Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 9

Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 B 9 Molde spennt fyrir Bjama BJARNI Þorsteinsson, varnarmaðurinn sterki úr KR, er kominn heim eftir vikudvöl hjá norska úrvalsdeildarliðinu Molde. Að sögn Ól- afs Garðarssonar, umboðsmanns Bjarna, voru forráðamenn Molde mjög ánægðir með það sem þeir sáu til Bjarna. Fyrirhugaðar eru breyting- ar á leikmannahópi Molde eftir tímabilið í Nor- egi og að sögn Ólafs kemur Bjarni sterklega til greina hjá Molde sem nýr Iiðsmaður hjá félag- inu fyrir næstu leiktíð. Menn frá Molde hafa fylgst vel með Bjarna og sáu hann í tveimur leikjum KR-inga í sumar. mmmmm Reuters Christian Ziege og enski leikmaðurinn Paul Ince, sem léku saman með Middlesbrough sl. keppn- istímabil, eftir að England lagði Þýskaland að velli í Evrópukeppninni sl. sumar, 1:0. Rudi Völler valdi Ziege að nýju RUDI Völler landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu hefur valið Christian Ziege frá Liverpool í þýska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Englendingum í undankeppni HM sem fram fer á Englandi þann 7. október. Ziege hefur verið úti í kuldanum um hríð en hann kemur inn í lið- ið í stað Jörg Heinrichs sem er meiddur. Að öðru leyti valdi Völler sömu leikmenn og voru í hópnum sem sigraði Grikki, 2:0, í fyrsta leik Þjóðverja í undankeppninni íyrr í þessum mánuði. Völler hefur stjómað þýska landsliðinu i tveimur landsleikjum og fagnað sigri í þeim báðum. Það er besti árangur sem landsliðsþjálfari Þýskalands hefur náð. Markverðir: Oliver Kahn (Bayem Múnchen) og Jens Lehmann, (Bor- ussia Dortmund). Varnarmenn: Frank Baumann (Werder Bremen), Ingo Hertzsch (Hamburger SV), Thomas Linke (B. Múnchen), Jens Novotny (Bayer Leverkusen), Marko Rehmer (Hertha Berlín). Miðjumenn: Michael Ballack (Leverkusen), Stefan Beinlich (H. Berlín), Sebatian Deisler (H. Berlín), Dietmar Hamann (Liverpool), Car- sten Ramelow (Leverkusen), Mehmet Scholl (B. Múnchen), Dar- ius Wosz (H. Berlín), Christian Ziege (Liverpool). Sókmarmenn: Oliver Bierhoff (AC Milan), Marco Bode (Werder Brem- en), Carsten Jancker (B. Múnchen), Oliver Neuville (Leverkusen) og Paulo Rink (Leverkusen). Keegan valdi sex f rá Liverpool Tap gegn Hvít- Rússum ÍSLENSKA drengjalands- liðið, skipað lcikmönnum undir 16 ára aldri tapaði ( gær fyrir Hvít-Rússum, 2:3, í 11. undanriðli Evrópu- mótsins sem fram fer í Hol- landi. Hvít-Rússar höfðu yfir- höndina í leikhlói, 2:0, en í síðari hálfleik vöknuðu ís- lensku piltarnir til lífsins. FH-ingurinn Sverrir Garð- arsson skoraði skoraði tvö mörk fyrir íslenska liðið en það dugði skammt því Hvít- Rússar bættu við einu marki. Á morgun mæta íslend- ingar liði Færeyinga. Kevin Keegan landsliðseinvaldur Englendinga í knattspyrnu valdi í gær 27 manna landsliðshóp fyrir leikina gegn Þjóðverjum í und- ankeppni HM þann 7. október og gegn Finnum fjórum dögum síðar. Flestir leikmenn í þessu hópi Keegans koma frá Liverpool eða sex talsins, fimm leikmenn eru frá Man- chester United og fjórir frá Arsenal. Keegan valdi hinn unga og stórefni- lega Joe Cole frá West Ham og þá er Robbie Fowler framherji Liverpool í hópnum þó svo að hann sé nýstiginn upp úr meiðslum. Markverðir: David Seaman (Ars- enal), Nigel Martyn (Leeds), David James (Aston Villa). Varnarmenn: Tony Adams (Ars- enal), Martin Keown (Arsenal), Gar- eth Southgate (Aston Villa), Gareth Barry (Aston Villa), Gary Neville (Man.Utd), Phil Neville (Man.Utd), Graem Le Saux (Chelsea), Rio Ferd- inand (West Ham), Jamie Carragher (Liverpool). Miðjumenn: David Beckham (Man.Utd), Paul Ince (Middles- brough), Steve McManaman (Real Madrid), Paul Scholes (Man.Utd), Dennis Wise (Chelsea), Nick Barm- by (Liverpool), Steven Gerrard (Liverpool), Kieron Dyer (New- castle), Joe Cole (West Ham), Ray Parlour (Arsenal). Sóknarmenn: Andy Cole (Man.Utd), Emile Heskey (Liver- pool), Michael Owen (Liverpool), Kevin Phillips (Sunderland), Robbie Fowler (Liverpool). Á íþróttavef mbl.is geturðu fengið að vita allt það mark- verðasta sem er að gerast bæði í handboltanum (1. deild kvenna og karla) og körfu- boltanum. • Skoðaö umferðirnar • Fylgst með stöðu hvers liðs • Fengið upplýsingar um félögin og leikmenn Vefinn er hægt að nálgast í vinstri dálki íþróttavefjarins eða á forsíðu mbl.is. Ekki missa af boltanum! íþróttir á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.