Alþýðublaðið - 09.09.1959, Blaðsíða 12
Á FJÓRÐA tímanum í fyrri- 1 reiðin- skemmdist í árekstrin-
nótt varð harður árekstur á
Digraneshálsi í Kópavogi. Hann
varð með þeim hætti, að Volks
wagenbiíreiðin R-10734 var að
koma sunnan úr Hafnarfirði.
Á móti henni kom Buickbifreð-
in Y-531 frá Reykjavík.
Buickbifreiðin ók skyndilega
út á hægri vegarbrún og skall
við það framan á Volkswagen-
bifreiðinni. Var árekstuiinn
' svo harður, að Volkswagenbif-
reiðin snéri í öfuga átt við þá
'sem hún kom úr. Báðar bifreið-
arnar eru stórskemmdar'.
í Volkswagenbifreiðinni var
enginn farþegi, en bifreiðar-
stjórinn slasaðist og var fluttur
á slysavarðstofuna og þaðan á
Landsspítalann. 1 gærkvöidi
var ekki fullkunnugt um, —
hversu alvarleg meiðsli hans
eru, en líðan hans var sæmileg.
I Buijkbifreiðinni voru tveir
farþegar ásamt ökumanninum.
Meiddust tveir þeirra lítilshátt
ár.
Myndin gefur hugmynd um,
hversu.mikið Volkswagenbif-
Vilhjálmur Þór
gleymdisf í upp-
ialningunnl
TÍMINN skrifar um það
í gær og hefur eftir Þjóð-
viljanum og Frjálsri þjóð,
að Ólafur Thors og fleiri
íhaldsforingjar hafi grun-
samlega lágt útsvar mið-
að við tekjuskatt. Víst
mun mörgum verkamann-
inum finnast útsvarið á
Ólafi lágt, er honum er
gert að greiða 9.300 kr. En
ætli hinum sömu finnist
ekki tekjuskatturinn á
Vilhjálmi Þór nokkuð lít-
ill því að hann fyrirfinnst
enginn. Vilhjálmur fær
engan tekjuskatt og mun
leitun á þjóðbankastjóra,
er fær engan tekjuskatt á
sig. .Tíminn gleymir alveg
Vilhjálmi í upptalning-
unni!
um.
(Ljósm.: Rannskónarlögreglan).
Enginn úli
ALLIR bátarnir eru nú að
hætta, tjáði Síldarleitin á Rauf
arhöfn blaðinu í gær. Hér er
þokusúld og enginn bátur úti,
en verið er að landa slöttum,
sem veiddust í nótt.
SEM kunnugt er hóf Felix
Ólafsson íslenzkt kristniboð í
Konsó. Kom hann heim eftir
langa dvöl þar og var ætlun-
in að hann héldi síðan utan
aftur s. 1. vor. En á því varð
breyting. Ekki gat orðið af ut-
anför Felixar og Kristínar
konu hans um ófyrirsjáanleg-
an tíma og var þá ákveðið að
leita til sjálfboðaliða, er hoðið
höfðu sig fram til starfs í
Konsó. Var efstur á lista
þeirra Gísli Arnkelsson kenn-
LONDON: Tass-fréttastofan
skýrði frá því í dag, að sovézk-
ur vísindamaður hafi fundið
nýja reikistjörnu í stjörnu-
merkinu Herkúles.
ÁÆTLAI) var, að aðalfundi
Stéttarsambands bænda lyki í
gærkvöldi. Að venju voru verð
lagsmál landbúnaðarins aðal-
niál fundarins og voru gerðar
ályktanir um þau mál.
Fyrir fundinum lá m. a. til-
laga fulltrúa framleiðenda í 6-
mannanefndinni um 3% hækk-
un verðlagsgrundvallar land-
búnaðarafurða. Tók fundurinn
undir þessar tillögur en hallað-
ist þó að nokkuð meiri hækk-
un, eða um 5%. Ekki gat Sverr-
ir Gíslason þó sagt blaðinu ná-
LONDON: Jarðarför Kay Ken-
dall fer fram í kyrrþey og að-
eins að viðstöddum nánustu
ættingjum.
kvæmlega hvað ofan á yrði er
blaðið ræddi við hann í gær,
enda þá eftir að greiða atkvæði
um tillögurn?,r...
ari og kona hans Katrín Guð-
laugsdóttir. Höfðu þau boðið
sig fram til kristniboðs fyrir
9 árum.
Þau hjónin héldu utan í s. I.
mánuði og fóru í fyrstu á
kristniboðsskóla í Osló. Næst
á lista þeirra, sem boðið hafa
sig fram til kristniboðsstarfs
eru Haraldur Ólafsson og
Björg kona hans. En Harald-
ur er sonur Óiafs Ólafssonar
kristniboða. Nú er starfandi
úti í Konsó Benedikt Jasonar-
son og kona hans, en þau
héldu utan, þegar Felix kom
heim.
LÆKNIR UNDIRBÝR SIG.
Þá er íslenzkur læknir. Jó-
hanness Ólafsson, sonur Ólafs
Ólafssonar kristniboða, að búa
sig undir starf í Konsó. Hefur
hann lagt stund á skurðlækn-
ingar með þetta fyrir augum;
Einnig mun hann nema hita-
beltissjúkdómafræði í Lon-
don. ______________
NÝJA DEHLI: Nehru neitaðl
að hafa þingfundarumræður
um afsögn hershöfðingjans K.
S. Thimayya, sem hefur dregið
umsókn sína um lausn frá em-
bættj til baka.
40. árg. — Miðvikudagur 9. sept. 1959 — 192. tbl.
Tónli
i
MEÐ reglugerð útgefinni í
júní 1959 veitti menntamála-|
ráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, j
Tónlistarskólanum í Reykjavík
réttindi til að mennta og braut-
skrá tónlistarkennara við al-
menna skóla. Hefur því kenn-
aradeild verið stofnuð við skól-
ann og tekur hún til starfa 1.
október næstk.
Forráðamenn Tónlistarfélags
ins og skólastjóri Tónlistarskól
ans skýrðu fréttamönnum frá
þessu í gær. Kváðu þeir lengi
hafa skort tónlistarkennara,
um 40 áralega að undanförnu.
Um 12—15 nemendum verður
veittur aðgangur að kennara-
deildinni, sem mun veita ókeyp
is kennslu að mestu.
FJÖGUR KENNSLU-
MISSERI.
Námstíminn er 4 kennslu-
misseri eða 2 ár. Þó skal þeim,
sem ljúka söngkennaraprófi í
Kennaraskólanum, veitast kost
ur á að ljúka námi á einum
vetri. Námsgreinar verða: söng
ur, tónfræði, tónlistarsaga, pí-
anóleikur, kórsöngur og kór-
stjórn, kennslufræði, uppeldis-
fræði og heilsufræði.
Síðasttaldar námsgreinar,
uppeldis- og heilsufræði, eru
kenndar í Kennaraskóla ís-
lands. Þar á móti kennir Tón-
listarskólinn söngkennaraném-
um Kennaraskólans blokk-
flautuleik, kennslufræði og
kennsluæfingar.
INNTÖKUSKILYRÐI.
Inntökuskilyrði eru þau, að
nemandi sé fullra 18 ára og hafi
gagnfræða- eða miðskólapróf.
Þessarar undirbúningsmennt-
unar í tónlist er krafizt: 1) í
söng: Nemandi skal vera óblest
ur á máli og geta sungið hreint
og lýtalaust í takt og hrynj-
andi þjóðlag, sálmalag eða eitt-
hvert alþýðulag, sem valið er
úr 20 lögum, er umsækjandi
tilefnir. Enn skal nemandi geta
sungið hreint þríhljóma í dúr
og moll. 2) í tónfræði: Staðgóð
kunnátta í undirstöðuatriðum
tónfræðinnar. 3) í píanóleik:
Nemandi leiki tvö lög á borð
við Kleine Práludien eftir J. S.
Bach og sónötuþætti eftir Ku-
hlau og Clementi. Miða má við
hliðstæða kunnáttu í orgel- eða
harmóníumleik.
Tónlistarskólinn í Reykjavík
var stofnað 1930 af Tónlistar-
félaginu, sem rekur hann enn.
í skólanum voru 179 nemendur
s. 1. vetur og kennarar 20, auk
skólastjórans Árna Kristjáns-
sonar.
HONG KONG, 8. sept. (Reuter)
— Þær fréttir bárust hingað í
útvarpi frá Hanoi, að forsætis-
ráðherra Norður-Vietnam,
Pham Van Dong, hefði sent
Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands, orðsendingu þess efnis,
að hann bæði hann að beita á-
hrifum sínum í þá átt, að Laos-
máf I verði ekki tekið fyrir á
alþjóða vettvangi.
í útvarpssendingu þessari
var einnig greint svo frá, að
Nehru hefði einnig verið beð-
inn að stuðla að því að Genfar-
samþykktin varðandi Laos
5rrði haldin og stuðlað skyldi að
friði í Laos eins og í Indó-Kína
og Suð-austur-Asíu.
| og de Gauíle' |
á svamli i höfninni
í FYRRINÓTT voru tveir
piltar og tvær ungar dömur
að skemmta sér hér í Reykja-
vík. Höfðu ungmennin fengið
sér í staupinu til bess að njóta
kvöldsins sem bezt.
Um klukkan tvö um nótt-
ina gengu þau niður að höfn.
Þá var það, að eitthvert þras
upphófst í hópnum og mun
annarri stúlkunni hafa orðið
sundurorða við þau hin.
Eitt er víst, að stúlkan hef-
ur orðið bálreið og líklega sár-
móðguð við hin ungmennin,
því án frekari umsvifa henti
hún sér í höfnina.
Er lögreglan kom á vett-
vang, svamlaði hún í sjónum
og hafði verið kastað til henn-
ar björgunarhring, líklega af
öðrum herranum.
Fór einn lögregluþjónninn
niður stiga, sem lögreglan
hefur við slík tækifæri. Gat
hann slegið kaðli um ung-
frúna og var hún síðan hífð
upp á hafnarbakkann.
Hún var flutt á slysavarð-
stofuna, en mun ekki hafa orð
ið meint af volkinu.
= • '
I • \ ALÞYÐU-
I \ BLAD/NU í DAG/
1 _____________________i
‘IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIimilllllHIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIII