Alþýðublaðið - 18.04.1959, Qupperneq 4
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Eltstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ást-
þórsson og Helgi Sæmundsson (áb). Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálrnars-
son. Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. Auglýsingastjóri Pétur Péturs-
son. Eitstjórnarsímar: 14901 og 14902. Augiýsingasími: 14906. Afgreiðslu-
«imi: 14900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Prentsmiöja Alþýðubl. Hverfisg. 8—10.
Stœkkim kjördœmanna
STEFNA FRAMSÓKNARFLOKKSINS í kjör
dæmamálinu er mjög á reiki. Hann mótaði á flokks
þingi sínu þá afstöðu, að allt landið utan Reykja-
yíkur skyldi vera einmenningskjördæmi og upp-
bótarþingsæti afnumin. Nú vill hann hins vegar
fallast á einmenningskjördæmi, þar sem Fram-
vsóknarmenn hafi von um að halda þingsætum, en
hlutfallskosningar þar, sem líkur séu á nýjum
þingsætum þeim til handa. Jafnframt berst Tíminn
gegn þeirri hugmynd að færa kjördæmin saman
í stærri félagsheildir af því að hún brýtur í bága
við ímyndaða eða raunverulega hagsmuni Fram-
sóknarflokksins. Og svo eru Framsóknarmenn að
•tala um málamiðlun, þó að ekkert annað en eigin-
hagsmunir komist að í hugum þeirra.
Megintilgangur kjördæmabreytingarinnar
er að afnema þau ranglátu sérréttindi, sem leiðir
af núverandi skipun. Þetta er enginn fjandskap-
ur við Framsóknarfiokkinn. Engum stjórnmála-
flokki getur iiðizt að byggja tilveru sína á sér-
réttindum, sem eru hróplegt ranglaeti. Og stækk
un kjördæmanna er ekkert áhorfsmál. Það er
hárrétt, sem Benedikt Gröndal benti á í útvarps
ræðu sinni, að sú ráðstöfun verður dreifbýlinu
lyftistöng en ekkert áfall. — Reykjavík á sannar
lega ekki ein að vera stór í þessu landi. Sveiía-
héruðin geta orðið sér úti um ýmsa kosti þétt-
býlisins með stækkun kjördæmanna.
Sjónarmið Framsóknarflokksins er viðhorf í-
haldssamrar einstaklingshyggju og kemur því úr
hörðustu átt. Eiginhagsmunir láta ekki að sér hæða,
hvar sem þeir koma til sögunnar. En smá væri þró-
un verkalýðshreyfingarinnar og samvinnufélags-
skaparins, ef hraeðsla við stærri samtök og félags-
heildir hefði mótað feril hennar og sögu. Bændur
mættu minnast afurðasölumála sinna í þessu sam-
bandi. Margt fleira mætti telja, og allt myndi hníga
að einni ályktun: Stefna kjördæmabreyting-
arinnar hefur þegar sigrað á íslandi. Og hún hefði
fyrir löngu átt að ráða úrslitum um skipun alþing-
is og völd og áhrif stjórnmálaflokkanna í landinu..
Tími þess ranglætis, að þröng eiginhagsmunasjón-
armið sitji í fyrirrúmi, ætti sannarlega að vera lið-
in tíð á Islandi. Og Framsóknarflokkurinn mun
sannfærast um það í kosningunum í yor, að smá-
sálarskapur hans ver|5ur ekki látinn standa í vegi
fyrir stækkun kjördæmanna og auknu áhrifavaldi
héraðanna úti um land.
og handlagna menn vantar okkur nú þegar.
Nemendur koma til greina.
BLIKKSMIÐJA REYKJAVÍKUR,
Lindargötu 26.
H a n n es
á h o r n i n u
★ Enn um litlu togarana.
~k Annar togaraskipstjóri
skrifar um málið.
'k Um nýtt fæðingarheim
ili í Kópavogi.
BRÉF jþað, sem ég birti fyrir
nokkrum dögum frá Togaraskip
stjóra um smátogarana, sem
keyptir vor.u til landsins, hefur
vakið' töluverðar umræður, elcki
síst meðal sjómanna. Margir
liafa skrifað mér og aðrjr talað
við mig og Ijúka allir upp ein-
um munni um það, að bréf Tog-
araskipstjórans hafi verið orð í
tíma töluð. Furða menn sig yfir
leitt á þvi, að stjórnmálamenn-
irnir skuli ekki telja sér skylt
að leita sétfræðilegrar affstoðar
og ráða þegar um sv.ona mál er
að ræða.
MÉR ER SAGT, að hér hafi
fyrst og fremst verið að verki
Lúðvíg Jósefsson, en hann er nú
einn af hvimleiðustu stjórnmála
mönnum þjóðarinnar. Að lík-
indum hefur honum fyrst og
fremst .gengið til einhvers konar
auglýsingaherferð og má vel
vera að hann hafi þó verið í
góðri trú í þetta skipti, að litlu
togararnir gætu orðið brú milli
vélbáta og venjulegra togara.
EN hvað sem þessu líður, er
það almennt álit .þeirra, sem
rætt liafa við mig, að kaup þess
ara skipa séu mjög misráðin. —-
Og að þó að margir haf.i sótt um
þau, þá vilji menn nú þegar
losna við þau. — Svona eru
mistök okkar á ýmsum sviðum:
í kaupum á atvinnutækjum, í
framkvæmdum og öðrum ráð-
stöfunum. Og allt stafar þetta af
stjórnmálaspekúlasjónum og
vanþe.kkingu. Mér þarst annað
þréf frá togaraskipstjóra. Hann
er einn af allra kunnustu tog-
araskipstjórum landsins.
ANNAR togaraskipstjóri skrif
ar mér: „Því er ekki ,að neita,
Hannes minn, að það sem tog-
araskipstjóri segir um 250 lesta
togarana í pistli þínum 10. þ. m.,
er almenn skoðun meðal reyndra
togaraskipstjóra. Hann segir satt
og rétt frá. 1917 höfðum við feng
ið reynslu fyrir því, að togskip
af þessari stærð hentuðu okkur
ekki, og þá seldum við þá „á
einu bretti“ flest þeirra skipa
og keyptum svo stærri og meiri
skip. Síðan hefur þróunin ver-
ið í sömu átt, þar til nú að stjórn
málamennirnir ganga á bug við
þessar st-aðreyndir og taka að
byggja upp svipaðan togskipa-
flota og við lögðum niður fyrir
rúmum 40 árum.
ÞÚ GETUR getíð þér nærri,
hvort ekki tók á hláturvöðv-
ana hjá okkur þeim gömlu, þeg-
ar við lásum það í Tímanum, að
ef til vill mundu þessir 250 lesta
togarar marka spor í. djúphafs-
veiðum íslendinga. Þetta kalla
ég ofsatrú. Ég veit ekki hvaða
ráðgjafar úr sjómannastétt eru
i samábyrgir stjórnmálamönnun-
um um þessa öfugþróun, en
j þeir eru tæplega reyndir tog-
I aramenn. Ég held að bezt væri
að losa sig við þessj skip sem
allra fyrst ,og það áður en þau
eru tekin í notkun. Áður en þau
lenda í vanhirðu hér heima. Um
það þarf svo ekki að fjölyrða,
að togskip þessi eru ekki af
þeirri stærð og gerð er við þörfa
umst nú helst“.
ÁSDÍS Steindóttir í Kópavogi
skrifar: „Mig langar að biðja
þig að birta eftirfarandi í dálkn-
um þínum. Eins og flestum er
kunnugt þá tó.k ti'l starfa nýtt
íæðingarheimili hér í Kópavogi
í haust, yið Álfhólsveg 66. Þéttá
heimili er einkaeign ungrar og
vel menntaðrar ljósmóður. Við
fögnuðum því Kópavogskonui*.
Þó að við gerðum ekki ráð.fyrir
í fyrstu, að hér væri um heim-
ili að ræða, sem yrði öðrum
stofnunum til fyrirmyndar. Við
reiknuðum bara með, að það
yrði svona eins og öll hin.
NÚ LIGG ég hér á sæng og
í næsta rúmi liggur kona úr
Reykjavík. Okkur langar svo
mjög til að láta í ljósi þakklæti
okkar og ánægju yfir ,því að hafa
komist hingað' til að fæða. —
Ástæðan er sú, að við höfum
aldrei fyrr orðið slíkrar um-
önnunar aðnjótandi í sængur-
legu og erum við þó báðar bún-
ar að eignast nokkur börn áður.
Með Ijósmóðurinni vinnur ung-
ur fæðingasérfræðingur. Ekki
get ég hugsað mér yndislegra
fólk. Þau gerðu mér allt til hag-
ræðis meðan á fæðingunni stóð,
enda fór hún þannig fram, að
ég gerði mér vart grein fyrir
henni fyrr en öllu var lokið.
ÞÁ FINNST MANNI það og
mikið að þakka að þó við værum
þarna sex í senn, var svo rólegt
og hljótt, að við nutum þess
sannarlega að sofa og hvíla okk-
ur. Að endingu sendi ég yfir-
Ijósmóðurinni og aðstoðarljós-
móðurinni og síðast en ekki sízt,
fæðingasérfræðingnum mitt
hjartáns þakklæti fyrir ógleym-
anlega sængurlegu. Matráðskon
unni flyt ég einnig þakkir fyrir
hennar mikla og góða mat.“
Ilannes á horninu.
Fermingar á morgun
Ferming í Laugarneskirkju,
sunnudaginn, 19. þ. m. kl. 10,30
f. h. (Séra Garðar Svavarsson).
Ferming í Halgrímskirkju, —
sunnud., 19. apr., 19.59, kl. 11
f. h. (Séra Jakob Jónsson).
arbraut 13. Árni Vilberg Sig-
urðsson, Hólabraut 12. Ásmund
ur Bragi Sigvaldason, Mjósundí
3. Baldvin Einar Baldvinsson,
Tungu. Böðvar Böðvarss., Lind-
arhvammi 2. Gunnar Magnús-
son, Álfaskeiði 27. Hannes Jóns
son, Lækjarkinn 10. Helgi Sig-
urðsson, Strandgötu 81. Her-
móður Sigurðsson, Elliðavatni.
Hreinn Kristberg Finnbogason,
Holti. Magnús Óskar Magnús-
son, Hraunkambi 1. Markús
Guðbrandsson, Köldukinn 10.
Rafn Guðmundsson, Strandgötu
27. Richard Henry Richardsson,
Hólabraut 9. Sigurður Jens Sig-
urðsson, Brunnstíg 4. Stefán
Björgvinsson, Norðurbraut 11B.
Vilhjálmur Steinþórsson, Öldu-
slóð 3. Þorsteinn Hálfdánarson,
Selvogsgötu 8.
STÚLKUR:
Arnbjörg Guðný Björgvinsd.,
Vesturbr. 10. Bryndís Magnúsd.,
Linnetsstíg 7. Elinborg Matth.
Stefánsd., Hringbr. 61. Hrefna
Axelsd., Kirkjuvegj 31. Guðbj.
Sigurðard., Selvogsg. 8. Hulda
Böðvarsd., Lindarhvammi 2.
Kolbrún Jónsd., Hraunkambi
10. Margrét Brynjólfsd., Hring-
braut 11. Margrét Halldórsd,,
Álfaskeiði 51. Ólöf Gunnarsd.j
Suðurg. 5.3. Pálmey Ottósd.,
Hverfisg. 6. Ragnheiður Gunn-
arsd„ Hringbr. 74; Sigr. Karls-
dóttir, Tjarnarbr. 3. Sigríður Ó1
afsd,, Öldug. 15. Vilfríður Þórð-
ard., Hringbr. 37. Þóra Gré.ta
Pálsdóttir, Vesturbraut 15.
DRENGIR:
Guðbjartur Sigfúss., Laugar-
nesv. 106, Guðm. Bogason, Aust
urhlíð við Reykjaveg. Gunnar
Jóhannesson, Hrísateigi 9. Ólaf-
ur V. Ingjaldsson, Rauðalæk 2.
Sigurð.ur Þ. Nielsen, Laugarnes-
vegi 86. Sturla Péturss., Laugar-
nesvegi 108. Thor B. Eggertss.,
Hátúni 11. Þorgeir Jónsson,
Kirkjuteigi 13. Örlygur Odd-
geirsson, Laugateigi 20.
STÚLKUR:
Anna Sverrisd., Silfurteigi 1.
Björg M. Sigur.geirsd., Tunguv.
64. Dóra S. Hilmarsd., Laugar-
nesv. 116. Eufemía Gíslad., Laug
arnesvegi 74. Eygló S. Stefánsd.,
Rauðalæk 9. Gerður J. Bene-
diktsd., Höfðaborg 67. Guðrún
Ármannsd., Hrísateigi 18. Jóna
Sesselja Guðbrandsd.,, Langh.-
vegi 2. Jónína Eyjólfsd., Miðtúni
17. Kolbrún Theódórsd., Dal við
Múlaveg. Ólöf Á. Ólafsdóttir,.
Stórholti 45. Sjöfn Axelsdóttir,
Grundargerði 9. Súsanna Sig-
urðard., La.ugarásvegi 55. Valdís
Hansdóttir, Suðurlandsbr. 91G.
Þorbjörg J. Guðmundsdóttir,
Otrateigi 3. Þórdjs S. Magnús-
dóttir, Miðtúni 84.
DRENGIR:
Bjarni B. Dannheim, Eskihlíð
35. Guðm. Björnsson, Mánag.
13. Gunnar E. Guðmundsson,
Lindarg. 42A. Jón Guðmundss.,
Baldursg. 20. Jón R. Sigurðss.,
Snorrabr. 32. Jón H. Stefánss,
Flókagötu 5. Kristjón Haraldss.,
Skaftahlíð 8. Magnús G. Davíðs-
son, Grettisg. 31. Ólafur H. Ól-
afsson, Grettisg., 22C. Ólafur Þ.
Ólafsson, Réttarholtsveg 97. Ósk
ar Smith, Snorrabr. 87. Ragnar
V. Bragason, Freyj.ug. 30. Sig-
urvin G. Gunnarsson, Leifsg., 8.
Örn Ingólfss., Njálsg. 25.
STÚLKUR:
Ásthildur K. I. Einarsd., Hverf-
isgötu 90. Freyja Jónsd., Lauga-
vegi 24B. Hildigunnur Jónsd.,
Hverfisg. 91. Ingibjörg Dann-
heim, Eskihlíð 35. Karen Emils-
dóttir, . Úthlíð 14. Margrét L.
Hfelgad., Skaftahl. 30. María K.
Ingvarsson, Njálsg. 34. Sigríður
Á. Pálsd., Leifsg. 6. Sveinbjörg
I. Jónsdóttir, Hrísateig 23.
-Fermingarbörn í Ilafnarf jarðar-
kirkju sunnudag 19. apríl kl. 2.
DRENGIR:
Allan Vagn Magnúss., Tjarn-
Fermingarskeytasímar Ritsímans í Reykjavík eru :
M0-20 fimm línur og 2-23-80 iólf línur.
4 18. apríl 1959 — Alþýðublafíið