Alþýðublaðið - 24.07.1959, Síða 4
Brof á kristnum lögum
Utgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjðrar: Benedikt Gröndai, Gísli J. Aat-
þðrsson og Helgi Sæmundsson (áb.). Fulltrúi ritstjðrnar: Sigvaldi Hjálm-
arsson. Fréttastjðri: Björgvin Guðmundsson. Ritstjórnarsímar: 14901 og
14902. Auglýsingasími: 14906. Afgreiðslusími: 14900. — Aðsetur: AlþýOu-
, búsið. Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgata 8—10.
| Forsetakjörið á alþingi
N TÍMINN þykist vera stórhneykslaður á því,
að Alþýðuflokkurinn, Alþýðubandagið og Sjálf-
stæðisflokkurinn höfðu samvinnu um forsetakjör-
ið á sumarþinginu. Sú fordæming er tilbúin. Ekk-
ert er sjálfsagðara en flokkarnir, sem samþykktu
kjördæmabreytinguna í vetur og munu staðfesta
hana á sumarþinginu, skipti með sér forsetunum
og hafi samstarf um nefndakosningar. Eða ætlað-
ist Framsóknarflokkurinn kannski til þess að fá
alþingisforsetana og tryggja sér þannig, að þófið
gæti staðið eins lengi og honum sýndist?
I Framsóknarmönnum finnst fara illa á því,
| að Alþýðubandalagið kjósi Bjarna Benedikts-
son forseta sameinaðs þings og Sjálfstæðisflokk
urinn Einar Olgeirsson forseta neðri deildar. Þá
ertni tekur enginn alvarlega. Flokkarnir réðu
auðvitað hver um sig forsetaefnum sínum, og
það vita Framsóknarmenn, enda sæmilega van
| ir þessum málum. Sjálfstæðisflokkurinn réði
því á sínum tíma, að Bjarni Benediktsson varð
| ráðherra í samstjórn hans og Framsóknarflokks
| ins, og Framsóknarmenn létu sér dável líka. Og
! uni Framsóknarflokkurinn því illa, að Bjarni
Benediktsson er orðinn forseti sumarþingsins,
þá ættu Hermann og Eysteinn að láta reiði sína
hitna á Birni Pálssyni. Jón Pálmason myndi
sennilega hafa orðið forseti sameinaðs þing, ef
Björn væri ekki fulltrúi Austur-Húnvetninga á
| sumarþinginu. Og varla er meiri raun fyrir
Sjálfstæðismenn að kjósa Einar Olgeirsson for
seta neðri deildar á sumarþinginu en fyrir Fram
sóknarmenn að hafa falið honum þann trúnað
um þriggja ára skeið. Alþýðuflokkurinn gerir að
I minnsta kosti lítinn greinarmun á því, hvort
| hann kýs Einar í þetta starf með Sjálfstæðis-
[ flokknum eða Framjsóknarflokknum. En honum
er mikið atriði að tryggja störf sumarþingsins
og afgreiðslu kjördæmamálsins. Þess vegna
fagnar hann samvinnunni um kjör alþingisfor
[ setanna.
Tíminn hefur nú sama hátt á og hann for-
dæmdi í fari Morgunblaðsins, meðan vinstri stjórn
in sat að völdum. Slík kjánalæti sæma ekki ábyrg
um stjórnmálamönnum. Flokkarnir hér á landi
hafa unnið saman til skiptis undanfarin ár og batna
hvorki né versna af samanburði í því efni. Sam-
vinnu þeirra á hverjum tíma liggja málefni til
grundvallar, og svo er enn. Og það ætti Framsókn
arflokkurinn að geta skilið, ef hann er ekki bú-
inn að æra sig í baráttunni gegn kjördæmabreyt-
ingunni.
r
Medalfellsvafn
Stangaveiði í Meðalfellsvatni verður fyrst um sinn
aðeins fyrir félagsmenn.
í Reyðarvatni og Uxavatni geta allir fengið
veiðileyfi sem eru seld í verzl. Veiðimaðurinn,
verzl. Sport, H. Petersen. P
Skrifstofa S.V.F.R. Bergstaðastræti 12 B. Símti
19525. Opin mánudaga og fimmtudaga kl. 5—6,30.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur.
SVFSt
PRESTAFÉLAG íslands hef
ur sent þrjátíu brezkum blöð-
um, báðumi erkibiskupunum og
fjölmörgum prestum skeleggt
bréf um landhelgisdeiluna, þar
sem segir meðal annars að að-
gerðir Breta séu brot á kristn-
um lögum, og valdi vantrú á
einlægni Breta í því að fylgja
liugsjón drengskapar og kristi-
legs bræðralags.
Við gtiðsþjónustu í Hallgríms
kirkju á sunnudaginn var gerði
séra Jakob Jónsson, form.
Prestafélagsins, heyrinkunnugt
efni bréfsins og fer það hér á
eftir:
Kæru bræður í Kristi!
Fyrir hönd hins íslenzka
prestafélags sendum vér bréf
þetta enskum kennimönnum
sem samþjónum vorum í
Drottni og prédikurum hins
kristna fagnaðarerindis.
Kirkjunnar fólk á íslandi
hefur fagnað því á liðnum ár-
um, að vináttusamband hefur
verið milli þjóða vorra. Á síð-
ustu mánuðum hefur samband
góðvildarinnar rofnað vegna að
gerða hinnar brezku ríkisstjórn
ar, sem að voru áliti brýtur í
iandhelgisdeilunni hið sanna
lögmál kristilegs samféiags og
kristilegs siðgæðis.
Alkunna er, að England er
ekki hið eina land, sem and-
mælt hefur 12 mílna fiskveiða-
takmörkum, en England er eina
landið, sem notar hernaðartæki
í þeim tilgangi að knýja hið ís-
lenzka lýðveldi til að afnema
reglur, sem þjóðin öll, án tillits
til stjórnmálaskoðana, telur
vera í samræmi við alþjóðleg
lög, og nauðsynlegar _ til að
tryggja framtíðartilveru þjóð-
ar vorrar. Aðgerðir Breta geta
þá og þegar valdið líftjóni ís-
lenzkra og enskra borgara, sem
sannarlega ættu ekki að þurfa i
að óttast slíka hættu, til viðbót-
ar hinum venjulegu hætt.um
hafsins. Enda Þótt slíkum sorg-
aratburðum verði afstýrt fyrir
Guðs náð, mun enn verða hætta
á breyttum andlegum viðhorf-
um. íslendingar vita, að eigi
styður öll hin enska þjóð stj órn
sína í máli þessu. Samt mun
þetta brot á kristnum lögum og
grundvallarreglum valda van-
trú á einlægni Breta í því að
fylgja hugsjón drengskapar og
kristilegs bræðralags.
Vér vonum, að þér, þjónar
kristinnar kirkju, séuð oss sam
mála um hina miklu þýðingu
þessa máls. Vér biðjum yður að
kynna yður ágreiningsefnin,
þar eð vér trúum því, að þegar
þér vitið sannleikann, eins og
hann er, munuð þér fúsir til að
hafa áhrif á almenningsálitið,
svo að hin enska þjóð líði eigi
lengur hinar skaðlegu aðgerðir
ríkisstjórnar yðar, sem nú ríf-
ur niður samfélag tveggja kist-
inna þjóða.
Almáttugur Guð blessi störf
yðar, kirkju og land.
Jakob Jónsson,
prestur, form. Prestafél. ísl.
Sigurbjörn Einarsson,
biskup íslands,
varaform. Prestafél. íslands.
Jón Þorvarðsson,
prestur, ritari Prestafél. ísl.
fH a n n es
á h o r n n u
★ Slysið á barninu í Hafn
arfirði.
★ Furðuleg fullyrðing A1
þýðublaðsins.
★ Hvaðan kom því heim
ildin?
★ Ekki skólagarðarnir
heldur Vinnuskóli
Reykjavíkur.
HRVGGUR Njarffvíkingur
skrifar mér á þessa leiff: „Um-
komulítið þrettán ára stúlku-
barn I Hafnarfirði verður fyrir
því hroðalega áfalli aff missa
hægri hönd sína og handlegg
upp fyrir olnboga við vinnu
sína í frystihúsi. Þaff blýtur aff
vera þungbært áfall í byrjun
æviskeiðs og alltaf. — Hannes
minn, ég get ekki orffa bundist
út af smáklausu í blaffi okkar
daginn eftir slysið. Hún var með
yfirskriftinni: „Öryggisútbúnaði
var ekki áfátt í frystihúsinu“ og
meðal annars sagt, aff öryggis-
útbúnaður sé þar talinn fullnægj
andi og öryggiseftirlitið líti svo
á.
HVERJU þjóna slíkar fullyrð-
ingar að órannsökuðu máli? Ég
lít svo á,> að hafi barnið getað
hlotið þessi örkuml við að hrasa
á eða við færibandið, þá sé
meira en litlu áfátt við örygg-
isútbúnaðinn. Er börnum ætlað
að vinna.við slík véldrifin tæki? í
— Þannig koma fram fjölmarg-
ar spurningar í hugskot mitt
og ég beini þeim til hinna full-
orðnu. Væri ekki meira sæm-
andi fyrir Alþýðublaðið að
hvetja til aukins eftirlits við
svona vélræna vinnu, ekki hvað
síst þegar börn eða unglingar
eiga í hlut, eða þegja ella?“
ÞETTA er alveg rétt. — Mig
furðaði á þessari athugasemd í
blaðinu við fréttina. Hvaðan
kom því heimildin? Hverju var
það að þjóna? Er nú gleymd
baráttan fyrir því að draga úr
áhættu verkalýðsins? Alþýðu-
blaðið hefði átt að krefjast taf-
arlausrar nákvæmrar og opin-
berrar rannsóknar, ekki aðeins
í þessu eina frystihúsi heldur og
í öðrum. Það veitir sannarlega
ekki af því að rumskað sé við
vélaeftirlitinu og öðru eftirliti.
Mönnum hættir við að dotta.
í VOR, snemma birti ég tvö
bréf frá sjómanni á Akranesi út
af eftirliti með skipum — og
kom þar margt fram ófagurt. —
Út af þessum skrifum var rekið
upp ramakvein — og jafnvel
farið að bera bréfritarann
brigslum, algerlega út í loftið og
að ástæðulausu. En útkoman
varð sú, að menn rumskuðu og
mér er kunnugt um, að bréfin
báru mikinn árangur, þó að
hann sé ekki nógu mikill.
VIÐ höfum verið að bíða eftir
skýrslu um útbúnað færibands-
ins í Hafnarfirði. Skýrslan ætti
> að koma frá vélaeftirlitinu, en
Baldur Svan-
laugsson 50
ára í dag
BALDUR Svanlaugsson,
bifreiðasmiðameistari, Bjark-
argötu 3, Akureyri, — er
fimmtugur í dag. Baldur er
fæddúr að Ásláksstöðum í
Krækiingahlíð, en uppalinn
að mestu í Mið-Samtúni sömu
sveit.
Foreldrar hans voru Svan-
laugur ísleifsson og Kristrún
Sumarliðadóttir pósts og
bónda á Ásláksstöðum.
Hann er því af góðu bænda-
fólki kominn og uppalinn í
sveit. Þótt það hafi ekki allt-
af verið svo, Þykir nú orðið
fullt eins vænlegt til mann-
dóms og þroska að alast upp
á góðu sveitaheimili.
Baldur var giftur Sigur-
laugu Guðmundsdóttur, skip-
stjóra. Þau hafa eignast fjög-
ur börn: Svanlaugu, Magrfk,
Hallgerði og Ásgerði. Þrjú
þau fyrst töldu stunda nám
við menntaskólann á Akur-
eyri, en Ásgerður í Reykja-
vík ÖU eru þau einkar efni-
leg. Það má því segja að Bald-
ur sé mikill lánsmaður hvað
það snertir, því að eiga góð
og mannvænleig börn, sem all
ar líkur benda til að verði hin-
ir nýtustu þjóðfélagsborgarar,
er meira lán en svo, að metið
verði til tímanlegra fjármuna.
Baldur Svanlaugsson er alger
andstæða við þá samtíðar-
menn Gríms Thomsen sem
Framhald af 9. síðu.
það er þó ekki fullnægjandi. —
Hvar eru verkalýðsfélögin? í
hvert sinn, sem svona slys eiga
sér stað á vinnustað, eiga verka-
lýðsfélögin að senda fulltrúa
sinn á staðinn og athuga allt. —
Er þessu hætt? Það var gert
meðan allir starfsmenn verka-
lýðsfélaganna störfuðu án þess
að fá laun fyrir. — Af því að ég
er svolítið tengdur Alþýðublað-
inu vil ég biðjast afsökunar á
ummælum þess, sem vægast
sagt voru alyeg út í loftið.
BALDUR Maríusson, verk-
stjórj í Skólagörðum Reykjavík-
ur kom að máli við mig í gær
og sagði: „Það kenndi mikils
misskilnings í pistli þínum um
sumarleyfi barnanna, sem vinna
á vegum Reykjavíkurbæjar. Þar
var sagt að börnum, sem starfa
hjá skólagörðunum væri gefið
sumarleyfi. Þetta er alls ekki
rétt. aÞu fara aldrei í sumar-
leyfi. Það starfa lijá okkur 187
börn á aldrinum 10—14 ára og
það er gefið með þeim. Sumar-
leyfi koma ekki til greina enda,
eins og sagt var í pistli þínum,
alveg ástæðulaus. Skólagarðarn-
ir starfa óslitið frá því í byrjun
júní og þar til um miðjan sept-
ember.
HEIMILDARFÓLK þitt -mun
eiga við Vinnuskóla Reykjavík-
ur. Þar eru börn á aldrinum 14
til 16 ára — og mér er sagt, að
þar hafi verið efnt til sumar-
leyfa. Þarna mun hafa verið
ruglað saman“. Þetta sagði Bald-
ur verkstjóri og það mun vera
rétt hjá honum, en undarlegir
þykja mér þeir foreldrar, sem
ekki kunna betri skil á því hvar
börn þeirra starfi að svona ruglt
ingur skuli geta átt sér stað. —
Hins vegar er það eklci mergur-
inn málsins, heldur hitt að Vinnu
skólinn skuli efna til sumarleyfa
í þessari örstuttu sumarvinnu
barnanna.
Hannes á horninu. J
4 24. júlí 1959 — Alþýðublaffið