Skírnir

Árgangur

Skírnir - 02.01.1858, Blaðsíða 8

Skírnir - 02.01.1858, Blaðsíða 8
X er þaÖ nú sem stendur alls 229 Nr.: 42 í arkar broti (Folio), 94 i fjögra blaöa broti (Qvarto), og 93 í átta blaba broti (Octavo). þar meb höfum vib látib búa til falleg og hagkvæm tréhulstur, meb ymsri stærb, og lögub sem bækur, til ab geyma í handrit þau sem þurfa góbrar geymslu. Ein naubsyn er þá eptir, og þab er ab fá samda og prentaba fullkomna og nákvæma lýsíng handrita þeirra allra, sem í safni félagsins eru, svo þab verbi öllum kunnugt hvab |iar er, og hverir gefib hafa eba selt, og ekki þurfi ab leita þess í Skírni frá mörgum árum. Eg skal nú í fám orbum geta þeirra manna, sem góbfúslega hafa aubgab handritasafn félagsins á þessu ári, og efnis handritanna: 1. Stiptprófastur Arni Helgason í Görbum hefir gefib: Rit- gjörb þorleifs Halldórssonar, sem heitir „Hrós og forsvar lyginnar”, en í afskript þessari vantar framanaf; þar meb fylgbi á tveim blöb- um nokkur skýrsla um höfundinn, sem stiptprófasturinn hefir sjálfur ritab (58. 8to). 2. Arni Thorlacius i Stykkishólmi hefir gefib: sögubók, sem á er Gullþóris saga, Bjarnar saga Hitdælakappa, Fribþjófs saga hins frækna, Eymundar saga o. fl. Sumar sögurnar eru ritabar á 17dn en sumar á 18du öld, en bókin er nú í blöbum, og vantar í sumstabar (65. 4*°). 3. Björn Björnsson frá Bessastöbum hefir gefib þessi handrit: 1) Náttúrufræbi eptir Kothe, íslenzkaba; — 2) Ritgjörb HalldórsJakobs- sonar um eldfjöll á Islandi, íslenzkaba eptir hans dönsku ritgjörb (Kh. 1757. 8TO); — 3) Safn af nokkrum ritgjörbum vibvíkjandi heimspeki- legri fræbi, stjörnufræbi og lækníngafræbi; sumt af því mun vera frá 16du og 17d“ öld, eba eldra; þar meb er brot úr „Yísdómsbók” sira Pál8 Björnssonar í Selárdal frá 1674, ný afskript sem vantar víba í; enn framar brot úr nokkrum sagnaritum: um ár þær sem falla úr Paradís, um heimsins furbuverk, og um þau fjögur einvaldsdæmi. þetta virbist allt vera brot úr einni bók, sem hefir verib ritub 1788 og þar um kríng á Suburnesjum af Jóni þórbarsyni í Júnkæragerbi; — 4) Brot úr sögubók, og er mjög trosnab, því þab er tekib úr saurblöbum af bók; þar er á: a) brot úr Eyrbyggju; b) brot úr sögu af Droplaugarsonum ; c) úr Grænlendínga þætti (af Einari Sokka- syni); d) úr þætti af Stúfi Kattarsyni; — meb þessu fylgir brot úr

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.