Alþýðublaðið - 16.06.1959, Síða 12
FUJ í Kefla
FELAG ungra jafnaðar-
manna í Keflavík er 10 ára í
dag. Var félagið stofnað af 83
æskumönnum 16. júní 1949 og
fyrsti formaður þess kjörinn
Kristinn Pétursson.
Félagið minnist afmælis síns
með samkomu í veitingahús-
inu Vík í kvöld og hefst hún
kl. 9. Þar flytja ávörp Guð-
mundur í. Guðmundsson, utan-
ríkisráðherra, og Karl Steinar
Guðnason, formaður félagsins.
Þá skemmtir Flosi Ólafsson
leikari með eftirhermum og
gamanvísum og loks verður
stiginn dans fram eftir nóttu.
Aðgöngumiðar fást á flokks-
skrifstófunni, Hafnargötu 62,
sími 123, og í Vík.
Marjén Benedikfs-
son 75 ára í gær
f GÆR átti 75 ára afmæli
Marjón Benediktsson, verka-
maður, til heimilis að Hverfis-
götu 47 í Hafnarfirði.
Marjón hefur unnið alla al-
genga verkamannavinnu, en þó
rriest við útgerðarfyrirtækin í
Hafnarfirði. Hann er maður
traustúr og vel metinn af sam-
börgurum sínum.
40. árg. — Þriðjudagur 16. júní 1959 — 123. tbl.
sjálfsmorð Alþýðubandalags
Framsókn treystir á Valdimarssyni
LÁRUS Valdimarsson, fram ■
bjóðandi Alþýðubandalagsins í :
Austur-Húnavatnssýslu, lýsti
því yfir á framboðsfundinum í
Húnaveri við Bólstaðahlíð áj
sunnudaginn, að ekki kæmi til I
mála, að sósíalistar brygðust í
kjördæmamálinu. Sagði hann,
að slíkt væri sama og sjálfs-
morð fyrir Alþýðubandalagið
og til dæmis þýddi ekkert fýr-
ir það að bjóða fram í Austur-
Húnavatnssýslu eftir slík svik.
Tilefni þessarar yfirlýsingar
var það, að Björn Pálsson á
Löngumýri, • frambjóðandi
Framsóknarflokksins í Austur-
Kr. Krisfjánsson h.f. flyfur í
1(2 i
FYRIRTÆKIÐ Kr. Krist-
jánsson h.f. bauð blaðamönn-
um s. 1. laugardag að skoða hin
glæsilegu húsakynni er fyrir-
tækið liefur tekið til notkunar
við Suðurlandsbraut. Að vísu
hefur aðeins verið reistur hluti
af hinu fyrirhugaða stórhýsi,
en þó er mjög rúmgott fyrir
starfsemi fyrirtækisins og er
hægt að gera við 24 bifreiðar í
einu á verkstæðinu. Hjá fyrir-
tækinu vinna nú alls um 30
manns.
Fyrirtækið Kr. Kristjánsson
h.f., var stofnsett 19. júní 1951.
Húnavatnssýslu, gaf sterklega
í skyn, að kommúnistar myndtt
svíkja í kjördæmamálinu.
Taldi hann Hannibal Valdi-
marsson og Finnboga Rút Valdi
marsson hina ágsetustu menn
og að sumu leyti betri en ýmsá
Framsóknarmenn. Leyndi sér
ekki, að Björn batt vonir sínar
um svik í kjördæmamálinu viS
Hanmbal og Finnboga Rút.
Þetta er sér í lagi athyglis-
vert vegna þess, að Karl Guð-
jónsson gaf til kynna á fundi á
Stokkseyri fyrir skömmu, a'&•
mjög komi til álita að Alþýðu-
bandalagið og Framsóknar-
fl'pkkurinn myndi stjórn sam-
an, ef flokkarnir fái meirihlutá
í kosningunum. Og Hannibal
Valdimarsson hefur undanfar-
ið hvíslað að Vestfirðingum, að*
einmitt þetta sé hugsanlegt,
þrátt fyrir kjördæmamálið, ef
Alþýðubandalagið verði ekkl
fyrir stóráfalli í kosningunum.
Tók þá á leigu undir starfsemi
sína sem umboð fyrir Ford
Motor Company, húsnæði að
Laugavegi 168, sem reyndist þó
fljótlega of lítið og var tveim
árum síðar tekið á leigu sam-
liggjandi hús, núnier 170 við
Laugaveg, og einnig geymslur
undir bifreiðavarahluti á tveim
ur stöðum út í bæ.
Strax á árinu 1953 hófu for-
ráðamenn fyrirtækisins undir-
búning við útvegun lóðar og
fjárfestingarleyfis til bygging-
ar eigín húsnæðis. í apríl 1958
Framihald á 2. síðu.
Olíuverzlun ís-
lands opnar nýja
benzínstöð
í DAG opnar Olíuverzlun ís-
lands (BP) nýja benzínstöð við
gatnamót Suðurlandsbrautar
og Álfheima. Athyglisvert við
þessa stöð er, hversu innkeyrsl-
an liggur vel við umferðinni
og bygging hennar öll létt.
Þarna verður hægt að af-
. Framhald af 12. síðu.
FYRSTA framboðsfundin-
uin á Austur-Húnavatns-
sýslu lauk sögulega. Fram-
sóknarmenn undu stórilla
hlut sínum á fundinum, en
gei-ðu sér Þá hægt um vik,
settu nýjan fund að framboðs
fundinum loknum og röðuðu
sjö talsmönnum sínum á mæl
endaskrána. Varð af þessu
kurr mikill. Framsóknar-
menn vilja ekki aðeins hafa
margfaldan atkvæðisrétt um-
fram aðra þjóðfélagsþegna.
Málfrelsi þeirra er fólgið í
því að taía sjö í röð á skrípa-
fundi eftir að hafa farið hall-
oka í umræðum á jafnréttis-
grundvelli.
Fundur þessi var haldinn í
Húnaveri við Bólstaðahlíð á
sunnudag. Ræðuumferðir
voru fjórar, og deildu fram-
bjóðendur flokkanna allfast.
Þótti Framsóknarmönnum
hlutur Björns Pálssonar á
Löngumýri engan veginn
nógu góður á fundinum, en
hins vegar voru þeir þar fjöl-
mennir, énda hafði drifið að
þeim lið úr Skagafirði og a£
Akureyri auk heimaTOanna.
Risu þeir upp .Yð framboðs-
fundinum loknum og boðuðu
til nýs fundar, svo að kjósehd
um gæfist kostur á að tala.
Kom svo í ljós, er seinni fund
urinn hófst, að sjö Framsókns
armenn höfðu raðað sér á
mælendaskrá, meðan fram-
boðsfundurinn stóð enn yfir.
Framhald á 2, síðu.
Fegurðarsamkeppnin 1959 fór fram í Tívólí sl. sunnudagskvöld. Tíu ungar blómarósir
kornu bá fram kjólklæddar til keppni um fegurðardrottningartitilinn og þúsundir komu
til þess að horfa á bær. Af þeilm voru fimm valdar til þáttöku í úrslitakeppninni, sem
fer fram í kvöld, ef veður leyfir. Koma stúlkurnar bá fram í baðfötum. Nöfn þessara fimm
verða ekki birt fyrr en úrslitakeppnin hefst.
Nöfn þessara tíu stúlkna eru (talið að ofan) ; Sigríður Jósteinsdóttir, Sigríður Geirsdóttir,
Elín Guðmundsdóttir, Edda Jónsdóttir, Þuríður Guðmundsdóttir, Edda Gunnarsdóttir,
Sigurbjörg Sveinsdótitir, Ágústa G. Si'gurðardóttir, Ragnheiður Jónasdóttir, Aðalheiður
Björnsdóttir.