Alþýðublaðið - 24.03.1959, Page 10
Eg undirritaður. lítilmót-
legur afmælisþegn, þakka hér
með öllum þeim mörgu fjær
og nær, sem á einn eða ann-
an hátt áttu hlutdeild í hinu
góðlátléga gríni með mig á
sjötugsafmæli mínu 12. þ. m.
Eg þakka þeim, sem litu
hingað inn til mín þennan
dag og árnuðu mér margra
heilla og glöddu mig með upp-
lífgandi viðræðum, sem í eng-
um punkti minntu mig á það,
hvað ég ætti stutt eftir.
Ég þakka þeim fjölmörgu
hérlendum og erlendum, sem
sendu mér rituð skeyti í lausu
máli og bundnu, að einum
undanskildum, dauða limnum
í sérfræðingahópi mínum,
sem var að reyna að stramma
sig upþ með. hótun um for-
göngu í verkfalli af hálfu
þeirra mætu manna.
Ég þakka mínum gamla fé-
lagsbróður, Magnúsi Kjaran,
fyrir hans symbólska og lær-
dómsríka bréf til mín um
„hrein“ og „óhrein“ skrif-
bórð, sem ég lét Margréti lesa
sérstaklega.
Þá þakka ég stórlega nefnd-
inni, sem g'ekkst fyrir fjöi-
mennu og fögru og afburða
skemmtilegu samsæti, er mér
var haldið í Lídó. Einnig
þakka ég hinum snjöllu og
vel meinandi ræðumönnum,
sem þar tölu mér til upplyft-
ingar og dýrðar. Eigi síður
tjái ég þakkir mínar hinum
mörgu öðrum þátttakendum,
sem komu í Lídó til að horfa
fallega á mig. Og ekki má ég
gleyma að þakka leikurunum
Lárusi Pálssyni og Þorsteini
Stephensen fyrir flutning
þeirra á þáttunum, svo
skemmtilegan, að allt sam-
sætið hló, og jafnvel ég gat
ekki kæft niðrí í mér hlátur-
inn.
Ennfremur sendi ég út-
varpinu kærar þakkir fyrir
þess tillag í gríninu, og ber
mér þar að nefna sérstaklega
Andrés Björnsson og Lárus
Pálsson og Pál minn Jónsson,
sem mér sagði draugasöguna.
75 ára
Svo þakka ég af hrærðum
huga þeim, sem ritað hafa
nöfn sín undir fyrirheitið um
gjöfina miklu, sem á að
ftytja Síríus, fegursta draum
æsku minnar, nær augum
mínum.
Og að endingu lyfti ég
huga mínum upp til Forsjón-
arinnar og þakka henni fyrir
hið symbólska ve/jur, sem
hún gaf mér á afmælisdaginn,
svo og fyrir styrk þann, sem
hún veitti mér til að sleppa
gegnum allt þetta ólaskaður á
líkama og sál, og eigi sízt fyr-
ir að opinbera velþóknun sína
á réttum skilningi mínum á
Austrinu með því teikni á
himni að halda Merkúríusi
lengst í austri frá sól einmitt
þennan dag.
Ritað í unnskiptingastof-
unni á jafndægri á vor annó
1959.
Þórbergur Þórðarson.
Með alúðarkveðjum.
Gerum við bilaða
KRANA
og klósett-kassa.
VATNSVEITA
REYKJAVÍKUR,
símar 13134 og 35122
Ég þakka Gunnari frænda
mínum Benediktssyni fyrir
hans velviljaða og hlýlega
bréf. (Mun biðja aðra persónu
Guðdómsins að leiða hann til
glöggvari skilnings á draug-
um).
Þá ber mér að þakka Jó-
hannesi mínum úr Kötlum
fyrir hans rismikla og postul-
lega pistil um mig í Þjóðvilj-
anum (og lýsa yfir hrifningu
minni út af því, hvað rösklega
og listrænt hann hristir mig
af sér í lokin með vfsunni
„Upp upp upp. Fram fram
fram. Út út út“).
Sömuleiðis þakka ég Helga
J. Halldórssyni fyrir háns
einlæga og skilningsríka skrif
um Sálminn um blómið í
sama blaði).
Einnig þakka ég Málfríði
Einarsdóttur fyrir hennar lífs
vizkuþrungnu grein um mig
og fleira í Þjóðviljanum.
Þá læt ég ekki undir höfuð
leggjast að tjá Ragnari mín-
um Jóíissyni þakklæti mitt
fyrir alúðlega og vel meinta
grein um mig í Morgunblað-
inu.
Ennfremur þakka ég Sig-
urði A. Magnússyni fyrir
hans ágætlega skrifaða og
skilningsdjúpa og skilnings-
rétta ritdóm um Rökkuróper-
una (þó að hann ruglaðist.svo-
lítið í messunni í útlistunum
sínum á symbóli þjóðfélagsins
í þeirri bók, þegar nær dró
greinarlokum).
Líka þakka ég Helga Sæ-
mundssyni fyrir hans
skemmtilegu grein. (Vildi þó
mega mælast til að hann rifj-
aði upp fyrir sér 401. og 402.
bls. í sjötta bindi í ævisögu
Árna prófasts um náttúru trú-
girni minnar, og ígrundaði
svolítið betur meiningar sín-
ar um Austrið).
Loks þakka ég Tímanum
fyrir hans góðu orð og smekk-
vísi í að flytja róttækan þátt
úr Bréfi til Láru.
Aftur er mér sagt, að Vísir,
blað Björns míns Ólafssonar,
að mælt er, hafi verið dálítið
púkó þennan dag, og lét ég
það þó sitja fyrir fyrsta kvæði
mínu, sem birtist á prenti í
Hjörfur Guðbrandsson
bifreiðastjóri..
KIRKJUBÆKUR telja að
Hjörtur Guðbrandsson bifreiða
stjóri, Meðalholti 11, sé 75 ára
í dag. En bæði vinir hans og
kunningjar geta vart trúað
slíku, því svo er maðurinn ung
legur, gjörfulegur á velli og
léttur í lund. Hjörtur er eitt af
gullkornunum í okkar íslenzku
alþýðustétt. Hann hefur aldrei
sótzt eftir auði, metorðum eða
völdum, en jafnan verið reiðu-
búinn til stuðnings hverju því
góðmáli, sem hann vissi að
myndi vera til heilla og ham-
ingju okkar litla þjóðfélagi.
Hann er vaxinn úr grasi
hinnar íslenzku stórfenglegu
og hörðu náttúru, sem mótað
hefur lífsafkomu hans og lífs-
skoðun.
Hjörtur er fæddur að Fjörfa-
stöðum í Landsveit, sonur
hjónanna Margrétar Hinriks-
dóttur og Guðbrandar Sæ-
mundssonar. Föður sinn missti
Hjörtur þegar hann var 11 ára,
og fiuttist hann þá um skeið að
Kaldbak, en þaðan fluttist
hann til Guðna bónda að
Skarði í Landsveit og dvaldist
har fram yfir fermingar aldur.
Árið 1901 fluttist hann til
Reykjavíkur og stundaði þar
ýmis störf, meðal annars sjó-
mennsku um 20 ára skeið, bæði
á skútum og togurum. En þá
var öldin önnur, því menn
þurftu að vinna ef vinnu skyldi
halda, og var þá ekki ávallt
mannúðinni fyrir að fara hjá
yfirboðurunum. En einmitt á
þessum árum hóf verkalýðs-
hreyfingin göngu sína hér á
landi, og fylgdist hinn ungi
dugnaðar maður vel með þeim
málum. Fyrir um það bil 40 ár-
um hófst bifreiðastjóraferill
Hjartar. Ók hann fyrst vörubíl
hér í Rvík í nokkur ár, en síð-
an áætlunarbíl austur Þykkva
bæ í 22 ár. Þá var hann í nokk-
ur ár í hópferðaakstri, en nú
síðustu 4 árin hefur hann stund
að leigubílaakstur frá Bifreiða-
stöðinni Bæjarleiðir.
Hjörtur Guðbrandsson
Það er margs að minnast og
mikinn fróðleik að fá hjá
manni með slíkan starfsdag að
baki, en hér er hvorki tími né
rúm til að rekja nákvæmlega
allt.
Giftur er Hjörtur hinni ágæt
ustu konu, Ólafíu Sigríði Þor-
valdsdóttur frá Hólmakoti á
Mýrum, tvö börn ólu þau hjón-
in upp, pilt, sem dó 19 ára og
stúlku, sem er þeirra eigið
barn, gift og býr á heimili
þeirra.
Við starfsfélagar og vinir
Hjartar erum bæði glaðir og
stoltir af að hafa á meðal okk-
ar hinn unglega aldursforseta
starfandi leiguhifreiðastjóra í
Rvík. og getum við bezt undir-
strikað það með því að senda
honum og konu hans okkar inni
legustu hamingjuóskir í tilefni
þessara merku tímamóta.
Heill og hamingja þér fvlgi
um alla framtíð kæri vinur og
félagi.
Þorkell Þorkelsson.
Ullarkjólar
(m. a. Mohair).
M ARKAÐURINN
Hafnárstræti 5.
GÓLFTEPPI
margar tegundir.
Gangadreglar
margar tegundir, 70 og 90 cm., margir fallegir
litir.
GÓLFMOTTUR ..
TEPPAMOTTUR
GÚMMÍMOTTUR
TEPPAFÍLT
Teppa- og dregladeildin.
Emangrunarkork
fyrirliggjandi
— ýmsar þykktir
Jénsson Júlíusson
Garðastræti 2, sími 15430.
Útför konunnar minnar
ÞÓRU PÉTURSDÓTTUR
sem andaðist 17. þ. m. fer fram frá Dómkirkjunni, miðvikudag-
inn 25. þ. m. kl. 1,30.
Imgjaldur Þórarinsson.
Þökkum auðsýnda samúð og hluttékningu við fráfall og
jarðarför. eiginmanns míns, föður okkar og itengdaföður
ÞÓRÐAR JÓHANNESSONAR, járnsmiðs.
Sveinbjörg Halldórsdóttir, börn og tengdadætur.
J[Q 24. marz 1959 — Alþýðublaðið