Alþýðublaðið - 01.12.1959, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 01.12.1959, Blaðsíða 5
: Hvaf§ er a'ð Churchill 85 ára Rússar verða á- LONDON, 30. nóv. (NTB). - Winston Churchill hélt upp á 85. afmælisdag sinn í dag. Fékk hann heillaskeyti hva'ð anæva úr heiminum, svo og gjafir og bréf og fyllti þetta allt marga póstsekki. Meðal gjafa var kaka, sem 130 þjóð ir gáfu efni til. Meðal ann- ars voru í henni bananar ræktaðir á íslandi. Fjöl- skylda hans og nánustu vin- ir voru í kvöldverðarboði hjá Churehill í kvöld. LONDON, 30. nóv. (Reuter). — Atvinnuleysingjar í Bret- landi voru 431.000 í síðast- liðnum mánuði, en það er heldur færri en í sama rnán- uði í fyrra, en fleiri en í sept ember þessa árs. Pólskir bændur VARSJÁ, 30. nóv. (Reuter). — Nýlokið er fjögurra daga þingí bændasamtaka Pól- lands en þeim er stjórnað af kommúnistum. Kom þar fram hörð gagnrýni á ka- þólsku kirkjuna og presta yfirleitt og sagt að hún og þjónar hennar væru hættu- legir samstarfsmenn aftur- .haldsaflanna í landinu, sem spilla vildu samtökum bænda, samstarfinu við verkamenn og kommúnista- flokkinn. Bændaflokkurinn lýsti yf- ir stuðningi sínum við kom- múnistaflokkinn og viður- kenndi forustuhlutverk hans og sagði, að mesta hættan væri fólgin í starfsemi þeirra manna, sem spilla vildu samstarfinu við Sovét- ríkin. íram í Uogverja- landi BÚDAPEST, 30. nóv. (Reu- ter). — Janos Kadar, foringi kommúnistaflok'ks Ungverja lands, sagði við opnun þings kommúnistaflokksins í dag, að rússneski herinn mundi ekki á næstunni fara frá Ungverjalandi. — Heiðurs- gestur þingsins er Krústjov, forsætisráðherra Sovétríkj- anna, ásamt fulltrúum kom- múnistaflokka víðs vegar að. Kadar, sem tók að sér að kalla rússneska herinn til þess að berja niður bylting- una 1956; sagði að .kommún- istaflokkur landsins. væri nú öflugri en fyrir byltiriguná, enda þótt meðlimum hans hafi verið fækkað um helm- ing. Hann sagði að aftur- haldssinnar vonuðust eftir að rússneski herinn hyrfi brott frá Ungverjalandi, en þeim yrði ekki að von sinni. Rússneska herliðið mundi verða í landinu meðan á- standið í alþjóðamálum væri svo ótryggt sem raun ber vitni, en ekki til að halda uppi reglu innan lands. Hann kvað þSð fjarstæðu að leyfa fleiri en einn stjórn málaflokk í landinu, slíkt mundi aðeins leiða til nýrr- ar byltingar. Kadar réðst harkalega á „endurskoðunarsinna“ og mælti með stóraukinni sam- vinnu við Sovétríkin. Hann sagði að nú væri að vísu nokkur þíða í alþjóðamál- um en það væri einungis að þakka ,,persónuleika“ Krú- stjovs og Bandaríkjaför hans. Alsírmálið hjá SÞ. MenningarsáUmáli NEW YORK, 30. nóv. (Reu- ter). — Umræðurnar í póli- tísku nefndinni á þingi Sam einuðu þjóðanna um Alsír- málið hófust í dag en var frestað cr enginn ltvaddi sér hljóðs er fyrsti ræðumaður hafði lokið máli sínu. Það var fulltrúi Túnis, sem hóf umræðurnar og á morgun er aðeins fulltrúi Saudi Arabíu á mælendaskrá. Franski full trúinn mætti ekki á fundi nefndarinnar en Frakkar viðurkenna ekki rétt SÞ til að ræða þetta mál. Trúir Huxley ver LONDON, 30. nóv. (Reuter). — Dr. Geoffrey Fischer erki biskup í Kantaraborg vísaði í dag á bug þeim fullyrðing- um Julian Huxleys um að trúarbrögðin ættu fyrir sér að deyja út en í staðinn kæmi ný hugmyndafræði byggð á vísindum. Erkibiskupinn sagðist enn- þá trúa betur Jesú Kristi en Huxley og það hefði sýnt sig, að vísindin hefðu ekki svör við öllum spurningum. LONDON, 30. nóv. (Reuter). — Tilkynnt var í London í dag, að samkomulag hefði náðst um menningarsam- skipti Breta og Rússa á næsta ári, verður undirrit- aður samningur þar að lút- andi annað kvöld. - Samkomulag þetta vár gert eftir aðeins sex daga samningaumleitanir, sem Georgi Zhukov, yfirmaður stofnunar þeirrar í Sovét- ríkjunum, sem annast merin- ingarleg samskipti við aðrar þjóðir, af hálfu Rússa og Robert Allen aðstoðarutan- ríkisráðherra af hálfu Breta. Samkomulagið gildir frá apríl 1960 til marz 1961. Jarðsettur í Danmörku NEW YORK, 30. nóv. (NTB- Reuter). — Jarðneskar leyf- ar Povl Bang-Jensen, fyrr- um starfsmanns Sameinuðu þjóðanna, verða fluttar til Damnerkur og jarðsettur þar, að því er ekkja hans til- kynnti í dag. sem við viljum sérstaklega ráðleggja öllum að athuga brunatrygginguna á innbúinu! ER ÞAÐ TRYGGT? ER ÞAÐ NÓGV HÁTT TRYGGT? Við mundum hafa sérstaka áaægju af að leiðbeina yður í þessu efni. SÍMgN E R 17080 salfmtvn MRJunrmYíS Brunadeild. Framhald af 1. síðu. stöðu til að selja frystar vörur í Frakklandl og Ítalíu, og skapa þannig. markað fyrir frystan fisk meðal annars. Hann kvað velmegun fólksins fara vax- andi, og mundi fylgja því auk- in neyzla á fiski, sérstaklega gæðavöru vel tilreiddri eins og fiskflökin eru. Hann kvað það mundu verða bylting fvrir hér- uð inni á. meginlandi Evrópu, þar sem góður fiskur hefur aldrei verið fáanlegur, þegar frvstitæknin opnar leið fryst- um fiski. mælendaskrá í neðri deild, þeg- ar fundi þar var frestað kl. 4 í gær til kl. 5,30. Einar Olgeirs son tók við af Skúla Guðmunds syni og hafði bersýnilega búið sig undir að vera enginn eftir- bátur Framsóknarflokksins í maraþonhlaupinu. Var Einar rétt kominn af stað á skeiðinu, þegar fundi var frestað. Maraþonþóf Framhald af 1. síðu. úr nös að ræðulokum. Hins vegar mun mál manna, að v'rð- ing alþingis aukist sízt við þessa barnalegu málþófsvið- leitni stjórnarandstöðunnar. Vakti mikla athygli, að Fram- sóknarflokkurinn skyldi fela einum elzta og vinsælasta þing- manni sínum, Skúla Guðmunds syni, að vera skemmtiatriði til að tefia þingstörfin og beita málþófi um frumvarp, sem aldrei hefur sætt neinum á- greiningi á alþingi. Margir ræðumenn voru á Framhald af 1. síðu. ritað vnrður fjórum fulltrúum bætt við frá öðrum löndum. Hlutverk undirbúningsnefnd arinnar verður að ákveða hvaða eftirlitsstöðvar verði staðsettai' og hvernig útbúnar. Einnig mun hún kveða á um starfslið við eftirlit og ákveða hvaða leiðir flugvélar í eftirlitsflugi skuli fara. Stungið hefur vei'ið upp á að stofnun sú, sem sér um eftirlitið hafi aðalbækistöðv ar í Vínarborg. Samþykktin um stofnun þess arar nefndar er talið stórt ski'ef í átt til .samkomulags um bann við kjarnorkutilraunum. Full- trúar hinna þriggja ríkja á ráð- stefnunni létu allir í ljós á- nægju sína með þetta samkomu lag. 5 frumvörp sam- i FRUMVÖRPIN fimrn um framiengingu á tekjulög- um hafa verið sameinuð í eitt, og var Það flutt sem stjúnarfrumvarp í Efri deild í gærkvöldi. Þessi ráðstöfun er ber- sýnilega gerð til að tor- velda stjórnarandstöðunni málþófið, sem Framsókn- arflokkurinn og Alþýðu- bandalagið hafa í frammi til að tefja þingstcirfin og reyna að koma í veg fyrir frestun alþingis. Málþófi verður verr við komið í umræðum um eitt frumvarp en fimm. Samkvæmt þingsköpum er liægt að takmsnka ræðu tíma þingmanna eftir að untræða um dagskrármál héfur staðið í 3 klukku- tíma. Slíkt er hins vegar ó- venjulegt, en skipulagt málþóf hefur heldur ekki þekkzt á alþingi um langt áraskeið. Alþýðublaðið — 1. des. 1959 § m

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.