Alþýðublaðið - 18.07.1959, Síða 9
( iÞréttir Q
Islandsmótið.
Ármannsmótið:
Krisfleifur seffi mef í 2000 m.
Keflvlkingar
ruðu Val með 3:2
'5^' ÍBK átti síðari hálfleik.
Segja má að fyrri hálfleik-
urinn hafi verið alljafn, þótt
IBK ætti snarpari sóknarlotur.
En báðir áttu marktækifæri,
sem nýtast hefðu átt til að
skora úr fleiri en eitt mark í
viðbót við þau tvö sem hvor
um sig gerði. I síðari hálf-
leiknum voru hins vegar ÍBK-
liðar miklum mun harðsnúnari.
Hallaði þá óspart á Val með
köflum, svo telja verður það
heppni, að þeir sluppu með að-
eins eitt mark. Þegar í byrjun
skapaði Páll útherji sér gott
færi, eftir að hafa leikið mjög
laglega á þrjá varnarleikmenn
Vals, og stóð svo fyrir miðju
marki í stuttu skotfæri, en
skaut yfir. Þá átti Högni ekki
síður „opið færi“ nokkru síð-
ar, eftir að há sending að
marki hafði hrokkið yfir
Gunnlaug, og Högni, sem fylgdi
fast á eftir, komst inn fyrir
hann, og skaut á mannlaust
markið, en beint í aðra stöng-
ina og hrökk knöttufinn út og
Gunnlaugur náði honum þá.
Það var ekki fyrr en á 35.
mínútu, sem ÍBK skoraði sig-
urmarkið, sem tryggði því bæði
stigin. Það var Haukur Ja-
kobsson. sem það gerði. Fálm-
andi varnaraðgerðir tveggja
mótherja dugðu lítt, en hann
renndi knettinum í markið á
milli þeirra. í þessum hálfleik
tókst Valsmönnum ekki að
skapa neina verulega hættu
uppi við mark mótherjanna, þó
þeir kæmust í færi við það.
Skot áttu þeir að vísu, en allt-
of lin. Flestar sóknaraðgerðir
þeirra gufuðu upp í pati og
ringulreið, áður en til skots
kæmi, sem einhver veigur var í.
■Jc Keflvíkingar sýndu
góðan leik.
Lið ÍBK átti nú sinn bezta
leik síðan bað lék við Akurnes-
inga á heimavelli í vor. Er
stutt var liðið á leikinn varð
það fyrir því óhappi að' missa
annan bakvörðinn út af, Hörð
Guðmundsson, en hann snérist
um hnéið. Varamaðurinn, Garð
ar, sem inn kom, jafnaðist ekki
á við hann. Hafsteinn mið-
herji lék nú miklu betur en
gegn Þrótti á dögunum, og
gætti hann þess vel að láta
spyrnur sínar nýtast sem bezt,
en spyrna ekki eitthvað út í
bláinn, eins og hann gerði þá.
Hann var traustasti maður
ÍBK í leiknum. Páll Jónsson
hefur ekki átt betri leik en
þennan. Hann var bæði fljót-
ur og áræðinn og gætti vel
stöðu sinnar og var Valsvörn-
inni hinn erfiðasti. Högni mið-
herji hefur þann góða kost, þó
á skorti knattmeðferðina, að
fylgja fast eftir sókninni hverju
sinni, og skapa með því mikla
hættu fyrir framan markið,
auk þess sem hann á til góð
skot, þó illa skeikaði fyrir opnu
markinu mannlausu, eins og
fyrr segir. Yfirleitt má segja,
að lið ÍBK hafi ekki dregið af
sér, hver leikmaður gerði eins
og hann gat, og barizt af dugn-
aði. Knattspyrnan krefst líka
baráttu og ósérhlífni, ef ein-
hver árangur á að nást. Án
snerpu og vilja verður leikur-
inn máttlaust, nauðaómerkilegt
og tilgangslaust fálm.
í liði Vals voru tveir leik-
menn sem sýndu tilþrif, það
voru þeir Gunnar Gunnarsson
og Björgvin Daníelsson, þeir
sýndu báðir oft vasklega fram-
göngu svo að ef samherjar
þeirra aðrir, hver á sínu sviði.
hefð,u haft skap þeirra og bar-
áttuhug hefðu leikslokin senni
lega orðið önnur. Halldór Sig-
urðsson dæmdi leikinn, og
hefði að ósekju mátt sýna meira
húsbóndavald. EB.
A.-Þjóðverjar sigruðu Noreg (a),
KEFLVÍKINGAR (IBK) sigr-
aði Val í Islandsmótinu s. 1.
fimmtudagskvöld á grasvellin-
jim í Ytri-Njarðvík. Skoraði
ÍBK 3 mörlc gegn 2. Eftir
fyrri hálfleikinn var staðan
jöfn 2:2, en seint í síðari hálf-
leiknum skoraði ÍBK sigur-
markið.
Völlurinn var háll eftir rign-
ingu, en uppstytta var meðan
leikurinn fór fram. Hafði völl-
nrinn verið nýsleginn, en ein-
kennileg tilhögun var það, að
láta Ijána liggja á víð og dreif
um hann, í stað þess að raka
hana saman og fjarlægja. Ekki
drógu þessar hráblautu hey-
-dreifar úr hálkunni, sem vissu-
lega var ærin. Enda duttu leik-
menn óspart, og kvað meira að
því í liði Valsmanna, sem af
því má draga þá ályktun, að
þeir hafi ekki verið of vel bún-
ir til fótanna, hvað takka á
skónum snertir. Áhorfendur
voru allmargir og þeirra á með
al ýmsir aðkomandi, en auðvit-
að flestir úr heimahögum og
létu þeir óspart gleði sína í
ljós, yfir sigrinum að leikslok-
um, svo sem vonlegt var.
Staða ÍBK-liðsins í íslandsmót-
inu, serri ekki var goð fyrir,
aðeins 1 stig, vænkaðist all-
verulega við þennan sigur. Það
vann líka af kappi og dugnaði
allan leiktímann og átti oft
góð tilþrif.
★ Stutt yfirlit.
Það voru þeir Högni mið-
herji og Páll útherji í liði ÍBK,
sem áttu fyrstu marktækifær-
in í leiknum, annar á 4. og hinn
á 5. mínútu, en skutu báðir
yfir. Eftir þessar sóknarlotur
tóku Valsmenn við og næstu
tíu mínútur sóttu þeir veru-
lega á. og áttu góð tækifæri.
Var þessi kafli leiksins sá bezti
af Vals hálfu. Matti átti fast
skot rétt utan við stöng, og
Björgvin skot á mark, sem
Heimir varði vel. Loks átti
Gunnar gott skot, sem hann
skoraði úr, eftir sendingu frá
Björgvin. Var hvort tveggja,
sending og skotið, ágætt. Er hér
var komið leiknum voru 16
mínútur liðnar.
Aðeins tveim mínútum síð-
ar jafnaði Högni fyrir ÍBK,
eftir hraða sókn og skoraði með
góðu skoti. Gunnlaugur hefði
átt, með úthlaupi á réttu augna
bliki, að takast að verjast þessu
marki. Á 22. mínútu á Kristján
útherji Vals góða sendingu fyr-
ir markið, Gunnar er frír í
opnu færi en skeikar skotfim-
in á hálum knettinum, sem
snérist út fyrir endamörk af
fæti hans. Aftur er Valur í
sókn. Gunnar sendir háan
bolta inn að markinu, Haf-
steinn „kiksar“ og Matti skýt-
ur, en yfir. Þá á Högni skömmu
síðar fast skot í stöng. Og aft-
ur eru ÍBK-liðar í sókn, en
hún leysist upp á vítateig. Er
38 mínútur eru af leik, skorar
Gunnar aftur fyrir Val, með
hörkuskoti eftir að knötturinn
hafði hrokkið af tá eins mót-
herjans og til hans, nýtti Gunn
ar þetta tækifæri mjög vel, en
sú sigurdýrð stóð ekki lengi,
því aðeins 2 mínútum síðar
jafnar Páll Jónsson útherji,
fyrir ÍBK, með ágætu og
snöggu skoti.
en Noregur (b)
i'Ba 2 -
I DÁSAMLEGU sumarveðri,
á ágætum brautum að viðstödd
um 11 þúsund áhorfendum
hófst landskeppni Norðmanna
gegn Austur-Þýzkalandi og
Danmörku á Bislet í fyrra-
kvöld. A-liðið keppi gegn Þjóð-
verjum, en B-liðið gegn Dön-
um. Að fyrri degi loknum var
staðan sú, að A-Þjóðverjar
höfðu 22 stig yfir, 64:42, en
Norðmenn 24 yfir Dani.
Keppni Norðmanna og A-
Þjóðverja vakti að vonum meiri
athygli, enda margir fræknir
kappar í báðum liðum. Sett
voru tvö ný þýzk met, Manfred
Ninze í þrístökki, náði 15,52 m
og Friedric Janke í 5000 m
hlaupi, hljóp á 13:46,8 mín.,
sem er bezti heimstíipirin í ár.
Norðmennirriir veittu Þjóðverj
um mjög harða keppni í mörg-
um greinum og í þeirri fyrstu,
11 m grind, kom norskur sigur,
Tor Olsen, 14,5 sek., Þjóðverj-
inn Huebner varð annar á sama
tíma.
Carl Fr. Bunæs, N, sigraði
glæsilega í 100 m hlaupinu á
Dani í frjálsum
10,4 sek. Seidler, Þ, varð annar
á 10,5, en Björn Nilsen þriðji á
10,6.1 hástökkýsigraði Gunther
Lein, 2,04 m, en Thorkildsen
varð annar með 1,98 m. Þjóð-
verjar unnu tvöfaldan sigur í
hindrunarhlaupi, en Norð-
menn sigruðu í 4X100 m boð-
hlaupi.
í keppni Dana Og Norð-
manna sigruðu þeir fyrrnefndu
aðeins í þrem greinum, Mad-
sen í 100 m 4.10,8, Benny Sten-
der 1 800 m, 1:52,1 og Ilaus Gad
í spjóti með 65,74 m.
í GÆRKVÖLDI lauk keppn-
inni á Bislet og mörg frábær
afrek voru unnin. í 1500 m.
hlaupi sigraði Valentin, A-Þ.,
á 3:39,3 mín., sem er þýzkt met
og bezti heimstíminn í ár. Ann
ar varð Sigried Hermann á 3:
41,2 mín.
Sleggjukastkeppnin fór þann
.ig að Niebisch, A-Þ., sigraði á
nýju þýzku meti 62,77 m.,
Krogh varð annar 61,41. Bu-
næs sigraði í 200 m. á 21,3,
Framhald á 2. síðu.
SIÐARI hluti afmælismóts
Ármianns, sem fram fór á Mela-
vellinum í fyrrakvöld, -gekk
betur en sá fyrri. Það var alltaf
einhver grein í gangi og tilkynn
ingar um tíma, kast- og stökk-
lengdir komu sæmilega fljótt,
en betur má ef duga skal.
ÁGÆTT MET. KRISTLEIFS
Auglýst var á fyrra degi móts
ins, að Kristleifur Guðbjörns-
son, ein okkar stærsta stjarna
nú, ætlaði að reyna að setja met
í 2000 m hlaupi seinni daginn
og þó að veður væri alls ekki
KRISTLEIFUR —
á nú met á 4 vegalendum
gott, tókst það. Um keppni var
auðvitað ekki að ræða, en gam-
an hefði verið að sjá hann og
Svavar, fyrrverandi methafa,
þreyta kapp á þessari vega-
lengd. Tími Kristleifs var
5:27,0, en hið gamla met Svav-
ars var 5:29,2 mín.
Hlaup Kristleifs var jafnt og
gott og endaspretturinn fram-
úrskarandi. Eins og áður hefur
verið getið um hér á síðunni
vantar þennan unga hlaupara
ckkar ekkert nema keppni og
gott veður til að ná tímum á
heimsmælikvarða, en það tæki-
færi gefst í næsta mánuði.
YFIRBURÐIR GESTANNA
Finnsku íþróttamennirnir
sýndu gífurlega yfirburði í
sínum greinum, 200 m og
sleggjukasti. Borje Strand,
varð langfyrstur og hljóp á
22,0 sek., en okkar beztu
rnenn voru ekki með af ýms-
um ástæðum. Sleggjukastar-
inn Rorppu sýndi ágæta tækni
og öryggi og snúningur og út-
kast eins og hjá meistara.
Ekki kæmi á óvart, þó að
hann næði 60 m markinu á
þessu sumri, en finnska met-
ið á Hoffren, 60,77 m. Þórður
náði góðum árangri á okkar
mælikvarða og sama má segja
um Einar Ingimundarson.
AÐRAR GREINAR
Stangarstökkið var allgott.
Valbjörn fór yfir 4,20 m og var
nálægt því að vippa sér yfir
4,35 m í fyrstu tilraun, ,en það
var ekki gott að stökkva að
þessu sinni. Keppni var
Sýndu þessir ungu piltar ágæt
skemmtileg í 100 m hlaupi
drengja og þátttaka allgóð.
tilþrif.
Ingvar Þorvaldsson er stöð-
ugt að bæta sig í þrístökkinu og
náði nú sínum bezta árangri í
greininni. Hann stekkur allvel,
en síðasta stökkið ep nokkuð
slappt.
Okkrr gamli gíóði Huseby
sigrar nú með yfirburðum x
kúlu eins o^ áður, en hann er
ekki góður í fæti og því ekki
að búast víð betri árangri,
Björgvin hefur aldrei varpað
kúlu svona langt og á fyrri
deginum kastaði hann kringl-
unni yfir 40 m. Keppnin í
grindahlaupinu var spenn-
andi, en sigri Ingimars var
aldrei ógnað.
NÆSTA MÓT
Næsta frjálsíþtróttamót verð-
ur 21. og 22. júlí, þá verður háð
tugþraut Reykjavíkurmótsins,
ásamt 10 km Og 3000 m hindr-
unarhlaupi. Sömu daga fer
fram' Drengjameistaramót ís-
lands. Bæði mótin verða háð á
Laugardalsvellinum.
\
HELZTU ÚRSLIT: *
400 m. grindahlaup:
Ingimar Jónsson, KA, 59,7
Hjörtur Bergsteinsson, Á, 60,2
Kúluvarp:
Gunnar Huseby, KR, 14,72
Hallgrímur Jónsson, Á, 14,15
Ágúst Ásgrímsson, HSH, 14,12
Björgvin Hóim, ÍR, 13,54
200 m. hlaup:
Borje Strand, Finnl., 22,0
Þorkell St. Ellertsson, Á, 23,8
Unnar Jónsson, HSK, 23,9
Konráð Ólafsson, KR, 24,6
200 m. hlaup:
Kristl. Guðbjörnnss. KR, 5:27,0
(Met).
Reynir Þorsteinsson, KR, 6:07,6
Steinar Erlendsson, FH, 6:44,8
100 m. hlaup drengja:
Lárus Lárusson, ÍR, 12,1
Birgir Jónssom ^KR, 12,2
Kristján Eyjólfsson, ÍR, 12,2
Ingólfur Árnason, Á, 12,7
Stangarstökk:
Valbjörn Þorláksson, ÍR, 4,20
Heiðar Georgsson, ÍR, 3,80
Valgarð Sigurðsson, ÍR, 3,80
Sleggjukast:
Kalevi Horppu, Finnl., 57,39
Þórður B. Sigurðsson KR, 50,08
Framhald á 2. síðu.
Valið í för
til Færeyja
ÁKVEÐIÐ er að þessir aðil-
ar taki þátt í Færeyjaferðinni
á vegum Knattspyrnusarnbands
íslands 25. júlí til 5. ágúst n. k.
Ragnar Lárusson, varaform.
KSÍ, fararstjóri. Páll Ó. Páls-
son, varamaður í stjórn KSÍ.
Alfiæð Alfreðsson, foi'm. í-
þróttabandalags ísfirðinga cg
Karl Guðmundsson, þjálfari
KSÍ.
LEIKMENN.
Gunnlaugur Hjálmarsson, Val,
Þórður Ásgeirsson, Þrótti, Ein-
ar Sigurðsson, Í.B.H., Helgi
Hannesson, Í.A., Hörður Guð-
mundsson, Í.B.K., Magnús Snæ
björnsson, Val, Guðmundur
Guðmundsson, Í.B.K., Ragnar
Jóhannsson, Fram, Ingvar Elí-
asson, Í.A., Guðmundur Ósk-
arsson, Fram, Högni Gunn-
laugsson, Í.B.K., Björn Helga-
son, Í.B.Í., Baldur Scheving,
Fram, Grétar Sigurðsson,
Fram, Gísli Sigurðsson, Í.A.,
Guðmundur Sigurðsson, Í.A.
(Frá K.S.Í.).
Alþýðublaðið — 18. júlí 1959 §