Alþýðublaðið - 29.12.1959, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 29.12.1959, Blaðsíða 2
Mál rædd á alls- f Útgefandi: Alþýöuflokkurlaa. — Framkvæmdastjóri: íhgóítur Kriirtj&nsaaa. ~ Ritstjórar: Benedikí Grondai, Gísli J. Astþórsson og Helgi Sœmundts&a (ib.). — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjalmarsson. — Btatinstyocí;.ájúsu | Jftai GuSmundsson. — Simár: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Augly* toiggstml 14 90$. — AÖsetui : AlþýðuhúsiÖ — PreiitsmiÖj* Alþýöubiaöídttí £ Hveríisgata 8—10. Leifur Eiríksson FLUGFLOTA ÍSLENDINGA hefur bætzt nýr og góður farkostur með Leifi Eiríkssyni Loft- leiða. Flugvélin hentar mjög vel farþegum og er ágætlega til þess fallin að þjóna þeim markaði far- þagaflutninganna, sem Loftleiðir hafa fundið og hagnýtt með mikilli prýði undanfarin ár. Hér skal engu um það spáð, hversu öruggur sá markaður geti talizt. Hitt liggur öllum 1 augum uppi, að starfsemi Loftleiða hefur tekizt þannig, að stór- tíðindum sætir. Sama er að segja um þróun flug- málanna á íslandi í heild og engin ástæða til að gara upp á milli Loftleiða og Flugfélags íslands, þó að hingaðkoma Leifs Eiríkssonar sé tilefni þess -ara umræðna. Bæði flugfélögin bafa reynzt at- hafnasöm og farsæl. Flugmálin hafa líka valdið tímamótum í samgöngusögu íslendinga heima fyrir og iit á við. Land okkar er í þjóðbraut, og flugsamgöngurnar gera okkur kleift að notfæra þá möguleika í ríkum mæli. Brautryðjendur íslenzku flugmálanna hafa uiinið mikinn og gleðilegan sigur í tvennum skiln- ingi og á mun skemmri tíma en nokkum gat grun- að í upphafi. Flugsamgöngurnar tengja byggð- icnar og landshlutana beima fyrir. Jafnframt gera þær okkur unnt að komast út í heim á klukku- stundum leiðir, sem áður tóku daga eða vikur. En ekki nóg með það: íslenzku flugvélarnar flytja daglega að kalda erlenda farþega heimsálfanna milli. íslendingar hafa gerzt sannkölluð forustu- þjóð í flugmálum eins og í siglingunum forðum. Fiugmennirnir minna á ví'kinga fornaldarinnar, þó að erindi þeirra í lönd og álfur sé friðsamlegt. Þeir fara víða, stækka íslenzka sjóndeildarhring og hafa bætt við nýjum atvinnuvegi í sögu lands og þjóðar. Öllu þessu ber að fagna. íslendingar eru líka stoltir af flugmönnum sínum og flugflota. Þeir standa í þakkarskuld við flugfélögin, vilja hlut þeirra sem mestan og beztan og eru reiðu- búnir að rétta þeim örvandi hönd. Hingaðkoma Leifs Eiríkssonar er mikill viðburður, sem aMir landsmenn veita athygli og meta mikils. Loft- leiðir líkjast Leifi hinum heppna, sem fæddist á íslandi, leitaði til Noregs og fann síðan Ameríku. Sama er að segja um Loftleiðir. — Alþýðublaðið 1 óskar Loftleiðum til hamingju um leið og það 8 fagnar Leifi Eiríkssyni. Dansleikur í kvöld herjarþingi Sam- einuðu þjóðanna . ALLSHERJARÞINGI Sameinuðu þjóðanna var slit ið sunnud. 13. des. aðeins fjór- um klukkutímum á eftir á- ætlun. Þetta þing var lítt sögu legt og fór fram með meiri friði og spekt en mörg fyrri þing samtakanna. Jafnvel um ræðurnar um Ungverjaland voru furðu friðsamlegar og gjörólíkar hinum ofsafengnu ræðuhöldum um það mál á undanförnum þingum. Óskir vesturveldanna um rannsókn á Ungverjalandsmálinu voru kurteislegar og Rússar og Ung verjar reyndu nú í fyrsta skipti á vettvangi SÞ að verja gerðir kommúnista í Ung- verjalandi haustið 1956. UmRÆÐURNAR um afvopn unarmál voru stuttar og án æsinga, ef frá eru skildar ded urnar um kjarnorkutilraunir Frakka í Sahara. Tillögur Sovétríkjanna um algera af- vopnun eru of flóknar og of óljósar til þess að hafa þau á- hrif, sem Krústjov augsjáan- lega vonaðist eftir úr því að hann bar þær fram í eigin persónu á þinginu. Sérfræð- ingarnir í Genf athuga þær gaumgæfilega jafnframt til- lögum Breta um afvopnun í áföngum og áætlum Jules Moch um eftirlit með vopna- framleiðslu. AlLSHERJARÞINGIÐ gerði fáar ályktanir, en sú mark- verðasta er tvímælalaust sam þykktin um stofnun alþjóða- nefni'ar, sem annast skuli geimrannsóknir. Þá var á- kveðið að á næsta ári skuli verndargæzlu Frakka í Togo og Kamerún og ítala í Somaí- landi ljúka og lönd þessi fá inngöngu í SÞ. Auk þess er þúizt við að Nigería og Mali verði einnig tekin í SÞ á næsta ári, en de Gaulle hét Mali-búum fullu sjálfstæði í utanríkismálum innan Hannes 'fa Hrein og friðsæl jól. Skrautleg borg á að- fangadagskvöid. ýV Farið um rólega borg. Er að hefjast nýtt tímabil meiri kyrrð- ar? ÞETTA VORU hrein og frið- sæl jól. Lögreglustjóri hefur þegar gefið þeim hinn bezta vitnisburð: Lítið um drykkju- skáp á almannafæri, fáir árekstr ar, lítið um slys — og kirkjurnar fuilsetnar á aðfangadagskvöld og jóladag. — Eins og vant er ók ég víða um borgina á aðfanga dagskvöld seint þegar ég bjóst við að flestir væru á heimilum sínum. Það var þögul og kyrrlát borg, sem ég kynntist, en skraut legri var hún en nokkru sinni áður. ÞEG.Vlt AUSTURSTRÆTI var skreytt fyrir jólin í fyrsta sinn, sagði ég, að verið væri að skapa hefð, sem aldrei framar myndi niður falla. Allmörg ár eru liðin og jólaskreytingin fær- ist sífellt í vöxt. Ilún teygir sig inn eftir öllum Laugavegi og upp h o r n i n u allan Skólavörðustíg, en stöðvast að vestanverðu að mestu við Að- alstræti, þó að nokkuð sé um skreytingar í verzlunum vestur eftir Vesturgötunni. EN ÞAÐ FÆRIST mjög í vöxt, að einkahús • og íbúðir séu skreyttar. Á þessu hefur aldrei borið eins mikið og nú. Ég sá mjög skreytt hús um allan bæ. inn í smáíbúðahverfi, við Bú- staðaveg, í Vogum og Háloga- landshverfi, vestur á Melum og í raun og veru um allan bæ. Þetta er gott og blessað og ekki get ég sett út á þessa viðleitni fólks til þess að skreyta í kring- um sig um jólin. Borgin var fög- ur á að líta og jólalegt allt í kring. EKKI VORU ALLIR á heim- ilum sínum. Ef til vill áttu sum- ir, sem ég sá, ekki neitt heim- ili. Vinnuklædda menn sá ég tvo niður við höfn og báðir voru drukknir. Drukkinn pi’tur á að gizka 16 ára gamall hímdi upp við húsvegg í Aðalstræti, kona slagaði upp Túngötu og talaði við sjálfa sig. Ung hjón báru lítil börn prúðbúin niður Lauga- veg. Þau voru glöð og kát. Tveir menn stóðu við búðarglugga sinn í hvoru lagi og virtust hafa mik- inn áhuga á útstillingum. skamms. Þannig mun Afríku- ríkin eflast mjög á vettvangi SÞ á næstu á um og bendir allt til þess að þau ásamt Asíuríkjunum verði þar alls- ráðandi í ýmsum mikilvæg- um atkvæðagreiðslum áður en langt um líður. ÁlSÍRMÁLIÐ var talsverð- ur sigur fyrir Frakka og þá sérstaklega de Gaulle, Tillaga sú, sem fékkst samþykkt um það mál gengur út á það eitt að viðurkenna rétt Alsírbúa t l þess að ákveða sjálfir póli- tíska framtíð landsins og deiluaðila til þess að taka upp samninga um vopnahlé, en þetta hvorttveggja felst í tilboðum de Gaulle til upp- reisnarmanna. Aðeins 37 ríki greiddu þessari tillögu at- kvæði og var hún því ekki bindandi fyrir neinn aðila. Úrslit málsins á þingi SÞ benda til þess að Alsírska út- lagastjórnin hafi takmarkað samúð umheimsins og hlýtur að hvetja hana til samkomu- lags við Frakka. F RÖKKUM finnst það eitt varpa skugga á úrslit máls- ins, að Bandaríkjamenn skyldu verða til þess að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna, og þegar við bætist svo reiði- lestur Twining á herforingja- fundi Atlantshafsbandalags- ins í garð Frakka verður skilj anlegt að frönsk stjórnarvöld hafa litla trú á að einkavið- Framhald á 14. síðu, JÓLATRÉ VORU næstum því í hverri stofu og fólk í önnum kringum þau. Sums staðar voru sungnir jólasálmar — og glugg- ar opnir, ekki breitt fyrir þá. —• Borgin var mjög jólaleg og allt friðsælt og hátíðlegt. — Maður sagði við mig einn jóladaginn: „í nær tvo áratugi hefur hér allt verið á hverfanda hveli. Gífurleg atvinnubólga hefur átt sér stað, tveir eða jafnvel þrír atvinnu- rekendur hafa falað hvern vinn- andi mann — og beitt hefur ver- ið yfirboðum í mörgum tilfell- um. ÞETTA HEFUR VALDIÐ verðbólgu á öllum sviðum. Á slíkum tímum er hálfgert upp- lausnarástand, fólkið eyðir, margir verða ríkir, margir búa vel um sig, aðrir sóa og eyða eins og vitfirrtir menn. Öllu þessu fylgir lausung, upplausn á heimilum og í félagslífi. Allt þetta er eðlilegt. En sagan sann- ar, ,að þegar ástand hefur náð há- marki hefst útfallið, kemur aft- urkastið. Mér finnst sem breyt- ing sé að verða. Kyrrðin sé að færast yfir, heimilin einangri sig meir en áður. Menn séu farnir að sjá að sér.“ ÞETTA SAGÐI maðurinn við mig. Ef til yill hefur hann á réttu að standa. Ég veit það ekki, en ég þykist vita það, að ef þetta er: rétt, þá fylgir því aukin trúar- þörf hjá fólki. Aukin trúarþörf kemur fljótlega í Ijós. Hún er fyrsti óræki votturinn um að kyrrð sé að skapast, meiri kyrrð en verið hefur undanfarna tvo áratugi. i Ilamies á horninu. I g ~ 29. des. 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.