Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 6
6 B FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Það átti enginn von á að gríski spretthlauparinn Konstantinos Kenteris
hann er hinn breski Darren Campbell, sem fékk silfur og á vinstri hönd I
Ivan Pedroso i sigurstökki sínu.
Konstantinos Kenteris með gríska fánann eftir hinn óvænta sigur.
Pedroso stöðvaði sigur-
göngu Bandaríkjamanna
LANGSTÖKKSKEPPNI karla á Ólympíuleikunum í Sydney verður
lengi i minnum höfð. Eftir æsispennandi einvígi á milli heima-
mannsins Jai Taruima og Kúbumannsins Ivan Pedroso hafði sá síð
arnefndi betur. Ástralinn hafði forystu fram að síðustu umferðinni.
Hann stökk 8,49 metra og bætti sinn besta árangur um 14 sentí-
metra en Pedroso sýndi styrk sinn og skaust framúr Taruima með
lokastökki sínu sem mældist 8,55 metrar.
etta voru fyrstu gullverðlaun
Pedroso á Ólympíuleikum en
hann hefur staðið í skugga Banda-
ríkjamannins Carl Lewis sem sigr-
aði á fernum síðustu Ólympíuleikum.
Lewis er hættur keppni en hann var
mættur til Sydney og sá Kúbumann-
inn tryggja sér langþráðan Ólympíu-
meistaratitil. Ólympíumeistaratitill-
inn hefur verið nánast eign
Bandaríkjamanna en á 24 Ólympíu-
leikum frá árinu 1896 hafa Banda-
ríkjamenn staðið á efsta palli. Þeirra
helstu von að þessu sinni, Melvin
Lister, mistókst að komast í úrslita-
keppnina og Dwight Phillips hafnaði
í áttunda sætinu.
Stemmningin á Ólympíuleikvang-
inum var gríðarleg. 110 þúsund
áhorfendur hvöttu Taurima til dáða
og þeir stóðu á öndinni þegar hann
stökk 8,49 metra í fimmta og næst
LANGSTÖKK
„Mig hefur lengi
dreymt um þessi
gullverðlaun"
síðasta stökki sínu. Mikil pressa var
því á Kúbumanninum í lokastökki
sínu en hann stóðst hana og tryggði
sér sigur með því að stökkva 8,55
metra. Taurima átti síðasta stökk
keppninnar og þrátt fyrir gífurlegan
stuðning tókst honum ekki að
stökkva nema 8,28 metra.
Pedroso var hungraður í Ólymp-
íugullið en hann varð í fyrra fyrstur
langstökkvara til að verða heims-
meistarari í greininni í þriðja sinn.
Pedroso gekk ekki heill til skógar á
Ólympíuleikunum í Atlanta fyrir
fjórum árum og varð að láta sér
lynda 12. sætið.
Þegar úrslitin lágu Ijós fyrir
brotnaði Pedroso algjörlega saman.
Hann hágrét af gleði í faðmi landa
síns, Luis Meliz, sem varð í sjöunda
sætinu.
„Mig hefur lengi dreymt um þessi
gullverðlaun og mig vantaði þau sár-
lega í safnið. í svona keppni neita ég
að gefast upp og hún er ekki búin
fyrr en maður hefur lokið við öll
stökkin. Ég var hræddur um að gera
ógilt í síðasta stökkinu en sem betur
fer gerðist það ekki. Það var ótrúlegt
að stökkva hér og heyra allan þenn-
an fjölda kalla nafn manns. Ég mun
aldrei gleyma þessari stund,“ sagði
Pedroso glaður í bragði eftir sigur-
inn.
Pedroso hefur sett sér það takm-
ark að ná heimsmetinu í langstökki.
Heimsmetið er í eigu Bandaríkja-
mannins Mike Powell, 8,95 metrar
sem hann stökk í Tokyo árið 1991 en
ólympíumetið er orðið 32 ára gamalt.
Það er í eigu Bandaríkjamannsins
Bob Beamon, 8,90 metrar, sem hann
setti á Ólympíuleikunum í Mexíkó
árið 1968.
Ljósiðí~
j myrkrinu
SIGUR Pedroso færði ör-
litla birtu yfir annars
dimmasta dag sem Kúbu-
1 búar hafa upplifað á al-
þjóðlegu móti. Hafnabolta-
lið landsins tapaði fyrir
Bandaríkjunum íúrslitum,
fjórir hnefaleikakappar,
sem vonast var til að kæmu
heim með gull, töpuðu,
karlaliðið í blaki er úr leik
og Daimi Pernia komst
ekki á pall í 400 m grinda-
hlaupi. Allt þetta á einum
degi - á þeim degi sem
?! Kúbubúar fagna skipan
byltingarráðs Castros fyr-
ir ijöratíu áram.
M 13 \
Þessi skemmtilega mynd sýnir Koi
antinos Kenteris á braut 5 koma fyrs
í mark í 200 m hlaupinu. Þeir sem ei
hinum brautunum eru sílfurhal
Darren Campbell (6), bronshaf inn A
Boldon (8).