Alþýðublaðið - 13.10.1959, Side 9

Alþýðublaðið - 13.10.1959, Side 9
Hustmótið KR sigurvegari í Reykjavíkurmóiinu Vinnur bikarinn iii eignar. Á SUNNUDAGINN var, fóru fram tveir síðustu leikir Hausts mótsins. Er þar með lokið við- burðaríkasta tímabili íslenzkrar knattspyrnu að sinni. — Fyrri leikurinn var á milli Vals oa; KR en sá síðari milli Þróttar og Víkings. langt fyrir utan. Rétt á eftir skeikar svo Braga Bjarnasyni tvívegis með stuttu millibili, og í bæði skiptin eftir sendingar Bergsteins. í þessum hálfleik átti KR eng in veruleg tækifæri. Sóknarlín unni tókst aldrei að komast í i knötturinn straukst yfir hann og til Bergsteins, sem skaut þeg ar en yfir. Loks á 20. mínútu, eins og fyrr segir skorar svo KR sigurmarkið. En eftir það eiga þeir ýmis góð tækifæri, sem ýmist eru varin eða m;s- takast. | Gunnar Guðmannsson á fast skot frá markteigi, sem Björg- vin ver mjög vel. Rétt á eftir MARKVÖRÐUR Vals, Björgvin Hermannsson, horfir með sorgarsvip á eftir knettinum í netið eftir skot frá Helga Jóns- syni. Þetta er síðasta mark sumarsins í meist- araflokksleik og með því tryggðu KR-ingar sér sig- ur í Haustmótinu. - Ljós- mynd: Bjarnl. Bjarnleifs- son. SÍÐASTLIÐINN vetur hélt Fimleikadeild Ármanns tvö námskeið í áhaldafimleikum, — og stóð hvort námskeið í 3 mán uði. Voru námskeið þessi prýð- isvel sótt, og gott til þess að vita að áhugi er nú mikill og vaxandi fyrir þessari íþrótt. Er nú ókveðið að halda þessari starfsemi áfram á þessum vetri með svipuðu sniði. Þó verður aukið við einni kennslustund á viku þannig að þær verða aUs þrjár, þriðjudaga, föstudaga kl. 20—21 og fimmtudaga kl. 21— 22. Kennari verður sem áður Vigfús Guðbrandsson og honum til aðstoðar menn úr sýningar- flokki félagsins. Kenndar verða æfingar á tvíslá, svifrá, dýnu og í hringjum. Þar eð búast má við mikilli aðsókn að þessu námskeiði er væntanlegum þátttakendum ráðið að tilkynna þjálfaranum þátttöku sína fyrr en seinna á ofangreindum tímum i fim- leika'húsi Jóns Þorsteinssonar, eða hafa samband við skrif.stofu félagsins á samá stað 13356. SAR hefur sett ítalskt met í tugþraut, hlaut hann 6736 stig. Annar í keppn- inni var Paccagnelle með 6424 stig. Beztu afrek Sars voru 14,9 í grind, 45,29 í kringlu og 3,80 í stangar- stökki. Met þetta var sett í ítalska meistaramótinu. 4 knaftspyrnu leikir í Kefía- víká nmMMMM(MmWMMUMMW GLÍMUDEILD Ungmennafé- lags Reykjavíkur gengst fyrir glímunámskeiði, sem hefst í kvöld kl. 20 í leikfimisal Mið- bæ j arbamaskólans. Æfingar félagsins hefjast í kvöls kl. 20 og verða framveg- Is á þriðju- og föstudögum kl. 20. Glímudeildin vili vinna að eflingu glímunnar og gangast fyrir glímusýningum í vetur Og á næsta ári. Glímudeildinni hefur einnig verið boðið að sýna glímu er- lendis að sumri. Nýir glímufélagar verða Skrifaðir in ná æfingum. FJÓRIR knattspyrnuleikir fóru fram í Keflavík á sunnu- daginn: í Keflavíkurmóti meist araflokks sigraði KFK UMFK með 5:4. Akurnesingar úr 4. fl. A og B heimsóttu Keflvíkinga og léku við jafnaldra sína. Hinir nýbökuðu íslandsmeistarar ÍBK í 4 .fl A sigruðu ÍA með 4:0, en Akurnesingar sigruðu í B-leiknum með 1:0. Loks fór fram leikur í tilefni 30 ára afmælis UMFK. Lék 5. flokkur UMFK við Víking, er vann haustmótið í Reykjavík, og sigraði UMFK með 2:0. Var það fjórði leikurinn, sem fram hefur farið í tilefni afmælisins. Hinir hafa farið þannig: í 2. fl. vann UMFK frá Vestmannaeyjum með 5:0. í 3. fl. vann Valur UMFK með 2:0 og í 4. fl. vann Valur einnig UMFK með 2:1. KR-VALUR 1:0. Þetta var úrslitaleikur móts- ins. Lauk honum með naumum sigri KR, sem skoraði eitt mark gegn engu. Helgi Jónsson skor- aði markið er 20 mínútur voru af síðari hálfleik. Skot hans var frekar laust og af alllöngu færi. Kom það eftir samleik Þór ólfs og Arnar, en sá síðarnefndi smu iaggj knöttinn fyrir Helga. — Björgvin Hermanns, sem ann- ars átti ágætan leik í Vals-mark inu, hafði slæma yfirsýn, þar sem leikmenn skyggðu á, gat því ekki staðsett sig eíns vel og þurfti, en knötturinn smaug rétt inn við stöng. Með þessu hálfgerða „slysamarki“ tryggði KR sér sigurinn og bikar móts- ins, til eignar. Ekki verður annað sagt, en leikurinn í heild hafi verið einn skemmtilegasti leikúr mótsins, fjörugur og spennandi á köflum — Veður var líka sæmilegt, — þurrt en nokkur gola, sem hafði þó ekki nein truflandi áhrif. -- Hins vegar voru nokkrir pollar á vellinum, sem verkuðu trufl- andi, og sýnist svo að þá hefði mátt þurrka upp fyrir leikina. Það má segja að leikurinn skiptist alljafnt á milli keppi- nautanna, þannig að . . . f SÍÐUSTU viku sigraði Kommúnista-Kína Ungverja- land í knattspyrnu með 1 mairki gegn engu. Er greinilegt' að Kínverjar eru að verða ein bezta knttspyrnuþjóð heimsins. í Evrópukeppninni sigraði Wolverhampton austurþýzka félagið Vorwarts með 2:0. FYRRI HÁLFLEIKURINN, væri að meginhluta til Vals- manna, sem sýndu nú einn sinn bezta leik um lengri tíma, að því er tók til samleiks og snerpu úti á vellinum. Þrívegis átti Val ur, í þessum hálfleik, upplögð marktækifæri, sem skapast höfðu eftir hraðar, stuttar og allnákvæmar sendingar, fram endilangan völlinn og allar göt- ur inn á mai'kteig KR. En þar brást bogalistin. Björgvin Daníelsson brenndi fyrst af, úr skallsendingu frá Bergsteini, eftir að Albert Guð- mundsson, sem lék miðherja í Valsliðinu að þessu sinni, hafði „vippað“ til hans knettinum yf- ir KR-ing sem sótti að honum. Skallsending Bergsteins sendi knöttinn fyrir fætur Björgvins, sem skaut að vísu strax, en Þarna skall hurð nærri hælum! Valsmenn áttu ágætt skot, en knötturinn strauk þverslána öfugu megin — hugsa Valsmenn. þá aðstöðu, að hættuleg gæti talist Vals-markinu. Árni Njáls- eson lék miðframvörð, gætti hann Þórólfs svo, að hann fékk litlu áorkað til að skipuleggja sóknaraðgerðir, sem að gagni kæmu og í skotfæri komst hann aldrei sjálfur. Einu skotin, sem teljandi voru að Valsmarkinu, komu frá þeim Helga Jónssyni og Óskari Sigurðssyni, en af löngu færi og utan hjá. Svo að ef þeir framherjar Vals, sem tækifærin fengu og áður hefir verið lýst, hefðu verið heppn- ari, nei, eigum við ekki að segja verið knattleiknari, hefði þessi hálfleikur átt að enda 3:0 fyrir Val. SÍÐARI HÁLFLEIKUR. í þessum hálfleik var frum- kvæðið að mestu hjá KIR. Þeir sóttu þegar fast á og héldu uppi meira og minni sókn megin- hluta hálfleiksins. Þó áttu Vals- menn hörkusóknarkafla síðustu mínúturnar. Þannig, ef svo hefði verið brugðið við fyrr, — gátu endanleg úrslit brugðist til beggja vona. Er 12 míntúur voru liðnar af hálfleiknum, — skall hurð nærri hælum við UMUHWMVMMMMMMMMWi KR-markið. Bergsteinn Magnúg son var .þá...'í3iXndilega,'í skot- færi fyiir opnu marki, eftir að Helga Jónssyni hafði mistekist að skalla fasta sendingu, en hleypur Björgvin út og ætlar að slá burt háan bolta, en hitt- ir ekki, Þegar hann er á leið inn í markið þrumar knöttur- inn að því. Björgvin varpar sér þegar í veg fyrir liann og tekst með ótrúlegu snarræði að grípa hann á línunni. Sókn KR held- ur áfram, en þrátt fyrir allt tekst Vals-vörnin að koma í veg fyrir fleiri mörk og leikminn endar með sigri KR, eitt mark gegn engu, eins og fyrr segir. I liði Vals var vörnin sterk- ari hlutinn eins og áður. — I fr&mlínunni voru það þcir Al- bert Guðmundsson og Berg- steinn Magnússon, sem báru af. Albert, sem lék miðherja, eins og fyrr segir, sendi lrnöttinn til hægri og vinstri og skipti þann ig spilinu ágætlega. Vom send- ingar hans hinar nákvæmustu og allur leikur hnitmiðaður, — sem átti sinn drjúga þátt í því hversu liðið lék yfirleitt vel einkum í fyrri hálfleiknum. — Hinsvegar er Albert ekki í neinni þjálfun, en í knattleikni bar hann af öllum á vellinum, Lið KR var skipað Þeirra beztu leikmönnum, að undan- skildum Heimi markverði, sem ekki er í bænum. KR-ingum tókst nú ekki eins vel upp og aftast áður í sumar. Og máttu þakka fyrir hvernig fór. Fram- línan, sem verið hefur þeirra mikli aðall, náði ekki þeim áv- angri með leik sínum og stund- um áður, en bezti maður henn- ar var Örn Steinsen. t Framhald á 10. síðu Alþýðublaðið. — 13. okt. 1959 ^

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.