Alþýðublaðið - 14.05.1959, Side 9
( ÍÞróltir •}
FYRIR skömmu birtist í
blaði þessu grein, sem bar fyr
irsögnina: Furðulegt athæfi
landsliðsnefndar í körfuknatt
leik. Greinarhöfundur, Ingi
5>ór Stefánsson, deilir harð-
lega á landsliðsnefnd og tel-
ur nefndarmenn hafa valið í
landslið eftir kunningsskap
og sýnt hlutdrægni, tvískinn-
ung og undirferli. Ennfremur
kveður hann glappaskot
þeirra það mörg, að ekki sé
unnt að telja þau upp í
stuttri grein, en kemst þó að
þeirri niðurstöðu, að þrátt
fyrir allt „hafi þeir sloppið
sæmilega frá verkefninu11.
Landsliðsnefnd unir allvel
einkunninni sæmilegt í hinni
einu opinberu gagnrýni, sem
fram hefur komið á störf
hennar, en þykir þó hlýða að
gera nokkrar athugasemdir
vegna þess, að greinarhöfund-
ur veitir sannleikanum litla
hlífð.
Greinarhöfundur eyðir miklu
púðri á Körfuknattleiksráð
Reykjavíkur og framkvæmda-
stjórn í. S. í. fyrir val á lands-
liðsnefnd og leiðum við það hjá
okkur, enda ekki í okkar verka
hring að svara því.
Aðeins eitt af hinum mörgu
glappaskotum nefndarinnar tel
ur I. Þ. S. það mikilvægt, að
gagnrýni sé vert. Það er, að
Helga Jóhannssyni, Í.R., sem
var valinn í landsliðið í fyrstu
skyldi síðar hafnað vegna þéss
að hann hefði „um skeið eins
og fleiri, legið í flenzunni, sem
varð þess valdandi, áð hann
gat ekki mætt á nokkrar fyrstu
æfingar landsliðsins“. Það sem
I. Þ. S. nefnir að liggja í flenz-
unni, eins og fleiri, er um það
bil þriggja vikna sjúkralega H.
Jóh. (fyrst flenzka ög síðar
bronchitis). Það, að H. Jóh.
hafði af þessum sökum ekki
mætt á neinni æfingu lands-
liðsins, er fjórar voru eftir,
heitir á máli I. Þ. S. að mæta
ekki á nokkrar fyrstu æfingar
landsliðsins. Þetta eru ástæð-
urnar fyrir því, að landsliðs-
nefnd í samráði við þjálfara,
þótti ekki fært að draga lengur
að velja mann í stað Helga.
Þess má geta, að í bréfi til
landsliðsmanna er það höfuð-
skilyrði nefndarinnar fyrir val-
inu, að menn mæti á æfingar.
Nefndin hafði valið tvo menn,
Davíð Helgason Á. og Guð-
mund Árnason K.F.R. til æf-
inga með landsliðinu, ef forföll
yrðu og varð Davíð fyrir val-
inu, en gat ekki farið vegna
MELAYÖLLUR
kepiia í kvöld kl. 8,30
Dómari Halldór Sigurðsson
Línuverðir Karl Bergmann og Ragnar
Árnason.
Nýkomnir
með gúmmísólum
No. 36—39 Kr. 200.— No. 40—46 Kr. 117,
Verzl. Hans Petersen
Sími 1-32-13.
Krossviður - Einangrunarkork
NYKOMIÐ:
Furukrossviður
203x80 cmi.
Finangrunarkoi'k
1” _ li/2” — 2”
Mikil verðlækkun
Eikarkrossviður
Veggspónn. 2 tegundir
WISA-pIötur
(plasfhúðaðar)
24455(31^
vinnu sinnar og var þá Guð-
mundur valinn. Þar eð I. Þ. S.
hefur áhyggjur af því, að hann
hafi ekki leikið í stöðu mið-
herja, skal þess getið, að hann
mun leika þá stöðu, sem hann
er vanur, enda eru í landslið-
inu fjórir, sem leika eða hafa
leikið miðherja: og sá fimmti
hefur verið reyndur á æfingum
með góðum árangri.
I. Þ. S. heldur því fram, að
við höfum lagt þá gildru fyrir
Helga, að telja hann á að mæta
ekki á einni æfingu, og síðan
hafnað honum fyrir að mæta
ekki. Þessa furðulegu staðhæf-
ingu kveðst hann byggja á sím
tali annars • nefndarmannsins
við Helga og hlýtur þá að styðj
ast við upplýsingar Helga, því
að ekki leitaði hann til við-
komandi nefndarmanns. Er því
hýggt á ótraustum grunni, enda
vægast sagt farið mjög vill-
andi með og kemur annað
tveggja til, að Helgi hafi mis-
skilið samtalið hrapallega og
rangsnúið eða I. Þ. S: fari þar
sem í öðru mefnum frjálslega
með staðreyndir. Við teljum
ekki þörf á að verja ákvörðun
okkar og teljum það frekar á-
töluefni, hversu lengi dróst að
taka ákvörðunina, enda kveðst
H. Jóh. hafa búizt við þessu
eftir tvær æfingar, en okkur
til afbötunar höfum við, að við
erum sammála I. Þ. S. um
hæfni H. Jóh., þegar hann er
heilbrigður og æfður og dróg-
um það því í lengstu iög að
hafna honum. Við undirritað-
ir gerum ekki kröfu til að telj-
ast skarpgreindir, en skrambi
ætlar I. Þ. S. okkur litla glóru,
að finna ekki upp á betri brellu
fyrst hann telur okkur hafa
verið svo umhugað að losna við
H. Jóh. (Þess skal getið, að við
smituðum hann ekki, a. m. k.
ekki vísvitandi).
I. Þ. S. er nokkuð tamt að
vitna í álit, undrun og gremju
allra leikmanna, þeirra sem
íylgjast með körfuknattleik og
landsliðsmanna. Hann hlýtur
að hafa átt nokkuð annríkt að
undanförnu að efna til slíkrar
skoðunarkönnunar. Þá, sem
kunna að hafa áhyggjur af því,
að hjá þessum liðsmönnum,
sem I. Þ. S. telur velflesta
komna í liðið vegna glappa-
skota og kunningsskapar, sé
nú hver höndin uppi á móti
annarri, viljum við hugga með
því, að enginn virðist hafa orð
ið var við undrun sína, hvað þá
félaga sinna og ríkir þar hin
mesta eindrægni. Mætti vera
að aðrar niðurstöður skoðunar-
könnunar hans hvíli á svipuð-
um grundvelli og eftir sitji e.
t. v. I. Þ. S. einn, sem að vísu
kann að vera nokkuð almrfent
undrandi og gramur.
Að lokum viljum við taka
fram, að við teljum þetta mál
útrætt af okkar hálfu og það
komið fram, sem við teljum.
skipta máli, enda viljum við
sneiða hj áþví, að vekja mjög
almenn skrif um þetta mál, þar
eð við teljum, að önnur stór-
mál, sem eru ofarlega á baugi
meðal íslenzku þjóðarinnar,
svo sem landhelgismálið og
kjördæmamálið. kynnu að
hverfa í skuggann.
Með þökk fyrir birtinguna.
Bogi Þorsteinsson
(sign)
Guðmundur Georgsson
(sign)
Sambands íslenzkra samvinnufélaga
verður haldinn að Bifröst í Borgarfirði dagana 7. og
8. júlf nk. og hefst þriðjudaginn 7. júlí kl.9 ardegis.
Dagskrá samkvæmt samþykktum sambandsins. ,
STJÓRNIN.
Félag slóreignskatfs-
gjaídenda
2.
heldur fund í Tjarnarcafé niðri í kvöld, fimmtudag-
inn 14. maí 1959. Fundurinn hefst kl. 20.30.
FUNDAREFNI:
1. Formaður greinir frá því, sem gerzt hefur und-
anfarið í málurn félagsins og svarar fyrirspurnum.
Rædd verður tillaga um að bera 1. nr. 44/1957
■ um skatt á stóreignir og dóm hæstaréttar frá 29.
nóv. sl; undir Manriréttindadómstól Evrópu.
Stóreignaskattsgjaldendum er ráðlagt að mæta á
fundinum, hvort sem þeir hafa greitt,. hluta af hinum
svonefnda stóreignaskatti með fyrírvara eða ekki.
Þeir, sem ekki hafa enn gengið í félagið. eru hvattir
til að :gera það nú.
Félagsstjórniií.,
um skoðun bifreiða í lögsagnar-
umdæmi Kópavogs. i
Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með, að aðal-
skoðun bifreiða fer fram 26. maí ti] 10. júní nk., að báðum
dögum meðtöldum, svo sem hér segir:
Þriðjudaginn 26. maí Y—1 til Y—100
Miðvikudaginn 27. maí Y—101 — Y—150 1
Fimmtudaginn 28. mai Y—151 — Y—200
Föstudaginn 29. maí Y—201 — Y—250
Þriðjudaginn 2. júnf Y—251 -— Y—300
Miðvikudaginn 3. júní Y—301 — Y—350
Fimmtudaginn 4. júní Y—351 — Y—400
Föstudaginn 5. júní Y—401 — Y.—450
Þriðjudaginn 9. júní Y—451 — Y—500
Miðvikudaginn 10. júní Y—501 — Y—600
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðir sínar að skrif-
stofu minni. Álfhólsvegi 32, og verður skoðun framkvæmd þar
daglega kl. 9—12 og kl. 13—16.30.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram full-
g'ild ökuskírteini.
Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaískattuþ og (vátryggf
ingariðgjald ökumanna fyrjr árið 1958 séu grieidd, og lögboðin
vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Hafi gjöld þessi ekki
verið greidd, verður skoðun ekkí framkvæmd og bifreiðin
stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd.
Vanrækí einhver að koma bif;eið sinni til skoðunhr á rétt-
um degij verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferð-
arlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin úr um-
ferð, hvar sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut éiga að máli.
Bæjarfógetinn í Kópavogi, 9. maí 1959.
sigurgeir jónsson.
Alþýðublaðið — 14. maí 1959 §