Alþýðublaðið - 13.10.1959, Qupperneq 3
SÁ HÖRMULEGI at-
bilrður varð í Reýkjavík
á aðfaranótt sunnudags,
að tvö ung börn létust af
völdum eldsvoða í húsinu
að Fossvogsbletti 13.
Eldurinn kom upp um klukk
an 4 um nóttina í risherbergi
hússins. Það var svefnher-
bergi hjónanna Þóris Krist-
jánssonar, matsveins, og Guð-
r.únar Vernharðsdóttur. Þar
Sváfu einnig börn þeirra,
Nanna Ólafsdóttir, 4 ára, og
Ragnar Þórisson, sem var á
íyrsta ári.
Þau hjónin höfðu farið að
sofa um klukkan eitt um nótt-
fina. Þórir vaknaði 'skömmu
fyrir klukkan 4 og þurfti að
fara niður á næstu hæð, þar
sem hann var í 10 til 15 mín-
útur. Þegar hann var á leið-
Inni upp aftur, kom kona hans
hlaupandi niður stigann og
hrópaði, að eldur væri laus í
húsinu. Þórir gat gripið konu
sína og varið hana falli. Hún
hafði brennzt þar sem hörund
hennar var bert og hárið sviðið.
Þórir þaut síðan upp, og var
herbergið þá alelda. Var hann
mjög fáklæddur og var ekki
viðlit að komast þannig inn í
herbergið. Hljóp hann þá nið-
úr tiíþess að ná sér í yfirhöfn.
Tengdamóðir hans, Nanna
íáagnúsdóttir, mætti honum í
stiganum, er hún var á leiðinni
upp. Reyndi Nanna að seilast
inn í herbergið og ná til ann-
ars barnsins, sem var í rúmi
rétt við dyrnar. Við þetta
brenndist hún á hendi og sviðn
aði hárið.
Þá kom Þórir hlaupandi aft-
ur og hafði nú frakka yfir sér.
Var eldúrinn svo magnaður í
herberginu, að ekki var viðlit
fyrir Þóri að reyna að fara
inn í það.
Varð nú fólkið að hörfa nið-
ur á næstu hæð. Var þá barið
Framhald á 5. síðu.
ElufníRSðfélagiS SiMdé
skrifar áiþýiublainu bréf
Blaðinu barst í gær eftirfar-
andi bréf frá Flutningafélag-
þiú Suðurleið;
Reykjavík, 12. okt. 1959.
OEierra ritstjóri!
í Alþýðublaðinu 11. þ. m. var
forsíðugrein með hinni smekk-
legu fyrirsögn — Kommi kemst
í „Hermangið“ — þar sem á ill-
hvittinn hátt er ráðist að for-
rnanni Vörubílstjórafél. Þróttar
£ sambandi við stofnun „Flutn-
Ingafél. Suðurleið s/f“.
Með því að hér er um iilgirn-
Islegar rangfærslur að ræða,
Srrefst stjórn Flutningafél. Suð
ttrleið þess að þér birtið þetta
bréf í Alþýðublaðinu n.k. þriðju
dag til leiðréttingar, og ,það
ekki á minna áberandi hátt en
óhróðurinn.
Tilefni þess að Flutningafél.
Buðurleið var stófnað varþað að
upp hafði risið deila milli Vöru-
bílstjórafélaganna á Suðútnesj-
um annars vegar og Þróttar í
Reykjavík hins vegar um rétt-
inn'til flutninga á vörum fyrir
varnarliðið.
Eftir allmiklar umræður kom
ust þessi félög svo að samkomu
lagi um það að stofna sérstakt
flutningafélag, er' hefði það á
stefnuskrá sinni að reyna að ná
samningum við varnarliðið um
flutninga á milli Reykjavíkur
og Keflavíkurflugvallar.
Félagð var svo stofnað 10.
apríl 1959 af eftiitöldum aðil-
um: Vörubílstjórafélaginu
Þrótti, Reykjavík, Sjálfseignar-
vörubílstjórafélaginu Vörubíla
stöð Keflavíkur, Keflavík og
Bílstjóraféalginu Faxa, Sand-
gerði. Hlaut félagið nafnið
„Flutningafélajgjð Suðurleið“,
Frámhald á 5. síðu.
í! Preféous
í ffsifaréffs
MÁL brezka landhelgis-
brjótsns, Pretious skipstjóra á
togaranum Valafelli, var flutt
fyrir hæstarétti í gærmorgun.
Hófst málflutningur kl. 10 ár
degis og lauk rétt -fyriir' hádegi.
Dómur er væritanlegur bráð-
léga.
. Einar B. Guðmundsson hrl.
er sækjartdi í málinu, en Gísli
ísleifsson hdl. verjandi.
FYLKIR seldi afla sinn í j
Bremerhaven í gær 150 tonri |
fyr.'tr 123 600 mörk. Er þi\ð
bezta aflasalan á þessri hausti.
Jón forseti seldi afla sinn í Cux-
haven á laugardág, H37,5 tonö
fyrir 105 550 mörk.
Guðm. Illugason
kjörinn formaður.
ALÞÝD UFI.OKKSFÉL AG
var stofnað á Seltjaimarnesi sl.
sunnudag. Formaður var kjör-
inn Guðmundur Illugason lög-
regluþjónn. Aðrir í stjórn voru
kjörnir Helgi Kristjánsson,
Lambastöðum, Kjairtan Einanic
son, Bakka, Hróðný Pálsdóttir
og Jens Sörensen. I varastjórn
voru kjörnir: Ásgeir Sigurgeirs
son og Þorsteinn Halldórsson.
Endurskoðenduc voru kjörnir
Katrín Magnúsdóttir, Lamba-
stöðum og Þorbjörn Sigurhans-
son, Holti.
Á fundinum mættu efstu
menn A-listans í Reykjanes-
kjördæmi. Flutti Emil Jónsson
forsætisráðherra ræðu um
stjórnmálaviðhorfið. Undirbún
ingsfundur að stofnún félagsins
var haldinn 2. þ. m. að Lamba-
stöðum og mættu þar einnig'
efstu menn A-listans.
ALÞÝÐUFLOKKURINN efn
ir í kvöld og næstu kvold til j
kjósendafunda á nokkrum stöð-
um í Rejdcjaneskjördæmi. í
gænkvöldi var fundur í Hafn-
árfirði. í kvöld verður fundur
í Sandgerð kl. 9. Á fimmtudags
kvöld verður fundur í 'Kéfla-
vík. Á föstudagskvöld í Sand-
gerði og á laugardagskvöld
verður fundur í Gatrði.
Ræðumenn á öllum þessum
fundum verða 5 efstu menn A-
listans í Reykjaneskjördæmi,
en þeir eru: Emij Jónsson for-
sætisráðherra, Guðmundrir í.
Guðmundsson utanríkisiráð-
herra, Ragnar Guðleifsson,
form. Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur, Stefán Jálí-
usson rithöfundur og Óiafur
Hreiðar Jónsson kennari.
ÍÁL EFSTUR
í GÆR voru tefldar biðskákir
í Zagreb. Úrslit biðskáka úr 19.
umferð ufðu þau, að Smyslov
vann Gligorie og Keres vann
Benkö. Úrslit úr 20. umferð
urðu þau, að Kerés vann Gli-
gorie og Petrosjan vánn Bérikö,
Staðan. éftir 20. umferð er þessi:
1. Tal með 14% vinning, 2.
Keres með 13, 3. Petrosjan méð
11, 4. Smyslov 10%, 5. Gligöric
110, 6. Fisher 8%, 7. Benkö 6%
! og 7. Friðrik 6.
SIGLFIRZKIR Alþýðu-
flokksménn hafa fest
kaup á öllum hlutabréf-
unúm í Hljómfaorg h.f., en
það félag átti Borgarkaffi.
•Hafa því Alþýðuflokks-
félögin á Siglufirði eign-
azt hús þétta, sem sést hér
á myndinni. Var húsið af-
hent hinum nýju eigend-
um 25. sept. s. 1.
Með hiisakaupum þess-
úm er brotið blað í starf-
semi siglfirzkra jafnaðar-
manna. Sunnudaginn 27.
sept. var háldinn fjöl-
mennitr fundur í fulltrúa-
ráði Alþýðuf lokksfélag-
anna í hinum nýju húsa-
kynnum og þar teknar
þýðingarmiklar ákvarð-
anir varðandi skipulags-
niál flokksins í bænum.
Kaupin á Borgarkaffi
munu eiga efíir að marka
merk tímamót í félags-
starfsemi Alþýðuflokks-
ins á Siglufirði, enda
nauðsynjamál fyrir félög-
in að eiga sitt eigið liús-
næði.
f BALÐUR EYÞÖRS-
:SÐN prentsmiðjustjóri
hefur undanfarin 16 ár
rekið myndarlegt prent-
smiðju- og bókbandsfyr-
irtæki að Grettisgötu 16.
Prentsmiðjan ODDI er
éin af stærstu prentsmiðj
um borgarinnar og hið
sama má segja um bók-
bandsstofuna. Bæði.þessi
fyrirtæki hafa farið vax-
&ndi með hver.ju ári sera
liðið hefur, enda nýtur
forstjórinn óskoraðs
trausts þeirra, sem hafa
viðskipti við fyrirtæki
hans. Baldur Eyþórsson
hefur undanfarin ár ver-
ið formaður Félags ísl.
prentsmiðjueigenda.
Alþýðublaðið sneri sér til
faans í.gær og átti við hann stutt
samíal um aðstöðu fyrirtækja í
efnahags- og viðskiptamálum
þjóðarinnar með hliðsjón af
þeim tilraunum, sem ríkis-
stjórnin hefur gert til þess að
stöðva verðbólguna og koma í
veg fyrir að hún stej'pist yfir
þjóðina að nýju. — Hann sagði
meðal annairs:
„Þaö' er Iífsskilyrði fyrir aí-
vinnureksturinn í landinu, að
jafnvægi sé sem mest og ekki
ríki alger óvissa um fjárhagsaf-
komu næstu mánaða. Það er
nauðsynlegt að fyrirtæki geti í
byrjun hvers áfrs gert áætlanir
um starfrækslu sína, en þetta
hefur ekki verið hægt fyrr en
nú á þessu ári. Við skulum til
dæmis nefna það, að beðið er
um tilboð í ákveðin yærkefni, en
alltaf hafa orðið að fylgja til-
boðunum aukaákvæði þess efn-
is, að ef breytingar verði á
kaupi eða verði hráefnis, þá á-
skilji sá, sem gerir tilboðið, sér
rétt til breytinga samkvænit
því. Þannig getur hvorki sá,
sem leitár eftir tilboðum í verk-
ið né sá, serii gerir tilboðið, gerí
sér í raun og veru nókkra grein
fyrir því hvernig fara muni.
Þannig hefur þetta verið í hálf-
»n annan áratug þó að f jrrst hafi
kastað tólfvtnum árin 1957 og
1958.“
•— En á þessu áiri?
„Á þessu ári hefur í fyrsta
skipti um Iangan tíma verið
hægt að gera fastar áætlaniv,
sem staðizt hafa til þessa og
líkur eru á að standist út þetta
ár. Útkoman hefur orðð sú, AÐ
VEGNA VINNUFRIÐARINS
OG JAFNVÆGISINS í EFNA-
HAGSMÁLUNUM Á ÞESSU
ÁRI HEFUR VERIÐ AUÐ-
VELDARA AÐ REKA FYRIR-
TÆKI EN VERIÐ HEFUR UM
ÁRABIL. — Þeir, sem hafa at-
vinriurékstvlr með höndum,
hljóta að vera sammála um það
að halda skuli áfram á þeirri
braut, sem faafin var af hálfu
núverandi ríkisstjórnar um 'síð-
astliðin áramót og henni héfuv
tekizt giftusamlega að fara til
þessa.“
— Launþegasamtökin og at-
vinmii.eksturinn?
„Já, ég hef lesið ummæla
margra forustumanna laun-
þegasamtakanna og tek eindresj
ið undir þau. Þó að við tökumst
stundum á við samningaborðið,
þá er okkur það öllum ljóst, að
bæði við, sem eigumi að heita
að stjórna fyrirtækjum, og fólk
ið, sem vinnur við þau, eigum
Framhald á 5. síðu.
Alþýðublaðið. — 13. okt. 1959 3