Morgunblaðið - 13.10.2000, Blaðsíða 14
Aukið eftirlit í harðri samkeppni er nauðsyn
Hópferðabifreiðar eru skoðaðar árlega. Því má hins
vegar velta fyrir sér hvort ekki sé eðlilegt vegna
mikillar notkunar að bílamir séu jafnframt skoðaðir
sérstaklega um mitt sumar. Auka þarf eftirlit með
dekkjabúnaði allt árið um kring, ekki síst á vetram,
þar sem það er á ábyrgð ökumanns hvort ekið er af
' stað á lélegum dekkjum. Ef samviskusami ökumaðurinn
neitar að fara af stað á vanbúnum bíl er alltaf hægt að
finna svartan sauð sem tilbúinn er að taka túrinn.
Eftirlit virðist almennt vera tilviljanakennt. Dæmi er um
að ökumaður sem keyrt hefur í fjórtán ár var nú í sumar
stöðvaður í fyrsta sinn vegna sérstakra athugana lögreglu
og Vegagerðar.
Upplýsingar verða að standast
Upplýsingar Vegagerðarinnar um færð á vegum ættu að
vera bílstjóram hópferðabíla og farþegum þeirra ómet-
anlegt öryggistæki. Vegagerðin ber ábyrgð á því að
skera úr um hvort vegir séu færir eða ófærir. Mikilsvert
er að skilboð um ófæra vegi standist í raun því annars
er hætt við að ýmsir reyndir bílstjórar á stóram og
traustum bílum fari sínar eigin leiðir og tefli þá ef til
vill á tæpasta vað.
Lengi má bæta
Það geta flestir verið sammála um að brýn nauðsyn er á
að auka öryggi í hópferðaakstri, sérstaklega þegar blasir
við að ferðamennska og þar með hópferðaakstur er í
öram vexti, en um leiðirnar getur menn hins vegar
greint á. Fátt er svo fullkomið að ekki megi bæta og
það á líka við um öryggi í hópferðaakstri. Er það nokk-
ur framtíðarmúsik að óska eftir skýram reglum um bíl-
beltanotkun i hópferðabilum? Er það ekki eðlileg krafa
að verkleg þjálfun rútuprófsnema verði aukin þannig
að þeir fái markvissari og lengri þjálfun sem eykur lík-
ur á réttum viðbrögðum við aðsteðjandi vanda. Aukið
eftirlit með búnaði hópferðabíla sem margir eru á ferð-
inni allt árið um kring hlýtur jafnframt að vera eitt af
forgangsatriðum í öryggismálum í hópferðakstri.
Höfundur er atvinnubílstjóri ogfélagi
í Hjálparsveit skáta Reykjavík.
Umferóarslys
- eru ökutækin orsakavaldur?
Jón Hermannsson
í kjölfar þeirrar gífurlegu
aukningar sem orðið hefur á
umferðarslysum hér á landi
undanfarið hljóta menn að
velta fyrir sér ástæðum um-
ferðarslysa. Eru þau alltaf
ökumönnunum að kenna, um-
ferðarmannvirkj um
eða einhverju öðru?
arslysa hafi 1 mjög fáum tilfellum farið
fram. Rétt er að benda á að slíkar rann-
sóknir era í mörgum tilfellum mjög dýrar
og e.t.v. nánast óframkvæmanlegar þar sem
þurft getur að kalla út hóp af séfræðingum
á vettvang um langan veg. Á meðan þarf að
vemda skaðasvæði mjög vandlega og í
sumum tilfellum að loka því sem ekki er
alltaf gjörlegt, sérstaklega þegar umferð
kemst ekki aðrar leiðir.
Tœplega sjö þúsund ökutæki hafa ekki veriðfœrð til lögboðinnar skoðunar á þessu ári.
Framleiðslugallar hafa fundist
En er að verða breyting á orsökum umferð-
arslysa? Nýlega hefur stór bifreiðafamleið-
andi viðurkennt að hafa sent gallaða vöra á
markað en ekki er ljóst hvort það hafi haft
áhrif á öryggi í umferðinni. Stór hjólbarða-
framleiðandi hefur einnig lent i sömu
hremmingum og upplýst er að framleiðsla
hans hefur valdið tugum banaslysa.
Hafa íslenskar aðstæður áhrif
á öryggisbúnað ökutækja?
Þeirri spumingu má velta upp hvort íslenskar aðstæður
séu sérstaklega erfiðar eða varsamar? Hefur t.d. veðurfar,
vega- og gatnakerfið ásamt þeim efnum sem íslendingar
nota til hálkueyðingar áhrif á endingu öryggisbúnaðar
ökutækja? Ef svo er þá þurfa ökumenn og eigendur öku-
tækja að vera um það meðvitaðir og sinna samviskusam-
lega nauðsynlegu bifreiðaeftirliti og skoðun.
Sinna menn viðhaldi ökutækja í góðærinu?
Löng bið er stundum eftir þjónustu til viðhalds öku-
tækja vegna þeirrar spennu sem ríkir á íslenskum
vinnumarkaði. Pað kann að vera freistandi fyrir aðila
sem gerir út hóp ökutækja að nota þann mannafla sem
hann hefur yfir að ráða, og ætti að sinna viðhaldi, til að
aka og afla tekna þegar ekki fæst starfsfólk til að sinna
þeim þætti eins og verið hefur síðustu misseri vegna
skorts á vinnuafli.
Á götunum kunna að finnast tifandi tímasprengjur!
Samkvæmt nýjustu fáanlegu upplýsingum Skráningar-
stofunnar hf. höfðu 6842 ökutæki ekki verið færð til
lögboðinnar aðalskoðunar 1. júni síðastliðinn. Aldurs-
skipting þessara ökutækja er þannig að 635 ökutæki
eru 1-5 ára, 1985 ökutæki era 6-10 ára, 2494 ökutæki
era 11-15 ára, 838 ökutæki 16-20 ára og 890 þeirra
ökutækja sem ekki hafa verið færð til skoðunar era yfir
20 ára. Hér er rétt að staldra við því samtals hafa 4479
ökutæki 6-15 ára gömul ekki skilað sér til skoðunar.
Athyglisvert! Einmitt á þessu árabili ganga flest ökutæki
sér til húðar, misfljótt eftir akstri, umhirðu og gæðum
upphaflegrar framleiðslu. Getur verið að þessar bifreið-
ar séu tifandi tímaspregjur í umferðinni?
Vilja íslendingar bætt umferðaröryggi?
Svör við þessum vangaveltum mínum fást e.t.v. aldrei
án markvissra rannsókna en þær eru mjög kostnaðar-
samar. Með auknu umferðareftirliti sem dómsmálráð-
herra hefur nú boðað sem langtímamarkmið era vonir
bundnar við að reglugerðum um skoðun ökutækja
verði markvist framfylgt. Umferðareftirlit undanfarin ár
hefur nær eingöngu beinst að ökumönnum.Vilji menn
auka umferðaröryggi gæti verið nauðsynlegt að bæta
eftirlit með ástandi ökutækja, t.d. með þvi að færa þau
í auknum mæli til aukaskoðunar eða jafnvel fjölga
skylduskoðunum á atvinnuökutækjum og þeim öku-
tækjum sem mikið er ekið.
Höfundur er ökukennari og stjómarmaður
í Slysavamafélaginu Landsbjörg.
Nákvæmar rannsóknir ekki fyrir hendi
Niðurstöður úr erlendum rannsóknum síðustu ár
benda til að það sé í flestum tilfellum ökumaðurinn
sem gerir mistök. Ályktanir sem dregnar era af skýrslu-
tökum hér á landi benda til hins sama. Ég kýs að kalla
íslenskar niðurstöður um umferðarslys ályktanir þar
sem ég tel að nákvæmar rannsóknir á orsökum umferð-
Eru óskoðaðir btlar tifandi tímasprengjur?
Slysavarnafélagið Landsbjörg þakkar
eftirtöldum fyrirtækjum fyrir stuðninginn:
Aðalskoðun
Almannavamir ríkisins
Bílaspítalinn
Borgarbílastöðin
ET
Fiskifélag Islands
Fjarskiptastöðin Gufunesi
Framtak
Framherji
Hafnarsamlag Eyjafjarðar
V
lá------------------------
Hátækni
Hitaveita Suðumesja
íslensk erfðagreining
KPMG
Kynnisferðir
LÍÚ
Löndun
Merkúr
Morgunblaðið
Nói-Síríus
Nýja sendibílastöðin
Pharmaco
Samtök atvinnulífsins
Siglufjarðarhöfn
Skýrr
Slippfélagið
Thorarensen lyf
Ölgerðin Egill Skallagrímsson
Öryggisjónusta Suðurlands
Össur