Morgunblaðið - 03.12.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.12.2000, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Regine Neumann fæddist í austurhluta Prússlands árlð 1939, en varö að yfirgefa landið i sfðarl helmsstyrjöld ásamt fjölskyldu slnni. Hún fór ung að aldri alein til til Svíþjóðar, fslands og Austurríkis og svo tll Finnmerkur í Norður-Noregi, þar sem hún flentist og hefur búið síðan ásamt dönskum manni sínum, llstmálaranum, arkitektinum og gull- og silfursmlðnum Frank Juhls. Silfur í landi Samanna Dag einn komu nokkrir Samar til þelrra hjóna með silfurmuni og báðu þau um að lagfæra þá. Þetta voru gripir sem ver- ið höfðu í eigu þeirra lengi, jafnvel legið á kistubotni í hundruð ára, og voru aðal- lega fengnir frá Rússlandi og Vestur-Nor- egi. Þessi beiðnl varð til þess, að Regine og Frank héldu til Kaupmannahafnar og lærðu gull- og silfursmíði. Efsta myndin til vinstri sýnlr hreindýr og er ævafomt beltisskraut, sem talið er upprunnið frá Rússlandi. Önnur myndin er sylgja með ýmsum táknum, m.a. hjarta, og í því og um kring er laufblað með upphleyptum krossi. Neðsta myndln sýnir einhverja rjúputegund og er einnig gamalt mótíf. Að ofan er svo vfravirkissylgja með fom- um táknmyndum kærlelkans, tveimur fuglum að „kyssast". Saga Regine Neumann er ævintýri líkust. Barn að aldri las hún íslensku fornritin og hreifst af anda og baráttuþreki norrænu víkinganna og ásetti sér að gerast landnemi eins og þeir. Átján ára gömul fór hún því til Norður-Noregs, gekk í vist hjá Sömum og kynntist þar dönskum einbúa. í dag reka þau eitt þekktasta silfur- smíðafyrirtæki á Norðurlöndum. Sigurður Ægisson var á dögunum í Kautokeino og hitti konuna að máli, sem nú heitir Regine Juhls. KOMDU sæll og blessað- ur,“ sagði hún brosandi á íslensku, þegar fundum okkar bar saman í glæsi- legri verslun þeirra hjóna, Silfursmiðju Juhls, nokióni utan við sjálfan byggðakjamann. „Ég elska ísland,“ bætti hún svo við, og augnaráðið varð dreymandi. Ég vissi eiginlega ekki hvaðan á mig stóð veðrið, því ekki hafði mig rennt í grun, að þessi mann- eskja hefði komið til Islands. En ánægjulegt var þetta óneitanlega, að vera heilsað svona á móðurmálinu. Af þýskri konu, vel að merkja. Og það í Finnmörku, miðju landi Samanna. Þegar ég hafði náð áttum á ný, bað ég Regine um að segja mér nánar frá kynnum sínum af íslandi. Það kvaðst hún fús myndu gera, en sagði jafn- framt að það væri óaðskiljanlegur hluti af annarri sögu og meiri. Bækur miklir áhrifavaldar í Irfi hennar „Bækur hafa alla tíð verið miklir áhrifavaldar í lífi mínu. Ég hef lesið margt og látið heillast af því,“ hóf Regine mál sitL „Ég er ættuð frá Austur-Prússlandi, sem tapaðistí síð- ari heimsstyrjöldinni. Þar hafði fólkið mitt búið í hundruð ára, alltaf á sömu jörðinni, Rosengard, sem er á milli Marienburg og Elbing. Allir sem voru af þýskum ættum urðu að yfir- gefa landið. Afi minn varð eftir, en svipti sig lífi þegar allir voru famir, gat ekki hugsað sér að vera þar án fjölskyldunnar. Okkur var því kastað út úr landinu og tilvfijun ein réð hvar við lentum á þýskri grund, en það reyndist vera nærri Helmstedt, við landamæri Austur-Þýskalands. Og þar óx ég úr grasi. En ég fann að þetta var ekki rétt. Auðvitað átti ég sjálf að fá að ráða hvar ég vildi búa. Upp úr því fór ég að láta mig dreyma. Og í bókum kynntr ist ég fólki sem átti heima langt í burtu, á fjarlægum stöðum. Og ef- laust er þetta ein ástæðan fyrir því, að íslendingamir hafa átt jafn mikið rúm í þjarta mínu og raun ber vitni, allt frá því ég var 11-12 ára gömul, því ég las einmitt íslendingasögumar um það leyti, á þýsku. Að víkingar skyldu fara næstum tómhentir á litl- um bátum yfir Atlantshafið og nema land á ókunnum slóðum og byggja þar upp og halda síðan áfram til Am- eríku, öll þessi saga heillaði óumræði- lega unglingsstúlku, sem dreymdi um að gera eitthvað svipað, að finna sér heimili af eigin rammleik og dáðum. Og mér fannst líklegast að helst væri að finna ósnortið land einhvers staðar á nyrstu slóðum.“ Var neitað um fararieyfi til íslands Þar kom að Regine vildi ekki halda áfram í skóla, en í þess stað langaði hana að fara til íslands. Þegar hún sagði foreldrunum af þessari áætlun varð þeim ekki um sel, þótti full gróft af henni að ætla til þeirrar frumstæðu og hættulegu eyjar í Norður-Atlants- hafi, á mörkum hins byggilega heims. Svo að ekki mátti hún það. Hér má sjá dæmi um skartgrip! í Túndruiínunni. Þar er m.a. horft til þess smávaxna í náttúrunni, sem kemur í ijós á vorin, eftir langa dvöl undir snjóalögum Finnmerkur. En margt annað kemur þar elnnig vtð sögu, elns og grelna má í eyrnalokk- unum, þar sem fyrirmyndln er svanir. „En eftir mikla baráttu gáfu þau mér hins vegar leyfi til að fara til Sví- þjóðar; íbúar þess lands voru a.m.k. í hópi siðaðra, að þeim fannst,“ hélt Regine áfram. „Svo að það varð úr að ég fór þangað, árið 1966. Ég man að ég fékk vinnu á tveimur veitinga- stöðum. Á öðrum þeirra starfaði ég fram undir miðjan dag og á hinum svo þaðan og fram undir miðnætti. Á þennan hátt gat ég að lokum safnað mér nægilegu fé til að kaupa far með Heklu til íslands, sem ég og gerði. Ég fékk vinnu í Reykjavík hjá einhverj- um fiskverkunarfyrirtækjum, sem ég man ekki lengur nöfnin á. í öðru þeirra, sem var inni í bænum, lituðum við ufsann rauðan og suðum niður. Hitt var saltverkunarfyrirtæki, ekki svo langt frá Bræðraborgarstíg 19, þar sem ég bjó hjá Ólafi Jónssyni og fjölskyldu. Ég man að það var óhenyu erfitt starf og kalt að eiga við þunga saltfiskpokana. Síðla hausts var ég beðin um að kenna þýsku í forföllum á Bifröst, og það var allt annað. Yfir jólin var ég á Akureyri en fór svo þaðan til Reykja- víkur með fiskiskipi. Það var stormur alla leiðina og ég hef aldrei verið jafn sjóveik um ævina og þá. Eflaust bjargaði það lífi mínu, að stýrimaður- inn var svo almennilegur að lána mér kojuna sína.“ Menningin eða náttúran? Um vorið hélt Regine til Vínar- borgar í Austurríki, hugðist nema þar leiklist; ekki vegna þess að hana lang- aði í glanslífemi eða eitthvað slíkt, heldur vakti það fyrir henni að gefa þeim fjölmörgu persónum, sem hún hafði kynnst í bókmenntunum, líf. „Ég ímyndaði mér að ég fengi að leika í einhveiju verki eftir Shake- speare eða Schiller eða Ibsen og þar fram eftir götunum,“ sagði Regine. „En þegar ég kom í leiklistarskólann, rann það upp fyrir mér, að þessu var dálítið öðruvísi farið en ég hafði gert mér í hugarlund. Það eitt að fá að taka þátt í bara einhverju leikriti hefði út af fyrir sig verið þakkarefni, að ekki sé meira sagt. Þama höfðu menn ekki áhuga á bókum, heldur því einu að skemmta, ánægjunnar vegna. Ég hvarf því á braut og kom beina leið hingað tíl Finnmerkur, árið 1957; ekki til að dvelja hér um aldur og ævi, heldur til að komast að því hvort mér fyndist vega þyngra í lífinu, náttúran eða menningin. Ég lagði dæmið þannig upp fyrir mér, að Samamir væra eina náttúraþjóðin sem eftír væri í Evrópu, og ef ég gætí fengið að dvelja á meðal þeirra og ráfa með þeim um fjalllendið, takandi þátt í vinnu og öðra, m.ö.o. lifa af og með náttúrunni eins og þeir, myndi ég komast að hinu sanna. Og ég var svo heppin að fá að ganga inn í eina fjöl- skylduna héma og láta þennan draum rætast Það var allt mjög frumstætt í Sam- alandi á þeim tíma, öðruvísi en nú er. Og ég man að í huga mér breyttist ísland skyndilega í háþróað ríki. Hér var búið í tjöldum. Ég gekk með hreindýrahjörðunum um fjalllendið eins og aðrir, og verkaði skinn, klauf við, tjaldaði og hvað eina. Þetta var ákaflega lýjandi, en þó mjög áhuga- vert og gefandi, nokkuð sem ekki er hægt að upplifa lengur. Ég var lán- söm, kom áður en tímamir breyttust til þess sem nú er.“ Annar skrýtínn útlendingur í Samalandi „Hin eiginlega ástæða fyrir því, að ég loks valdi að búa í Finnmörku, var bókin „Gróður jarðar“ eftir Knut Hamsun, sem ég las 15 ára gömul eða svo. En aðalpersóna bókarinnar er ísak, sem er einmitt landnemi og heiðarbúi og einyrki. Á þessu flakki mínu á norðurslóð- um heyrði ég einn daginn um annan útlending í Samalandi, danskan mann, Frank Juhls að nafni, sem bjó einn og lifði af veiðiskap, en var einn- ig listmálari. Hann var nokkuð eldri en ég, fæddur 1931. Samamir hvöttu SJÁSÍÐU 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.