Alþýðublaðið - 05.11.1959, Síða 4
Útgefandi: Alþýðufiokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson.
— Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ástþórsson og HeTgi Sæmundsson
(áb.). — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björg-
vin Gu'ðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýs-
ingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmlðja Alþýðublaðsins,
Hverfisgata 8—10.
ísrael eitt kjördœmi
KOSNINGARNAR í ísrael eru sérstaklega
athyglisverðar fyrir íslendinga vegna þeirra ura-
ræðna og breytinga, sem hér hafa verið gerðar á
kjördæmaskipan í ár. ísrael er sem sé allt eitt
kjördæmi og því lifandi sýnishorn eins þess skipu-
lags, sem rætt var um hér á landi, þótt enginn
flokkur væri því fylgjandi.
1 Árangurinn af því, að ísrael er eitt kjördæmi,
allt landið, er nákvæmlega sá, sem spáð var hér
á landi, að verða mundi við slíkar aðstæður. Smá-
flokkar eru þar fjölmargir og buðu 18 fram í síð-
ustu kosningum en 24 að þessu sinni. Hefur þessi
flokkamergð skapað mikinn vanda í stjórnmálum
landsins og eru margir fylgjandi því, þar á meðal
jafnaðarmenn, að breyta þeirri skipan.
í Knesset heitir þing þeirra Gyðinga og sitja
þar 120 manns. Þannig ætti ekki að þurfa nema
rúmleg 0,8% kjósenda til að fá þingsæti, en tak-
mörk voru þó sett við 1%. Enginn flokkur fær
kjörinn rnann með minna fylgi. Það er einmitt
þetta, sem hefur orðið til þess, að jafnaðarmenn
víða um heim hafa horfið frá því að heil lönd
séu eitt kjördæmi, en telja hyggilegra að hafa fá
Freyn til Alþýðublaðsins.
Hellissandi í gær.
TVEIR bátar hafa róið héðan
síðan í byrjun septembermán-
aðar. Hefur heldur dregið úr
afla þeirra, sem var fyrst 8—
9 tonn í róðri, en er nú ekki
nema 4—5 tonn. Sækja bát-
arnir langt út, enda er óhag-
stæð vindátt, en búast mætti
.við meiri afla, ef austlæg átt
væri.
Verið er að ganga frá vatns-
veitunni að Rifi og gengur
verkið ágætlega. Er það 3—4
km. vegalengd, sem vatnið er
leitt. Byrjað var á framkvæmd
um í fyrrahaust, en þá haml-
aði slæm tíð frekari aðgerðum.
Unnið er að gatnagerð hérna
með jarðýtu, götur eru breikk-
aðar, þar sem þess er helzt
þörf, og nýjar götur lagðar.
Verið er að byggja annað í-
búðarhús í Rifi, en hitt var
byggt í fyrrasumar. Eru tvær
íbúðir í hvoru húsi. Síðara hús
ið er langt komið. Kristján
Guðmundsson frá Stykkishólmi
byggir það og hyggzt flytjast
þangað. Hann er eigandi og
formaður Tjalds og ætlar að
gera hann út héðan í vetur.
Atvinna er me*ira en nóg
hér og stafar það fyrst og
fremst af framkvæmdum á veg
um íslenzkra aðalverktaka við
lóranstöðina. Binding á skreið
stennur yfir og hefur reynzt
erfitt að fá menn til þeirrar
vinnu, eins og annarra lausa-
starfa.
Má segja, að afkoma fólks
hér um slóðir sé með bezta
móti um þessar munnir. — GK.
Gerum við bilaða
Krana
og klósett-kassa
Vatnsveifa
Reykjavíkur
Símar 13134 og 35122.
SEM kunnugt er, hafa Loft-
leiðir h.f. fest kaup á tveiin
Cloudmaster flugvélum og eru
þær keyptar af Pan American
Airlines. Fyrri vélin verður
afhent 9. desember n. k. og
mun hún koma til landsins 18,
eða 19. desember.
Síðari vélin á að afhendast
1. marz næsta ár. Þegar vélar
þessar verða teknar í notkun,
styttist flugtíminn til Ame-
ríku um þriðjung.
Húseigendafélag
Reykjavíkur
Húselgendur.
önnumst ailskonar rttn*-
og hitalagntr
en stór kjördæmi (ísland, Noregur o. fl.) til þess
að takmarka fjölda smáflokka og greiða þannig
fyrir myndun ábyrgra ríkisstjórna.
Stærsti stjórnmálaflokkurinn í ísrael undan-
farin ár, flokkur Ben-Gurions, er jafnaðarmanna—
flokkurinn Mapai. Hefur sá flokkur viljað breyt-
ingar á kjördæmaskipuninni, en ekki fengið .fram
gengt. Reynsla Israelsmanna sýnir tvímælalaust,
að sú leið, sem Islendingar völdu í sumar, er stór-
um skynsamlegri og farsælli en gamla hugmynd
in um landið allt sem eitt kjördæmi.
Arekstur!
270 árekstrar bifreiða voru tilkynntir lög-
reglunni í október, og minna á það alvarlega
vandamál, sem umferðin er. Fyrir utan mann-
tjón, meiðsl og vinnutap kosta árekstrar þjóðar-
búið tugi milljóna á ári — og mikið af þeim þyrfti
alls ekki að koma fyrir. Þetta er þjóðarskömm.
íslendingar verða að tileinka sér umferðarmenn
ingu og þarf til þess stórfellda fræðslu- og áróðurs
starfsemi, sérstaklega gagnvart ungu. kynslóð-
inni. Hvenær verður tekið á þessum málum af
þeirri alvöru, sem þörf er?
Stúdentafélag Reykjavíkur
AðalYundur
Stúdentaíélags Reykjavíkur verður haldinn í Sjálf-
stæðishúsinu laugardaginn 7. nóvember 1959 kl. 3
e. h.
Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
ýV Vetur og snjór.
Hálka og hættur.
it vitfirrtir menn.
ÍZ Nú skulu hirt nöfn
þeirra, sem aka ölv-
aðir,
VETUR, Ioksins í jyrjun nóv-
ember kom snjór. Hálkan fylgdi
og hættan. Fleiri bifreiðaárekstr
ar og slys. „Ég horfði steinhissa
á bifreiðirnar á Skúlagötunni á
mánudagsmorgun,“ sagði maður
við mig. „Þar var glerhálka og
samt óku bifreiðirnar á miklum
hraða án þess að vera á keðjum
eða snjóbörðum. Sumar hring-
snerust, aðrar runnu iangt tii
hliðar þegar stigið var á hemi-
ana. Það var eins og bandvitiaus
ir menn sætu undir stýrunum.“
ÞETTA ER ÓFÖGUR lýsing.
Hvað er að fólkinu? Hefur það
ekki hugmynd um það að hætt-
an, tjónið og limlestingarnar eru
næstum því í hverjum hjólsnún-
ingi? Veit það. ekki, að brýn
nauðsyn er að auka varfærni og
gætni um helming þegar færð
versnar? Dæmin sanna líka
þetta. Einn gefur vitlaust Ijós-
merkj á Hafnarfjarðarvegi. Það
er engin nýlunda. Maður þarf
ekki að aka nema litla stund um
göturnar til að ,sjá það.
TÓLF VORU TEKNIR ölvaðir
við aksur um eina helgi. Mér
virðist þó við samanþurð, að þeir
hafi verið fleiri. Þetta eru stór-
hættulegir afbrotamenn, sem
verður að beita þyngstu viður-
lögum, sem unnt er. Ég vil vekja
athygli á því, að Morgunþlaðið
er farið að birta nöfn slíkra
fanta. Það gerir það áður en bú-
ið er að kveða upp dóm. Um það
atriði er hægt að deila. Ef'til vill
má segja, að bíða éigi með birt-
ingu nafria þar til dómur er fall
.inn, því að enginn er sannur að
sök fyrr en dómur hefur verið
kveðinn upp.
EN EKKI VIL ÉG DEILA á
blaðið fyrir þetta. Ég held að
blaðamenn og blöð þeirra eigi
að taka upp þennan sið. Og birta
einnig um leið og dómur hefur
fallið nafn og málsatvik. Ölvun
við akstur er svo hræðilegt brot,
að þar má enga miskunn sýna,
enga linkind, aðeins láta lögin
hafa sinn gang á strangasta hátt
— og auk þess verða blöðin að
birta nöfnin á áberandi hátt til
þess að skapa almenningsálit.
MIG FURÐAR Á ÞVÍ hvernig
sumir leigubifreiðarstjórar aka.
Þeir eru ekki betri en aðrir.
Leigubifreiðarstjóri, sem sannu.r
hefur orðið að sök um ölvun við
akstur, á að missa stöðvarrétt-
indi sín við fyrsta brot. Ef stöðv-
arnar taka ekki upp þessa reglu,
verður að birta nöfn þeirra um
leið og sökudólgsins svo að það
sé hægt að vara sig á þeim. Ég
hef hvað eftir annað krafizt
þyngri viðurlaga, harðari dómu
í þessum málum. Reynslan sann-
ar æ ofan í æ, að ég hef á réttu
að standa.
ÞAÐ ER ENGIN REGLA önn-
.U.rjjl fyrir bifreiðarstjóra en sú
að setjast ekki undir stýri ef við-
komandi hefur bragðað áfengi.
Enginn getur fundið markið
milli færni vegna áfengisneyzlu
og ófærni. Allir vita að dóm-
greindin sljóvgast við áfengis-
dropann. Þess vegna er maður
ekki dómbær um hæfni sína ef
áfengis hefur verið neytt. Og því
meiri er hættan þegar það er
vitað, að sá, sem neytt hefur á-
fengis. vex í eigin maíi, en að-
stæður minnka. Þessa staðreynd
þarf enginn að vera í vafa um.
Hannes á horninu.
HITALAGNI* fcj,
Símar 33712 — 35444.
Kuldastígvél
og
bomsur
allar stærðir.
Geysir hf.
Fatadeildin.
óskast til kaups í nágrenni Reykjavíktir
í síma
4 5. nótf. 1959 — AlþýSublaiíið