Tíminn - 31.12.1965, Page 3

Tíminn - 31.12.1965, Page 3
FÖSTUDAGUR 31. desember 1965 TÍMINN Níræður á morgun: Séra Sigurbjörn Á. Gíslason Fyrir rúmum 60 árum hófust frændur tveir norðlenzkir handa um kristilegt sjálfboðastarf í Reykjavík. Vakti það að vonum talsverða athygli, en fáir léti sér til hugar koma, að slíkt „uppá tæki gæti átt mikla framtíð. Þeir höfðu útskrifazt úr presta skólanum aldamótaárið, 1900. Leiðir beggja hvors ,um sig, lágu til Danmerkur, í þann mund, er þar stóð sem hæst blómaskeið mikillar trúarlegrar endurnýjun- ar. Og þar hafði runnið upp hin mikla náðarstund lífs þeirra, stund trúar og köllunar. Upp frá því varð þeim sameiginleg trúar- og loforðsjátning, sem ann ar þeirra tjáði í ljóði þannig: „Feðranna trú, á bjargi byggð, vér bindum við þig ævitryggð." Þannig hófst nýr þáttur í kirkju sögu íslands, með sjálfboðastarfi guðfræðikandidatanna, Friðriks Friðrikssonar að æskulýðsmálum, og Sigurbjöms Ástivaldar Gísla- sonar að kirkjulegu heimatrúboði. Og nú, að nálegar sex og hálfum áratug liðnum, er það séð, að það var guðleg köllun, sem knúði þá til starfs og að þeir reyndust trúir al'lt til enda. Hinn einarði og fjölgáfaði bar áttumaður, S.Á.G. (þannig hefur nafn hans verið skammstafað, en það er æðioft búið að birtast á prenti), varð snemma þjóðkunn- nr. Hann þarf ekki að kynna fyrir lesendum Tímans. En rík ástæða er til þess, að hans sé minnzt á merkum tíma- mótum lífs hans. NSræður að aldri gengur hann teinréttur til starfa, þrátt fyrir dvínandi líkamsorku. Vistfólkið á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fjölmennti til messu hjá honum á aðfangadagskvöld, viku áður en hann fyllti nítugasta árið. Hann heldur fullri andlegri heil brigði, vakir af óbrigðulli trú- mennsku yfir óskabarni sínu, Elli heimilinu Grund, fylgist með at- burðum og viðfangsefnum líð- andi stundar, hefur enn sem fyrr á takteinum ógrynni endurminn- inga frá mikilli reynslu langrar ævi. Ævisaga síra Sigurbjörns er orð in meiri en svo, að hún verði rak- in í stuttri afmælisgrein. Þegar sú saga verður skráð, mun koma í ljós mynd hins hug- rakka, kristna athafnamanns, sem var svo stefnufastur, að borið var traust til hans, svo víðsýnn, að hann lét sér ekkert mannlegt óvið komandi. Frændi hans, síra Friðrik, vann frá upphafi og allt til dauða inn- an marka ákveðins köllunarverks, aðallega í Reykjaivík. Síra Sigur bjöm var og er hinn mikli sáð- maður, en akur hans var og er ísland, — ísland allt. Hann beið hvorki eftir brauði né vígslu. Hann lét ekkert tefja sig frá að hefjast handa um boð- un Guðs orðs........svo bar bráð- an að um konungs erindi.“ Hann hélt kristilegar samkomur, og fékk mæta menn í lið með sér. Og að prédikunarstarfi hefur hann haldið sig æ síðan, flutt fagnaðarerindið í kirkjum og sam komuhúsum, á óteljandi fundum, á bamasamkomum, í sjúkrahúsum og hegningarhúsum. Hann hefur ekki aðeins prédikað í Reykjavík og nágrenni, heldur og á ferða- Jögum um land allt í 30 sumur. þing. Heildarútgáfa rita hennar kom fyrir nokkmm ámm í fimm bókum. Það þótti mörgum furðu gegna, hve miklu hjónin í Ási, (en svo nefndu þau heimili sitt í Reykja- vík eftir æskihejmili síra Sigur- bjöms, Neðra Ási í Hjaltadal) gátu til vegar komið í almennings þarfir á opinberum vettvangi. Lausn þeirrar gátu var m.a. sam- heldni, ósérhlífni, gáfur og sann- ur guðsótti. Börn eignuðust þau tíu. Lengst af vann síra Sigur- björn fyrir heimilinu með erf- iðri kennslu. Stærðfræðikenn- ari var hann frábær. Ekki verður það séð á síra Sig- urbirni. að hann er maður marg- reyndur í skóla lífsins. Eftir að hafa séð á bak þremur barna sinna, skeði það dag einn, fyrir 27 árum, að hann missti eigin- konu sína og tvær uppkomnar dæt ur í einni svipan. Lostinn þung- um harmi, gat hann sagt með Hall grími: „Syrgja skai spart, þótt missta' eg margt. máttugur Herr- ann lifir." Eftirlifandi börn hans reyndust honum vel Dóttir hans Lára, og maður hennar, Ásgeir dýralæknir Einarsson, tóku við forráðum heimilisins. Enn á hann fjóra dugmikla syni: Lárus rithöf- und og skjalavörð, Halldór kaup- sýslumann. Gísla forstjóra og Frið ' rik stórkaupmann. Allir eru þeir í Reykjavík. — Hálf öld. er nú liðin og ári betur, síðan óframfærinn ungling Sigurbjörn Á. Gíslason. Og nú messar hann á afmælis- degi sínum, hinum nítugasta. Það bíður þess, er skrá mun ævisögu síra Sigurbjörns, að telja upp heiti allra þeirra bóka, bækl- inga og smárita, sem hann hefur samið, þýtt gefið út og dreift lát- laust um land allt í full 60 ár. Útgáfustarfsemi sína mun hann hafa byrjað með stofnun tímarits, — Vekjarans, síðan Heimilis- vinarins —, er verða skyldi mál- gagn kristilegs sjáfsboðastarfs inn an kirkjunnar. Hélzt sú útgáfa til 1907 að samtök voru mynduð um útgáfu blaðs. Nefndist það Bjarmi og kom út hálfsmánaðarlega. Fyrsti ritstjóri þess var Bjarni Jónsson, kennari og meðhjálpari. Þá tók S.Á.G. við blaðinu og var einn útgefandi þess og ritstjóri í um það bil 20 ár. Bjarmi &t nú málgagn K.F.U. M. og Kristniboðssambandsins. Enginn maður hérlendur hefur fylgzt jafn lengi og eins vel með gangi kristindómsmála um víða veröld og síra Sigurbjörn. Til þess hafði hann góð skilyrði. Hann hafði farið margar ferðir til útlanda, sótt fundi, og verið full- trúi héðan á alþjóðlegum mótum, og þingum og þannig kynnzt per- sónulega mönnum og málefnum. Bréfasambönd hafði hann við kristna leiðtoga í öllum álfum heims. Margir þeirra voru úti á kristníboðsakrinum. Auk uppbyggilegs efnis flutti Bjarmi lesendum sinum mikinn fróðleik. sem ritstjórinn hafði þannig aflað sér. Þar sem hann var einnig hjálplegur með útveg- un kristilegra blaða og tímarita, bæði frá Ameríku og Evrópu, verð ur ekki of mikið úr því gert, að hann hefur unnið kristni okkar afskekkta lands ómetanlegt gagn, með „kirkjulegri utanríkisþjón ustu.“ Ljósmynd: Tíminn-GE. Hann hefur í sannleika verið trúr og ósérhlífinn sáðmaður. Um áratugi hefur síra Sigur- björn gegnt forustuhlutverki í fjölmörgum nefndum og félögum, sem þó hafa öll sameiginlegt mark mið: Eflingu trúar, siðgæðis og sannkristinnar menningar í land- inu. Þannig mætti nefna Góðtempl- araregluna, — Kristilega safnað- arstarfsemi, — Líknarfél. Sam- verjann, stofnandi, — Kristniboðs fél. karla, formaður lengi, —Sam- band ísl. kristniboðsfél., stofnandi og formaður lengi, — stjórnar- nefnd alm. kirkjufunda, — sunnu dagaskólanefnd þjóðkirkjunnar, form., barnaverndarráð Islands, form. 4 ár, — sóknarnefnda- og prestafundi, frumkvæði að stofn- un, — stjórnarnefnd Hins ísl. Bibliufélags, — stjórnarnefnd Líknarsjóðs fslands, — o.s.frv. Fjarri fer, að margháttað starf síra Sigurbjörns öll þessi ár liggi í augum uppi. Yfir það ná engar skýrslur, engar tölur og verður því ekki réttilega metið, af mönn um. Sjálfur mun hann óska sér þeirra launa einna, að fá um síðir að heyra af vörum Drottins síns: „Gott, þú trúi og góði þjónn . . . Gakk inn til fagnaðar herra þíns.“ Samverkamanna minnist hann margra og góðra. en einn var al- beztur og ómissandi, — eiginkona hans, Guðrún Lársudóttir. frí- kirkjuprests Halldórssonar. Henni kvæntist hann 1902. við upphaf starfsferils síns. Hún var honum í fyllsta skilningi samhuga og sam hent, var góð eiginkona, móðir og húsmóðir. hafði brennandi áhuga á menningar og mannúðar- málum ásamt eflingu kristinnar trúar í landinu. Hún var glæsi- leg kona, menntuð. ritfær og mál- snjöll og naut snemma álits og vinsælda. Þannig var hún kosin á ur ofan úr Borgarfirði kom á fund Sigurbjörns í Ási og leitaði hjá honum upplýsinga og fjrrir- greiðslu til þess að verða kristni boði. Ekki vissi hann þá, að tíu árum áður hafði verið stofnað á heimili Áshjónanna fyrsta ís- lenzka kristniboðsfélagið, sem framtíð átti. Var Sígurbjöm hvatamaður þess, tengdamóðir hans fyrsta forstöðukona, en frú Guðrún tók sjálf við af henni síð ar. Þannig hófst minn ferill sena fyrsti kristniboði héðan frá ís- landi. Og alla tíð hef ég notið margvíslegara fyrirgreiðslu og fastrar vináttu velgerðamanns mins, síra Sigurbjörns í Ási. Persónulega og jafnframt fyrir hönd annarra kristniboða og kristniboðsvina íslenzkra, flyf ég honum níræðum hjartanlegar þakkir og blessunaróskir. — Líklégt má teljast, að Elli- og hjúkrunarheimilið Grund sé eitt af því sem honum verði til mestrar gleði á leiðarenda. Hann átti ríkastan þátt í stofnun þess fyrir 43 árum. Það hefur orðið, ekki einungis Reykjavík heldur og alþjóð til ómetanlegs gagns. For maður stjórnarnefndar hefur hann verið frá upphafi og prestur heimilisins síðan 1942. Frá söfnuði hans þar eru hon- um fluttar hjartanlegar þakkir og árnaðaróskir. Ólafur Ólafsson. Við lok fyrsta starfsárs verzlana vorra sendum vér viðskiptavinum og landsmönnum öllum beztu óskir um GLFÐLEGT OG FARSÆLT NÝTT ÁR. ÞÖKKUM VIÐSKIPTI Á LIÐNU ÁRI. Vér höfum kappkostað að bjóða einungis úrvals vörur við eins hagstæðu verði og kostur er. Und- irtektir viðskiptavina vorra munu verða oss hvatn- ing til að halda áfram á þeirri braut. ELFUR LAUGAVEGI 38 SNORRABRAUT 38. 1. vélstjóra og stýrimann vantar á vert.íðarbát. Upplýsingar í síma 33 1 72. Beitingamenn og háseti óskast. JÓN GÍSLASON SF„ sími 50865 eða 50524 Flugnemar Nemendur fvrir atvinnutlugmannsnám- skeið mæti til innritunar dagana 2. til 4. janúar. FLUGSKÓLINN ÞYTUR, sími 10 8 80.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.