Tíminn - 25.11.1965, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.11.1965, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 25. nóvember 1965 TÍMINN Eíns og kunnugt er heí- ur verið lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um hægri handar akstur. f fylgiskjali með frumvarpinu er grein- argerð frá Statens Höger- trafikkkommíssionen, og eru þar. nokkrar staðreyndir, er breytíng í hægri handar um ferð stendur fyrir dyrum í Svíþjóð. Fylgiskjalið fer hér á eftir, en í því er margs konar fröðleikur. Svíþjóð er eina landið á meg- inlandi Evrópu, sem hefur vinstri handar umferð. Auk þess er vinstri handar umferð m. a. í Stóra-Bretlandí, írlandi og á íslandi. í 40 ár hefur ver- ið rætt um Það, hvort breyting í hægri handar umferð skuli framkvæmd. Saga málsins. í tilskipun, sem gefin var út 1718, var hægri handar umferð lögfest í Svíþjóð. Þar stóð nefni lega: ,,Ef hraðpóstmenn mæt Íast, skulu þeir víkja til hægri hver fyrir öðrum, en á mjóum vegum, brúm og þvílí'ku, á sá réttinn, sem fyrst blæs í horn- ið.“ Frá og með 1734, er ný til- skipun gekk í gildi, hefur vinstri handar umferð hins veg ar verið í gildi. Fyrstu lög um vinstri handar umferð fyrir bifreiðastjóra eru frá 1916. Ellefu árum síðar lagði stjórn i skipuð nefnd til við þingið, að rannsakað yrði, hve mikill kostnaður yrði af breytingu í hægri handar umferð. Aðrar tillögur um hægri handar um- ferð hafa síðan verið bornar fram i þínginu árin 1934, 1939, 1941, 1943, 1945 og 1953. Eftir að rannsókn hafði farið fram, mælti nefnd með því ár- ið 1954, að breytt yrði í hægri handar umferð í vega- og gatna umferð, en ekki í járnbrautar- kerfinu. Ráðgefandi þjóðarat- kvæðagreiðsla um málið fór fram í október 1955. Meiri hluti þeirra, sem atkvæði greiddu, óskaði að halda vinstri handar umferðinni, og Þingið tók á- kvörðun í samræmi við ósk meiri hlutans. Umferðin yfir landamærí okk ar, sem óx hröðum skrefum, gerði það hins vegar að verk- um, að enn á ný varð að taka afstöðu til málsins. í desember 1960 fól samgöngumálaráðuneyt ið Gösta Hall, yfirforstjóra vega málastjómarinnar, sem dóm- bæmm manni á þessu sviði, að rannsaka, hve mikill kostnaður vrði af breytingu í hægri hand ar umferð. Árangurinn af rann sókninni lá fyrir 31. október 1961. Sama ár var iagt til í Norður landaráði, að mælt yrði með því víð Svía, að þeir breyttu yfir í hægri handar umferð vegna hins mikla mikilvægis þessa fyrir Norðurlönd. Ráð- gjafarþing Evrópuráðsins sam þykkti ályktun þar sem athygli ríkisstjómanna var vakín á Því, að æskilegt væri, að sama umferðarregla gilti í ailri Evr ópu. Fram til 1963 var spumingin um hægri handar umferð rædd ítarlega innan stjórnmálaflokk- anna og ríkisstjórnarinnar Sam- göngumálaráðherra lagði til í frumvarpi á þingi 1963, að tek in yrði grundvallar ákvörðun um að breyta yfir í hægri hand ar um&erð. Hinn 10. maí leyst ist málið endanlega með því, að þingið tók ákvörðun um að taka upp hægri handar um- ferð áríð 1967. akstur Alþjóðleg aðlögun — aukið öryggi. Breytingin í hægri handar urnferð skal gilda fyrir umferð á vegum og götum, svo og umferð sporvagna. Breytingin nær ekki til jámbrautanna. Breytingin í hægrí handar um- ferð er gerð til þess að auð- velda alþjóðaumferð á vegum og útiloka þau slys og þá slysa hættu, sem er afleiðing Þess, að við höfum aðrar umferðar- reglur en nágrannalönd okkar og næstum öll önnur lönd Evr- ópu. Svíþjóð er ekki fyrsta iand ið, sem breytir úr vinstri hand ar umferð í hægri handar. Kan ada, Austurríkí, Tékkóslóvak- ía, Ungverjaland, Portúgal, Arg entína og Etíópía eru nokkur þeirra landa sem áður hafa framkvæmt samsvarandi breyt ingu. Skipulagning. Ríkisstjórnin hefur skipað nefnd (statens högertrafik kommission), sem í er formað ur og 6 nefndarmenn. Hefur hún i'angið það verkefni að skípuleggja og framkvæma um ferðarbreytinguna. Formaður nefndarinnar er Bertil Fallen íus landshöfðingi. Varaformað ur og framkvæmdastjóri er Gösta Hall yfirforstjóri. Tvær ráðgefandi nefndir- hvor um sig skipuð 10 mönnum, eru aðalnefndinni til aðstoðar. í annarri þeirra eru sérfræð ingar í tækni og fjárhagsmái um. Eru þar fulltrúar frá vinnu málastjóminni, strætis- og si>or vagnafyrirtækjum, fjármála- og samgöngumálaráðuneytunum. samtökum bifreiðaeígenda, bæj arfélögum, bifreiðaverksmiðju- iðnaði og verkstæðum og vega- málastjórninni. | hinni, um- ferðaöryggisnefndinní, eru full trúar frá landssambandi eftir- launafólks, alþýðusambandinu, læknasamtökum, samtökum bif reiðaeigenda, landssambandinu til aukningar öryggis í umferð inní, stjórn ríkislögreglunnar, fræðslumálastjórninni, um- ferðaröryggisnefnd ríkisins, rík isútvarpi og sjónvarpi og sam tökum vátryggingafélaga. Þetta á að gerast fyrir H daginn. Ekkert annað iand, sem breytt hefur úr vinstrí í hægri handar umferð, hefur gert það við eins flóknar aðstæður og hinar sænsku. í Svíþjóð er til tölulegur fjöldi ökutækja (1 bíll á hverja 5 íbúa) mun meiri og kröfur til umferðaröryggis ins mun strangari en í Þeim löndum, sem áður hafa fram kvæmt samsvarandí umferðan breytingu. Þess vegna er ekki unnt að meta mikils reynsluna af þessum þreytingum. Tíminn milli ákvörðunar þingsins og framkvæmda um ferðarbreytingarinnar verður um það bil 4 ár. Þessí langi undirbúningstími er nauðsvn- legur til þess, að unnt sé að gera hinar mörgu, óhjákvæmi legu, tæknilegu breytingarráð- stafanir og skipuleggja upplýs- inga- og áróðursstarfsemi þann íg, að árangurinn verði sem mestur fyrir umferðaröryggið. Tæknilegur undirbúningur- Strætisvagnar- og langferða- bifreiðir. Það, sem tekur mestan tíma og er kostnaðarsamast, er vinn an við að breyta hinum 7000 strætisvögnum og langferðabif reiðum, sem í landinu eru, þannig að þá megi nota í hægri handar umferð. Yfirleitt hafa bifreiðirnar nú inn- og útgöngudyr aðeins á vínstri hlið. Þess vegna verður að setja hægri dyr á þær bifreiðir, sem á einnig að nota eftir H dag- inn. f mörgum bifreiðum, sem aðeins eínn maður sér um, verður að flytja vagnstjóra- rýmið frá hægri til vinstri. Sumar tegundir Þarfnast svo dýrra breytinga, að það verður ódýrara að taka vagna af þeim gerðum úr umferð og setja nýja vagna í stað þeirra, fyrr en ella hefði orðið, ef áætlað- ur notkunartími hinna fyrri eft ír H daginn er tiltölulega stutt ur. Vinnan við breytingarnar og framleiðslu nýrra vagna er svo umfangsmikil, að öll þau verk stæði, sem aðgengileg eru til þessa, verða notuð allan tím- ann fram til H dagsíns. Nú þegar eru mörg hundruð svokallaðra breytingarvagna í umferð. Þeir eru byggðir fyrir hægri handar umferð, en hafa einnig dyr á vinstri hlið. Vinstri dyrnar verða notaðar fram að H degínum. Á ýmsum strjálbýlisleiðum munu hreinir hægrivagnar. þ e. vagnar með dyrum eingongu á hægri hlið, verða notaðir þegar fyrir breytinguna. Sér- stök öryggisákvæði verða sett vegna Þeírra til þess að auka öryggi farþega, sem fara í þá og úr, frá veginum. Stöðvunarskylda mun verða fyrir alla umferð, þegar þannig svonefndur undanþágu vagn nemur staðar við biðstöð. Einnig mun verða nauðsynlegt að nota mi'kinn fjölda vinstri- vagna eftir breytínguna. Sömu reglur munu þá gilda fyrir þá. Sporvagnar. Sporvagnaumferð er nú í 5 stærstu borgum okkar. í Stokk hólmi og Helsingjaborg munu strætisvagnar koma í stað spor- vagna frá og með deginum sem breytingin fer fram. í Málmey verður aðeins haldið áfram að starfrækja eina sporvagnaleið. í Gautaborg og Norrköpíng mun sporvagnaumferðin halda á- fram og hún verða aukin. Því verður að gera vissar breyting ar á vögnum í þessum borg- um. Götur og vegir. Götur og vegir eru yfirleitt jafn nothæfir fyrir vinstri og hægri handar umferð. Hins veg ar verður að br^yta allmörgum umferðarsvæðum og gatnamót um. Mikinn hluta Þeirra um- ferðarmerkja, umferðarljósa og merkja á akbrautum, sem eru í notkun, verður að flytja eða breyta. og snúa verður öllum skrásettum bifreíðastæðum, svo að þau verði notkunarhæf með nýju aksturstefnunni. Ýmsar vegavélar, eins og snjóplógar og grassláttuvélar, eru gerðar fyrir vinstri handar umferð ein göngu, og verður því að breyta þeím eða fá nýjar. Flest vandamálin munu skap ast í borgum og stærri bæjum. Þar er fyrst athugað, hvemig einstefnuaksturskerfið muni revnast í hægri handar umferð og hvemig því þurfi ef til vill að breyta, þar sem það hefur bein áhrif á skípulag umferðar svæðanna. Síðan era gerðar vinnu- og tímaáætlanir. Þar sem umferðin verður að vera óhindruð með vinstri hand ar umferð fram að H deginum og í hægri handar umferð strax á eftir, verður að gera ýmsar bráðabirgðaráðstafanir tíi þess að auðvelda breytinguna. M. a. gera sérfræðingar ráð fyrir að geta notað færanleg sporvagna biðstæði. Breytingarvinnan verður unn in í áföngum. Fyrir H daginn verða gerðar allar Þær breyt- ingar, sem framkvæmanlegar era, þrátt fyrír vinstri handar umferðina. Við umferðarbreyt inguna verða framkvæmdar breytingar á umferðarmerkjum og ljósum, svo og ýmsar bráða birgðaráðstafanir á vegafram- kvæmdum, er síðan verða full gerðar eftir H daginn. Upplýsingastarfsemi. Við umferðarbreytinguna verður það hinn mannlegí þátt ur fyrst og fremst, sem ákveð ur umferðaröryggið. Það ríður á því, að allt verði gert, sem unnt er, til að koma í veg fyr- ir slys með nákvæmri fræðslu og áhrifamiklum áróðri. Það er mjög mikilvægt, að eins margir og unnt er, hafi jákvæð viðhorf til breytingarinnar. Já kvætt viðhorf auðveldar þá venjubreytingu, sem verður nauðsynleg öllum í umferðinni. Þess vegna verður að reka víð ueka uppiýsingastarfsemi til að hafa áhrif á skoðanír fólks í þessa átt. Fræðsla um reglur þær, sem gilda við hægri handar umferð, mun ekki verða veitt, fyrr en stuttu fyrir breytinguna. Þá mun hún hins vegar verða eins öflug og áhrifamikil og unnt er. Nú þegar er hafin barátta, m. a. í umsjá NTF, fyrir Þvi að bæta hina almennu umferðar- menningu fyrir breytinguna i hægri handar umferð. Erfiðustu verkefnin vegna umferðaröryggisins eru að ná til þeirra, sem stríða við sérstök vandamál í umferðínni og að minnka áhættuna fyrir þá hópa í umferðinni, sem eink- um verða fyrir óhöppum, svo sem gangandi vegfarendur, fólb á reiðhjólum og reiðhjólum með hjálparvél. Eitt skilyrði þess, að breyt ingin komist hnökralaust á, er að eins margir og unnt er, hjálpi til við undirbúninginn. Blöðin, útvarp, sjónvarp, skól ar, hernaðaryfirvöld, vinnu- málasamtökin, NTF og hin mörgu samtök þjóðfélagsins geta veitt mikilvæga aðstoð. H dagurinn. Þau atriði sem hafa áhrif á umferðaröryggið við fram- kvæmd breytingarinnar, eru m. a. möguleíkamir á að dreifa upplýsingum, menntun og um ferðareftirlit. Rannsókn sér- fræðinganefndar, sem er stat- ens högertrafikkommission til aðstoðar, hefur leitt í Ijós, að hentugasti tíminn með tillití til þessara atriða er byrjun septembermánaðar. September- mánuður er einnig álitinn hent ugur tími fyrir umferðarbreyt inguna frá tæknílegu og fjár hagslegu sjónarmiði. Högertraffikkommissionen hefur þess vegna lagt til við konung, að dagurinn til breyt- ingarinnar í hægri handar um- ferð verði ákveðinn sunnudag- urinn 3. september 1967. Breyt- ingin mun verða gerð snemma á sunud.morgninum, og gert er ráð fyrir, að nauðsynlegt verði að takmarka umferð á vegum í nokkrar klst. um nótt ina, til þess að unnt verði að gera síðustu breytingamar, svo sem flutning ýmissa umferðar merkja, afhjúpun götuljós- merkja o. fl. á sem liprastan hátt. Þegar umferðín fer síðan í gang aftur, verður það undir mjög ströngu eftirliti. Lögregl an verður styrkt með hermönn um og sjálfboðaliðum, sem munu verða látnir leiðbeina bæði bifreiðastjórum og fót- gangandi fólki. Þar að aukí verð ur sennilega sett tímabundin hraðatakmörkun til Þess að minnka framúrakstur og tjón af þeim óhöppum, sem kunna að verða þrátt fyrir allt. Allar hugsanlegar aðferðir verða not aðar til að minna á nýju um- ferðarregluna og koma í veg fyrir, að fólk taki upp gamla háttu, þangað tíl það hefur full komlega aðlagazt hinu nýja umferðarkerfi. Kostnaður og bætur. Þegar þingið ákvað að koma á hægri handar umferð, var gert ráð fyrir, að kostnaðurinn myndi verða 400 milljónir sænskra króna. Um helmingur þessa kostnaðar er vegna breyt inga á strætisvögnum og lang ferðabífreiðum. Breytingar á Framhald á bls. 12.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.