Alþýðublaðið - 14.04.1959, Side 1

Alþýðublaðið - 14.04.1959, Side 1
▲ EQ£SttD 40. áig. — Þriðjudagur 14. apríl 1959 — 82. tbl. Ríkisstjórnin kemur i ram dví, sem hún lofa 8i ðð beita sér \\ /rir I Með framgangi kjðrdæmamálsins kemur Alþýðuflokkurinn einu höfuðmáli sínu í höfn, segir Emil Jénssen. er eftir myndhöggvarann Franz Raab og eina mynd þessarar tegundar, sem vitað er um að gerð hafi verið af Nonna í lifanda lífi. Frummyndin hefur verið afhent Þjóðminjasafni Is- lands til eignai', en ráðu- neytið mun láta gera cir- steypu af myndinni handa Nonnahúsinu á Akui'eyri, sem er minjasafn um séra Jón Sveinsson. DR. HERDER-DORNEICH, eigandi Herder-bókaútgáf- unnar í Freiburg, hefur sent hingað til lands að' gjöf höf- uðlíkan úr gipsi af rithöfund inum heimsfræga séra Jóni Sveinssyni (Nonna). Myndin i okur- HÆSTIRÉTTUR kvað í gær upp dóm í málinu ákæruvaldið gegn Brandi Brynjólfssyni lög fræðingi. Var undirréttardóm- ur í máti hans staðfestur. Hafði Brandur í Sakadómi Reykjavík ur verið dæmdur í 570 000 kr. sekt 19. júní sl. og var sá dóm- ur staðfestur. Brandur Brynjólfsson var dæmdur fyrir að taka ólöglega vexti af lánum, er hann veitti verzlun Ragnars H. Blöndals h.f. En ýrnsir aðrir voru við- riðnir þau okurmá-1 eins og Sig- urður Berndsen fasteignasali, Hörður Ólafsson hdl. og Eirík- ur Kristjánsson kaupmiaður. Var Hörður Ólafsson dæmdur í 188 100 kr. sekt í Sakadómi 19- júní sl. og Eiríkur þann sama dag í 66 300 kr. sekt. ÓLÖGLEGIR VEXTIR 142 ÞÚS. KR. Brandur Brynjólfssan v.ar í undirrétti dæmdur fyrir brot á okurlögunum, bæði í viðskipt- um sínum við Ragnar H. Blön- dal h.f. og nokkrum öðr-um til- fellum, er upp komu við rann- sókn nefndar þeirrar, er alþingi' skipaði til Þess að r.annsaka ok- urmálin. í undirréttardómnum sagði: Þar sem hinir ólöglegu vextir nema samtals 142- 488,60 kr., þá þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin kr. 570 000,00. Er þetta lágmarks refsing, þar eð í lögum segir, að lágmarks refsing sé fjór- faldur ólöglegur hagnaður, en hámarkssekt er 25-faldur ó- löglegur hagnaður. Til vara er Brandur dæmdur í eins árs varðhald, greiði liann ekki sektina innan 4ra vikna. Dómur þessi er sá þyngsti, er einstaklingur hefur hlotið. — Myndin er tekin á skák- Jmótinu í Moskvu. Talið frá j Jvinstri: Friðrik Ólafsson,, jíslandi, Botvinnik, heims-< Jmeistarinn, og Larsen, Dan-J > mörku. vWMWMtmWWmUMMWMO Moskvu, mánudag, einka skeyti til Alþýðublaðsins frá Reuter. í FIMMTU umferð Moskvu mótsins sigraði Friðrik Lúti- kov í 50 leikjum. Friðrik tefldi mjög frumlega og valdi slavneska vörn, sem hann beitti mjög glæsilega. Tassfréttastofan sagði, að Friðrik hefði teflt skákina snilldarlega. f 31. leik vann hann peð og náði síðan al- geru frumkvæði í skákinni. í lokatafli hafði Friðrik yf- irburði og sigraði í 50. leik, eins og fyrr segir. Önnur úrslit urðu þau, að Smyslov og Filip gerðu jafn tefli, sömuleiðis Spasskí og Milev. Skákir Vasjúkov-Ar- onin, Simagin-Portich og Larsen-Bronstein1 fóru allar í bið. Framhald á 3. síðu. ALÞYÐUFLOKKURINN hef ur nú tryggt kjördæmamálinu framgang á alþingi, og þar með komið fram einu af höfuðmál- um sínum, sagði Emil Jónsson forsætisráðherra á fjölmennum fundi AlÞýðuflokksfélags Rvík ur á sunnudag. Eirtil sagði, að þar með virtist tryggt, að Al- þýðuflokksstjórnin kæmi fram þeini aðalmálum, sem hún lof- aði að beita sér fyrir, en fjár- lög væru væntanleg í vikunni og mundi ekki koma til neinna nýrra, almennra skatta á þeim. Emil ræddi ýtarlega um að- dragandaim að lausn kjördæma málsins. Sagði hann, að komm- únistar hefðu ákveðið að selja sig í þessu máli. Fyrsta krafa þeirra hafi verið að ríkisstjórn in færi frá, en við tæki stjórn, sem þeir og Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðisfl. tilnefndu ut- anþingsmenn í. Emil taldi, að það hefði ekki verið líklegt til að eflai framgang kjördæma- málsins, ef byrjað hefði verið á viðræðum um nýja stjórnar- rnyndun. Komimúnistar urðu að hörfa frá þessari kröfu og komu þá með aðrar kröfur. Þeir vildu, að atvinnulbótafé, vegafé, flugvallafé og erlendum lántök um yrði ráðstafað af alþingi, og' voru þetta allt sjálfsagðir hlut- ir, sem ríkisstjórnin ýmist var búin að leggja til eða ætlaði að leggja til. BÍLAÚTHLUTUN KOMMUM AÐALATREÐI Hins vegar gekk ríkisstjórn i in inn á að innflutningsnefnd skyldi afgreiða umsóknir um bíla, báta og fjárfestingu næstu þrjá mánuði, án þess að ríkisstjórnin notaði úrslita ákvörðunarrétt sinn. Þetta var það verð, sem greitt var fyrir framgang kjördæma- málsins. Úr því að kommún- | istar höfðu ákveðið að selja sig, sagði Emil, þá var þetta verð ekki slíkt að hann skoð aði hug sinn um að tryggja framgang þessa máls fyrir það. FRAMGANGUR MÁLSINS TRYGGÐUR j Emil sagði, að frá upphafi : hefðu verið tvær skoðanir á því,' 1 hvernig vinna ætti að fram- j gangi málsins. Önnur væri sú, i að Alþýðuflokkurinn og Sjálf- ! stæðisfliokkurinn flyttu það ein 1 ir og létu það ráðast, hvort stuðningur kommúnista fengist á þingi, en án hans kemst mál-, ið ekki fram. Hin leiðin hafi ; verið, að semja fyrirfram við ; kommúnista og tryggja fram- gang málsins, og hefði sú leið ; verið valin. Hefði staðið á því í hálfan annan mánuð að ná því j samkomulagi. KOMMÚNISTAR HÖFÐU TVO ÞINGMENN AF RVÍK ! I Þá minnti Emil á, að þing. Alþýðuflokksins 'hefði á sínum tímia' ekki hugsað sér fjölgun þingmanna, en flokkurinn hefði þó gengið inn á, að tala þingmanna úti um land1 yrði Framhald á 2. síðu. Emil Jónsson Þór' dré ¥él bálinn rGulifopp' á flot VARÐSKIPIÐ „Þór“ dró Vest- mannaeyjabátinn „Gulltopp“ á flot s.l. sunnudagsmorgun. Bát- urinn reyndist alveg óskemmd ur og var siglt til Vestmanna- eyja þegar eföir björgunina. Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu, strandaði „Gulltoppur“ á Þykkvabæjar- fjöru sökum þess, að net fest- ust í skrúfunni. Samábyrgð á ísl. fiskiskip- um fékk bj örgunarf élagið Björg h.f. til að reyna að sjá um, að báturinn skemmdist ekki í fjörunni og gera tilraun- ir til að ná honum út við fyrsta tækifæri, sem gæfist. Björg h.f. gat ekki náð „Gulltoppi“ á flot og var þá Landhelgisgæzl- an beðin um aðstoð, eins og blaðið skýrði frá í fyrradag. VÍRARNIR SLITNUÐU. Varðskipið „Þór“ var síðan sent á strandstaðinn á laugar- daginn, en við fyrstu tilraun slitnuðu vírarnir, sem settir voru utanum bátinn. Vax þá búið betur um vírana og heppn aðist „Þór“ að draga bátinn á flot á sunnudagsmorgun, sem fyrr segir. HLERAÐ Blaðið heíur hlerað —• að mikil ólga sé nú í Bræðra lagi, félagi presta, guð- fræðikandídata og guð- fræðinema, út af dreifi- bréfi því, er sent var í biskupskosningunum. — Eru allmargir félags- menn í þann veginn að segja sig úr félaginu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.