam-
starfssamning varðandi leik-
ana 2004.
Búlgarar
fara heim
og í bann
ALÞJÓÐA lyftinga-
sambandið hefur ákveðið að
selja alla lyftingamenn frá
Búlganu í 12 mánaða keppn-
isbann eða á meðan rann-
sókn stendur yfir á þeirra
málum. Þetta er gert sökum
þess að nokkrir búlgarskir
lyftingamenn hafa fallið á
lyfjaprófi á Ólympíuleikun-
um og verið reknir heim
með skömm í hatti. Þykir AI-
þjóðasambandinu þetta vera
slfk hneisa fyrir íþróttina að
rétt sé að grípa til svo
harðra refisaðgerða sem
raun ber vitni. Þar með er
ljóst að þeir búlgarskir lyft-
ingamenn sem eiga eftir að
keppa á Sydney-leikunum fá
ekki að taka þátt þótt þeir
hafi ekki óhreint mjöl í
pokahorni sínu. Eitt skal yfir
alla ganga.
Um leið gerir Al-
þjóðalyftingasambandið þá
kröfu til búlgarska lyftinga-
sambandsins að það geri út-
tekt og úti-ými með öllu
lyljamisnotkun á meðal lyft-
ingamanna í landinu sem
eru innan þess. Skal ólymp-
íunefnd og íþróttasamband
landsins hafa hönd í bagga
með því verkefni.
Ivar
Benediktsson
skrifarfrá
Sydney
Hunter
verður
að borga
sig inn
C.J. Hunter var á mánudaginn
sviptur aðgangspassa sínum á
ólympíuleikvanginum, en hann var
skráður til leikanna
sem aðstoðarþjálf-
ari eiginkonu sinn-
ar, Marion Jones
hlaupakonu. Þetta
var gert eftir að Alþjóða frjáls-
íþróttasambandið, staðfesti að kúl-
uvarparinn íturvaxni hafi fallið á
lyfjaprófi sem tekið var af honum
eftir Bislett-leikana í Ósló í lok júlí
og að auki hafi Hunter fallið á
þremur öðrum prófum fyrir keppn-
ina í Noregi og lítið fór fyrir upp-
lýsingum úr þeim prófum frá
Bandaríkjunum.
Þar með er ljóst að vilji Hunter
fylgja konu sinni eftir að keppnis-
vellinum eins og hann ætlaði verður
að hann finna aðgöngumiða, en þeir
liggja ekki á lausu og sáralítið mun
vera til á svörtum markaði. Jafnvel
er talið að Hunter fari heim til
Bandaríkjanna á næstu dögum ell-
egar þá loki sig inni á hótelherbergi
þeirra hjóna og fylgist með keppn-
inni í sjónvarpi.
Margir meðlimir Alþjóðaólymp-
íunefndarinnar, IOC, eru æfareiðir í
garð bandaríska frjálsíþróttasam-
bandsins. Johann Koss, fyrrverandi
skautahlaupari og margfaldur ól-
ympíumeistari, sem á sæti í nefnd
IOC sem er ætlað að sporna gegn
notkun ólöglegra lyfja sagði í gær
að það væri með öllu ólíðandi að
Bandaríkjamenn teldu að þeir gætu
látið aðrar reglur gilda um sína
íþróttamenn, en aðrar þjóðir hafa.
Sagt er að um 15 lyfjamálum hafi
verið stungið undir teppið í Banda-
ríkjunum undanfarið ár.
Enginn þeirra 15 íþróttamanna er
á meðal þátttakenda á Ólympíuleik-
unum eftir því næst verður komið.