Tíminn - 03.12.1965, Qupperneq 4

Tíminn - 03.12.1965, Qupperneq 4
16 TÍMINN FÖSTUDAGUR 3. desember 1965 L EIKFÖNG YOKOHAMA Plasticant kubbarnir eru leikföng í sérflokki. Skemmtilegir og þrosk- andi. Höfum einnig: Dúkkur — Bangsa — Bátabíla — Flugvélar — fsskápa — Þvottavélar — Dúkkusett — Síma- píanó — Byssur — Allskonar módel og m. fl. Lítið inn og kynnið yður verð og gæði leik- fanganna hjá okkur. 'ngólfsstræti 8 — Sími 10-2-40 Vegir í Japan eru víöa slæmir, líkir því sem við eigum að venjást. Japanir hafa því orðið að leggja sérstaka áherzlu á framleiðslu sterkra og góðra hjólbarða, sem henta þarlendum malarvegum. Hér á landi hafa japanskir hjólbarðar frá Yokohama gefið mjög góða raun. Fáanlegir í ýmsum mynztrum og af mörgum gerðum undir flest farartæki. Einkaumboð Samband ísl. samvinnufélaga, Ármúla 3, sími 38900 Auglýsið í TÍMANUM - Sími 19523 Sérstæð bók um dutræn efni og dagsanna fyrirburði Sigurður Haralz segir vel frá, skrifar hressilega og lýsir af einurð og raunsæi fjölda dulrænna fyrirbæra, sem hann hefur upplifað á sjó og landi. Fylgjur og fyrirboöar „Hjá sumu fólki er öll dulræn reynsla varðveitt sem hið mesta leyndarmál alla ævi. Það er af þeirri ástæðu, að það vill ekki tefla á tvær hættur með að láta líta á sig sem bilaðar eða brjálaðar manneskjur. Þessu fólki er nokkur vorkunn. Margir leggja mikið upp úr því, sem „ailir segja“. En ég horfi hér eins og fyrri daginn öfugt við það og finnst engin trygging fyrir því, að eitthvað sé rétt, þótt fjöldinn segi það. Hitt er svo annað mál, að skiljanlega kemur öll dulræn reynsla bví fólki spænskt fyrir sjónir, er aldrei hefur orðið fyrir votti af slíku sjálft. Stór hluti dulrænn- ar reynslu er þess eðlis, að ógerlegt eða erfitt er að sanna hann öðrum. En jafnvel þótt svo sé, er samt nokkuð langt gengið af peim, er við ekkert slíkt kannast, að álykta sem svo, að sá, er frá slíku segi, sé annað hvort lygari, eða maður óheill á geðsmunum. En annað tveggja bessara sjónarmiða munu margir hafa. Það er og varla við öðru að búast. eins og allt er í pott- inn búið“.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.