Alþýðublaðið - 13.10.1959, Side 5

Alþýðublaðið - 13.10.1959, Side 5
Yiial ¥ i Baldiir Framhald af 3. síðu. sameiginlegra hagsmuna a'S gæta. VIÐ HLJÓTUM SAMAN AÐ STYÐJA ALLT ÞAÐ, SEM MIÐAR AÐ ÞVÍ AÐ STÖÐVA VERÐBÓLGUNA OG HALDA HENNI í SKEFJUM TIL AÐ BYRJA MEÐ, EN SÍÐAN AÐ DRAGA ÚR HENNI SMÁTT OG SMÁTT. Við hljótum að snúa bökum saman gegn því að flóðinu verði að nýju steypt yfir þjóðina, enda er stöðvun verðbólgunmar lífsspursmál fyr ir þjóðina. Á verðbólgu tapa all ir: Iaunþegarnir, atvinnurekst- urinn og Þjóðin í heild. Um þetta þarf ekki að ræða frekair- ar. Það hlýtur að vera öllum Ijóst. En að lokum vil ég segja þetta: RÍKISST.TÓRNIN HEFUR ÞORAÐ AÐ GERA ÞAÐ, SEM ÞURFTI AD GERA, EN HINIR FLOKKARNIR ÞORÐU EKKI AÐ GERA, EN VILDU HAFA GERT.“ •— Þetta finnst mér vera mergurinn málsins. Arás Framháld af 1. síðii. Hafnarfirði og heimtuðu að ek- ið yrði þangað. En þar sem bif- reiðarstjórinn hafði heyrt pilt- ana vera að tala um, að þe'.r væru peningalausir, vildi hann fá greiðslu fyrir það, sem ekið hafði verið. Piltarnir brugðist hinir verstu við og sögðu við bifreið- arstjórann, að ef hann gerði ekki sem honum væri sagt, skyldi hann hafa verra af því. Bifreiðarstjórinn krafðist greiðslu strax og fóru piltarnir og stúlkurnar þá út úr bifreið- inni og rétti annar honum 20 krónur. Bifreiðarstjórinn fór einnig út og krafðist fullrar greiðslu. Réðst þá annar pilt- urinn á hann Og sló hann í and litið. Missti bfreiðarstjórinn gleraugun. Nú réðst einnig hinn piltuiinn á hann. Tókst honum að verjast, en hlaut þó fall í götuna og mörg högg. Gat bifreiðarstjórinn loks sloppið í bifreið sína, en hafði þá misst gleraugun og annan skóinn. Einnig var skyrta hans rifin og hann allmikið marinn. Ók bifreiðarstjórinn niður á Hreyfii og fékk aðstoð þar, en þegar komið var á Vatnsstíg aftur, voru þau skötuhjúin horf in ásamt gleraugunum og skón- um. Bifreiðarstjórinn kærði þetta til lögreglunnar og sagði svo frá, að hann hefði átt að aka þeim til Hafnarfjarðar. Var haft samband við lögregluna þar, sem náði piltunum. Framhald af 3. síðu. og er það sameignarfélag. Eftirtaldir menn voru kosnir í stjórn félagsins: Ásgrímur Gíslason, Þrótti, formaður, Pét- ur Pétursson, Vörubílastöð Keflavíkur, ri.tari og Ásmund- ur Guðmundsson, Þrótti, gjald- keri. Framkvæmdastjóri félags ins er Guðmundur Kristmunds- son, Rvík. Félagið hefur síðan unnið að því að ná samningum við varn- arliðið um áðurnefnda flutn- jnga og hefur það nú tekizt. Voru samningar undirritaðir. hinn 1. október s.l., og eru þéir að sjálfsögðu byggðir á akst- úrstöxtum félagahna. Svo sem sjá má af framanrit- uðu er alger fjarstaeða að bendla Flutningafélagið Suður- leið á nokkurn hátt við „her- mangsgróða“ frekar en aðra þá er starfa hjá varnarliðinu, og allar getsakir í garð formanns Þróttar Einars Ögmundssonar í sambandi við þetta mál í: hæsta máta ósanngjarnar og ó- sæmilegar. Virðingarfyllst. Ásgirímur Gíslason. Ásmundur Guðmundsson. Fréttin, sem að er vikið í bréfinu hér efra, var að sjálf- sögðu ekki hugsuð sem „óhróð- ur“, heldur sem almenn frétt. Hafi á hinn bóginn verið um ranghermi að ræða, er sjálf- sagt að leiðrétta, það. Þá skyldu telur blaðið sig hafa innt af hendi með birtir.gu bréfs Flutningafélagsins Suður- leið. Og er þá mál þetta hér með úr sögunni. Ritstj. INGIMAR ÓSK- ARSSON grasa- fræðingur flytur erindi í kvöld kl. 20.30 Um sveppi. K1 20.55 eru tón- leikar. Kl, 21.10 Upplestur: Svarti kötturinn, smá- saga eftir Edgar Allan Poe í þýð- ingu Þórbergs Þórðarsonar (Mar- grét Jónsdóttir les). Kl. 21.45 Tónleikar. Kl. 22öl0 Lög unga fólksins. Kvenfélag Bústaðasóknar. Félagsfundur verður í Háa gerðisskóla annað kvöld, mið vikudag, kl. 8.30. Slysavarnadeildin Hraunprýði í Hafnarfirði heldur fund í kvöld kl. 8.30 í Sjálfstæðishúsinu. Venjuleg aðalfundarstörf, kaffidrykkja og félagsvist. Fjölmennið. ELDSVOÐINN Framhald af 3. síðu. að dyrum og var þar maður sem hafði orðið eldsins var. Hann spurði, hvort búið væri að kalla út slökkviliðið. Þar sem svo var ekki, hringdi hann þegar úr síma hússins og gerði aðvart. Eldurinn hafði blossað i svo fkyndilega upp, að fólkið hafði engan tíma til þess að hringja, þar sem strax var reynt að bjarga börnunum. ■ ' Fólkið reyndi að bjarga föt- um og öðru úr húsinu, en þá slökknuðu Ijósin og hörfaði fólkið þá út. Slökkviliðið og lögreglan komu um svipað leyti á staðinn. Var þegar hafizt handa við slökkvistörfin, en slökkviliðsmennirnir gátu ekki farið inn í herbergið, þar sem börnin voru, fyrr en búið var að lægja eldinn. Voru börnin þá dáin. Munu þau hafa dáið í svefni. Höfðu þau ekki hreyft sig í rúmun- um. Um eldsupptök er ekki kunnugt, en talið líklegt að kviknað hafi í út frá vegg- lampa. Hafði logað á lampan- um um nóttina og var á hon- um silkiskermir. Herbergið var klætt með tré texi og var límdur pappír á það, Það er mjög lítið og lágt undir loft í því. Gluggarnir eru litlir og kemst fólk ekki út um þá. Þau hjónin höfðu búið í hús- inu frá því í júlí í sumar. Hvsð er að gerast Taft-Hartíey lögin WASHINGTON, (Reuter). — David McDonald, formað ur sambands stálverka- manna, sagði í dag, að sú hálfa milljón verkamanna, sem nú verða væntanlega knúðir til að taka aftur upp vinnu um 80 daga skeið samkvæmt Taft-Hartley-lög unum, mundi gera verkfall þegar að liðnum hinum lög- lega fresti. Eisenhower forseti hefur farið fram á, að Taft-Hartley lögunum verði beitt gegn verkfallsmönnum eftir að verkfallið hefur staðið í rúmlega 12 vikur. Snjóar í Ölpum NISSA, Reuter). — Mikil snjókoma hefur verið und- anfarið í frönsku Ölpunum og fyllti mprg skörð og leið- ir tepþtust. Nú hefur snjó- inn tekið upp að mestu. Rainer í Parss PÁRÍS, (Reuter). — Rainer fursti í Monaco og kona hans, Grace Kelly, eru kom- in í þriggja daga opinbera heimsókn til Frakkjands. Þau borðuðu með de Gaulle í dag í forsetahöllinni. Þetta er í þriðja sinn, sem Rainer- kemur í opinbera heimsókn til Frakklands. Rauðir þjálfa rauða HONG KONG, (Reuter). — Fréttastofan Nýja Kína í Peking skýrir frá því, að í dag hafi verið undirritaður samningur milli Kína og Sovétríkjanna um sámstarf í vísindúm og tækni. Gefa löndin hvort öðru upplýs- ingar um ýmis efni og kín- verskir sérfræðingar verða þjálfaðir í Sovétríkjunum í ýmsum iðngreinum og tækniefnum. CJtgöngubann í frak BÁGDAÐ, (Reuíer). — Út- göngubann hefur verið sett á um gjörvallt írak. Áður hafði það aðéins náð til Bag- dad og nágrennis. Gildir bannið frá 8 á kvöldin til 5 á niorgnana. Útgöngubann var sett á í Bagdad fyrir fimm dögum eftir að skotið hafði verið á Kassem forsætisráðherra og hann særður, þó eklti hættulega. Hraðlesf hvolfir BORGHETTO, ítalíu, (Reu- ter). — Hraðlestin Inns- bruck—Róm rakst í dag á raflínustaur, sem fallið hafði. á brautina og fór út af sporinu. Hvolfdi tveim vögnum og létust a. m. k. tveir menn .og margir særð- ust. Vörubifreið hafði rek- ist á staurinn og fellt hann á teinana nokkrum sekúnd- um. áður en lestin kom á fullri ferð. uitiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiisiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiui 1 Foröuljós í | Varsjá | VARSJÁ, (Reuter). - \ | Hundruð Varsjárbúa | | bíða í dag utan við eina = | kirkju borgarinnar eft- | | ir að fréttist í gær- | | kvöldi, að á tröppum | | hennar hefði sést und- i | arlegt Ijós, sem mynd- i | aði útlínur konun- = | myndar. 1 Sagt er að þetta I | furðulega Ijós hafi I 1 fyrst sóst á tröppum 1 | kirkju heilágs Ágúst- i | ínusar s. I. miðvikudag, | | síðan aftur á föstu- | | dag og laugardag. § Þúsundir manna f 1 þyrptust í gærkvöldi | | að kirkjunni, þar eð sá i 1 orðrómur gekk að ljós- | | ið mundi afíUr sjást § i milli kl. 7 og 8. Sumir | | í mannþrönginni segj- i i ast hafa séð ljósið og | | konúiriyndina en aðrir i | neita því að nokkuð | | hafi birzt. | | Prestur kirkjunnar | | vill ekkert um þetta | | ségja en hvetur fólkið | | til þess að vera rólegt, i | og draga ekki fljótfærn i | islegar ályktanir. Pólsk f | blöð segja áð ljósið sé | | eðlilegt og stafi af því | | að tunglið skíni á rúð- | I ur. — 1 •T. £ immmiiiimiiiiiiimmmmmimimmmmmmn Mac Millau. Sfórþjófnaður LONDON, (Reuter). — Scot- land Yard leitar nú að gim- steinaþjófum, sem stálu skartgripum fyrir um það bil hálfa milljón dollara úr fjórum skartgripaverzlunum í London um síðustu helgi. Verzlanir þessar eru allar í eigu sama fyrirtækis og er talið að þjófarnir hafi látið gera lykla að verzlununum eða þá brotist inn í eina og fundið þar lykla að hinum. Þeíta er mesti þjófnaður, sem framinn hefur verið í West End hverfinu í Lon- don. Scotland Yard hefur hafið mjög víðtæka leit um allt landið. Macmiílari hreinsar til LONDON, (Reuter). —- Mac- millan, forsætisráðherra Bretlands, hélt ráðuneytis- fund í dag og er talið að hann sé nú að undirbúa bréytingar á ráðuneyti sínu, Ekki er gert ráð fyrir að miklar tilfærslur verði á ráðherraembættum en þó ér talið, að Ðuncan Sandys, varnarmálaráðherra, veroi skipaður ráðherra þeirra mála, sem snerta vísindi, en það er nýtt embætti. Þá er búist við að Lennox-Boyd, seiin verið hefur nýlendu- málaráðherra í fimm ár, hverfi úr því embætti. Ian MacLoýd tekur sennilega embættj hans. Aðrir ráð- ; herrar munu halda stöðum ! sínura. Sennilega verður embætti 1 flutningamálaráðherra skipt í tvö ráðherraembætti. Fyrstu lagafrumvörp stjórnarinnar verða senni- lega lög trni sunnúdaga, hjónaskilnaði, fjárhættuspil og veitingaleyfi. Fundur æðstu manna PARÍS. — S'á orðrómur ; gengur í París, að de Gaulle forseti muni innan skamms fara til Bandaríkjanna til fundar við Eisenhower, Ad- enauer og Macmillan og muni þeir ræða væntanleg- ,an fund æðstu manna, sem búist er við að verðí á tíma- bilinu 15. nóvember til 15. desember í vetur. Macmillan hélt ráðuneyt- isfund í dag, hinn fyrsta fcft- ir kosningar og mun hann hafa tjáð ráðherrum sínum, að ekkert hafi enn verið á- kveðið hvenær eða hvar fundurinn verði, en varla verður þess langt að bíða að hann verði haldinn. Vlldi ekki gróðann SOUTHPORT, Engl., (Reu- ter). — 17 ára enskur flug- maður vann nýlega 6666 sterlingspund í knattspyrnu getraunum. Hann ákvað í : dag að gefa þriðjunginn af upphæðinni til aðstoðar við flóttamenn en leggja aí- ganginn í banka. Hann segir að allt fjárhættuspil sé syndsamlegt og hann hafi aðeins tekið þátt í getraun- unum til þess að gera eins og félagar sínir. Flugmaðurinn kvaðst hafa orðið óttasleginn þegar hann vann þessa miklu upphæð. Eldflaugín nálgasf LONDON, (Reuter). — Rúss neska eldflaugin, sem fór umhverfis tunglið, nálgast nú jörðina aftnr með síaukrt- um hraða. KI. 1 í dag var hún 456.000 kílómetra frá jörðu. Hún náði þá minnsta hraða síiram 400 metrum á sekúndu, þegar hún var fjærst jörðu handan tungls. Eldflaugin f’er nú stöðugt hraðar og hraftar. Starfsemi allra tækja hennar er með eðiilegum hætti, að því er Tass segir. Alþýðubíaðið. 13. okt. 1959

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.