Alþýðublaðið - 01.10.1959, Qupperneq 9
( ÍÞróttir )
SKÝRT var frá því hér á 1-
þróttasíðunni á sunnudaginn,
a3 fyrirhuguð keppnisför Fim-
leikafélags Hafnarfjarðar til
Svíþjóðar v,æri farin út um þúf
ur. Hafnfirðingarnir gáfust
samt ekki upp og nú mun á-
kveðið, að FH, sem bæði er ís-
landsmeistari í handknattleik
úti og inni, fari í keppnisför til
Vestur-Þýzkalands um miðjan
WWMIWWWWWWWHWW
INGO I SVISS.
Heimsmeistarinn í þunga-
vigt, Ingemar Johansson,
hefur dvalið í Genf und-
anfarið og lýsti því yfir
fyrir nokkru, að hann
hugsi sér að setjast þar að
og kaupa sér villu. Fyrst
ætlar hann samt að sýna
hnefaleika á nokkrum
stöðum í Svíþjóð.
Ekki hef ég hugsað mér
að ganga í það heilaga á
næstunni, sagði heims-
meistarinn. Ingemar ætlar
til Suður-Ameríku í des-
ember og sýna hnefaleika
á nokkrum stöðum, en í
janúar fer hann til Holly-
wood og leikur þar í kvik-
mynd um Kóreustríðið
með Allan Ladd.
WWWMMMIWWMMWWIWW
mánuðinn^ eða nánar tiltekið
12. október næstkomandi.
★
FH fer til Þýzkalands í boði
félagsins Thv Kiel, sem er 115
ára um þessar mundir og held-
up afmælið m. a. hátíðlegt með
handknattleikskeppni. - Fyrsti
leikur FH verður í Liibeck 14.
október gegn sterku 1. deildar
liði og síðan gegn lögregluliði
í Euten 16 október.
★
Um helgina 17. til 18. október
verður háð hraðkeppnismót í
Kiel á vegum gestgjafa Hafn-
firðinganna og í því taka þátt
fjögur sterk lið, þar á meðal
FH. Þýzku liðin, sem þar
keppa, eru öll í fremstu röð, t.
d. eru sjálfir Þýzkalandsmeist-
ararnir með. Ekki er enn á-
kveðið, hvort FH keppir oftar,
en það getur komið til greina,
bæði í Þýzkalandi og e. t. v.
Dsnmörku á heimleiðinni.
★
Fimleikafélag Hafnarfjarðar
verður 30 ára 15. október nk.
og er þetta nokkurs konar af-
mælisför handknattleiksmann-
anna qg ekki er að efa, að ár-
angur hennar verður góður. FH
hefur ákveðið að efna til af-
mælismóts í handknattleik og
fer það fram 9. og 11. ok.tóber
að Hálogalandi. Þar verður
lögð mest áherzla á keppni 1
yngri flokkunum, en meistara-
flokkur mun að sjálfsögðu
keppa þar líka. Nánar verður
skýrt frá móti þessu síðar.
ifiðahöld 111
ára afmælis ISI
A NYAFSTÖÐNU íþróttaþingi
ISI, var m. a. rætt um væntan-
leg hátíðahöld í tilefni af 50
ára afmælis íþróttasambands-
ins árið 1962. Rætt vair tölu-
vert um málið og eftirfarandi
tiUaga samþykkt:
Góður árangur frjálsíþróttamanna
NOKKUR innanfélagsmót í
frjálsíþróttum haaf verið hald-
in undanfarið hér í Reykjavík
og eitt þeirra var t. d. haldið
í fyrradag.
Hörður Haraldsson, Á, sigr-
aði í 400 m. grind á 56,8 sek.,
sem er mun betri tími en hann
' náði á Septembermótinu á laug
ardaginn. Þetta er næstbezti
tími íslendings á árinu. Annar
varð Ólafur Unnsteinsson, —
UMFÖ, 62,0 sek. og þriðji Fiið-
rik Friðriksson, ÍR, 65,1 sek.
Þá var keppt í 200 m. hlaupi
og þar sigraði Hörður einnig
á 22,6 sek., sem er hans bezti
tími í sumar. Yalbjörn hefur
einnig náð þessum tíma í ár og
það er bezti tími ársins. Annar
varð Björgvin Hólm, ÍR; 23,2
sek. hans bezta í ár og þriðji
Einar Frímannsson, KR, 24,0
sek. — Ólafur Unnsteinsson
náði 17,2 sek í 110 m. grinda-
hlaupi.
Fyrr 1 mánuðinum fékk
Björgvin Hólm 25,4 sek. í 200
m. grind. sem er hans bezti
tími í greininni og sekúndu lak-
ara en met Arnar Ciausen.
wimwiiiimmiiiiiMvmv
Strax að loknu íþróttaþingi
— eða eigi síðar en 1. nóvem-
ber 1959; skipi framkvæmda-
stjórn ÍSI sérstaka framkvæm-
danefnd fimm manna, til þess
að hefja nauðsynlegan undir-
búning að íþróttahátíðahöldum
í tilefni af 50 ára afmæli ÍSÍ
1962.
Nefnd þessi starfi í samráði
við framkvæmdastjórn ISÍ. ■—
Framkvæmdanefndin hefur
heimild til að skipa undirnefnd
ir, sér til aðstoðar í starf sír.u,
og hún skal hafa náið samstarf
við sérsamböndin og héraðssam
bönd ÍSÍ eftir því sem við verð-
ur komið.
Verður verkefni nefnd-
arinnar m. a. að sjá um
eftirfarandi:
1. Fram fari á afmælisárinu
keppni og sýningar í sem
flestum þeim íþróttagrein-
Franihald á 11. síðu.
HÉR er ágæt mynd af Jóni
Péturssyni, KR, en hann
er okkar langbezti há-
stökkvari, hefur stokkið
hæst 1,95 m. íslandsmet
Skúla Guðmundssonar, er
1,97 m. Jón hefur nokkr-
um sinnum átt góðar til-
raunir við 1,98 m. og von-
andi tekst honum innan
skamms að stökkva hina
langþráðu 2 metra.
Nokkur landsmef
í frj. íþrélfum.
í SÍÐUSTU viku voru
sett allmörg met í frjálsí-
þróttum og hér skal minnst
á þau beztu. Kunningi okk-
ar frá Ármannsmótinu í
sumar, Börje Strand hef-
ur sett finnskt með í 100
m. hlaupi, hljóp á 10,5, en
gamla metið, sem hann og
Hellsten áttu var 10,6 sek.
Franskt met í sleggjukasti,
Husson 62,80 m.
Á Balkanleikjunum, þar
sem m. a. Balas setti sitt
heimsmet í hástökki, 1,84
m. hljóp Vamos, Rúmeníu
800 m. á 1:48,2 mín., rúm-
enskt met og Bizim bætti
rúmenska metið í spjót-
kasti, náði 79,96 m. Mandl-
aras, Grikklandi náði 7,51
m. í langstökki, sem er
met. — Michailov hefur
hlaupið 110 m. grind á 13,7
sek. — rússneskt met. —*
Kuznetsov 82,16 m. í
spjóti, bezti árangur í Rúss
landi í ár.
íslandsmeistarar FH í handknattleik úti og inni.
Yfirmalreiðslumaður
óskast í Naust. Uppl. í skrifstof-
unni kl. 3—5 e. h.
NAUST.
Staða aðstoðarlæknis á handlækningadeild Lands-!
spítalans er laus til umsóknar frá 1. jan. 1960. —j
Laun samkvæmt launalögum. Staðan er veitt tS’
tveggja ára í senn.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, nám og;
fyrri störf sendist skrifstofu ríkisspítalanna,
Klapparstíg 29, Reykjavík, fyrir 1. nóv. 1959.
Skrifsfofa ríkisspífalanna.
Áðsfoðarlæknissfaða
Staða aðstoðarlæknis á barnadeild Landsspítat-
ans er laus til umsóknar frá 1. jan. 1960 að teljaJ
Laun samkvæmt launalögum. Staðan er veitt tií'
tveggjá ara í senn.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, nám og;
fyrri störf sendist skrifstofu ríkisspítalanna,
Klapparstíg 29, Reykjavík, fyrir 1. nóv. 1959.
Skrifsfofa ríkisspítalanna.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
vantar unglinga til að bera blaðið til áskrifendæ
í þessum hverfum:
Skjólunum
Högunum
Lönguhlíð !
Laufásvegi
Kleppsholti I
Grímsstaðaholti
Laugarási
Kópavogi 1
Talið við afgreiðsluna. — Sími 14-900.
Alþýðuhlaðið — 30. sept. 1959 ||