Tíminn - 03.12.1965, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.12.1965, Blaðsíða 3
15 FÖSTUDAGUR 3. desember 1965 TÍMINN r* IEngum kom á óvart, að de Gaulle, forseti Erakklands, myndi leita endurkjörs í for- setakosningunum 5. desember. Þótt hann hafi ekki tilkynnt þátttöku sína fyrr en 4. nóv- ember, höfðu menn talið sig vissa um afstöðu de Gaulles mánuðum saman. Og sama viss an ríkir, þegar spáð er um úrslit kosninganna. Menn velta því helzt fyrir sér, hversu mik inn meirihluta de Gaulle fær. frá þeim 28 milljónum Frakka, sem á kjörskrá eru. De Gaulle biður landsmenn sína um meira en einfaldan meirihluta í kosningum þessa árs. Er hann Skýrði frá Því í útvarps- og sjónvarpsræðu, að 'hann yrði frambjóðandi í forsetakosningunum, bað hann um „víðtækan stuðning", svo að „framtíð hins nýja lýðveld ís verði endanlega tryggð“. Og de Gaulle lítur ekki björtum augum á framtíð Frakklands, ef hann fær ekki þennan stuðn ing þjóðarinnar, þá mun ,,Fimmta lýðveldið fljótlega hrynja saman . . . og Frakk land mun lenda í afdrifaríkara rótleysi, en nokkru sinni fyrr — að þessu sinní án nokkurr ar vonar um endurreisn", eins Og ‘hann orðaði það. beir keppa um sæti forseta Frakklands: Efri röð frá vinstri: Charles de Gaulle, forseti Jean Lecanuet, Allt bendir til þess, að de Plerre Marcilhacy, neSri röð f. v. Jean Louis Tixer-Cignaneour, Marcel Barbu og Francois Mitterand. Gaulle muni vinna glæsilega. Skoðanakönnun, sem fram fór í miðjum október, sýndi, að ef kosníngar hefðu verið haldn ar þá, hefði de Gaulle fengið 68% greiddra atkvæða, en sá frambjóðandi, sem næstur hon um komst, 23%. Þetta hefur þó minnkað nokkuð í síðustu skoðanakönnunum. Forsetinn hefur undirbúið kosningarnar vel. Nú í vor fór E hann í hringferð um Frakk land og heimsóttí allar borgir og kaupstaði landsins. Þar hélt hann ræður, og lagði áherzlu á nauðsyn Þess, að landinu yrði stjórnað á sama hátt og verið hefur næstu árin. En andstæðingar de Gaulle voru ekki vissír um, hvort þessi hringferð þýddi að forset inn myndi leita endurkjörs, eða hvort hann ætlaði að skora á landsmenn sína að kjósa sinn helzta lærisvein.Georges Pompi dou, forsætisráðherra. Þetta gerði hinum frambjóð endunum að sjálfsögðu erfitt fyrir. Þeir vissu ekki að hverju þeir ættu að beina skeytum sínum og gagnrýnl. En þó má ætla, að þótt de Gaulle hefði skýrt frá framboði sínu þegar í sumar, hefði hann unnið kosningarnar eins auðveldlega Fimm frambjóðendur, auk de Gaulles, berjast um hylli kjósenda. Þeir eruMarcel Bar- bu, Jean Lecanuet, Pierre Mars hilhacy, Francois Mitterand og Jean Louis Tixer Vignancour Af þessum er talið að einung is tveir Mitterand og Tixier Vígnancour — hafi möguleika á að fá verulegan hluta -:''eiddra atkvæða. Mitterand, sem var dómsmála ráðherra og innanríkisráðherra í Fjórða lýðveldinu, er talinn ganga næst de Gaulle hvað fylgi snertir. Hann er fulltrúi Lýðræðissambandsins svokall- aða, sem er bandalag Sósíal ista og kommúnista. Hann hef ur neitað að semja við komm únista um pólitiska stefnuskrá, en hefur lofað að láta þá vita fyrirfram um áætlanir sínar. Áður en Mitterand gerðist frambjóðandi, virtíst Gaston Defferre borgarstjóri í Mar- seille, fulltrúi Sósíalistaflokks ins, vera hættulegasti andstæð ingur de Gaulle. Defferre vildi mynda sér til stuðnings banda lag Sósíalistaflokksins og nokk urra annarra mið- og vinstri flókka. Þessi draumur hans varð að engu, Þegar Guy Mollet, framkvæmdastjóri Sósí- alistaflokksins, krafðist þess að einungís vinstri flokkar væru teknir með i þetta banda lag. Varð þetta til þess að Defferre hætti við framboð sitt 25. júní s. 1. Tixer-Vignancour er aftur- haldssamur, mjög hægrisinnað ur lögfræðingur, og hefur ekki verið við stjórnmál kenndur áður. Hann er vel þekktur i Frakklandi fyrir að hafa var ið ýmsa öfgamenn til hægri í dómssölunum. Þekktastur þeirra var Raoul Salan, yfir- maður hryðjuverkahreyfingar- innar OAS í Alsír Salan var sem kunnugt er dæmdur i ævílangt fangelsi. en vörn Tixier-Vignancours vakti mikla athygli í Frakklandi. Var varn arræðan spiluð inn á plötu og seld í 20 þúsund eintökum. Hann hóf mikla kosningaferð um allt Frakkland s. 1. sumar. Er talið, að hann muni fá 5—10 % greiddra atkvæða á sunnu daginn. Jean Lccanuet er fulltrúi þeirra Gaulle-ista, sem eru ó- ánægðir með de Gaulle, en hann er ekki líklegur til mik- illa afreka í kosningunum. Þó fékk hann óvæntan stuðning á síðustu stundu, Þegar Paul Antier, fyrrverandi landbúnað armálaráðherra, hætti við framboð sitt og lýsti yfir stuðn íngi við Lecanuet. Hinir tveir, Marcilhacy og Barbu, hafa svo til ekkert fylgi. Annar þeírra, Marcilhacy er íhaldsmaður, en Barbu seg ist sjálfur vera „til vinstri við kommúnistana". Kosningabaráttan í Frakk- landi er mjög stutt. Samkvæmt lögum, sem samþykkt voru á síðasta ári — en þetta er í fyrsta sínn síðan árið 1848, að franska þjóðin kýs forseta — urðu frambjóðendur að leggja fram 10.000 franka — ca. 90 þúsund krónur — og láta skrá sig, fyrir 16. nóvember 1965. Nöfn frambjóðendanna voru síð an birt . „Joumal Officiel“ 19. nóvember — og þá hófst hin opinbera kosningabarátta, sem aðeins stendur í tvær vikur Ef svo ólíklega vill til, að eng inn frambjóðandj fái meiri- hluta atkvæða 5 desember, þá verður kosið milli tveggja hæstu frambjóðandanna 19. desember Hinn kjörni forseti verður síðan settur i embættí fyrir 8. janúar 1966, en á þeim degi rennur núverandi kjör- tímabil út. Aðgangur allra frambjóð- enda, nema de Gaulle, að út- varpi og sjónvarpi er mjög tak markaður. Upplýsingamálaráð- herra landsins, Alain Peyre- fitte, sagði 20. október, að „á venjulegum tímum er Það ekki sanngjarnt, að stjórnarandstað an fái að tala eins oft og ríkis stjórnin“ í útvarp og sjónvarp. Þetta rökstuddi hann með því, að ríkisstjórnin hefði alltaf eitthvað að segja. að stjórn- arandstaðan gæti aðeins gagn- rýnt! Því er það, að sérhver frambjóðandi fær aðeins að koma fram í sjónvarpi í tvo tíma og í útvarpi í tvo tíma meðan kosningabaráttan stend ur yfir. Reglurnar um útvarps- og sjónvarpssendingar í sam- bandi við stjómmál eru svo strangar, að samband blaða- manna í Frakklandi gagnrýndi þær harðlega 17. nóvember og kvað þær vera eins konar rit- skoðun. De Gaulle hefur notfært sér útvarp og sjónvarp tíl hins ítr- asta, og hefur í því sambandi marga frábæra tæknimenn sér til aðstoðar. Hefur hann, með aðstoð sérfróðra manna, sér- hæft sig í að koma fram í sjónvarpi. Er það voldugt vopn í höndum hans, og hann beitir þvi líka óspart. Mun það vafa laust eiga sinn þátt í væntan legum kosningasigri hans á sunnudagínn. Oft hefur verið sagt, að Gaulle- ismj þekktist betur á því. sem hann hafnar en því sem hann berst fyrir í vestrænum stjórn málum. Það, sem de Gaulle hafnar mest af öllu, er það, sem kallað er „Supranasjonal- ismi“ — þ. e. að mynduð séu bandalög þjóða, þar sem meiri hlutavald ráði. Gegn þessu berst hann af miklum krafti bæði í Efnahagsbandalagi Evr ópu, Norður-Atlantshafsbanda laginu (NATO) og Sameinuðu þjóðunum. Hann krefst þess að Frakkland hafi ávallt frjáls ræði til Þess að framfylgja sjálfstæðri stefnu, hann vill ekki taka við skipunum frá neinu öðru ríki, eða ríkjum hvort sem um bandamenn e að ræða eða ekki. De Gaulle leggur þvi mesta áherzlu á algjörlega sjálfstætt Frakkland, og afleiðing þeirr ar stefnu er t. d. kreppan inn an Efnahagsbandalagsins. Frakkar neituðu að taka þátt í viðræðum bandalagsins 5 júlí s. 1., á yfirborðinu vegna þess að EBE hafði ekkí náð samkomulagi um landbúnaðar stefnu fyrir 30. júní, eins og gert var ráð fyrir. Hin raun verulega ástæða var þó hins vegar, að de Gaulle var and- vígur hinu aukna valdi hand hafa framkvæmdavaldsins inn an EBE. Sem dæmi má nefna, að frá 1. janúar 1966 þarf eín ungis meirihluta atkvæða í Ráðherranefnd EBE til þess að taka þýðingarmikla ákvörð un, en fram að Þeim tíma hef ir hvert ríki um sig eins kon ar neitunarvald, þar sem al- gjört samkomulag verður að ríkja um allar ákvarðanir. De Gaulle vill, að svo verði áfram, og vill breyta rómarsamningn um samkvæmt því, svo og þeim samningum, er komu á fót Kola og stálsamsteypu Evrópu og EURATOM. Þessir samningar voru allir gerðir áður en de Gaulle varð forseti Frakklands, og talar forsetinn nú um ýms ar „víllur" í þessum samning um, sem leiðrétta verði, ef kreppan innan EBE á að leys ast. Einn angi af þessari sömu valdaaukningarstefnu innan bandalagsins er hið aukna vald framkvæmdanefndarinnar, en de Gaulle er einnig mjög and- vígur þeirri þróun. Það er einnig krafa de Gaulle um algjört sjálfstæði, sem veldur ósamkomulagi hans við bandamenn sína í NATO. Skilyrði þess, að Frakkland, með de Gaulle í forsetastóli, haldi áfram Þátttöku sinni í NATO, er sú, að Frakkar verði þar jafn réttháir og hin stór veldin í öllum ákvörðunum. Er talið, að de Gaulle vilji, að í stað NATO komi sérstakir varnarsamningar Frakklands við Bandaríkin, Bretland og ef til vill einnig V-Þýzkaland. De Gaulle vill, með stefnu sinni um sjálfstætt Frakkland, vínna að því að Frakkland verði á ný stórveldi. Virðist draumur hans vera sameinuð Evrópa undir forsæti Frakk lands. Gaulle-ismí er líklegur til þess að vera ráðandi í Frakk andi næstu fimm árin. En ýms ir efast um, að þessi stefna lifi lengur en upphafsmaður henn ar, de Gaulle. Aðrir telja, að eftir önnur fimm ár, verði Gaulle-ismi orðinn svo rótfast ur í vitund frönsku þjóðarinn ar, að hann sé líklegur til lang lífis. Það mun framtíðin ein geta sagt um. — (EJ tók sam an. Aðallega byggt á Editoríal Research Reports). J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.