Alþýðublaðið - 12.04.1959, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 12.04.1959, Blaðsíða 12
verður reist, mun safni hans valinn veglegur stað- ur. Verður þess vonandi ekki langt að bíða, að þjóð in geti að staðaldri notið listar hans í slíkum salar- kynnum. Hin dýrmæta gjöf ætti að verða alþingi hvatning til þess að hef ja þegar undirbúning þeirrar byggingar, og hefur ríkis- stjórnin til athugunar, með hverjum hætti fram- gangur þessa máls verði bezt tryggður“. Ksraasfe-ffisssa SYNINGU Asgríms í Þjóðminjasafninu er nú að ljúka, og í tilefni þess birtir Alþýðublaðið hér mynd, er sýnir vinnustað listmálarans í húsi hans við Bergstaðastræti. Um hús Ásgríms fórust Gylfa Þ. Gíslgsyni, menntamála- ráðherra, þannig orð í ræðu sinni, er hann flutti við opnun syningarinnar: „Ríkisstjórnin hefur ákveð ið, að hús Ásgríms Jóns- sonar við Bergstaðastræti skuli varðveitt í því horfi, er hann skildi við það, bæði íbúð hans og vinnu- stofa. I þeim híbýlum er ekki rúm til þess að varð- veita og sýna verk hans. En þegar listasafn íslands - - 40. árg. — Sunnudagur 12. april 1959 — 82. tbl. fiáskólafyrirlestur um Hauksbók PRÓFEESOR dr. phil. Jón Helgason, er staddur hér í Rvík í IvoSi Háskóla íslands. Hann Mnn halda hér tvo fyrirlestra viS Háskólann í þessari viku. Fjrrri fyrirlesturinn fjallar um Hauksbók, skinnbók, sem Haukur lögmaður Erlendsson gerði og lét gera í upphafi 14. ,aldar og enn er tii í Árnasafni, jþó mjög skert. Af efni Hauks- bókar mætti nefna, að þar er gevmd ein gerð Landámabók- ar.. Ummæli Tímans: Kommúnislar féllufráveiga- meslu skilyri- unum TÍMINN skýrir frá því í gær, að samkomulag hafi náðst með Alþýðuflokknum, Alþýðubandalaginu og Sjálf stæðisflokknum um kjör- dæmamálið. Tímanum farast svo orð: Endanlegt samkomulag náðist milli jstjórnarflokk- anna og kommúnista eftir að þeir síðarnefndu höfðu fallið frá flestum skilyrðum sínum um eftirlit með rík- isstjórn Alþýðuflokksins meðan á kosningabaráttunni stæði. jpMiiiiiiiiiiiriiimiiiiiimiiiiHiiiiisiiiJiiiiimiiiiiiiiniu Emil Jónsson . ræðir eamkomulagió um kjör- dæmamálið á fundi Al- fH vð u ffokksfóiags Reykja- víkur í dag klukkan 2 e. h. í Alþýðuhúsinu. . . BRUÐKAUPSSIÐA- BÆKUR. Síðari fyrirlesturinn mun fjalla um brúðkaupssiðabækur, en það eru bækur frá 16. öld til 18. aldar, sem hafa að geyma ræður, sem haldnar skyldu í brúðkaupum og forsagnir um, hvernig brúðkaup skyldi fram fara. Báðir fyrirlestrarnir verða fluttir í hátíðasal Háskólans. Fyrri fyrirlesturinn verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl kl. 8.30 e. h. Síðari fyrirlesturinn verður laugardaginn 18. apríl kl. 5 e.h. umrniiiiiimMiiniiiiiiiiimiimimmmiiimmiiimmih ( Flokkskaffið j | ALÞÝÐUFLOKKSMENN | 1 í Reykjavík og nágrenni eru | 1 minntir á Flokkskaffið, sem \ I verður í efri salnum í Ing- \ 1 ólfs Café í dag kl. 3,30. — \ | Eggert G. Þorsteinsson al- | | þingismaður mun flytja á- | | varp; er þess vænzt að | ! flokksfólk fjölmenni eins og | | verið hefur. 1 ’l - mimmiimiimiiiiiiimmiimiiiimmuimiiiiiuiiimiiT SAMSOGUR KARLAKÓR Reykjavíkur heldur fjórar söngskemmtanir í þessum mánuði. Verður hin fyrsta þeirra n. k. mánudag, 13. apríl. Verða síðan söng- skemmtanir einnig á þriðju- dag, miðvikudag, fimmtudag og hin síðasta þeirra á föstu- dag. Söngstjóri er Sigurður Þórð- arson. Verða þrír einsöngvarar á söngskemmtununum, þau Sigurveig Hjaltested, Guðmund ur Jónsson og Guðmundur Guðjónsson. Við hljóðfærið verður Fritz Weisshappel. KASSEM VALT- UR í SESSi Kaíró, 11. apríl. (Reuter). KAÍRÓBLAÐIÐ Akhbar El Yom skýrir frá því í dag, að rússneskar MIG-flugvélar séu komnar til frak. — Blaðið seg- ir einnig að Kassern, forsætis- ráðherra íraks, sé nú mjög valt ur í sessi og muni láta af em- bætti innan skamms, og jafn- vel þegar verið mynduð ný rík- isstjórn, sem taka á við af rík- isstjórn Kassems. Sé betta allt undirbúið af ráðamönnum í Moskvu og sýrlenzka komm- unistanum Khalid Bakdas. NÝLEGA eru komnir heim' frá Þýzkalandi þeir dr. Gunn- laugur Þórðarson og Óttar Möller, skrifstofustjóri. Voru þeir þar í boði vestur-þýzku stjórnarinnar til þess að kynna sér Berlínarvandamálið o. fl. Ferðuðust þeir félagar til Ham | borgar, Liibeck, Rínarlanda og Berlínar. Voru þeir 11 daga í Þýzkalandi og var A. Sehnei- der fylgdarmaður þeirra. Sagði dr. Gunnlaugur í við- tali við blaðið í gær, að það væri einkum tvennt, sem sér væri minnisstæðast frá þessari ferð. Væri það annars vegar, er þeir félagar komu að sjálfu járntjaldinu, eða réttara sagt landamærunum er skilja á milli Vestur- og Austur-Þýzka lands. Hefur verið komið upp gaddavírsgirðingum sovétmeg- in landamæranna, eru þar varð turnar með jöfnu millibili, svo hægt sé að sjá allar mannaferð- ir, og hermenn ganga þar tveir og tveir saman til eftirlits. PLÆGT Á HVERJUM MORGNI. Auk þessa eru bændurnir, sem búa við landamærin, látnir plægja á hverjum morgni 15 til 20 metra breiða spildu eft- ir öllum landamærunum, sem eru 1350 km. á lengd. Er þetta gert til þess að hægt sé að sjá sporin, hafi einhverjir gerzt svo djarfir að reyna að flýja til hins frjálsa vestræna heims. Sagði dr. Gunnlaugur, að Framhald á 2.„sí‘ðit, Á myndinni sjást þeir Óttar Möller og A. Schneider. Eru þeir við landamærin og sést einn varðturninn og aðvörunarskilíi um, að þar byrji hernámssvæði Rússa. ARAS GERÐ A KONU I FYRRINÓTT A ÞRIÐJA tímanum aS- faranótt laugardags var gerð árás á konu í Höfðatúninu hér í Reykjavík, Árásina gerð'i ungur maður og hafði hann fylgt konunni eftir af Lauga- veginum og á Hátúnið. Réðst maðurinn þar á kon- una og reyndi að draga hana afsíðis og varpa faenni til jarð ar. Gat konan hrint honum af sér pð nokkru leyti. Sá hún þá mann koma gangandi nið- ur Höfðatúnið og gat rifið sig af árásarmanninum og kallað á hjálp. Stökk hann þá upp á bak konunnar og greip fyrir munn faennar, svo hún gat ekki kallað lengur á hjálp. Sá konan þá bifreið koma akandi. Gat hún rifið aðra hendina lausa og veifað. Bif- reiðarstjórinn beindi ljóskast- ara að þeim og sá hvað um var að vera. Ók hann þá á ofsaþraða til þeirra til hjálp- ar. Árásarmaðurinn tók nú til fótanna, er hann sá að kon- unni var að berast hjálp. EIGINMAÐURINN STÉIG ÚT ÚR BIFREIÐINNI. Er bifreiðin kom til konurin ar, steig út úr henni eigin- maður hennai' og kunningi hans. Höfðu þau öll verið á dansleik saman, en konan gengið héim á undan. Eigin- maðurinn hljóp þegar á eftir árásarmanninum, sem tókst að fela sig. KONAN FANN árásarmanninn. Konan, aftur á móti, ók um í bifreiðinni í leit að árásar- manninum. Var Ijóskastar- inn á bílnum óspart notaður og fannst árásarmaðurinn loks, þar sem hann hímdi upp við bílskúrshurð og reyndi að gera lítið úr sér. Kallaði kon- an þá á mann sinn, sem hafði villzt á vegfarandarium, sem konan hafði séð koma gang- andi og á árásarmanninum. Hélt hann að sá væri árásar- maðurinn. Eiginmaðurinn hljóp þegar til og tókst að koma árásar- manninum á lögreglustöðina. Hefur hann áður komist í kast við lögin. Vestmannaeyjum í gær. BÁTARNIR hérna öfluðu ágæt lega í gær og var hæsti bátur- inn með um 4700 fiska. Trillúr fengu líka ágætan afla, m. a, talsvert af mjög smáum fiski, sem bendir til nýrrar göngu. Þá voru margir færabátar með mjög sæmilegan afla í gær. „Katla“ hefur verið hér að losa salt og í gær var hér þýzk- ur togari að taka vatn. Einnig kom þýzki skuttogarinn „Sag- itta“ á miðvikudaginn til hafn- ar hér. Einn Hornafjarðarbátur var (hér í slipp í gær, eitthvað bil- i aður. — P. Þ. fmiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiminiiniiifiuuiiiiiiiiiiiiiiii

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.