Alþýðublaðið - 18.04.1959, Blaðsíða 3
Segir kíriverska fréttastofan Ný|a'
Kína. Telur Khamba úr hástétt.
Voru ekki kommúnistar, en fá nú
aftur sæti í ráðgjafarnefndinni. ..
PEKING, 17. apríl, (NTB—
REUTER). 18 ekki-kommúnist-
ar, sem í fyrra voru „hreins-
aðir“ úr hinu pólitíska lífi „al-
þýðulýðveldisins Kína“ vegna
„hægri villu“ og árása á kom- j
múnistastjórnina, voru í dag |
teknir opinberlega í sátt aftur,
en verða þó að sætta sig við
lægri stöður, en þeir gegndu ’
áður. Þrír fyrrverandi ráðherr-
ar voru meðal þessara 18 ekki-
kommúnistísku stjórnmála-
inanna, sem mættu sem með-
limir hinnar þjóðlegu, kín-
versku ráðgjafarnefndar. Á
nefnd þessi að halda 13 daga
fund f Peking um leið og þing-
ið situr. Verða haldnir tveir
sameiginlegir fundir. í ráð-
gjafarnefndinni sitja 1071 full-
trúi hinna ýmsu sviða atvinnu-
lífsins í Kína.
Vara-formaður ráðgjafar-
nefndarinnar, Li Wei-Han, til-
kynnti, að hinir átján hefðu
verið teknir í sátt á ný, þar
eð þeir hefðu látið í ljós ósk
um að bæta ráð sitt. Síðan var
haldinn fundur í undirbúnings
nefnd. Sat Panchen Lama, kvisl
ingurinn frá Tíbet, fund undir-
búningsnefndarinnar, og var
hann valinn í forsætisnefnd.
f íiæk leif að hylkinu úr
Diicwerer II. við Svalbarða
Bandarískar flugvélar leita frá Bodö.
BODÖ, 17. apríl (REUTER).
Flugvélar bandaríska flughers-
ins hófu í dag nákvæma leit á
hafinu umhverfis Svalbarða að
hylki því, fullu af tækjum, sem
sieppt var frá bandaríska gervi-
tunglinu Discoverer II. sl.
miánudag. Komu stórar amer-
ískar flugvélar hingað frá flug
völluin í Bretlandi og Evrópu í
nótt ti) að taka þátt í leitinni.
Er leit þessi hafin vegna þess,
•að íbúar námabæjarins Long-
yearbyen á Svalbarða töldu sig
hafa séð fallhlíf lenda í hafinu
nálægt eynni snenuna á mið-
vikudag.
Finnn eða sex flugvélar
munu taka þátt í leitinni, sem
verður haldið áfram, Þar til
menn hafa leitað af sér allan
grun.
Jóhnsen, yfirmaður norska
flughersins í Norður-'Noregi,
segir að skilyrði til leitar séu
hin ágætustu.
í hylkinu, sem vegur 195
pund, eru tæki og filmur, er á
eru vísindalegar upplýsingar.
Þúsund karlar og konur
misstu atvinnu sína eftir
stórbruna í bænum Ilford
fyrir austan London. Þar
brunnu verkstæði og stór-
verzlanir. Mikið rok magn
aði eldinn. Myndin er tek
in degi eftir brunann; það
má sjá að slökkviliðs-
mennirnir eru ennþá að.
iMMMMWMHMMMtMMMW
Krústjov varö $5
ára í kyrrþey.
MOSKVA, 17. apríl (REUTER).
Nikita Krústjov hélt í dag upp
á 65 ára afmæli sitt, án þess
að Rússum væri einu sinni sagt
frá því. Hins vegar skrifuðu
blöð í leppríkjunum dálk eftir
dálk til að hylla hann. Krústjov
mun hafa eytt deginum í ró og
næði í sumarbústað sínum suð-
ur á Krím, þar sem hann hefur
dvalið undanfarnar þrjár vik-
ur.
KHELONG, 17. apríl. (NTB
—REUTER.) Dalai Lama og
130 manna fylgdarlið lians kom
síðdegis í dag til Khelong, sem
Jiggur á sléttum Assam-héraðs,
og voru indv. hermenn í för
með honum. Ilann lagði af stað
í morgun frá Bomdila, þar sem
hann hefur hvílt sig tvo daga
eftir hina löngu ferð frá Ta-
vvang-klaustrinu. Mikill mann-
fjöldi hafði safnazt sarnan í
Bomdila til að kveðja „guð-
kónginn“ o-g óska honum góðr-
ar ferðar. Meðfram leiðinni
stóðu hópar af Búdda-munkum
og sungu sálma, er laminn fór
framhjá.
í Khelong voru undirbúin
mikil hátíðaíhöld með söng og
dansi til að fagna Dalai Lama.
Frá Nýju Delhi símar AFP,
að stjórn indverska jafnaðar-
mannaflokksins hafi í dag gert
samiþykkt, þar sem segir, að at-
burðirnir í Tíbet séu aðvörun
til allra, er þrengi rétti fólks
til að ákveða sína eigin fram-
tíð og örlög. „Ekiki má neyða
neina þjóð tij að velja á milli
frelsis og voldugs nágranna.
Einlhver sætt verður að nást
með Tíbet og Kina, ef hægt á
að vera að koma á traustum
samskiptum og friðsamlegri
endurreisn í Suður, Suðaustur-
og Austur-Asíu,“ segir í sam-
þykktinni.
KÍNVERSKAR FRÉTTIR
Frá Hong Kong hefur Reuter
það eftir fréttastofu kommún-
ista, Nýja Kína, að hópui’ Tí-
hetbúa hafi í gær á fundi í
Lhasa þakkað kínværska hern-
um fyrir frelsunina. „Landráða
rnenn, sem eru úr hástéttum
Tíbets, hafa brennt klaustur,
misþyrmt og brytjað niður
munka, nauðgað nunnum og
rænt eignum fólksins,“ sagði í
ræðu, er haldin var á fundin-
um.
I Colomlbo er upplýst, að
sendiherra Ceyions í Mosltva sé
farinn flugleiðis til Peking í op-
inherum erindum. Óopiniber-
lega er sagt, að erindið sé í sam
bandi við atburðina í Tíibet.
Rússar sagðir á-
nægðir með komu
Nixons í sumar.
MOSKVA, 17. apríl (NTB—■
REUTER). Fréttinni um, að
Nixon, varaforseti Bandaríkj-
anna, sé væntanlegur í einka-
heimsókn til Sovétríkjanna í
sumar, er vel tekið í Sovétríkj-
unum, segir Tassfréttastofan í
Rannsóknanefnd
hefur yfirheyrslur í
Nyasalandi.
Rússar auka ároð-
ursúfvarp fil Af-
ríku.
LONDON, 17. apr., (REUTER).
Moskvu-útvarpið tilkynnti í
dag, að frá 24. apríl mundi það
útvarpa helmingi lengur en
áður á ensku og frönsku til
Afríku. Byrjuðu Rússar fyrst
fyrir ári að útvarpa til Afríku
á þessum málum og útvörpuðu
þá 15 mínútur á dag. Nú verður
útvarpað tvisvar í 30 mínútur
og einu sinni í 60 mínútur á
báðum málum.
ZOMBA, 17. apríl (REUT-
ER). Rannsóknarnefnd, er
brezka stjórnin hefur skipað til
að rannsaka kynþáttaóeirðirnar
í Nyasalandi í sl- mánuði, 'hóf í
dag að hlusta á vitnaleiðslur x
Zomba. Hefur nfendin undan-
farna daga hlusta á framburð
opinberra starfsmanna. Nefnd-
in fer til Blantyre á sunnudag.
Inngangur samþykkfur að
Auk þess var 9. grein samþykkt.
GENF, 17. apríl, (REUTER).
Þríveldaráðstefnan um stöðvun
tilrauna með kjarnorkuvopn
samþykkti í dag brezka tillögu
unx inngang að sanmingi um
bann við tilraunum með slík
vopn um aldur og ævi. Gerir
inngangurinn ráð fyrir, að
bann við framleiðslu og eign
slíkra vopna verði að lokum
látið koma til framkvæmda,
Kyrkti unnustu sína í kveðjukossi9 er hún
hafði sagt honum upp
LONDON, 17. apríi (REUT-
ER). Ungur Englendingur, er
kyrkti unnustu sína, sem sagt
hafði honum upp, þegar þau
kysstust kveðjukossinn, var í
daa dærrtdur í þriggja ára
fangelsi fyrir manndráp. Ját-
aði pilturinn, sem er 22 ára,
að hafa kyrkt unnustuna, sem
var 17 ára, þegar hún sagði
honum, að hún elskaði annan.
„Hinn maðurinn“ er líka
látinn. Hann framdi sjálfs-
morð á hóteli í Róm, er hann
heyrði, að stúlkan væri dáin.
Móðir stúlkunnar lýsti því
yfir við málsrannsóknina, að
liún liti enn á hinn óheppna
morðingja sem fjölskylduvin.
Skrifaði hún honum m. a. hréf
í fangelsið, þar sem liún bað
hann urn að áfellast ekki sjálf
an sig of mikið fyi’ir þennan
„óheppilega harmleik“. Var
pilturinn fundinn sekur um
manndráp, en ekiki morð. Er
dómarinn kvað upp dóminn,
kvað hann sér ómögulegt ann
að en dæma hann í fangelsi,
þótt hann hefði niikla samúð
með honum.
endanlegt bann verði sett á til-
raunir með slík vopn og haft
með því eftirlit, og kjarnorka
skuli aðeins notuð í friðsam-
leguxn tilgangi.
Þá er viðurkennd nauðsyn
stöðugs, alþjóðlegs eftii’lits og
látin í ljós von um, a'ð öll lönd
muni gerast aðilar að samkomu
lagi um að gera ekki kjarnorku
tilraunir.
Aðilar, er nærri standa fund-
araðilum, segja, að aðeins hafi
orðið stutt umræða eftir að
inngangurinn var samþykktúr,
en síðan fundi frestað til mánu-
dags.
Inngangur þessi var lítillega
ræddur í gær, er ráðstefnan
samþykkti grein, er tengir fyr-
irhugaðan samning við hverja
þá alþjóðlegu stofnun, er sett
verður upp til eftirlits með af-
vopnun og eftirliti með henni.
Er þá níunda gseinin, sem sam-
þykkt hefur verið síðan ráð-
stefnan hófst í október s.l.
Alþýðublaðið — 18. apríl 1959 3