Alþýðublaðið - 13.05.1959, Síða 1
hamingju
40. árg. — Miðvikudagur 13. maí 1959 — 104. tbl.
Eldhússpurning til Hermanns:
æfla al svíkja
-
r gi
ff
SÍÐARA kvöld eldhúsumræðnanna var í gærkvöldi, að
þessu sinni þrjár umferðir. Fyrir Alþýðuflokkinn töluðu þrír
ræðumenn, þeir Friðjón Skarphéðinsson dómsmálaráðherra,
Eggert G. Þorsteinsson alþingismaður og Gylfi Þ. Gíslason
menntamálaráðherra. Getið er um ræður þeirra á þriðju síðu,
eai hér fara á- eftir nokkur höfuðatriði.
FRIÐJÖN SKARPHÉÐINSSON sagði:
Hermann Jónasson sagði, að Framsókn
.þyrfti ekki meirilhluta í næstu kosningum
til að stöðva kjördæmamálið. Ef hún fengi
aukinn styrk, mundu einhverjir þeir, sem
málinu hafa fylgt, endurskoða afstöðu sína.
Hverjir eru það, sem Hermann býst við
að endurskoði afstöðu sína? Finnbogi,
Hannibal og Alfreð? — Það er nauðsyn-
legt, að þjóðin geri sér grein fyrir, hvers
hún getur vænzt, ef Alþýðubandalagið og
Framsókn fá aukið brautargengi í kosn-
ingunum.
EGGERT G. ÞORSTEINSSON sagði,
að dekur Framsóknarflokksins við kom-
múnista í verkalýðshreyfingunni og opih-
ber stuðningur við þá hafi verið eitt
stærsta áfall, sem samstarf Alþýðuflokks-
ins og Framsóknar hlaut. Þetta gerðist
vegna náinna tengsla nokkurra leiðtoga
Framsóknar við kommúnista, en var þessi
stefna tekin með samþykki Framsóknar-
manna úti um land? Hvernig hefðu Fram-
sóknarmenn brugðið við, ef Alþýðuflokks-
menn hefðu beitf sér fyrir margra flokka
samsteypu til að eyða áhrifum Framsókn-
ar í Samvinnuhreyfingunni?
GYLFI Þ. GÍSLASON sagði:-----------
Er það ekki að misbjóða dómgreind al-
mennings, þegar Framsókn ræðst á ríkis-
stjórnina fyrir stuðning Sjálfstæðisflokks-
ins við hana, svo oft sem Fraihsóknarmenn
hafa sjálfir verið í stjórn með 'íhaldsmönn-
um? Og halda Alþýðubandalagsmenn, að
þjóðin sé búin að gleyma, að kommúnist-
ar sátu í stjórn með Ólafi Thors og ræddu
nýlega við hann um stjórnarmyndun? •—
Munið, að ríkisstjórnin leysti efnahags-
málin með hlutleysi Framsóknar og kjör-
dæmamálið með stuðningi Alþýðubanda-
lagsins.
ÍSLENDINGAR sameinast
í dag um að árna forseta lýð-
veldisins, herra Ásgeir Ás-
geirssyni, heilla á 65. afmæl-
isdegi hans. Það verður gest-
kvæmt að Bessastöðum, því
margir munu vilja færa hon-
um og fjölskyldu hans ham-
ingjuóskir á þessum tíma-
mótuni.
Forsetinn á yfir langan og
viðburðaríkan veg að líta.
Þjóðin þekkir þá sögu vel,
og launaði störf hans, vizku
og farsæld á löngum stjórn-
málaferli með því að lyfta
honum í forsetastól.
Ásgeir Ás^eirsson hefur
ekki brugðizt því trausti,
sem honum var sýnt. Hann
hefur notið sívaxandi ást-
sældar landsmanna fyrir að
rækja æðsta embætti lýð-
veldisins með miklum sóma,
koma fram sem glæsilegur
fulltrúi þjóðar sinnar gagn-
vart umlieiminum, en vera
sá æðsti meðal jafningja,
sem Islendingar vilja hafa
forseta sinn.
Alþýðublaðið og Alþýðu-
flokkurinn senda forseta ís-
lands og f jölskyldu hans
innilegustu hamingjuóskir í
tilefni dagsins.
1040 funnur í snurpu á 5 dðgum
Bjarni Jóhannesson fékk 256 funnur í gær
íslenzkar barna-
sögur í eriendu
úfvarpi
ÞANN 22. apríl- var fluttur í
skólaþætti 'brezka útvarpsins
20 mínútna leikþáttur, saminn
upp úr tveimi sögum eftir Ólaf
Jóh. Sigurðsson, og eru þær úr
bók hans Við Álftavatn.
Þennan þátt tók samian ís-
lenzk kona, Áslaug Boucher,
sem gift er brezkum fræði-
mianni, dr. Alan Boucher, en
hann starfar við brezka skóla-
útvarpið. Dr. Boutíher hefur
dvalið hér á landi. Doktorsnafn
bót hlaut hann fyrir ritgerð um
Hallfreðarsögu.
Við Álftavatn hefur komið út
í fjórurn útgáfum, nú síðast á
nýliðnu hausti.
Fregn til Alþýðublaðsins.
AKRANESI í gær.
BJARNI JÓHANNESSON
kom í dag með 256 tunnur síld-
ar, er hann hafði veitt í snurpu-
nót. Hefur báturinn þá fengið
1040 tunnur í 5 róðrum. Einn
annar bátur, Höfrungur, er nú
að útbúa sig á síidveiðar með
snurpu.
5 Á REKNETAVEIÐUM
Fimrn bátar eru á síldveiðum
með reknet. Aflinn var fremur
tregur hjá þeim í dag. Var sá
aflahæsti með 64 tunnur. Síldin
sem veiðist er góð og fer hún öll
í frystingu.
Grindavík í gær. — Einn bát-
ur héðan úr Grindavík er byrj-
aður síldveiðar með snurpu. Er
það Hafrenningur, sem kom inn -
í morgun með fyrsta aflajan,
160 tunnur síldar. Fékk hann
aflann vestur á Sandvík. Nokkr
ir bátar eru að búa sig á rek-
netaveiðar. S.A.
LANDSSAMBAND danskra
námsmanna, Danske Studer-
endes Fællesrád, hefur gefið út
yfirlýsingu, þar sem skýrt er
tekið fram, að heimsmót „lýð-
Tilefni: Heimsmóf „íýð-
ræðissinnaðrarrr æsku
ræðissinnaðrar11 æsku, sem efnt
verður til í Vínarborg dagana
26. júlí til 4. ágúst, sé ekkert
annað en vandlega undirbúinn
Framhald á 3 síðu.
MARGIR bátar róa enn frá
Keflavík. Sumir ætluðu aA taka
upp í fyrradag, en þá fékk einn
bátur 15 lestir djúpt úti og
lagði þar aftur. Nokkrir fleiri
munu hafa fært net sín þangað.
Ekki er búizt við að haldið
ve^ði lengur áfram en þessa
V,íCU.
Fagrar kvikmymiir
frá Kanada
SL. laugardag bauð aðalræð-
ismannsskrifstofa Kanada á
íslandi fjöímörgum gestum að
sjá undurfallegar kvikmyndir
frá Kanada. Hafa myndir þess-
ar verið gerðar á vegum kanad-
íska ríkisins.
Fyrsta myndin sýndi þjóð-
veginn mikla þvert yfir Kanada.
Næst var mynd um vetrarhátíð
hinna frönskumælandi íbúa
Quebecborgar og að lokum var
mynd, er sýndi lifnaðarhætti
Eskimóa á Baffinseyju. Voru
myndir þessar allar í litum og
mjög fallegar og skemmtilegar.
! Í
ÞETTA
FR HAN!
VIÐ reyndum í gær að
birta mynd af Benóný Frið-
rikssyni, aflakóngi Vest-
mannaeyja, en pressan okk-
ar, sem farin er að eldast,
sveik okkur, svo að aðeins
sást skugginn af þessum ann
álaða fiskimanni, þó að skips
höfn hans prentaðist ágæt-
lega. En við VILJUM sýna
ykkur liann. Og hérna er
liann — vonum við.
mWWWMWWWMWWMWWWWtWWViWIWWWMWWWWVttMWWWIWWWMtW
Slökkviliðið
gabbað
KL. rúmlega 8 í fyrrakvöld
var slökkviliðið gabbað út.
Hringt var á slökkvistöðina og
tilkynnt, að eldur væri uppi í
húsinu Bergstaðastræti 54. Sím
anum var haldið uppi, ef ske
kynni, að hér væri um gabb að
ræðaj Refyndist svo vera. Á
símstöðinni var unnt að hafa
upp á númerinu, sem hringt
hafði verið frá, og að því búnu
var lögreglunni fengið málið
til meðferðar. Er ástæða til að
reyna að koma í veg fyrir að
slíkt sem þetta endurtaki sig.
I