Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 2
2 B FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Meistaramir
ekki tilbúnir
NÝLIÐAR ÍR í úrvalsdeíldinni í körfuknattleik virðast ekki hafa tekið
eftir því að þeim var spáð 10. sætinu í deildinni en meisturum
meistaranna úr Vesturbænum öðru sæti. Þeir tóku alltént ekki
mark á spánni og gerðu sér lítið fyrir og lögðu KR, liðið sem hefur
verið nær ósigrað í haust og varla haft undan að hampa bikurum.
Lokatölur urðu 101:90.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
Jafnræði var í fyrstu þremur
Ijórðungunum en í upphafi þess
síðasta gerðu heimamenn níu fyrstu
stigin og létu foryst-
una ekki af hendi
eftir það.
KR-ingar voru í
raun nokkuð
óheppnir framan af leik, þeim tókst
ágætlega að skapa sér færi enda
vöm IR-inga ekki burðug, þó hún
væri svo til allt í lagi á köflum. En
það var sama hversu nærri körfunni
KR komst, þeim gekk mjög brösug-
lega að koma knettinum rétta leið
og skipti þó vart máli hvort þeir
fengu eina, tvær eða jafnvel þrjár
skottilraunir í hverri sókn.
„Þetta er okkar slakasti leikur í
haust og hér er um hreint og klárt
vanmat að ræða. Við vorum einfald-
lega ekki tilbúnir og þegar við loks-
ins fórum að gera eitthvað af viti var
það of seint,“ sagði Ingi Þór Stein-
þórsson þjálfari KR eftir tapið og
bætti við að ÍR-ingar hefðu leikið
vel.
ÍR lék ágætlega á köflum, sér-
staklega í sókninni. Þar var barátt-
an til staðar og oftast náðu menn að
leika þannig að þeir fengju góð skot
en þó ekki alltaf og á stundum var
eins og menn héldu að skotklukkan
væri aðeins í tíu sekúndur en ekki
24 eins og raunin er, slíkur var
stundum hamagangurinn við að
skjóta.
KR-ingar áttu ekki góðan dag.
Sóknin var eins og áður segir
þokkaleg en það vantaði að Ijúka
henni og virtist gæta kæruleysis hjá
sumum leikmönnum þegar þeir voru
Þór tók á móti Skallagrími í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í
körfuknattleik í íþróttahöllinni á Akureyri í gær. Nokkur viðhöfn var
við upphaf leiksins því Ólafur Rafnsson, formaður Körfuknattleiks-
sambands íslands, setti íslandsmótið formlega með ávarpi í Höll-
inni. Leikurinn hófst síðan með allmiklum látum og var jafn og
spennandi framan af en svo fór að Þórsarar bókstaf lega kafsigldu
Borgnesinga og úrslitin urðu 93:56.
Skiljanlega var dálítill haustbrag-
ur á liðunum en Þórsarar byrj-
uðu þó betur og virtust til alls líkleg-
'r- Hins vegar náðu
.. . . leikmenn Skalla-
Sæmundsson gnms fljotlega að
skrífar svara fyrir sig og
voru Warren Peebles
og þjálfarinn Alexander Ermolinskij
þar fremstir í flokki. Staðan eftir
fyrsta leikhluta var 21:25 og voru
heimamenn ekki sáttir við þá stöðu.
Einar Örn Aðalsteinsson stóð upp úr
í liði Þórs í þessum leikhluta og skor-
aði 14 stig.
Þórsarar voru fljótir að breyta
stöðunni úr 21:27 í 31:27 í öðrum leik-
hluta og þeir juku forystuna jafnt og
þétt til leiksloka. Magnús Helgason
fór hamförum í öðrum leikhluta, tók
við af Einari og skoraði 14 stig. Stað-
an var 45:34 er flautað var til leikhlés.
I þriðja leikhluta var engin spum-
ing um það hvort liðið væri sterkara.
Þórsarar voru grimmir í vöminni og
sérstaklega skæðir í sóknarfráköst-
unum. Leikmenn Skallagríms kom-
ust lítt áfram og hittnin fór úr skorð-
um hjá þeim. Að loknum þriðja hluta
var staðan 67:45 og forysta Þórs
býsna ömgg. Þeir bættu heldur við í
lokin og sigruðu með 37 stiga mun.
Magnús og Einar Öm áttu sem
fyrr segir mjög góða kafla og þeir
Oðinn Asgeirsson og Clifton Bush
léku vel, jafnt og þétt. Sigurður Sig-
urðsson skoraði einnig skemmtilegar
körfur. Borgnesingum er spáð falli
og víst er að Skallagrímur þarf að
taka sig á. Peebles var þeirra bestur
og gamla brýnið Ermolinskij var
drjúgur. Nýi Rússinn, Andrey
Krioni, átti afleitan dag; skoraði sitt
eina stig eftir 28 mín. og fór út af með
5 villur skömmu síðar.
„Þetta var erfið fæðing og við vor-
um stressaðir í byijun. Síðan small
þetta saman hjá okkur. Við eram
með góðan hóp, mikla breidd og það
er mikilvægt að byija svona vel,“
sagði Ágúst Guðmundsson, þjálfari
Þórs.
Morgunblaðið/Kristján
Þórsararnir Óðinn Ásgeirsson og Hermann D. Hermannsson í
baráttu við Warren Peebles, leikmann Skallagríms.
komnir í dauðafæri við körfuna.
Vömin var léleg og baráttan, sem
sást til liðsins í lok síðasta tímabils
þar sem allir vora alltaf tilbúnir að
hjálpa náunganum ef hann missti
sinn leikmann frá sér, sást vart í
gær, menn vora uppteknir af því að
gæta sinna manna og gerðu varla
tilraun til að hjálpa samheijum sín-
um sem lentu í vandræðum.
Sigur ÍR kemur sjálfsagt flestum
á óvart en Jón Öm Guðmundsson
var ekkd sammála því. „Sigurinn
kemur mér ekki á óvart. Það var
mikil tilhlökkun í strákunum að fá
að byija og ég fann strax að þeir
vora tilbúnir í þennan leik og rúm-
lega það. Við voram búnir að leika
tvo leiki við KR í haust og tapa þeim
báðum en núna small allt hjá okkur
og aJlt gekk upp. Eg er ánægður
með sóknina þó svo við megum
kannski stundum fara okkur hægar
en nýja skotklukkan gerir þetta allt
hraðar en áður og menn verða að
fiýta sér dálítið. Vömin var hins
vegar alls ekki nógu góð. Eigum við
ekki að segja að þetta sé fyrsta
skrefið hjá okkur að því að afsanna
spána um að við verðum í tíunda
sæti,“ sagði Jón Öm.
Hjá ÍR var Cedrick Holmes góð-
ur. Hann er vinnusamur og dugleg-
ur og á eflaust eftir að nýtast ÍR vel.
Eiríkur Önundarson var sterkur en
tók nokkur ótímabær skot sem hann
gerði sér raunar grein fyrir um leið
og hann var búinn að skjóta. Halldór
Kristmannsson hitti vel og Steinar
Arason gerði það einnig og hefði að
ósekju mátt skjóta meira. Hregg-
viður Magnússon átti ágætan leik og
á eftir að verða mun betri í vetur.
Hjá KR var Jón Amór Stefánsson
bestur ásamt Magna Hafsteinssyni.
Ólafur Jón Ormsson átti fína kafla
og eins Jónatan Bow en hann hitti
reyndar mjög illa í gærkvöldi. Stein-
ar Kaldal átti þokkalegan leik í
vöminni.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurður Þorvaldsson úr ÍR reynir að finna leið að körfu KR-
inga. ÍR lagði meistara meistaranna með 11 stigum í gær.
Borgnesing-
ar kafsigldir
Valur stóð lengi
í Grindvíkingum
Það var byrjunarbragur á körfuboltanum þegar nýliðar Vals komu í
heimsókn í Röstina í Grindavík í gærkvöld í fyrstu umferð úrvals-
deildarinnar. Valsmenn, með Herbert Arnarson og sterkan Banda-
ríkjamann innanborðs virðast þó til alls líklegir í vetur, undir stjórn
fyrrum NBA-leikmannsins Péturs Guðmundssonar, og veittu
heimamönnum harða keppni lengst af. Þeir virtust hinsvegar ekki
þola spennuna þegar á reyndi, Grindvíkingar tóku öll völd á síðustu
fimm mínútum leiksins og tryggðu sér sigurinn, 78:65, með því að
skora fjórtán stig gegn tveimur.
Leikurinn byrjaði rólega og í fyrsta
leikhluta höfðu gestimir betur
settu 20 stig gegn 14 stigum heima-
manna og var heima-
Garðar mönnum fýrirmunað
Vignisson að setja niður körfur
skrifar í færam, jafnvel und-
ir körfunni. Delawn
Grandison hjá Valsmönnum var mjög
sterkur í fyrsta leikhlutanum og áttu
heimamenn engin svör við góðum
leik hans. Delawn spilaði reyndar all-
an leikinn mjög vel og átti Kim Lewis
fá svör við góðum leik hans.
í öðram leikhluta kom Rristján
Guðlaugsson sterkur inn og hélt
heimamönnum inni í leiknum með
fjölmörgum stoðsendingum. Vals-
menn spiluðu vel í þessum leikhluta
eins og í þeim fyrsta. Staðan í hálfleik
var þannig að gestimir höfðu skorað
40 stig gegn 37 stigum heimamanna.
Eitthvað hefur Einar Einarsson,
þjálfari Grindvíkinga lagt til við sína
leikmenn því þeir vora mun betri í
byijun þriðja leikhluta og virtust
ætla að valta yfir gestina en Vals-
menn með Bjama Gústafsson
fremstan í flokki neituðu að gefast
upp og héldu haus þannig að í lok
þriðja leikhluta var staðan hnífjöfn
56:56.
Það var því viðbúið að spennan yrði
mikil í síðasta leikhluta og sú varð
raunin hjá Valsmönnum. Þeir vora
einfaldlega ofspenntir og fóra hrein-
lega á taugum á síðustu 5 mínútun-
um. Staðan var 64:63 þegar 5 mínút-
ur vora eftir en þá sigldu heimamenn
framúr og skoraðu nánast öll stigin
sem komu eftir þetta og sigraðu
78:65.
Það var greinilegt á leik gestanna
að þeir vora fullstressaðir í lokin en
eiga sitthvað inni, þó ekki væri nema
það að Herbert Amarson sýndi sitt
rétta andlit. Heimamenn spiluðu ekki
vel og geta bara bætt sig, sérstaklega
sóknarlega.
Pétur var vonsvikinn
með úrslitin
Pétur Guðmundsson, þjálfari Vals-
manna, var vonsvikinn með úrslit
leiksins og sagði: „Þetta var góður
fyrri hálfleikur hjá okkur en þeir
höfðu þetta á sóknarfráköstunum,
Okkur vantaði að stíga þá út því þeir
fengu yfirleitt tvö tækifæri til að
klára sínar sóknir. Við héldum er-
lenda leikmanninum hjá þeim vel
niðri en lykillinn vora þessi sóknar-
fráköst."
Vörnin var góð og sóknar-
leikurínn mun lagast
Einar Einarsson, þjálfari Grind-
víkinga var kátari og sagði: „Þetta
var fyrsti leikurinn og við höfum ekki
spilað mikið af leikjum á undirbún-
ingstímabilinu hér heima. Vörnin var
góð þannig að eitthvað voram við að
gera rétt en sóknarleikurinn kemur
til með að lagast. Kim Lewis gekk
ekki vel að stjóma leiknum í fyrri
hálfleik en þetta kom hjá honum í
seinni hálfleik. Við þurfum fyrst og
fremst að vinna þessa heimaleiki okk-
ar í vetur til að ná árangri."