Morgunblaðið - 29.09.2000, Side 12
Morgunblaoið/ Knstinn
Guðlaug Jónsdóttir og íris Sæmundsdóttir berjast um knöttinn og Logi Ólafsson fylgist með í bakgrunninum.
Þekkja veikleika
rúmenska liðsins
Stoke
Cityfékk
heima-
leik við
Bamsley
STOKE City fékk heimaleik
gegn fyrstu deildarliðinu
Bamsley þegar dregið var til
þriðju umferðar ensku deilda-
bikarkeppninnar í knattspymu
í gær. Guðjóni Þórðarsyni,
knattspymustjóra Stoke, varð
því ekki að ósk sinni en hann
hafði vonast eftir heimaleik við
Manehester United.
Það verða hinsvegar Heiðar
Helguson og Jóhann B.
Guðmundsson sem fá meistar-
ana í heimsókn því Watford
fékk heimaleik gegn Manchest-
er United. Heiðar skoraði ein-
mitt gegn United í viðureign
liðanna í úrvalsdeildinni í fyrra
og mun reyna að endurtaka
leikinn að þessu sinni.
Eiður Smári Guðjohnsen og
félagar í Chelsea sækja Liver-
pool heim í stórleik umferðar-
innar og Ipswich, lið Hermanns
Hreiðarssonar, sækir Arsenal
heim á Highbury. Leicester, lið
Arnars Gunnlaugssonar, fékk
heimaleik við Ciystal Palaee.
Bikardrátturinn í heild er
þannig:
Southampton - Coventry
Arsenal - Ipswich
Aston Villa - Man. City
Wimbledon - Middlesbrough
Tottenham - Birmingham
Newcastle - Bradford City
Sheff. Wed. - Sheff. Utd
West Ham - Blackburn
Stoke City - Bamsley
Liverpool - Chelsea
Derby - Blackpool/Norwich
Fulham - Grimsby/Wolves
Leicester - Crystal Palace
Tranmere - Leeds
Bristol Rovers - Sunderland
Watford - Man. United
Leikimir fara fram 31. októ-
ber og 1. nóvember en liðin
leika aðeins einn leik, ólíkt frá
því í síðustu umferð þegar liðin
léku heima og að heiman.
-ÍSLENSKA landsliðið í kvennaknattspyrnu leikur á morgun afar
þýðingarmikinn leik gegn Rúmeníu á Laugardalsvelli kl. 13. Liðið
þarf að hafa betur ætli það að halda sæti sínu í efsta styrkleika-
flokki Evrópu en þetta er síðari viðureign liðanna. Fyrri leikur lið-
anna endaði 2:2 ytra og því nægir íslandi markalaust eða 1:1
jafntefli. Mikill hugur er í stúlkunum og eru þær ákveðnar í að
leggja sig fram i leiknum til að halda íslandi í hópi bestu knatt-
spyrnuþjóða í Evrópu.
Rúmenía vann sinn riðil í næsta
styrkleikaflokki fyrir neðan og
sigri liðið í leiknum gegn Islandi
kemst það í efsta
fe Björk styrkleikaflokk á
Eysteinsdóttir meðan það íslenska
skrifar fellur í næsta fyrir
neðan. Aðeins lið í
efsta styrkleikaflokki eiga mögu-
Jeika á að komast í úrslitakeppni
næsta heims- og Evrópumóts. Það
lið sem situr eftir leggur því upp í að
minnsta kosti fjögurra ára baráttu
um að eiga möguleika á sæti á stór-
móti.
íslenska liðið hefur æft saman
alla vikuna og hefur Logi Óiafsson
landsliðsþjálfari verið að stilla sam-
an strengina. „Þessi leikur er mjög
mikilvægur. Við þurfum að halda
okkur innan þessa styrkleikahóps til
að geta haldið okkur í keppni við
þau lið sem við höfum verið í sam-
keppni við á undanfornum árum,“
Skgði Logi sem finnst leikurinn ekld
síður mikilvægur fyrir knattspyrnu-
sambandið. „Einnig þurfum við að
vinna til þess að eiga möguleika á að
fleyta okkur eitthvað áfram innan
kvennafótboltans. Við sjáum bara
þennan riðil sem Rúmenía var að
vinna. Þar eru lið eins og Hvíta-
Rússland og Eistland. Þetta er því
líka gífurlegt fjárhagslegt spursmál
fyrir sambandið hvað varðar ferða-
kostnað. Út frá framtíð fótboltans
er leikurinn mikilvægur hlekkur í
því að reyna að minnka bilið milli
okkar og þeirra bestu,“ sagði Logi.
Liðsheildin mikilvæg
Rúmenía skoraði bæði sín mörk
úr vítaspyrnum í fyrri leiknum á
meðan íslenska liðið lék góðan sókn-
arleik og var mjög skapandi. Vörnin
var einnig föst fyrir í þeim leik og
gerði fá mistök. „Liðsheildin verður
að vera okkar aðalstyrkleiki í þess-
um leik og stemmningin verður að
vera í lagi. Við höfum náð mjög góð-
um úrslitum þegar þessir hlutir hafa
verið í lagi þannig að ég held að við
verðum að stefna að því að ná upp
sömu baráttu og við náðum úti. Þar
var virkilega góð vinnsla í liðinu og
stúlkurnar voru að gera ágætis
hluti. Við töldum okkur vera snuðuð
að vissu leyti í dómgæslunni í þeim
leik, sérstaklega er ég þá að vísa til
þeirra tveggja vítaspymudóma sem
komu þar. Eg tel að við eigum að
geta nýtt okkur þá veikleika sem við
sáum í þeirra liði. Við þurfum að
spila vamarleikinn þéttann. Eg veit
að við eigum eftir að skapa mark-
tækifæri eins og við gerðum úti. Við
ætlum að vinna þennan leik,“ sagði
Logi ákveðinn.
Hefur skorað í síðustu
tveimur landsleikjum
Mikill léttleiki var yfir íslenska
landsliðinu á æfingu í gær og í lokin
fór fram leikur milli yngri og eldri
leikmanna. „Náttúrulega unnu
þessar gömlu eins og undanfarin
fimm skipti. Ætli við vinnum ekki af
því meiriparturinn er KR-ingar,“
sagði markahrókurinn Olga Fær-
seth létt á brún. „Ég reyni alltaf að
skora, það er engin spurning. Það
hefur gengið upp í síðustu tveimur
leikjum þannig að ég sé ekkert því
til fyrirstöðu að gera það aftur á
laugardaginn," sagði Olga og bætti
við að mikill hugur væri í liðinu. „Við
emm staðráðnar í að gera vel. Við
vitum hvað þetta lið getur og við
teljum okkur vera betri þannig að
það er bara létt yfir þessu og við
ætlum að sigra á laugardag.“ Þrátt
fyrir að íslandi dugi jafntefli, ef
hvort lið skorar færri en tvö mörk,
er líklegt að liðið leiki öflugan sókn-
arleik. „Við vomm með fimm í vörn
síðast en náðum samt að sækja mik-
ið á þær þannig að það kæmi mér
ekki á óvart ef við lékum með fjórar
í vörn núna en það á eftir að koma í
ljós,“ sagði Olga en ásamt því að
skora tvö mörk með landsliðinu
skoraði hún 26 mörk í deildarkeppn-
inni í sumar. „Mér hefur persónu-
lega gengið mjög vel í sumar,“ bætti
Olga brosandi við.
Morgunblaðið/ Kristinn.
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari segir stúlkunum til og á meðan
nota þær tímann til að teygja á vöðvum.