Alþýðublaðið - 01.12.1959, Qupperneq 1
TOLLABANDALAG
hinna sex meginlandsríkja
Þýzkalands, Frakklands,
Ííalíu, Hollands, Belgíu og
Luxemhurg, hefur ákveð-
ið hinn sameiginlega toll
sinn á fiskafurðum 15%.
Frá þessu skýrði Réné
Sergent, hinn franski fram
kvæmdastjóri OEEC, í
fyrirlestri í Háskólanum í
gær. Hann kvaðst ekki
hafa af því fregnir, hvort
þessi ákvörðun hefði ver-
ið endanlega samþykkt af
ráðherrafundi.
Hingað til munu Þjóðverjar
hafa haft 10% toll a. fiski,
RENE Sergent stígur út
úr Loftleiðavélinni, sem
hann kom með hingað. í
fyrirlestri sínum í fyrra-
dag ræddi hann m. a. efna
hagsmál íslands. Við segj
unr frá þeim kafla ræðu
hans innan í blaðinu.
Frakkar 30% en ítal'r engan/bandalagsríkin geta nú flutt
toll. Hlýtur því aðstaða íslend- fisk til Ítalíu tollfrjálst.
inga, sérstaklega á ítalskaf Sergent ræddi í fyrirlestri
i markaðinum, að versna stór- j sínum nokkuð um efnahagsþró
! lega, ekki sízt vegna þess að un Evrópu og benti á, að Evr-
Þjóðverjar, Frakkar og hin
ópulöndin væru ekki sex og
ekki sjö heidur 18 innan OEEC
i og teldi hann ekki viðunandi
I fyrr en þau væru öll saman í
fullkomnu efnahagssamstarf..
i Sergent kvaðst harma það,
að viðskipti íslendinga við
, OEEC löndin í 'Vestur-Evrópu
! hefðu farið minnkandi. Kvað
hann efnahagssamvinnustofn-
unina hafa ákveðið, með sér-
s'öku tilliti til íslands, að beita
sér 'fyrir því að koma upp að-
Framhald á 5. síðu.
Genf, 30. nóv. (Reuter).
MERKILEGUR áfangi náðist
í dag: á ráðstefnu kjarnorku-
veldanna þriggja um bann við
tilraunum með kjarnorkuvopn,
sem haldin hefur verið í Genf í
13 mánuði. Var samþykkt með
smábreytingum tillaga Banda-
tríkjamanna frá í sumar um að
setja á stofn nefnd, sem sjái
um undirbúning að rannsóknar
stöðvum, sem fylgajst eiga með
að banni við kjarnorkutilraun-
um verði framfylgt. Nefndin
verður í fyrstu skipuð fulltrú-
um Fueta, Bandaríkjamanna og
Rússa en þegar samkomulag um
algert bann hefur verið undir-
Framhald á 5. síðu.
ÞINGMENN stjórnarand-
stöðunnar fluttu í gær mara-
; þonræður á alþingi til að reyna
að tefja þingstörfin og koma
þannig í veg fyrir, að alþingi
verði frestað. Beittu þeir mál-
þófinu í umræðum um tekju-
frumvörp, sem framlengd hafa
verið frá ári til árs langa hríð
með samhljóða atkvæðum.
Hafði Framsóknarflokkurinn
forustu í hlaupinu, en Alþýðu-
bandalagið virtist ætla að
leggja sig fram um að fylgja
honum fast eftir. Var búizt við
í gær, að fundir yrðu á alþingi
fram á nótt.
Maraþonhlaupið hófst utan
dagskrár í sameinuðu þingi
roeð því að Halldór E. Sigurðs-
son, Þórar nn Þórarinsson og
Hannibal Valdimarsson báru
fram fyrirspurnir til ríkisstjórn
arinnar. Hins vegar kom glöggt
fram, að þingfrestunin var
þeim aðalatriðið, og vildu þeir
setia ríkisstjórninni ýmis sk.l-
yrði fyrir henni. Emil Jónsson
og Ingólfur Jónsson urðu fyrir
svörum af hálfu ríkisstjórnar-
innar, en spyrjendurnir átu
hver upp eftir öðrum til að
tefja tímann.
SIGURVIN LAFMOÐUR.
Efri deild tók til umræðu
tekjufrumvörpin, sem mælzt er
til, að framlengd verði eins og
tíðkazt hefur ágreiningslaust á
alþingi um áraskeið. En nú brá
svo við, að þingmenn Fram-
sóknarflokksins í deildinni
hertu maraþonhlaupið um all-
an helming. Páll Þorsteinsson
byrjaði, en þreyttist sæmilega
fljótt. Hins vegar flutti Sigur-
vin Einarsson langa ræðu um
alla heima og geima íslenzkra
stjórnmála og reyndi meira að
segja að gera að gamni sínu.
Skemmtilegastar voru þó þagn-
irnar, þegar hann reyndi að
sækja í sig veðrið. Var Sigur-
vin lafmóður að ræðunni lok-
inni, enda mun hann aldrei áð-
ur hafa lagt svona hart að sér
í þingstörfum.
SKULI LÁTINN
SKEMMTA.
Maraþonhlaupið í neðri
deild kom hins vegar í hlut
Skúla Guðmundssonar, sem
talaði þindarlaust um skemmt-
anaskattsviðaukann. Vitnaði
Skúli óspart í fornsögurnar og
rakti ættir um gervalt Norður-
land og víðar. Hafði hann í-
þróttina mun betur á valdi
sínu en Sigurvin og blés ekki
Framhald á 5. síðu.
smi
SA ótrúlegi atburður gerð
ist í Moskvu fyrir helg-
ina, að blaðið Izvestia
birti langa grein eftir
irússneskan húsameistara,
þar sem farið er hinum
hörðustu og háðulegustu
orðum um hinn opinbera
byggingastíl Sovétríkj-
anna á Stalintímabilinu.
GÍKfiCS'
40. árg. — Þriðjudagur 1. des. 1959 — 257. tbl.
SKIPAKÓNGURINN On-
assis hefur átt vingott við
þennan kvenmann, ef rétt
er hermt hjá konu mill-
jónarans, sem heimtar
skilnað frá honum. Sú
samseka heitir Jean
Rhinelander og er 35 ára.
Á myndinni er hún í brúð
arklæðum. Hún er sem
sagt gift.
ÞETTA er fyrsta málþófs-
myndin, sem Alþýðublað-
ið birtir. Hún er tekin s.l.
laugardag, þegar stjórn-
arandstaðan hóf málþófið,
sem enn stóð í gær. Skúli
Guðmundsson (F) er í
pontunni.