Alþýðublaðið - 14.07.1959, Blaðsíða 12
40. árg. — Þriðjudagur 14. júlí 1959 — 146. tbl.
ŒC^KIÍP
Síldveiðarnar:
LONDON, 13. júlí (Reuter). —
Nýstárlegasta keppni ársins
hófst hér í dag. Brezka blaðið
ijl'ihe London Daily Mail“ hef-
úr heitið 5.000 punda verðlaun-
Vm fyrir skjótustu ferðina frá
Marble Arch til Arc de Triom-
phe í París — og þúsund punda
verðlaunum fyrir óvenjuleg-
asta ferðamátann milli þessara
tveggja staða.
■ Keppnistímabilið er 11 dag-
■ar og skráðir þátttakendur 161.
Til keppninnar er efnt til þess
að minnast fyrstu flugferðar-
innar yfir Ermarsund, en hún
var farin fyrir 50 árum,-
E
ÚRSLIT urðu þau í leik S.-V.
landsliðsins gegn liði Jótanna
í gærkvöldi að jafntefli varð
eitt mark gegn einu. Leikurinn
var heldur tiljþrifalítill.
Fyrsti keppandinn — flug-
maður í brezka flughernum —
kom til Parísar í London og
var flugtími hans 57 mínútur
og 48 sekúndur.
Annar keppandi, sem líka er
kominn á leiðarenda, notaði
tvö mótorhjól, tvær þyrlur og
þotu til ferðarinnar.
Brezki hraðaksturskappinn
Stirling Moss fór leiðina á
tveimur tímum, 45 mínútur og
56 sekúndum. Hann fór á bíl
sínum frá Marble Areh til
Lydd í Kent, lét flugvél flytja
hann til Parísarflugvallar og
ók þaðan til Arc de Triomphe.
Fyrsti kvenþátttakandinn,
sem lagði upp í dag, er 31 árs
gamall flugkennari. Hún ætlar
á reiðhjóli til flugvallar í út-
hverfi Lundúna, fær þar far
fyrir sig og hjólið til flugvallar
í úthverfi Parísar og fer síð-
asta sprettinn á hj\51hestinum.
Einn keppandi, sem vonar
Framhald á 2. síðu-
Grænlandsmála-
ráðherrann í
Reykjavík
S.L. SUNNUDAG kom
K. Lindberg Grænlands-
málaráðherra, sem nú er
í ferðalagi um Grænland,
til Reykjavíkur. Á mynd-
inni eru taldir frá vinstri:
Lindiberg ráðherra, —
Knuth geifi, sendiherra
Dana hér á landi, Ludvig
Storr ræðismaður og Örn
O. Johnson fprstjóri Flug
félags Islands.
Ráðherrann og föru-
neyti hans kom hingað tii
lands með Hrímfaxa og
fór til Kulsuk í Græn-
landi í gærmorgun með
Sólfaxa. — Ljósm.: Sv. S.
UWMWWWWWWWWVWWVWWWWW HMWWWtWWWtVWWWWWVWMMW
SAMKVÆMT upplýsingum
frá biskupsskrifstofunni í gær
er nú lokið talningu atkvæða
í vígslubiskupskjöri Norðan-
lands. Sr. Sigurður Stefánsson,
prófastur, að Möðruvöllum í
Hörgárdal var löglega kjörinn
með 15 atkvæðum.
Næstur honum var sr. Frið-
rik A. Friðriksson, prófastur,
Húsavík, með 11 atkvæði, en
þriðji sr. Benjamín Kristjáns-
son, Syðra-Laugalandi með 2
atkvæði. 29 prestar höfðu at-
fcvæðisrétt og greiddu 28 at-
fcvæði, en ejnn skilaði auðu.
Sr. Sigurður Stefán'sson er,
fæddur 10.-11. árið 1903. Lauk
stúdentsprófi 1924, dvaldi við
nám í Kaupmannahöfn 1925—
’26. Cand. theol. í Rvík 1928.
Vígður til Möð.ruvali aklaus tur
þinga í Hörgardal sama ár og
veitt í sama mánuði. Hann var
einn af útgefendum' tímaritsins
Straumar og hefur skrifað grein
ar í Kirkjuritið og önnú blöð.
'Hann er kvæntur Maríu Ágústs
dóttur heilbrigðisfulltrúa í
Reykjavík Jósepssonar.
Oldruð kona
bráðkvödd
ÖLDRUÐ kona varð bráð-
kvödd s. 1. laugardag í Heið-
mörk. Hafði gamla konan farið
þangað ásamt dóttur sinni til
þéss að njóta gkóða veðursins.
Gamla konan var hálf níræð
að aldri. Hafði hún ekki kennt
sér neins meins er hún fór héð-
an úr bænum. Naut hún sólar-
innar þar um stund en hné síð-
an út af örend.
í Fallegar sfúlkur
á fallegum sfað
ÞEjSSI Þingvalíamynd
var tekin um helgina. Þá
liöfðu skikkanlegir borg-
arar hundruðum satnan
viðdvöl á Þingvöllum og
putu veðurblíðunnar, cn
þúsundir fóru um sögu-
staðinn. Það eru aðrar
myndir að austan á 1.
síðu, og á 5. síðu er nýtt
Þingvallabréf frá Þjóð-
garðsverði.
yWWMMVMWWWWWWWWM
Lausl brauð
ÆSUSTADAPRESTAKALL
í Húnavatnsprófastsdæmi hef-
ur verið auglýst laust til um-
sóknar. Umsóknarfrestur er til
15. ágúst.
Áður sat á Æsustöðum séra
Birgir Snæbjörnsson, en hann
sótti fyrir stuttu um Laufás í
Eyjafirði og var kosinn lög-
mætri kosningu.
Fregn til Alþýðublaðsins.
Siglufirði og Raufarhöfn
í gærkvöldi.
Á AÐFARANÓTT mánud. var
veiði ekki almenn, en nokkur
skip fengu þó allt að 1 þús mál.
önnur minna. Veður var sæmi-
legt. Annars eru mörg skipanna
á austursvæðinu, en við hér vit
um lítið um veiðina þar, vegna
Þess að Bretar eru farnir að út-
varpa músik á þeirri einu
bylgjuulengd sem haft er sam-
band á við Raufarhöfn og síld-
arleitarflugvélarnar. Virðast
Bretarnir gera í því, að reyna
að gera sem mestar truflanir.
Bátarnir eru nú byrjaðir að
kasta hér á vestursvæðinu og
eru þegar búnir að fá sæmileg
köst. Veður er nú gott, en nokk
ur þoka.
Raufarhöfn: — Enn bíða hér
nokkur skip eftir löndun, en
flest fara þau vestur með síld-
ina, þar sem allar þrær eru full
ar hér ennþá. Er talið að 4300
mál séu í skipunum sem bíða
löndunar. Lítilsháttar var reynt
að salta hér í dag. Hefur síldin
farið batnandi.
Afköst verksmiðjunnar eru
um það þil 5000 mál á sólar-
hring í bræðslu. Landað er nú
aðeins úr skipum eftir því hve
mikið verksmiðjan bræðir. Er
fyrirsjáanlegt, að enn líða noklc
rir dagar áður en hægt verður
að taka á móti síld hér að
nokkru ráði.
iiiimiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiuiYs
12400 funnur I
= a
| Til Alþýðublaðsins.
| Eyjum í gær. |
| VÉLBÁTURINN Berg- l
I ur kom inn í dag með full- |
| fermji síldar, scjm) hann |
| hafði fengið hérna í vík- |
í | inni við Eyjarnar og suð- |
|| ur á Bót. Virðist talsverð |
11 síld vera í sjónum og lief- §
| ur hann fengið allt upp í |
1 400 tunnur í kasti. Síldin |
| lítur vel út, feit og falleg 1
§ og er hvort tveggja fryst |
I eða sett í bræðslu. - Páll. |
IHIIIII misillitnrrrllllll lll IIIIIIIIIIII lllllllllllllllTIIIIIIIIIl