Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 8
8 C FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐIÐ
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmBmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmBSKaMmmmammmmmmmmmmaamsam ^TrwiwHffiwi'r i TfíiiwiwBBwwwBMBBHHBBaBBaHwwaBBBBi
* Frumsýning /Bíóborgin frumsýnir bresku myndina Human Trafficeftir Justin
Kerrigan meö John Simm \ aðalhlutverki.
Helgar-
Ijor
Fimm ungir Bretar taka þátt í
^»villtum partíum yfir eina fjörlega
helgi í bresku myndinni Human
Traffic frá árinu 1999 þar sem
koma við sögu eiturlyf, dans, kyn-
líf, poppmenningarlegar samræður,
ástarsambönd og margt, margt
fleira.
Jip (John Simm) er sögumaður
myndarinnar, sem á í nokkrum
vandræðum með kynlífið. Koop
(Shaun Parkes) er plötusnúður
sem á við of lítið sjálfsöryggi að
glíma en hann óttast það helst að
kærastan hans, Nina (Nicola Reyn-
olds), sofi hjá öðrum mönnum.
Nina þolir ekki starfið sitt og bíður
óþreyjufull eftir helgunum þegar
hún á frí. Lulu (Lorraine Pilking-
ton) er besti vinur Jips og dauð-
þreytt á kærastanum sínum, sem
heldur sífellt framhjá henni. Og
Moff (Danny Dyer) virðist ekki geta
flúið það
svarthol sem
líf hans er.
Human
Traffic fylg-
ir þessum
fimm ein-
staklingum
eftir yfir
eina helgi og
■* við sjáum
hvernig
hver og einn kynnist m.a. ástinni,
vináttu og sjálfsfullnægingu en í
bakgrunni eru hin villtustu partí.
Þannig er söguþráðurinn í
bresku gamanmyndinni Human
Traffic sem hefur undirtitilinn The
Weekend has Landed eða Helgin
er komin! Myndin er frumsýnd í
dag í Borgarbíói en með aðalhlut-
verkin fara John Simm, Shaun
Parkes, Nicoia Reynolds, Lorraine
Pilkington og Danny Dyer. Leik-
Human Traffic: Lorralne Pilkington íhlutverkisínu.
Á galeiðunni: Myndln segir frá nokkrum vinum sem
skemmta sér eina helgi.
Human Traffic
Leikarar:
John Simm, Shaun Parkes,
Nicola Reynolds, Lorraine Pilk-
ington og Danny Dyer.
Leikstióri:
Justin Kerrigan.
stjóri er Justin Kerrigan en hann
skrifar einnig handrit myndarinn-
ar. Human Traffíc var líkt við
skosku framleiðsluna Trainspott-
ing þegar hún var frumsýnd í Bret-
landi í fyrra. Myndin skoðar „eitt
helsta menningarafl sem komið
hefur fram í Bretlandi og er stærra
en rokkararnir og hipparnir", eftir
því sem höfundur myndarinnar,
Kerrigan, segir.
Hann er að tala um
„reifið". Kerrigan
segist hafa gert
myndina vegna þess
að hann ólst sjálfur
upp við þetta „menn-
ingarafl" og fannst
hann þekkja það
nógu vel til þess að
fjalia um það af
kunnáttusemi. Hann
segist byggja myndina á eigin
reynslu. Hann segist ekki reyna að
skýra það út hvers vegna ungdóm-
ur dagsins neytir eiturlyfja eða búa
til neikvæða ímynd af unglingum.
Miklu fremur, segir hann, er hann
að reyna að búa til mynd í ætt við
verk Woody Allens, fulla af innsæi
í heim unga fólksins, kynslóðarinn-
ar sem notar eiturlyf en afneitar
ofbeldi. Eiturlyf eru aðeins hluti af
helgarfjöri þessa fólks.
Bónus fyrir
korthafa
Nú getur þú greitt með EUROCARD og
MasterCard greiðslukortum í Bónus!
Human Traffíc er þannig mjög
persónuleg mynd Justln Kerrigans
sem fjallar um sína eigin kynslóð
og blandar í frásögnina gamansemi
og alvöru. Flestir leikararnir í
myndinni eru óþekktir. Þekktastur
er h'klega John Slmm sem leikið
hefur nokkuð í sjónvarpi og kvik-
myndum; var m.a. í Wonderland.
Lorraine Pllkington er í myndinni
Breathtaking, sem gerð er á þessu
ári, og Shaun Parkes var m.a. í
Rage og sjónvarpsþáttunum Lock,
Stock and Two Smoking Barrels."
Frumsýning /Regnboginn frumsýnir
nýja heimildamynd um fótboltafélagiö
Manchester United þar sem rætt er m.a.
viö SirAlex Ferguson.
Skorað: Andy Cole náði öðru markl liðs síns gegn Newcastle nýlega.
Rauðu
djöflarnir
Kvikmyndahúsið Regnboginn frum-
sýnir í dag nýja heimildarmynd um
breska knattspyrnufélagið Man-
chester United en til undantekninga
heyrir að heimildamyndir séu teknar
til almennra sýninga í kvikmynda-
húsum hér á landi.
Framleiðandi er lcon Entertain-
ment, kvikmyndafyrirtæki í eigu
súperstjörnunnar Mel Gibsons, en
myndin heitir á frummálinu Man-
chester United Beyond the Promis-
ed Land. Manchester United er sagt
ríkasta knattspymufélag í heimi og
segir myndin frá starfsemi þess og
hetjum liðsins og ferðalögum en hún
byrjar á sögufrægum sigri United á
Bayern Múnchen. Fylgst er með
stjómarfundum, farið inn í búnings-
klefana, ferðast til Tokyo þar sem
trylltir aðdáendur taka á móti
hetjum sínum og þar fram eftir göt-
unum.
A meðal þeirra sem fram koma í
myndinni má nefna Slr Bobby Charl-
ton, Martin Edwards, Tom Jones,
Paul McCarthy, Slr Alex Ferguson
og leikmenn liðsins frá Beckham til
Jaap Stam og Fabian Bartez.
Leikstjóri myndarinnar er Bob
Potter. „Ég hafði sérstakt yndi af því
að setjast niður með Slr Alex og
spjalla við hann,“ er haft eftir leik-
stjóranum. „Hann er ákaflega jarð-
Skorað: Teddy Sheringham fagnar
fyrsta markl í leik gegn Leicester
City í vikunni, ásamt félaga sínum
Mikael Silvestre.
bundinn maður sem hefur mikla
ánægju af fótboltanum en lætur
hann þó ekki skyggja á annað í lífinu.
Hann er mjög hændur að fjölskyldu
sinni, eiginkonu og börnum. Ég held
að lýsingin á honum sem villtum
knattspyrnueinvaldi sé talsvert ýkt.
Ég hef hitt margar íþróttahetjur um
ævina og hann er alveg sérstakur.“
Bob Potter sérhæfir sig í gerð
mynda úr heimi íþróttanna. Hann
hefur gert myndir um kappa eins og
Shaqullle O’Neal, Pete Sampras og
André Agassi.
Potter hefur einnig fengist við
gerð leikinna bíómynda og má þar
nefna King of the Jungle með John
Leguizamo, Raosie Perez, Anna-
bella Sciorra og Marisa Tomey,
Spark með Nlcole Ari Parker og A
Brother’s Kiss með Rosie Perez,
Marisa Tomei og Michael Rapaport.
Enn um
Larsog
dansarann
ÞAÐ þarfekki aö fara mörg-
um orðum um þaú, að Lars
von Trier skiptir áhorfendum
í tvo hópa, þá sem elska
hann og hina, sem geta ælt,
þegar þeir heyra á hann
minnst. Nú hefur sænska
blaðið Expressen komist að
því, að þetta er ekki bara
andleg ákvörðun, heldurgeta
legið líkamlegar ástæður að
baki.
Samsuöan af órólegri
myndavélahreyfingu,
sterkum sjónáhrifum
og miklu tilfinninga-
legu áreiti, sem áhorfendur
veröa fyrir í Dancer in the
Dark, getur nefnilega orsakað
bílveiki. Blaðið vitnar í kvik-
myndafræðinginn Cecilia
Mörner, sem segir að þetta
sé ástæðan fyrir því aö margir
hafa orðiö að yfirgefa kvik-
myndasalinn meðan á sýn-
ingu myndarinnar stóð í
Stokkhólmi. Það er þó hægt
að sleppa fram hjá þessu,
segir í blaðinu, - með því að
taka eina sjóveikipillu áöuren
maðursest. En Triererekki
einn um að geta kallað fram
bílveiki, The Blair Witch Proj-
ect mun einnighafa valdið
mörgum áhorfendum ógleöi.
Er það ekki dálítið kald-
hæönislegt, að Trier, sem er
haldinn ferðaofnæmi, - hann
fer helst aldrei neitt -, skuli
geta kallaðfram bílveiki hjá
áhorfendum?
Enn um dogma
ítilefni af frumsýningu O
Brother Where Art Thou?\
Danmörku varviötal við þá
Coen-bræður. Og að sjálf-
sögöu barst talið að dogma.
Þeir bræður höfðu ekki séð
Myrkradansarann en þekktu
samt vel til dogma. „Það vek-
ur ekki sérstaklega áhuga
okkar. Þetta er hálf klikkaö.
Jafnvel þeir, sem gera þessar
myndir geta ekki varist því aö
brosa, þegarþeirtala um
þetta opinberlega. Það erí
sjálfu sér áhugavert, þetta
með að skera burt allan
óþarfa og snúa til baka til ein-
faldleikans, en þetta hugtak
dogma er mjög undarlegt.
Það er ekki þar með sagt að
dogma-myndirnar séu undar-
legar. T.d. er Festen mjög
góö, en allt þetta tal um
dogma er mjög skrítiö. Það er
einna helst hægt að líta á
þetta allt saman sem brand-
ara frá Trlers hendi,“ segja
þeir Coen-bræður.
Það er ekki að ástæðu-
lausu að undirritaöur hefur
verið einlægur aðdáandi
bræöranna allt frá því að þeir
sendu frá sér sína fyrstu
mynd, Blood Simple. En það
ernúönnursaga.
Brandari eða bilun, þá lifir
dogma fyrirbrigðið góöu lífi í
dönskum fjölmiðlum. Nú er
verið að taka upp mynd nr. 7 f
þessum flokki, og heitir hún
því frumlega nafni Ástarsaga.
Leikstjóri er Ole Christian
Madsen, sem áður hefur leik-
stýrt Pizza King og sjónvarps-
þáttaseríunni Edderkoppen,
sem nú ertil sýninga á ís-
landi.