Morgunblaðið - 30.09.2000, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000 E 7
REYKJAVÍK - MENNINGARBORG EVRÓPU 2000
ÚTVARP-RÍKISÚTVARPIÐ- BYGGINGAR. ÚTVARPSHÚSIÐ, VIÐ EFSTALEITI.
Afmælishátíö Ríkisútvarpsins
Sögusýning í tilefni af 70 ára
afmæli Ríkisútvarpsins veröur
opnuð 8. desember í Ráöhúsi
Reykjavíkur.
MEÐ sýningunni í Ráðhúsinu lýkur hátíða-
höldum vegna 70 ára afmælis Ríkisútvarps-
ins. Sýningin stendur yfir frá 8. til 21. des-
ember. Þar verður hægt að fylgja þróun á
starfssviði Ríkisútvarpsins í þau 70 ár sem
það hefur starfað, bæði hvað snertir búnað
á heimilum til móttöku dagskrár og tækni-
þróun í útsendingu og dagskrárgerð í út-
varpi og sjónvarpi.
Á sýningunni verður sett upp hljóðstofa,
búin sömu tækjum og voru á Skúlagötu 4 ár-
ið 1960 og veðrður hún notuð til fjölbreyttra
útsendinga þann tíma sem sýningin stendur.
Jafnframt gefst tækifæri til þess að rifja
upp eitt og annað úr dagskrám liðinna ára í
Ríkisútvarpinu, meðal annars gamla Reykja-
víkurþætti úr sjónvarpsdagskrám. Þá verða
sérstakar dagskrár fluttar á sýningunni, en
opnunartímar hennar verða hinir sömu og
Ráðhússins, kl. 8.00 -19.00 virka daga, en
kl. 12.00 -1800 laugardaga og sunnudaga.
Sem fyrr segir hefst sýnlngin 8. desem-
ber. Sérstök hátíðadagskrá verður við opn-
unina, þar sem verður m.a. flutt nýtt tón-
verk eftir Guðmund Hafsteinsson fyrir fiðlu
og píanó, en það voru fyrstu hljóðfæri, sem
heyrðust í útsendingum útvarpsins 1930.
Þá verður einnig frumflutt á opnunarhátíð-
inni verðlaunaverk úr samkeppni, sem efnt
var til í tilefni 70 ára afmælis ríkisútvar-
psins. Þar er um að ræða tónverk, sem sam-
ið verður fyrir sömu hljóðfæraskipan og var í
útvarpshljómsveitinni er hún var stærst,
1940 -1950.
Bæði eru þessi verk myndarlega styrkt af
Reykjavík menningarborg 2000. Samkvæmt
upplýsingum yfirstjórnar RÚV hefur sam-
starf Ríkisútvarpsins og menningarborgar
2000 sett sérstakan og ánægjulegan blæ á
afmælisár RÚV.
Suede og
Flaming Lips
koma fram
Alþjóölega tónlistar-
hátíöin lceland Airwav-
es verður haldin í ann-
aö sinn dagana
19.-21. október.
MEÐAL erlendra hljómsveita
sem koma fram á tónlistarhátíð-
inni Iceland Airwaves 2000 er
breska stórsveitin Suede. Það eru
Flugleiðir í samstarfi við Reykja-
vík - menningarborg Evrópu árið
2000, Ferðamálaráð, útgáfufyrir-
tækið EMI og Mastercard Int-
emational sem standa í samein-
ingu að alþjóðlegu tónlistar-
hátíðinni Iceland Airwaves, sem
haldin verður í annað sinn dagana
19.-21. október nk. Fjölmargar ís-
lenskar hljómsveitir og tónlistar-
menn auk nokkurra þekktra er-
lendra hljómsveita, þ.á m. Suede,
Flaming Lips og Thievery Cor-
poration, munu troða upp á hátíð-
inni. Gert er ráð fyrir að nærri tvö
þúsund erlendir tónleikagestir
sæki hátíðina frá öllum markaðs-
svæðum Flugleiða og stefnir í að
enginn annar viðburður menning-
arborginnar á Islandi laði að fleiri
erlenda gesti.
Tilgangurinn með hátíðinni er
annars vegar að gefa íslenskum
tónlistarmönnum tækifæri á að
kynna sig og tónlist sína að við-
stöddum fjölmörgum fulltrúum
erlendra útgáfufyrirtækja og hins
vegar að markaðssetja ísland sem
miðstöð menningar og skemmt-
analífs, einkum meðal ungs fólks
beggja vegna Atlantshafs.
Flugleiðir bjóða forsvarsmönn-
um allra helstu plötufyrirtækja
heims gagngert til íslands til að
sjá hæfileikaríka íslenska tónlist-
armenn á sviði. Gert er ráð fyrir
að um hundrað manns úr tónlist-
arbransanum í Evrópu, Banda-
ríkjunum og Japan sæki tónlistar-
hátíðina auk fjölda blaðamanna.
Tónleikar verða haldnir á
mörgum stöðum samtímis í menn-
ingarborginni Reykjavík tónleika-
dagana, í Laugardalshöll og á
nokkrum völdum skemmtistöð-
um. „Hátíðin fellur mjög vel að
þeirri stefnu menningarborgar-
innar að kynna íslenska menningu
á alþjóðavettvangi," segir Skúli
Helgason, framkvæmdastjóri inn-
lendra verkefna hjá menningar-
borginni.
„Við væntum þess að á hátíðinni
muni innlendir og erlendir gestir,
jafnt áhugamenn sem fagmenn, fá
að sjá og heyra það besta úr fjöl-
breyttri íslenskri tónlistarflóru.
Allt bendir til þess að Iceland
Airwaves-hátíðin verði sá við-
burður í dagskrá menningarborg-
arinnar á Islandi sem flestir er-
lendir gestir sækja,“ segir Skúli.
„Flugleiðir ýttu fyrstu alþjóð-
legu tónlistarhátíð sinnar tegund-
ar á íslandi úr vör í fyrra með það
í huga að styðja við bakið á ís-
lenskum tónlistarmönnum og
höfða til yngri markhópa í íslan-
dsferðum," segir Magnús Step-
hensen, markaðsstjóri Flugleiða í
Norður-Ameríku. „Sú viðleitni að
koma íslenskum tónlistarmönnum
á framfæri hefur þegar borið
nokkurn árangur en eftir hátíðina
í fyrra var tveimur íslenskum
hljómsveitum boðið til tónleika-
halds í Bandaríkjunum."
Talsverður áhugi reyndist vera
erlendis fyrir tónleikunum í fyrra
en alls komu rúmlega 500 manns á
fyrstu Iceland Airwaves-tónlistar-
hátíðina. „í ár gerum við fastlega
ráð fyrir að erlendir tónleikagest-
ir verði nærri tvö þúsund, þar af
um 1.200 manns frá Bandaríkjun-
um, en hátíðin verður markaðs-
sett á öllum markaðssvæðum
Flugleiða,“ segir Magnús.
Stafrófið stórkostlega
Sýningí nýju húsnæöi
Borgarbókasafnsins
sem verður opnuð hinn
9. desember.
STAFRÓFIÐ stórkostlega 9.12. Á
nýjum samastað Borgarbókasafns-
ins við Tryggvagötu 15 opnar sýning
þar sem gestir eru leiddir inn í völ-
undarhús stafrófsins. Áður en þeir
komast heilu og höldnu út aftur hafa
gestir villst inn í undraheima rit- og
bókmenningar, munnlegrar frásagn-
ar, upplýsingatækni margmiðlunar
o.m.fl. skemmtilegt. Sýningu Borg-
arbókasafnsins er ætlað að höfða til
allra aldurshópa. Stafrófið stórkost-
lega verður opnað 9. desember kl. 14.
Fyrsta alþjóðlega
raf- og tölvutón-
listarhátíðin
ART - Alþjóöleg raf- og
tölvutónlistarhátíö -
verður haldin í Salnum í
Tónlistarhúsi Kópavogs
18. október nk. og
stendurítíu daga.
ÞAÐ er Tónlistarskóli Kópavogs
sem stendur fyrir hátíðinni í sam-
vinnu við Reykjavík - menningar-
borg Evrópu 2000 og Kópavogsbæ.
„Þetta er í fyrsta skipti sem al-
þjóðleg hátíð af þessu tagi er hald-
in á íslandi," sagði Hilmar Þórðar-
son forstöðumaður ART 2000.
,Á hátfðinni munu koma fram
fjölmörg atriði sem ekki eiga sér
forsögu í tónlistarflutningi á ís-
landi. Fyrirkomulag hátíðarinnar
er þannig að boðið er upp á fyrir-
lestra fyrir hverja tónleika, þar
sem gestir hátíðarinnar munu
ræða um sína tónlist og framtíð
tölvutónlistar. Tónleikarnir verða
ellefu og allir í Salnum. Auk þess
verður boðið upp á sérstaka kvöld-
og næturdagskrá að afloknum tón-
leikum, sem haldnir verða á Gauk
á Stöng. Þar munu einnig koma
fram auk tónlistarmanna helstu
skífuþeytarar og hljóðgjörninga-
menn landsins.
Ég vil vekja athygli á helstu
tónleikaatburðum, þar sem tónlist
og aðrir listmiðlar tengjast. Þar
má nefna tónlist eftir Jöran Rudi,
norskt tónskáld sem látið hefur
gera tölvuforrit sem breytir tón-
listinni í mynd - um leið og hlust-
að er, er ferðast um hljóðheiminn í
kvikmynd. Wayne Sigel, danskt
tónskáld, kemur með dansara með
sér sem dansar ekki bara við tón-
listina heldur mun einnig sjá um
tónmótun um leið og hún dansar.
Þetta er gert með vöðvaskynjurum
sem hannaðir hafa verið við Diem-
stofnunina sem Sigel veitir for-
stöðu. Einnig má nefna tónleika
þar sem kemur fram sjálfspilandi
píanó sem voru vinsæl snemma á
öldinni, tónleika með Don Buchla,
sem er brautryðjandi í nútíma
hljóðfærasmíði. Auk tónleika með
verkum Pol Lansky, yfirmanns
tónlistardeildar Princeton-háskóla
í Bandaríkjunum og tónleika
breska tónskáldsins Trevor Wis-
hard. Þá má nefna Biosphere og
Bernhard Gunter, sem eru „hljóð-
kyrrðar“ tónlistarmenn. Þáttur ís-
lendinga er einnig mjög veigamik-
ill, nefna má sem dæmi Skúla
Sverrisson bassaleikara, hljóm-
sveitina Stilluppsteypu og orgel-
kvartettinn Apparat." Vefslóðin er
www. musik.is/art2000. Forsala er
hafin á discovericeland.com
Sýning á
jólamerkjum
Thorvald-
sensfélagsins
Thorvaldsensfélagiö
verður meö sýningu á
jólamerkjum sem opnuö
verður 19. nóvember í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
„SÝNINGIN heitir: Jólamerki í 88
ár,“ sagði Guðlaug Jónína Aðal-
steinsdóttir, formaður Thorvald-
sensfélagsins. „Félagið hóf að gefa
út jólamerki 1913 til fjáröflunar og
hefur útgáfan verið árviss síðan, að
undanskildu einu ári, það var árið
1917 en þá fórst skipið sem merkin
það ár voru um boð í á leið til
Íandsins.
Venjulega höfum við fengið lista-
menn til að teikna merkin fyrir
okkur eða fengið afnot af listaverk-
um. Aðeins tvö merki eru með t
mynd eftir Bertil Thorvaldsen. í ár
er jólamerkið prýtt mynd eftir Guð-
laugu Halldórsdóttur textíllista-
konu.
Myndin er af gylltum krossi á
rauðum grunni og ber nafnið: Al-
heimskærleikur. Krossinn er til
minningar um 1.000 ára afmæli
kristnitöku á íslandi. Sýningin .
stendur í eina viku.