Morgunblaðið - 15.11.2000, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 15.11.2000, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 C 7 KÖRFUKNATTLEIKUR EIRÍKUR Önundarson var í fararbroddi ÍR-inga, sem voru sterkari á endasprettinum í leik gegn Þór í Seljaskóla í gærkvöldi. Eftir jafnan leik framan af sigu heimamenn framúr og sigruðu örugglega, 95:76. Eiríkur gerði 26 stig og gaf ellefu stoðsendingar. Vitað var fyrir viðureignina að úr- slit leiks ÍR og Þórs gátu farið á hvorn veginn sem var. Þar mættust lið, sem bæði eru skipuð ungum og Rögnvaldsson Þ1 óttmiklum leik- skrifar mönnum sem eru til alls vísir. Það var því ógjörningur að spá fyrir um úrslit viðureignarinnar. Þórsarar voru lengi vel skrefi framar í fyrri hálfleik. Óðinn As- geirsson fór þá hamförum og gerði nítján stig fyrir hlé, hélt gestunum á floti. Það dró af honum í síðari hálf- leik, en þá gerði hann fimm stig. Sömu sögu er að segja af sóknarleik Þórs í heild sinni, en þeir brugðust illa við pressuvöm ÍR-inga, sem þeir beittu yfii- allan völlinn, og svæðis- vörn þegar Þórsarar stilltu síðan upp í sókn. Góður varnarleikur ÍR í síðari hálfleik lagði þannig gi-unninn að sigrinum. Eiríkur stjórnaði leik sinna manna af stakri prýði, var iðinn við stigaskorun og lagði auk þess upp ófá færin fyrir félaga sína. Hreggviður Magnússon sýndi einnig stórgóðan leik. Þar er lipur og íjölhæfur piltur á ferð. Á lokamínútum héldu ÍR-ingai’ sýningu og léku sér að Þórsurum. Allur vindur var úr gestunum. Óðinn gat ekki haldið uppteknum hætti og láir honum hver sem vill. Clifton Bush var ekki jafnöflugur og hann á að sér og aðrir hlekkir í keðjunni náðu einfaldlega ekki saman. En það leikur enginn betur en and- stæðingurinn leyfir. ÍR-ingar skelltu í lás á réttum tíma og uppskáru eftir því. Þeir komust þannig upp fyrir Þórsara í Epson-deildinni, eru komn- ir með átta stig, en Þór er með sex. Gloppótt hjá Keflvíkingum 35 stig. Vörumerki Keflvíkinga, þriggja stiga skotin, rötuðu ekki rétta leið og liðið skoraði aðeins fjór- ar slíkar en Hjörtur Harðarson var með þrjár af þeim og Guðjón Skúla- son eina. „Þessi leikur var ekkert skyldu- verkefni þótt einhverja stemmningu hafi vantað í lið okkar í kvöld. Hamar er með gott lið og við komum eins í alla leiki en þetta var frekar þungt hjá okkur að þessu sinni. Stundum ei-um við einfaldlega ekki betri en stigin enj kærkomin og við ætlum okkur að halda efsta sætinu áfram. Við erum á áætlun miðað við það sem lagt var upp með í haust þrátt fyrir að vera ailtaf með einhverja menn í meiðslum," sagði Sigurður Ingi- mundarson, þjálfari Keflvíkinga. „Ég hélt að mitt lið hefði meiri trú á eigin getu, en við vonim inni í þess- um leik allan tímann," sagði Pétur Ingvarsson leikmaður og þjálfari Hamars. „Eins og staðan er í dag þá er Keflavík einfaldlega með betra lið en við og það hefur ekki gengið vel hjá okkur á útivelli í vetur. Það mátti kannski búast við því að þetta yrði erfitt en við misstum þetta klaufa- lega frá okkur í 4. leikhluta og þar liggur munurinn á miðlungs liði og góðu,“ bætti Pétur við. Morgunblaðið/Golli Leikmenn Þórs frá Akureyri áttu ■ erfiðleikum með að stöðva Eirík Önundarson, leikmann ÍR, sem skoraði 26 stig í viðureign liðanna í gærkvöldi. I Grindvíkingar lentu í kröppum dansi Efsta lið úrvalsdeildarinnar, Kefl- víkingar, virtist ekki þurfa að hafa mikið fyrir að leggja Hamar frá Hveragerði á heima- velli sínum með 91 stigi gegn 77. Heima- menn virkuðu væru- kærir og aðeins Jón Norðdal Hafsteinsson og Calvin Davis virtust leika af eðlilegri getu. Hamar var aldrei langt undan og tíu stig skildu liðin í leikhlé og að loknum 3. leikhluta var forysta Keflvíkinga 7 stig, 71:64. Afleitur kafli gestana í upphafi 4. leikhluta gerði það að verkum að sundur dró með liðunum. Skarphéðinn Ingason leikmaður Hamars átti ágætis leik og barðist vel ásamt Pétri Ingvarssyni. Mið- herjar liðsins, Hjalti Pálsson og Æg- ir Jónsson, áttu aldrei möguleika undir körfunni gegn Calvin Davis og þurftu 18 skottilraunfr til að skora saman 12 stig. Bandaríkjamaðurinn, Chris Dade, var ógnandi framan af leik en þegar á þurfti hvarf hann í meðalmennskuna og skoraði aðeins 4 stig af alls 26 í leiknum á lokakafla leiksins, öll úr vítum. Leikmenn Keflavíkur voru úti á þekju i 3. leikhluta og þegar liðiið rankaði við sér á lokakafla leiksins voru yfirburðir þeirra miklir á öllum sviðum. Calvin Davis lék afbragðsvel í liði Keflavíkur og tók 15 fráköst, varði 6 skot, stal 5 boltum og skoraði Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar ÞAÐ hafa flestir sjálfsagt reiknað með auðveldum sigri Grindvík- inga gegn KFÍ en liðin áttust við í Grindavík í gærkvöldi. Gestirnir frá ísafirði voru ekki á sama máli. Þeir voru yfir í leikhléi, 50:56, en urðu að játa sig sigraða í blálok leiksins 99:91. Garðar Vignisson skrifar Kjörísbikarmeistar Grindavíkur . virtust ætla að halda áfram sömu skotsýningu og þeir voru með um helgina en gestunum frá ísa- firði fannst ekkert leiðinlegt heldur og í fyrsta leik- hluta lágu átta þriggja stiga körfur og leikurinn í fínu jafnvægi. Heima- menn höfðu eins stigs forystu í lok fyrsta leikhluta, 31:30. Gestirnir héldu áfram uppteknum hætti og náðu 8 stiga forystu, 35:43, og þá var Einari Einarssyni þjálfara nóg boðið og tók leikhlé. Gestirnir héldu áfram að hitta og forysta þeirra hélst nokkur stig til hálf- leiks. ísfirðingar höfðu því verð- skuldað forskot í hálfleik, 50:56. Það var því búist við því að heima- menn fengju góðan lestur í hálfleik og sjálfsagt var það þannig en breytingin var lítil og gestirnir leiddu með nokkrum stigum. Ekki var útlitið hjá heimamönnum gott þegar Kim Lewis fékk sína fjórðu villu eftir rúmar fjórar mínútur af seinni hálfleik. En það virtist að- eins kveikja í heimamönnum sem náðu forustunni með Pál Axel Vil- bergsson í fararbroddi sem skoraði jafnt og þétt allan leikinn og skor- aði alls 38 stig í leiknum. Leikurinn var síðan í járnum næstu mínúturn- ar. Þegar fimm mínútur voru til loka leiks var staðan 84:84, en þá var Kim Lewis kominn inná. Heimamenn tóku góðan kipp og Is- firðingar misstu móðinn og á skammri stundu breyttu heima- menn stöðunni í 95:84. Leiknum lauk síðan með sigri heimamanna, 99:91, en mótspyrna gestanna kom verulega á óvart. Bestir í liði gestanna voru þeir Dwayne Fontana og Sveinn Blön- dal en hjá heimamönnum átti Páll Axel Vilbergsson stórleik. „Það var gott að ná í tvö stig í þessum leik eftir að hafa unnið bikarinn um helgina. Við náðum okkur ekki al- veg niður á jörðina en ísfirðingarn- ir komu á óvart, Kaninn hjá þeim sterkur (Dwayne Fontana) og nokkrir sterkir einstaklingar með honum,“ sagði Páll Axel. Tindastóll marði sigur Tindastóll þurfti að hafa fyrir sigri sínum á heimavelli gegn Skallagrími en lokatölur urðu 87:78. Skallagríms- menn byrjuðu mun betur en heima- menn og skoruðu grimmt í upphafi leiksins, en síðan náðu heimamenn að komast inn í leikinn með góðum leikkafla þegar Péturlngi Bjömsson skrifar Snæfell fær Júgóslavann MIRKO Virijevic, 19 ára körfu- knattleiksmaður frá Júgóslavíu, liefur fengið leyfi frá Alþjóða körfuknattleikssambandinu, FIBA, til að ganga til liðs við 1. deildar lið Snæfells. Körfuknatt- leikssamband Júgóslavíu hafði sett honum stólinn fyrir dyrnar en samkvæmt reglum þess var hann of ungur til að fara úr landi. Virijevic kemur frá Rauðu stjörn- unni og er tveggja metra hár og ætti að reynast Stykkishólmslið- inu góður styrkur. þeir breyttu stöðunni úr 2-9 í 14-9, en eftir það datt leikurinn niður, gestirnir náðu að jafna, varnir beggja liða voru slakar, en það kom ekki að sök því að sóknirnar voru bitlitlar. Mikið var um mistök og lengstum var jafnt á stigum eða lið- in skiptust á að leiða með tveim til fjórum stigum. Heimamenn höfðu þó oftar frumkvæðið og höfðu eitt stig yfir í hálfleik. í þriðja leikhluta virtist flest fara úrskeiðis hjá báð- um liðum og þegar eftir lifðu þrjár mínútur af leikhlutanum höfðu heimamenn skorað átta stig en gestirnir sex, og hver sóknin af annarri rann út í sandinn með þriggja stiga skotum sem geiguðu eða sendingum sem misfórust. Á lokasprettinum hresstust menn nokkuð og virtist nú sem þeir gerðu sér grein fyrir því að nú væri að duga eða drepast. Bæði liðin börðust vel og með harðfylgi tóks heimamönnum að innbyrða sigur á lokamínútunum, sem langt í frá vafr' auðveldur. I liði Tindastóls var Adonis Pom- ones bestur, en Myers, Antropov og Kristinn Friðriksson áttu spretti en Lárus Dagur átti einnig góðan dag í vörninni. Hjá Skallagrími var Warren Peebles bestur en einnig átti Sigmar Egilsson góða kafla svo og Ermolinskij og Egill Örn. >

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.