Alþýðublaðið - 14.03.1959, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 14.03.1959, Qupperneq 1
40. árg. — Laugardagur 14. marz 1959 — 61. tbl Tilboð í semenlsölu lil nýju virkj- uaarinnar opnuð SAMKVÆMT lögum Efna- hagssamvinnustofnunar Evr- ópu (OEEC), skal bjóða út öll verk, sem unnin eru fyrir láns- fé. Verður því að bjóða öll verk hinnar nýju Sogsvirkjun- ar út, og svo er leitað hagstæð- ustu tilboða í efnissölu fyrir virkjunina. Þannig var t. d. leitað tilboða í sementssölu til virkjunarinnar. MÖRG TILBOÐ. Bárust tilboð frá mörgum sementsverksmiðjum í Evrópu, þar á meðal frá Sementsverk- smiðju ríkisins hér. Reyndist tilboðið frá Sementsverk- smiðju ríkisins lægst og má telja víst að því verði tekið. HHHMtMMMiMUMHMMW 4000 TONN. Talið er að þörfin fyrir sem- enti í virkjun Evra-Sogs nemi um 4000 tonnum. Oskilabréfin HER er mynd, sem margur Islendingur mún h'afa gaman af. Hún er tekin á norskum heimamiðum — suður og norð ur af Stad, herrnir fréttin — og þeir eru að veiða síld. Á þessum slóðum hafa 25—30. 000 Norðmenn verið við síld- veiðar að undanförnu á 3.000 bátum. Veiðin hófst af krafti í janúarlok. Myndin er tekin með aðdráttarlinsu, og verð- ur þá skiljanlegra hversvegna bátarnir sýnast hver ofan í öðrum. Jú, það eru fleiri sem fiska síld en íslendingar. HLERAÐ FJÖLDI óskilasendinga er nú í vörzlu Póststofunnar í Reykjavík. Eru 134 ábyrgðar- bréf í óskilum hjá póststof- unni og ennfremur almenn bréf með peningum í. Auk þess eru þar smápakkar og bókasend- ingar í óskilum, fyi'ir utan venjuleg bréf, sem skipta hundruðum. Er ekki hægt að koma þess- um sendingum og bréfum til skila, vegna þess að viðtakanai finnst ekki og sendandi ekki heldur tilgreindur. Ef menn telja sig hafa ástæðu til að ætla að bréf þeirra hafi ekki komizt til skila, geta þeir gefið sig fram á póststofunni og athugað hvort bréfin eða sendingarnar séu þar í óskilum. Osló, 13. marz (Reuter). KRÚSTJOV, forsætisráðherra Sovétríkjanna, hefur þegið boð um að heimsækja Noreg, Dan- mörku og Svíþjóð í sumar. Mun hann koma til Noregs og Dan- merkur í ágúst, en ekki hefur verið ákveðið hvenær hann kemur til Svíþjóðar. Rlaðið hefur hlerað — Að tveir íslenzkir góðkunn ing.’fir Aksels Larsen, fyrrum foringja danskra kommúnista, hafi brugðið við með ólíkum liætti, eftir að hann var hreinsaður út úr flokknum. Annar — Brynjólfur Bjarnason — er steinhættur að heimsækja Larsen, þeg ar hann á leið um Höfn. Hinn — Einar Olgeirs- son — heilsar upp á Larsen eins og í gamla daga — en á laun. Frakkar reyna langdrægar eldflaugar París, 13. marz (Reuter). FRANSKIR vísindamenn búast við að fullgera á þessu ári margra-þrepa eldflaug, er sé nægilega kraftmikil til að skjóta gervitungli á loft. Tvær franskar eldflaugar, Veronique og Monica, sem nú er verið að gera tilraunir með, geta náð um 260 km. hæð. TOGARARNIR veiða enn á heimamiðum og afla sæmilega þegar veður hamlar ekki veið- um. Nokkrir togaranna eru til viðgerðar, bæði heima og erlend is. Þar á meðal er Þorkell máni, er varð fyrir skakkaföllum við Grænland. Er hann nú að fá björgunarbát úr plasti í stað tré björgunaa-bátanna verður sá björgunarbátur á togaranum miðjum og unnt að láta liann út hvorum megin sem er. Upplýsingar þessar fékk Al- þýðublaðið í gær hjá LÍÚ. Mun Þorkell máni fyrsti íslenzki tog arinn, er fær plastbjörgunarbát. TVeir aðrir togarar Bæjarút- gerðar Reykjavíkur eru úti til viðgerðar. Eru það Þormóður goði sem er í Þýzkalandi, vegna vélarbilunar og Þorsteinn Ing- ólfsson. Nokkrir togarar eru í slipp í Reykjavík, þar á meðal Hvalfellið, sem hefur verið lengi Er úli lil viðgerðar til viðgerðar. Er það einkum öx- ull skipsins, sem er til viðgerðar. Vönukiplasamn- ingur Rússa og Finna undirrttaður Helsingfors, 13. marz. VÖRUSKIPT AS AMNINGUR milli Finnlands og Sovétríkj- anna fyrir þetta ár var undir- ritaður í dag eftir 31 dags samn ingaviðræður. í fréttatilkynn- ingu, sem send var út eftir að skrifað hafði verið undir, að samningurinn geri ráð fyrir nokkurri aukningu vöruskipta milli landanna og er því þár haldið fram, að finnskir kaup- ' sýslumenn muni að verúlegu ** leyti fá að taka út vörur, er af- henda á 1960. Þess er hins vegar ekki getið hve mikilli upphæð ‘ vöruskiptin muni nema. WWWMWWWWWWWWWMI Blantyre og Lusaka, 13. marz. (NTB-Reuter). ÓEIRÐIRNAR í Nyasalandi og Norður-Rhodesíu héldu á- fram í dag og kom til margra óeirða milli innfæddra og lög- reglunnar. í Lusaka í Norður- Rhodesíu gerðu innfæddir árás á nokkrar opinberar byggingar með grjótkasti og benzínsprengj um til að mótmæla því, að leið- togar Zambia-kongressins hafa verið handteknir. í Blantyre í Nyasalandi varð lögreglan að þeita táragasi til að dreifa mannfjölda og voru 56 handteknir. WWWWWVWWWWWWWWMM

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.