Morgunblaðið - 03.12.2000, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ
38 B SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000
bfLU þyugsi í! pBS :
ÁriiJ Bfml sna'ó n'ó
OTI-ljúzió ijJurj'íiiJíl
hjúipiió jjöJxJíí 'ÍóJJg: I
„Á þremur vikum gjörbreyttist heilsufar
drengsins. Hann fékk áhuga á umhverfinu,
fór að vakna bardagalaust á morgnana og
varð athugull og líflegurtil augnanna.*
Helga Guðrún, Kópavogi
Suðurlandsbraut 10, 2.h.
53 333 53 • www.ljoslifandi.is
ísnr ir^íyj-uip0
r í c h t! o l 'j o r
HÁTÍÐARFATNAÐUR
fÁ
ÍSLENSKRA KARLMANNA
* * é__________
Tilboð
kr. 26.900
út desember
Hátíðarföt
með vesti úr 100%
ull, skyrta og næla
Stærðir 46— 64
98—110
25— 28
Hátíðarfatnaður íslenskra
karlmanna hefur notið mikilla
vinsælda frá því farið var að
framleiða hann.
Færst hefur í vöxt að íslen-
skir karlmenn óski að
klæðast búningnum á tyl-
lidögum svo sem við
útskriftir, giftingar, á
17. júní, við opinberar
athafnír hérlendis og
erlendis og við öll önnur
hátíðleg tækifæri.
gallerisauTján
Herradeild Laugavegi, sími 511 1718.
Herradeild Kringlunni, sími 568 9017.
DÆGURTÓNLIST
yósmynd/Björg Sveinsdóttir
Vítamín Egill Sæbjörnsson syngur í Laugardalshöllinni á Airwaves-hátíðinni.
Uppskera af
einkabúgarðinum
EGILL Sæbjömsson, sem þekktari
er sem myndlistarmaður, sendi frá
sér breiðskífuna Tonk of the Lawn
fyrir skemmstu og hefur fengið fyrir
góða dóma. A plötunni kemur hann
fram undir nafnninu Eagle og hefur
jafnan birst með svarta síða hár-
kollu. Góðar viðtökur hér heima, og
ekki síst erlendis, hafa aftur á móti
orðið til þess að Egill hefur tekið
tónlistina af meiri alvöru enda er
hann á leið út að kynna sig á tvenn-
um tónleikum í vikunni.
Egill segir að viðtökumar við
Tonk of the Lawn og góðir
dómar hafi komið sér þægilega á
óvart. „Ég er vitanlega ánægður
með tónlistina en hafði kannski ekki
mikla trú á því að öðram þætti hún
skemmtileg, þetta vora heimatilbúin
vítamín fyrir mig. Ég er því afskap-
lega þakklátur og glaður yfir því að
fólk kunni að meta lögin.“
Þótt Egill hafi aðallega starfað að
myndlist er Tonk of the Lawn ekki
fyrsta skífa hans því The Inter-
national Rock n’ Roll Summer of
Egill Sæbjörnsson kom út á síðasta
ári. Hann segir að lögin á Tonk of
the Lawn séu ekki samin á svo ýkja
löngum tíma en hann vinni yfirleitt
þannig að grannur lags verður til á
einu kvöldi en síðan getur tekið
nokkra daga eða nokkra vikur að
Ijúka við lagið. „Þetta er eins og að
mála mynd, ég byrja í einu hominu
og svo þróast myndin eftir því sem
ég er að mála hana. Ég fæ hugmynd
og byrja strax að taka hana upp og
vinna áfram. Stundum er ég búin að
mála yfir alla myndina mörgum
sinnum og niðurstaðan allt önnur en
ég átti von á þegar ég byrjaði á verk-
inu en stundum nægja fáir drættir."
Egill, sem leikur á öll hljóðfæri á
plötunni, segist hafa verið nánast
búinn með lögin þegar hann fór í
hljóðver að ganga frá þeim til útgáfu
en það fór hálfur dagur í hvert lag.
Valgeir Sigurðsson vann lögin með
honum og Egill segir að það sam-
starf hafi gengið afskaplega vel.
„Við fóram í gegnum lögin og völd-
um á plötuna og ég fór síðan aftur til
Þýskalands, en ég hef verið með
vinnustofu þar, fór yfir lögin og
breytti því sem okkur fannst þurfa
að breyta. Það var mjög gott að fá
Valgeir að þessu, sérstaklega í
hljómvinnslunni, enda er hann svo
fær í því. Annars hefur þetta verið
algjört stofuverkefni hjá mér.“
A umslagi plötunnar nefnir Egill
ófeiminn áhrifavalda sína við gerð
viðkomandi lags og hann segist ekki
geta verið að fela það að hann sé
undir áhrifum frá öðram tónlistar-
mönnum. „Ég er alltaf að hlusta á
aðra tónlist og verð eðlilega fyrir
áhrifum af henni, af þeim tónlistar-
graut sem í er allt frá hiphop í
þungarokk, enda hlusta ég á allar
gerðir tónlistar," segir Egill en bæt-
ir svo við að hann hafi aldrei pælt
sérstaklega í því hvað hann væri að
hlusta á enda hafi hann aldrei litið á
sig sem tónlistarmann. „Þetta er
búið að vera einkabúgarður í tíu ár
þar sem ég hef ræktað alls konar
grænmeti og kvikfénað og mjög fáir
hafa komið inn á þann garð. Mér líð-
ur hálfeinkennilega að vera orðinn
tónlistarmaður enda hef ég nóg að
gera í myndlist og er einmitt að taka
þátt í stórri sýningu í Gerðubergi."
Eins og fram kemur í upphafi er
Egill á leið til útlanda, nánar tiltekið
Lundúna, að halda tvenna kynning-
artónleika en breskur umboðsmaður
kom hingað til lands að sjá hann á
Airwaves-hátíðinni eftir að hafa
heyrt kynningarapptökur. Honum
leist svo vel á að Agli var boðið að
koma út og leika á tvennum tónleik-
um til að kynna sig fyrir breskum
útgáfufyrirtækjum, 5. og 7. desem-
ber. Egill segist ekki vera neitt sér-
staklega stressaður yfir þeirri ferð,
sér ftnnist þetta allt saman frekar
furðulegt að það sé fullt að fólki að
vinna fyrir hann í útlöndum og
skipuleggja tónleika og tilheyrandi.
„Þetta verður bara ótrúlega
skemmtilegt,“ segir hann en Valgeir
fer með út sem bassaleikari og Arn-
ar Geir Ómarsson leikur á trommur
en einnig verður Egill með tvær
bakraddasöngkonur og hugsanlega
einn mann til viðbótar sem leika
mun á hljómborð.
Handunnir massífir
viðarbarir í úrvali
20% afsláttur
Sigurstjama
Urval af
glæsilegri
gjafavöru
Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 45451
Hja úrsmiönum
HÖa.
SjuflsÁarljripir
demanÍahúsið
i Kringlan 4-12, slmi 588 9944