Alþýðublaðið - 24.07.1959, Side 12

Alþýðublaðið - 24.07.1959, Side 12
'! Xv.v: ílilil |||ÍffS; 'U'-Mm, >. ;<S V ■ ■ 1 flugfreyjan eoasttí) 40. árg. — Föstudagur 24. júlí 1959 — 155. tbl. r m r FYRIR tæplega 3300 ár- um bjó úti í Egyptalandi drottning að nafni Nefer- titi. Hún var gift kóngi, sem hét Amenhoteps, og þar sem hún þótti kvenna fríðust, lét hann gera af henni brjóstmynd þá, sem við'birtum hér efra. En tilefnið er það, að tæpum 3300 árum eftir að Nefer- titi hin fagra gaf upp önd- ina, rakst blaðaljósmynd- ari suður í Rómaborg á flugfreyju, sem heitir Annie Labzine og er ekki einungis nauðalík drottn- ingu heldur gæti verið tvífari hennar. — Berið bara saman myndirnar og sjáið hvort við segjum ekki satt. SMMiWWIWIMWWMWWWt .Fljúgandi disJrar' yfir Ermarsundi. DOVER, 23. júlí (Reuter). —■ „Fíjugandi diskúr“ (Hover- craft) mun á morgun reyna að fljúga yfir Ermarsund frá Do- ver til Calais, ef veður leyfir. Talið er hugsanlegt, að þessir „fljúgandi diskar“ geti komið í stað ferjanna yfir Ermarsund. Búist er við, að ferðin á morg- un muni taka um 50 mínútur. BÆJARFULLTRÚARNIR frá Kaupmannahöfn, sem hér hafa dvalizt í boði bæjarstjórnar Reykjavíkur, héldu heimleiðis í gær eftir ánægjulega heim- sókn, að því er þeir tjáðu í blaðasamtali. Þeir eru Sigvard Helberg, forseti bæjarstjórnar- innar, tveir borgarstjórar af fimm, Weiköpf og Dahl og bæj- arráðsmennirnir Börge Jen- sen, Ejner Kristensen og Flem- ming Groth og borgarritari Aksel Rasmussen. Gestirnir hafa komið að Gullfossi og Geysi og sátu boð félagsmála- ráðherra og forsetahjónanna að Bessastöðum og hafa auk dægradvala rætt við bæjaryf- irvöld sameiginleg vandamál stórborganna, sem eru þrátt fyrir stærðarmun í meginatrið- um hin sömu. Eitt vandamálanna er þó ekki jafn erfitt viðfangs í Höfn og hér, en það eru skólabygg- ingar vegna þess aS barnafjöl- skyldurnar flytjast til úr mið- borginni í nýju íbúðarhverfin í útborgunum. Barnafjöldinn í Stór-Kaupmannahöfn var í há- marki árið 1955, en nú eru þau nokkrum þúsundum færri held ur en áður. Stór-Kaupmannahöfn stend- ur á 570 ferkílómetra svæði, sem er skipt í 22 sjálfstæð sveit arfélög með samtals 1,3 mill- jónir íbúa. í bæjarstjórninni eru 55 fulltrúar, sem eru kosn- ir til fjögurra ára. Þar af eru nú 29 Alþýðuflokksmenn, 14 í- haldsmenn, 3 kommúnistar, 3 radikalir, 3 vinstriflokksmenn, 2 úr flokki Aksels Larsens og einn fyrir Réttarsambandið. Af bæjarstjórnarfulltrúum eru 14 konur. f bæjarráði eru yfirborgar- stjóri, 5 borgarstjórar og fimm bæjarráðsmenn, sem eru kosn- ir til 8 ára í senn. Fulltrúar bæjarstjórnarinn- ar í Höfn eru mjög ánægðir með komuna hingað og biðja blaðið að færa Reykvíkingum beztu kveðjur og árnaðaróskir frá íbúum Kaupmannahafnar. BiaSallð sigraði B-landslið, 3:2. BLAÐALIÐ sigraði B-lands- liðið, sem fara á til Færeyja, á Laugardalsleikvanginum í gær kvöldi með þremur mörkum gegn tveimur. f hálfleik stóðu leikar 1:1. MARTIN Lucas hefur verið útnefndur „postullegur heim- sækjandi“ á Norðurlöndum. Embættissvæði hans nær yf- ir Danmörku, Noreg, Svíþjóð, Finnland og ísland, en á þessu svæði búa 61.500 kaþólskir, en heildaríbúafjöldinn er nálega 20 milljónir. Erlendar fréttastofur setja þetta í samband við endur- reisn erkibiskupsstóls fyrir Norðurlöndin. Mánudaginn 23. júní tók Jóhannes páfi 23. á móti erkibiskupnum í einkaá- heyrn. Martin Lucas er fæddur 16. okt. 1895 j Haarlem í Hollandi. Hann tók prestsvígslu 1924 og er meðlimur í trúboðsreglunni „Societas verbi divine“. Hann stprfaði fyrst á hinu hollenzka starfssvæði reglunnar og var yfirmaður hennar þar í nokk- ur ár. 1945 var hann tignaður erkibiskup af Adulis og yfir- maður trúboðsins í Suður-Af- ríku þar til 1957, að hann varð fulltrúi páfa á Indlandi. 400 tonn af karfa til Patreksfjarðar Fregn til Alþýðublaðsins. • til Patireksfjarðar í gsérmorgun TOGARINN Gylfi kom inra með 400 tonn af karfa af Ný- fundnalandsmiðurn. Eór aflinn hvorttveggja í vinnslu í fyrsti- húsi og í bræðslu. Var karfinn að hluta skemmdur og er talið að skemmdin stafi aí því að tog arinn var nokkurn tíma i reiði- leysi áður en hann komst í fisk inn eða þá af'Því, að sjórinn'sé heitur um of. Á.P. PATREKSFIRÐI í gær. „LIST um landið“ var hér í gærkvöldi og var vel tekj? -aí áheyrendum. Stefán Islandi söng við undirleik Fritz Weissh appel og Andrés Björnsson las upp. Steingrímur Sigfússón orgelleikari ávarpaði gestina og þakkaði þeim fyrir komuna. Fregn til Alþýðublaðsins. SKAKIÐ fyrir vestan geng- ur vel og er nánast uppgripa- afli inni á Fjörðum, þar sem fiskur hefur ekki sézt um imargra ára skeið. Frá Patreks- firði munu vera gerðir út flest- Sr bátar á handfæraveiðarnar cða milli 20 og 30 bátar, trilluv , og smærri dekkbátar. Hafa' menn dregið allt að tonni á færi á einum og sama sólarhring, og hafa bátar komið með nær 600 kíló inn eftir ferðina. Fiskur hefur gengið inn á firði yneira en menn muna eftir síðustu ár og þakka menn það útfærslu fiskveiðitakmarkanna. — Tvö frystihús á Patreksfirði vinna úr aflanum. fyrir sláftuvé! Fregn til Alþýðublaðsins. HVAMMSTANGA í gær. ÞAÐ slys vildi til um síðustu helgi á bænum að Litlahvammi í Miðfirði, að drengur héðan af Hvammstanga varð fyrir sláttu vél, sem er aftan á traktor. Hlaut drengurinn mikil meiðsli Handleggsbrotnaði hann, lærbrotnaði og hlaut fleiri meiðsli. Einkum var fót- urinn illa leikinn fyrir neðan hné, Var hann fluttur suður með sjúkraflugvél Björns Páls B.G. f DAG fer 2. flokkur KR í keppnisferð til Danmerkur, — Flokkurinn fer með Dronning Alexandrine og kemur til Dan merkur 28. þ. m. KR-ingarnir sigruðu með yfirburðum í ís- landsmóti 2. flokks, er lauk sl. þriðjudagskvöld og einnig unnu þeir Reykjavíkurmótið. Meðfylgjandi mynd er af 2. flokki KR, sem vann íslands- mótið, og þjálfaranum Óla B. Jónssyni. Þórólfur Beck og Örn Steinsen eru þó ekki með í þessari för, heldur íara utan Guðmannsson. Keppnisförin er á vegum danska félagsins Bag- sværd IF, og er þetta í 5. skipt- ið, sem það tekur á móti flokki frá KR. FJÓRIR LEIKIR Flokkurinn leikur tvo leiki í Kaupmannahöfn. Fyrri leikur- inn verður í Lyngby 30. júlí gegn úrvalsliði frá Sjálandi, en hinn síðari 1. ágúst gegn Bag- sværd, sem er efst unglingaliða á Sjálandi. Frá Höfn verður haldið til sonar. með meistaraflokki á næstunni. Taka Þátt í ferðinni 18 leik- menn og 4 far.arstjórar, en þeir eru Sigurður Halldórsson, for- maður Knattspyrnudeildar KR, Haraldur Guðmundsson, Ólaf- ur Kristmannsson og Sigurgeir Berlínar og leiknir þar tveir leikir á ve.gum félagsins Blau- Weiss í Vestur-Berlín. Flokk- urinn kemur síðan aftur til Hafnar 8. ágúst, heldur samdæg urs heim með Gullfossi og kem ur til Reykjavíkur 13. ágúst.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.