Alþýðublaðið - 25.06.1959, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 25.06.1959, Blaðsíða 12
jitimiiiuiiiiniiiiiiimiifiMimiMimiiiiiiiiniiiiimiiimiii I Kjósenda- \ [ fagnaður A- | j lisfans er í Lido I 1 í kvöld I - sagði Gylfi Þ. Gíslason menntamála- ráðherra í útvarpsumræðunum í gærkv. | KJOSENDAFAGNAÐUR1 | A-iistans er í Lido í kvöld 1 | kl. 8,30. Þeir Alþýðuflokks- | | menn, sem hug hafa á að | | aitja fagnaðinn, eru vinsam- | | legast beðnir að málgast miða 1 | sína á flokksskrifstofunni | = hið fyrsta, því að örfáir mið- \ | ar eru eftir, þegar þeíta er = | skrifað. = | Þessi er dagskráin: Gylfi = | Þ. Gíslason menntamálaráð-1 | herra flytur ávarp. Guðm. | | Jónsson syngur einsöng, Egg | | ert G. Þorsteinsson alþingis- 1 1 maður flytur ávarp, Guðm. | | Guðjónsson syngur einsöng, | | Guðmundur Hagalín rithöf- 1 | undur flytur ávarp. | | Neo-kvintettinn og hljóm- 1 | sveit Árna Elfars Ieika fyrir | | dansi og Haukur Morthens | | syngur með til kl. 1 eftir | | miðnætti. Þá flytur Helgi | 1 Sæmundsson ritstjóri loka-1 | orð. — Auk þessa er svo 1 | skemmtiatriði, sem ekki er | | tímabært að skýra, enda ætl | | að tif að koma fólki á óvart. f f Munið. þetta að lokum: | | Miðar verða afhentir á skrif- f f stofu flokksins í dag meðan f | þeir endast — og fjölmenn-1 | um svo í glæsilegasta sam- f | komuhús bæjarins í kvöld \ I og gerum samkomuna þá I 1 glæsilegustu, sem haldin hef f | ur verið við þessar kosning- f | ar! | BimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiuiiiiiiMiiiHiiiiiimia „VIÐ VERÐUM nú í haust að koma þeirri skipan á efna- hagsmál okkar, að örugg fram- þróun og vaxandi velmegun sé tryggð. í því skyni verðum við að gera verðgildi gjaldmiðils- ins traust. Við verðum að sneyða hjá hvoru tveggja stjórn ieysi, sem veldur óvissu og handahófi í atvinnu- og við- skiptalífinu og ofstjórn, sem lamar heilbrigt framtak og lif- andi hugkvæmni“. Á þessa leið fórust Gylfa Þ. Gíslasyni, menntamálaráðherra, orð í útvarpsumræðunum í gærkveldi. í upphafi ræðu sinnar ræddi ráðherrann um framfarirnar, er orðið hefðu hér á landi á þess- ari öld, og þá miklu velmeg- un, er siglt hefði í kjölfar þeirra. En síðan ræddi hann um ýmis- legt, er betur mætti fara í þjóð félaginu. Það, sem Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, nefndi einkum í því sambandi, var fernt: Stjórnmáladeilur ís- lendinga, er hann kvað á of lágu stigi, efnahagsmál okkar, er hann sagði, að þyrftu endur- skipulagningar við, skattamál- in, er hann kvað nauðs.ynlégt að endurskoða, og vinnulöggjöf okkar, er hann sagði algerlega úrelta orðna. Gylfi sagði, að íslenzkir stj órnmálamenn þyrftu að kom ast yfir það, að kalla hvern ann- an óbótamann og brygzla hverj um öðrum um það, að sitja á svikráðum við land sitt. Hann sagði, að fulltrúar Alþýðu- bandalagsins í útvarpsumræð- unum í fyrrakvöld hefðu sagt, að Alþýðuflokkurinn hyggðist svíkja málstað íslands í land- helgismálinu. Þetta væri sagt gegn betri vitund. Alþýðuflokk urinn væri heill í landhelgis- málinu og mundi aldrei kvika frá rétti þjóðárinnar í því. AFNÁM' BEINNA SK ATTA. Um skattamálin sagði mennta málaráðherra, að hinir beinu skattar kæmu nú orðið mjög ranglátlega niður á launamenn. Skattalöggjöfin hefði verið sett á þeim tíma, er önnur úrræði hefðu verið lítt þekkt til jöfn- unar á tekjuskiptingunni. Nú hefði hið opinbera ýmiss konar bein áhrif á myndun kaup- Skákþing NoManda hefsl i Örebro í Svíþjóð 29. júlí SKÁKSAMBAND Svíþjóðar hefur falið Taflfélagi Örebro að'halda skákþing Norðurlanda. Teflt verður frá 29. júlí til 9. ágúst og verður keppt í f jórum fiokkum, landsliðsflokki, meist araflokki, fyrsta flokki og ung- líagaflokki. í landsliðsflokki verða 12 jiitttakendur og þar sem mótið Pr haldið í Svíþjóð að þessu sinni Og núverandi Norður- landameistari er Svíi, eiga Sví- ar rétt á fjórum þátttakendum í þessum flokki, en aðrar þjóðir fá tvo þátttgjcendur hver. Keppni ætti því að verða í harð asta lagi um Norðurlandameist- .aranafnbótina, þar sem Svíar eiga mjög harðskeytta skák- tnenn. I meistaraflokki verður teflt í tveimur flokkum, og verður há- markstala keppenda 12 í hvor- um flokki. Sigurvegarar í þess- utn fiokkum fá nafnbótina „nor rænn landsliðsmaður“. í fyrsta flokki verður einnig teflt í tveimur flokkum, en verði þátttakendur í flokkunum fleiri en 12, verður teflt eftir Monradskerfi. Sigurvegarar í þessum ílokkum fá nafnbótina „norrænn meistaraflokksmað- ur“. Á það skal sérstaklega bent, að þátttakendur fyrsta flokks á skákþingi Norðurlanda Framhald á 2. síðu. Gylfi Þ. Gíslason. gjalds og þar með tekjuskipt- ingu í landinu, svo að minni á- stæða væri til þess að breyta henni með skattalöggjöf. Sagð- ist Gylfi Þ. Gíslason telja rétt, sð afnema bæði tekjuskatta og útsvör. ÚRELT VINNULÖGGJÖF. Ráðherrann sagði, að vinnu- löggjöfin, er við ættum við að búa, væri orðin úrelt. Breyta þyrfti vinnulöggjöfinni þannig, að einstakir starfshópar gætu ekki eins og nú misnotað verk- fallsrétt sinn. Koma þyrfti á heildarsamningum til langs tíma eins og þegar hefði verið gert á hinum Norðurlöndunum cg ýmislegt þyrfti lagfæringar með. EKKI MÁ EYÐA MEIRU EN AFLAST. „Á sviði atvinnu- og við- skiptamála er mörg verkefni ! að vinna,“ sagði menntamála- ráðherra. „En það vil ég um leið undirstrika og leggja sér- staka áherzlu á, að allar endur- Frunhald á 2. siðu. ■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Vilfu borga kommaverðið! I ■ HEFURÐU athugað munirn^ á núverandj j verðlagi og verðlaginu, eins og það hefði orðið, ■ ef kommúnistar hefðu fengið að ráða? Súpukjöt Mjólk Rjómi Smjör Ostur (45%) Núverandi verð : kr. 21,00 — 2,95 — 36,60 : 73,20 — 44,35 Komma- verðið : 40,60 5,60 51,30 104,50 63,80 HeEminpr allra kjósenda á framboðsfundi á Seyðisfirði FRAMBOÐSFUNDUR var ’haldinn á Seyðisfirði sl. mánu- dagskvöld. Stóð fundurinn til klukkan 2 á þriðjudagsnótt. Voru þar mættir framtojóðend- Ur allra flokka, þar á meðai Jónas Guðmundss-on fyrir Al- þýðuflokkinn. Var fundurínn fjölmennur, — sóttur af helm- ingi allra kjósenda á staðnum. Miklar umræður urðu á fund inum, einkum um atvinnumál Seyðisfjarðar og kjördæmamál- ið. Fór fundurinn hið bezta fram og var máli Jónasar Guð- mundssonar, frambjóðanda Al- þýðuflokksins, vel tekið. AF GEFNU TILEFNI í dag- blaðinu Tímanum hinn 23. þ. m. lýsum við undirritaðir fram bjóðendur í Siglufjarðarkaup- stað yfir þessu: Af okkar hálfu kom annað aldrei til mála, en að umræð- um frambjóðenda í kjördæm- inu um stjórnmál yrði útvarp- að, enda verður það gert. Áki Jakobsson Einar Ingimundarson Gunnar Jóhannsson Klaus Fyclis kominn heím tið pabha. WANDLITZ, 24. júní (REUT- ER). Atómnjósnarinn Klaus Fuchs, sem látinn va# lails úr fangelsi í Bretlandi í gær eftir að hafa afplánað dóni fyrir njósnir í þágu Rússa, sagði hér í dag, að sér væri mikið í mun að fá starf í Austur-Þýzkalandi og „hjálpa til að byggja upp hið nýja þjóðfélag hér“. Fuchs af- plánaði níu og hálft ár af fjórt- án ára dómi fyrir njósnir. Fuchs kvaðst ekki vita hve^ framtíð biði sín, en hann stað- festi, að hann væri enn marx- isti og hyggðist gerast austur- þýzkur borgari. Hann neitaði að svara spurn- ingum um, hvers vegna hann hefði njósnað fyrír Rússa í og eftir síðasta stríð. Við réttar- höldin yfir honum kvaðst hann sekur um að hafa fjórum sinh- um fengið ^ússneskum umiboðs- mönnum í hendur leynii.egar upplýsingar um hið leynilega starf við atómsprengjuna. Vísindamenn telja, að upplýs ingar þær, sem Fuchs gaf Rúss- um, hafi valdið því, að þeim tókst að smíða atómsprengju fimm árum fyrr. en ella. Fuohs flúði tii Bretlands und- an Hitler 1933 og fékk brezkara borgararétt. Hann var sviptur borgararéttinum á meðan hanni sat í fangelsi. Nýft 250 j lesfaskip ! Ræðumenn Al- þýðuflokksins í útvarDSumræðunum í ÚTVARFSUMRÆÐUNUM í gær töluðu af hálfu Alþýðu- flokksins Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra, Friðjón Skarphéðinsson dómsmálaráð- herra, Eggert G. Þorsteinsson alþingismaður og Sigurður Ingimundarson efnaverkfræð- ingur. Frá ræðu Gylfa er skýrt hér í blaðinu í dag^ en frá hin- um ræðunum verður nánar skýrt á morgun. TRIVANDRUM: Deildarstjórn Kongressflokksins í Kerala á- kvað í dag að halda áfram her- ferð sinni gegn kommúnista- stjórninni í ríkinu. Myndin sýnir hið nýja 250 lesta togskip, er kom til Bíldudals 19. júní sl. Skipið heitir Pétur Thor- steinsson og verður það gert út á togveiðar frá Bíldudal. Skipið var smíð að í Austur-Þýzkalandi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.