Alþýðublaðið - 22.03.1959, Qupperneq 4
Útgeíandi: Alþý'ðuflokkurinn. Hitstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ást-
Jjórsson og Helgi Sæmundsson (áb). Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmars-
Æon. Fréttastjóri: Björgvin' Guðmundsson. Auglýsingastjóri Pétur Péturs-
con. Hitstjórnarsímar: 14901 og 14902. Auglýsingasími: 14906. Afgreiðslu-
■sími: 14900. Aösetur: AiþýöuhúsiS. PrentsmiSja AlþýSubl. Hverfisg. 8—10.
H a nnes
á h o r n i n u
ÞAÐ TÓK íslendinga ótrúlega langan tíma að
stofna sérstakan seðlabanka, aðskilinn frá við-
skiptabönkum. Menn'hafa vitað um áratugi, að
slíkur aðskilnaður er óhjákvæmilegur hjá ej'nA-
iiagslega sjálfstæðri þjóð, en pólitík og sitthvað því-
líkt fyrirbyggði þessa-skynsamlegu ráðstöfun.
Þegar Alþýðufiokkurinn og Framsóknar- •
í íokkurinn gerðu umbótabandalagið 1956, var stofn
un seðlabanka eitt af. grundvallaratriðum stefnu-
ekrár flokkanna. Vinsfri stjórnin gerði víðtækar :
foreytingar á bankákerfinu, og var stofnun seðla-
foankans þar á meðal. Mætti sú ráðstöfun and- •,
etöðu á alþingi — að vísu minni en aðrar greinar
foankafrumvarpsins — en fjármálaleiðtogar Sjálf-
étæðisf lokksins börðust sumir gegn seðlabankanum
og aðrir töldu hánn hvorki fugl né fisk.
Nú dettur engusn maiuii í hug að breyta aft-
ur til hins gamla skijsulags, Jafnvel Sjálfstæðis-
menn samþykkja einróma að:gera bankann sjáif-
stæðari og sterkaii en hami er. Gildar ástæðnr
voru fyrir bví að aðskilja bankann ekki með öllu
frá Landsbankanum. I reynd hefur seðlabankinn
starfað algerlega sjálfstætt, eins og hann verður
að gera vegna eðlis síns.
Hlutverk seðlabankans er ekki líklegt til al-
tnennra vinsælda, þegar efnahagsmálum er svo
háttað, sem hér er nú.En islíkur banki er lífsnauð-
sjmlegur. Hann á að vera hemill á tímum ofþensiu
c»g blóðgjafi, þegar kreppa knýr á dyr. Hann á
&ð vera miðstöð fjármálakeriisins, svo að önnur
hönd þjóðfélagsins viti jafnan, hvað hin er.að gera.
Eankinn hefur farið vel af stað og tekst vonahdi
&ð verða til farsælla áhrifa í framtíðinni.
'E. Smith
Sidney E. Smith, utanríkisráðherra Kanada,
er Iátinn fyrir aldur fram. Hann hafði um stutt
áráfoil 'gegnt starfi sínu, en á þeiín tíma höfðu ís-
lendingar þau kynni af honum, að þeir minnast
hans með söknuði. Enda þótt bein viðskipti milli
Mands og Kanada séu lítil, þá er margt, sem
tengir þjóðirnar og ýmis hagsmunamál eiga þær
saman. í slíkum máium sýndi Smith okkur Is-
lendingum skilning og vináttu, sem við metum
mikils. Við sendum kanadi'sfeu þjóðinni samúðar-
kveðjur út af misstþessa mikilhæfa manns.
Fyrsr páskana
iarnaskór
★ AÖalatriðið í dag.
★ .'Frestun í eitt ár með-
an barist er við draug-
inn.
'k. Enginn tapar á því. .
★ .Björgunarvesti þjóð-
félgsins.
EINSTAKLINGARNIR hafa
reynslu af því, að þeir geta ekki
gert allt, sem þá langar til. Ef
rnaður, sem ekki hefur fullar
hendur fjár, er að byggja sér
hús, verður hann aö gera það í
áföngum. Hann verður að gera
það vegna þess að hann bíður
annaðhvort eftir láni eða hann
er að reyna að safna sér fé til
kaupa á efni og sérfræðilegri
vinnu. Þannig er þetta á nær
öllum sviðum í lífi og athöfnum
einstaklinganna,
HIÐ NÁKVÆMLEGA SAMA
gildir um búskap þjóðarinnar í
heild. Framkvæmdir hans v-erða
að fara eftir fjárhagsástandi og
getu hins sameiginlega bús. —
Þetta er sagt að gefnu tilefni.
Aðalatriðið í öllum búskap þjóð-
arinnar er að tryggja atvinnu
þegnanna sem allra bezt og ör-
uggast. Það er varla hægt að
segja, að nokkúrt atvinnuleysi
hafi verið hér á landi í síðustu
tvo áratugi. Að vísu hefur þáð
gert vart við sig sums staðar út
um land — og þá timabundið.
ALLT 'VERÐUR að stefna að
því að tryggja það góða átvinnu
ástand, sem verið hefur. Nú er
það kunnugt, aðþjóðin á í mikl-
um erfiðleikum með búskap
sinn. Feigðar.flan dýrtíðárinnar
hefur verið geigvænlegt. Reynt
er að stöðva. þáð -—og það hefur
tekizt að minnsta kosti í bili. En
það er ekki hægt að gera það til
langframa nema með róttækum
aðgerðum. Hörgull er á starfs-
kröftum við marga atvinnuvegi.
Meðan svo er sýnist ekki úr vegi
að þjóðin fresti nokkrum fram
kvæmdum og .eyðslu um sihn, til
dæmis í eitt ár.
ÞAÐ ÆTTI AÐ GERA ná-
kvæma áætlun um þetta. Sagt
er að á síðustu árum hafi verið
gífuriegur innfiutningur á nýj-
um vélum til landbúnajðar og
iðnaðar. Kunnugir fullyrða, að
sá vélakostur, sem til er í land-
inu í þessum tveimur atvinnu-
vegum, nægi fullkomlega til
þess að þeir bíði ekki tjón þó
að nýjar vélar séu ekki fluttar
inn í eitt ár. Hins vegar er nauð
synlegt að flytja inn varahluti
til þeirra véla, sem fyrir eru. En
í fyrra var það þannig, til dæm-
is í landbúnáðinum, að ekki var
skeytt um varahlutainnflutning
— og liafði það þær afleiðingar,
að ársgamlar vélar og eldri
stóðu aðgerðalausar vegna
skorts-á varahlutum.
ÞÁ LIGGUR ÞAÐ í augum
uppi, að það mundi ekki valda
neinu eða neinum tjóni þó að
ýmsum framkvæmdum á vegum
hins opinbera væri frestað um
eins árs skéið. Það mundi ekki
valda atvinnuleysi. Það myndi
ekki korna að sök í þjóðarbú-
Skapnum. En það mundi spara
þjóðinni milljónatugaútgjöld
meðan húner að bérjast við dýr-
tíðardrauginn. Þeir, sem ekki
vilja' skilja þessár augljósu stáð-
reyndir, hljóta:að vera blindað-
ir af ofstæki. Þeir hljóta að liafa
blekkzt af afbrýðisemi og hatri
til þeirra andstæðinga sinna,
sem keppa við þá í smjaðri fyrir
fólki.
ÞAÐ ER LÍFSNAUÐSYN-
LEGT fyrir framtíð þjóðarinnar,
að menn geri sér grein fyrir
þessu einmitt nú. Ef ekki verður
farin þessi leið, þýðir það, að sú
viðleitni, sem gerð hefur verið
til að stöðva dýrtíðina, mistekst,
því að ef ekki verður tekinn
frestur og spyrnt við eyðsluniii
um sinn, þá þýðir það liækkaða
skatta og hækkaða tolla. Og ef
þetta verður að hækka, þá er
lækkun vöruverðs og eftirgjöf
launþéganna á tíu vísitölustigum
unnið fyrir gýg.
Hannes á horninu.
Þakpappi
(þýzkur)
fyrirliggjandi.
Sighvatur Einarsson & €o.
Skipholti 15.
Símar 24133 og 24137
fyrirliggjandl.
Sigbvatur Einarsson & €o.
Skipholti 15.
Símar 24133 og 24137
%“—4“ svart
Vi“—3“ galv.
Seld í metratali.
fyrirliggjandi.
«
Sighvatur Einarsson & Co.
Skipholti 15.
Símar 24133 og 24137
Sjálfvirkar
fyrir kalt vatn
fyrirliggjandi.
Sighvatur Einarsson & Co.
Skipholti 15.
Símar 24133 og 24137
Gerum við bilaða
krana
og klósett-kassa.
Vatnsveita Reykjavíkur,
símar 13134 og 35122.
LEIGUBÍLAR
Bifreiðastöð Steindórs
Sími 1-15-80
iifreiðastöð Reykjavíkur
Sími 1-17-20
Karlmannagúmmístígvél
lipur og sterik. \
Gúmmíkiossar
reimaðir. \
Karlmannabomsur.
Karlmannainniskór,
flóka. |
Karlmannaskór.
Drengjaskór.
Barnaskór
uppreimaðir og gott úrval,
ÚRVALIÐ ER HJÁ
OKKUR. i
Skóverzlun Péhirs
Andréssonar.
LAUGAVEGI 17. 7
& Féiagslíf 0?
Körfyksiattíeiks'
deiid K.R. 7
Piltar, stúlkur. — Áríðandi
fundur verður í félagsheimili
KR í dag Osunnudag) kl.
2 stund'vísléga. — Allir þeir,
: sem ■ er.u starfandi í félaginu
og þeir, sem hafa hug á því að
starfa með því í sumar og
næsta vetur eru beðnir um að
mæta. — Þeir, sem eiga eftir
að greiða ársgjaldið eru vin-
samlegast beðnir um að hafa
það m>eð á fundinn.
Stjórnin.
Huselgendur.
Önnumst allskonar vatns-
og hitalagnir.
HITALA GNIR h.f
Símar 33712 og 32844.
4 22. marz 1959 — Alþýðublaðið