Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 2000 m FOSTUDAGUR 29. SEPTEMBER BLAÐ Jón Amar og Gísli á heimleið ENN fækkar í hópi íslend- inga því á rnorgnn halda Jón Arnar Magnússon tug- þrautarmaður og Gísli Sig- urðsson, þjálfari hans heim til fslands. Þar með hafa niu af 38 manna keppnis-, þjálfara- og aðstoðar- mannahópi fslendinga, sem kom til Astralíu vegna leik- anna, snúið til síns heima. Áður höfðu þjálfari Völu, fímleikamenn og skotmenn farið frá Sydney. Reiknað er með aðrir haldi heim á leið hinn 4. október. Tveir FH- ingar til Groningen HOLLENSKA úrvalsdeildar- liðið Groningen hefur boðið tveimur ungum leikmönnum úr FH, Davíð Þór Viðarssyni og Emil Hallfreðssyni, að koma til félagsins og æfa með því í eina viku. Davíð og Emil eru báðir liðsmenn í U-16 ára landsliðinu sem er þessa dagana að keppa í undanriðli Evrópumótsins í Hollandi. Riðlakeppninni lýkur á laugardaginn og eftir hana halda þeir Davíð og Emil til Groningen. Þeir eru báðir 16 ára gamlir og þykja mikil efni. Davíð lék sinn fyrsta deildar- leik með meistaraflokki FH á nýliðnu tímabili. Hann kom inn á í lokaleiknum gegn Val og skoraði síðara mark FH-inga. Golfklúbbur Keflavíkur VÍÐA erlendis þekkist það að keppnisbúningar körfuknatt- leiksmanna eru hengdir upp í rjáfur þeim til heiðurs, en Kefl- víkingar tóku annan pól í hæð- ina er þeir heiðruðu þau Önnu Maríu Sveinsdóttur og Guðjón Skúlason. Guðjón hefur skorað yfir 10.000 stig í 600 leikjum fyrir Keflavík og árangur Önnu Maríu er einstakur, en hún get- ur státað af 19. titlum á ferli sínum. Forsvarsmenn félagsins ákváðu að nöfn þeirra yrðu sett á uppáhaldstaði þeirra á vellin- um og er nafn Önnu Maríu rétt innan við vítalínuna og „Gaui Skúla“ er að sjálfsögðu fyrir utan þriggja stiga línuna, - í horninu vinstra megin og eru þau fyrstu meðlimir nýstofnaðs „Gólfklúbbs" Keflavíkur. Morgunblaðið/Sverrir Vala við Óperu- húsið í Sydney GLÆSILEGUR árangur Völu Flosadóttir í stangar- stökkskeppninni á ÓL í Sydney vakti mikla athygli. Þeg- ar ljósmyndari Morgunblaðsins varað mynda Völu með verðlaunapeninginn við hið fræga Óperuhús í Sydney í gær, vildu margir fá myndir af sér og Völu með verð- launapeninginn um hálsinn eins og sést hér á myndinni til hliðar þar sem hin fræga brú í Sydney er í baksýn. Sigurður Öm fýrir Brynjar gegn Tékkum SIGURÐUR Örn Jónsson, varnarmaður úr KR, hefur verið valinn í landsliðshópinn í knattspyrnu fyrir leikina gegn Tékklandi og Norður-írlandi í undankeppni HM. Leikið er við Tékka í Teplice laugardaginn 7. október og gegn Norður-lrlandi á Laugardalsvellinum fjórum dögum síðar. Sigurður Örn, sem lék þrjá af sex lands- leikjum sínum til þessa á Norðurlanda- mótinu á La Manga í febrúar, kemur í stað Brynjars Björns Gunnarssonar gegn Tékk- um. Brynjar tekur þá út leikbann vegna brottrekstursins gegn Dönum í fyrsta leik keppninnar. Hann kemur aftur inn í hópinn fyrir leikinn gegn Norður-írum. Að öðru leyti valdi Atli Eðvaldsson lands- liðsþjálfari sömu 18 leikmenn og gegn Dön- um, og Sigurður er sá nítjándi. Reyndar gætu orðið breytingar því meiðsli hafa hrjáð nokkra af leikmönnunum að undanförnu. Auðun Helgason hefur ekki spilað síðan hann fór af velli gegn Dönum og Árni Gaut- ur Arason hefur misst af tveimur síðustu leikjum Rosenborg, auk þess sem fleiri hafa verið frá um skemmri tíma, eins og þeir Heiðar Helguson og Eiður Smári Guðjohn- sen. Landsliðshópurinn er þannig skipaður fyrir leikina tvo: Birkir Kristinsson, ÍBV..................68 Árni Gautur Arason, Rosenborg.............8 Rúnar Kristinsson, Lilleström............84 Eyjólfur Sverrisson, Hertha..............55 Arnar Grétarsson, Lokeren................46 Þórður Guðjónsson, Las Palmas............38 Ríkharður Daðason, Viking................33 Helgi Sigurðsson, Panathinaikos..........33 Hermann Hreiðarsson, Ipswich............31 Helgi Kolviðsson, Ulm....................24 Brynjar B. Gunnarsson, Stoke...........23 Auðun Helgason, Viking.................19 Tryggvi Guðmundsson, Tromsö........... 18 Pétur Marteinsson, Stabæk..............17 Heiðar Helguson, Watford..............11 Arnar Þór Viðarsson, Lokeren............7 Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea.........6 Sigurður Örn Jónsson, KR................6 Ólafur Örn Bjarnason, Grindavík.........4 í fyrstu umferð riðilsins um síðustu mán- aðamót tapaði Island fyrir Danmörku, 1:2, Tékkar unnu Búlgara á útivelli, 1:0, og Norður-írar unnu Möltu á heimavelli, 1:0. NORSKAR STÚLKUR ÓL-MEISTARAR Á GULLMARKI / B5

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.