Alþýðublaðið - 30.12.1959, Page 2

Alþýðublaðið - 30.12.1959, Page 2
 íftgefandl: AlþýBuilokJrijnua. — Framkvæmdastjórl: Ingolfur Kritfjáiuae*. | — Ritstjórar: Benedikt óröndal, Gísll J. Astþðrsson og Helgi SæmunaaA táb ). _— Fulltrúi ritstjómar: Sigvaidi Hjáltnarsson. — Frettuatjort: bjútt. í Vln Gutimundsson. — Símar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903 Augl*» tngtwimi 14 909. — ASsetui : Alþyðuhúsiö — Prentsmlbja AiþyCuhlaÓJou * Hverflsgata 8—10. Dómur fyrirfram RÍKISSTJÓRNIN undirbýr nú tillögur í efna- hagsmálum, sem væntanlega verða lagðar fyrir alþingi, er það 'kemur aftur saman fyrir lok jan- úarmánaðar. Enn er undirbúningi þessa máls ekki svo langt komið, að hugsanlegt hafi verið að birta neitt efnislega um þau opinberlega. Að sjálfsögðu þurfa réttir aðilar innan stjórnarflokkanna að fjal'la um málið fyrst og taka um það ákvörðun, hvort fckkarnir vilja að málunum standa. Hjá Alþýðuflokknum munu bæði miðstjórn og flokks stjórn taka ákvarðanir um það, hvort eða hvern- ig flokkurinn skuldbindur sig. Þrátt fyrir allt þetta er einn aðili, sem þeg- ar hefur tekið afstöðu ti lmálsins. Það er hið | forvitra blað, Þóðviljinn. I síðum þess eru hin- ar ófæddu ráðstafanir þegar stimplaðar sem árás á lífskjör alþýðunnar, er muni gera hina ríku ríkari og hina fátæku fátækari, og fleira slíkt. Það er kommúnistum líkt, að fella dóm löngu | áður en vitað er, hvað gert verður — meira að segja áður en ríkisstjómin hefur endanlega á- kveðið tillögur sínar. Kommúnistar dæma aðeins frá þeirri forsendu, að þeir eru ekki í stjórn. Þeg- ar þeirra eigin menn sátu í ráðherrastólum, sáust slíkir sleggjudómar auðvitað ekki fyrirfram í blaði þeirra. Almenningur hlýtur að fordæma slík vinnu- brögð. Það er ógerningur að treýsta mönnum, sem haga baráttu sinni á þennan hátt. l Menningarjól Það er að mörgu leyti meiri menningarbrag- ur á jólahaldi íslendinga nú en áður. Almenning- ur virðist hafa farið gætilegar með fé sitt, lögregl- an hefur af minni róstum og óeðli'legum vand- kvæðum að segja, og kirkjusókn var meiri en nokkru sinni fyrr. Þetta er gleðileg breyting, og ber að vona, að hún reynist ekki aðeins varanleg, heldur gangi þjóðin lengra á þessari braut í framtíðinni. Það mun verða til aukinnar hamingju og heilla. Afskorin ódýr blóm til nýársgjafa — Kr. 20.— búntið. Körfur og skálar, mjög ódýrt. Rléma- ©g græsimetismnarka^urinn Laugavegi 63 Sími 16990. Sigurður Einarsson: För uiti fornar helgislóðir. Ferða- minningar frá Egyptalandi, Líbanon, Sýrlandi. Jórdan- staði og helgislóðir biblíunn- ar. Þá segir næmleik' Sigurð- ar Einarssonar til sín. Hann rekur atburði fortíðarinnar, íu og ísrael. ísafoldai'prent- smiðja. Reykjavík 1959. ÞETTA er sagan af suður- göngu Sigurðar Einarssonar haustið 1957. Sú för var harla öfundsverð, því að fá ríki jarðar munu Vestur- landabúum girnilegri til fróðleiks heldur en Egvpta- land og ísrael. En okkur h num er bót í máli, hvað ferðasaga Sigurðar hefur tek- izt ágætlega. Hins vegar lang ar mann enn meira að fara í slóð hans eftir en áður. Sigurður Einarsson er tví- rpælalaust í hóni ritfærus'u op frásagnarglöðustu sam-, tíðarmanna, off ,.För um fornar helgislóðir“ stað- f°stir skemmtilega þá vissu. Hér er allmikið um stað- reyndatal, en sú upntalning verður aldrei þurr lestur í munni S gurðar. Hinu er þó ekki að neita, að þeir kaflar bókarinnar standa að baki þeim, er sreina frá heim- sóknum höfundarins á sögu- lýsir áhrifum helgistaðanna á sjáífan sig og verðpr s^undum predikari, jafnvel sá þrumuklerkur, sem hann var og er, þegar skap eða til- finning brimar í huga hans op mælskan streymir fram eins op lifandi vatn, Beztu kaflar bókarinnar eru senni- lepa það snjallasta. sem Sig- urður hefur í letur fært. Efnið honum kunnugt og huP1oikið, osr svo bætist við inniifunin, sú reynsia, þegar sión verður sö?u ríkari. Þá tekst Hoitsklerkinum svo unn, að fáir mundu gera betur. Eina athusasemdin. sem hér verður fram borin, er það lít iræði, að höfundurinn víkur öðru hvoru frá rit- hætAi bibiíuþýðingarinnar á söpustöðunum í ísrael, og stafsetning egypzku nafn- anna mun naumast eins sam raemd og skvldi. En hvaða máli skiptir bvílíkt smáatr- iði. begar annars vegar er ferðabók, sem vafalaust þætti ☆ í ljósaflóði við Reyk j a víkurhöf n. ☆ Merk endurbót, sem ekki hefur verið getið ☆ Geigvænlegur drykkjuskapur tog- arasjómanna. VERKAMENN og sjómenn hafa komið að máli við mig og vakið athygli mlna á því, að mjög mikil umbót hafi farið fram við Reykjavíkurhöfn. Þeir segja að þessi nýjung auðveidi þeim störf, dragi úr slysahættu, jafnvel gjörbreyti aðstæðum fyrir báta, sem lpggja upp við verbúðabryggjurnar. Þeir segja, að þessa hafi hvergi verið getið — og að aumir sáu reykvískir blaðamenn, sem sífellt séu á fréttaspani, en gangi framhjá merkilegri nýjung eins og þess- ari. v SÉTTIR HAFA VERIÐ UPP tveir ljósa- eða lýsingaturnar við : höfnina. Annar er yfir Granda- I garði, hinn yfir gömlu bryggj- j unum. Þarna hefur alltaf verið j dimmt og drungalegt, erfitt áð j athafna sig og mikil slysahætta : vegna myrkurs. Nú er þarna á ■ kvöldum og um nætur eins og j um hábjartan dag vegna hinna nýju lýsinga, birtan frá sterkum : ijóskerunum flæðir yfir þessi ið andi og mikilsverðu ath'afna- svæði. ^ EINN ÞEIRRA, sem talaði við mig, sagði enn fremur: „Við fögn um allir þessari endurbót, en okkur vár að koma til hugar hvort hafnaryfirvöldin, jafnvel Slysavarnafélagið vildi ekki at- huga eina tillögu, sem fram kom í kaffitímann í gær. Einn félag- anna sagði allt í einu: Væri ekki alveg tilvalið að settur væri upp radar í að minnsta kosti annan turninn? Oft gerir fárviðri hérna á flóanum, stund- um týnast bátar, í svartabyl eiga skip og bátar erfitt með að at- hafna sig. Væri ekki gott ef hægt yrði að fara upp í turninn og leita báta og sjá -til ferða þeirra gegnum radarinn?" ENN FREMUR sagði hann: „Ég vil mælast til þess, að þú minnist á þetta og komir uppá- stungunni um radarinn á fram- færi. Þá höfum við gert okkar skyldu og svo er það hlutverk annarra að hrinda tillögunni í framkvæmd ef hún er álitin framkvæmanleg. Ég veit að rad- ar er dýr og ef til vill kostar mikið ,að koma honum upp, en hið opinbera í samvinnu við Slysavarnafélagið — og til dæm- is bátaeigendur, hafa hrint öðru eins í framkvæmd í ágætri sam- vinnu.“ OG HÉR MEÐ geri ég að um- talsefni þessa merku nýjung við Reykjavíkurhöfn. Það er gaman að því að geta vakið athygli á því sem vel er gert, ekki sízt þegar það stefnir að því að auð- velda stritfólki störfin og auka öryggi þess. Það er gott til til- inarssonar tíðindum sæta, hvar sem væri? Ég veit ekkí. hvernig sala þessarar snjöllu ferða- sögn hefur geng ð á jóla- markaðinum, en trúlegt er, að henni verði tek’ð tveim höndum af bókaþióð, sem kaupir endivrprenitaiiiir rne&l húsgagnasniði við okurverði. Slíkt skal ekki lastað. meðan verzlunarhætti’-nir ueta tal- izt sæmilega heiðarlegir, en merka’’ frumsamdar bækur um fróðlegt, hugðnæmt eða tímabært efní ættu bó sann- arlowa að s tia í fyrirrúmi. Mér iék foi’vitni á að vita, hvpð Siou'-ður Einarsson s°gði i'm Þsael heimkominn úr suðurgönsunni. Um þau vHAhorf <=r skilmerkilega fjall að í níðurlagsorðum bókar- innar, bar sem segir svo : ..Er> V'cið var snr,ac5, sem ég öð^aðitit í farginn! s°m ekki var stofnað M1 af minni hálfu: Kvuuir, af ícvael op virðingin fv-fr bessu iitla menningar- ríki. sern urnkringt er fjand- samiepum þióðum á alla vegu. É" bafði, ef satt skal segja, miöp takmarkaða. samúð með ísrael, þegar ég lágði í þessa Framhald á 14. síðu. breytingar frá nöldrinu út af þvf sem vanrækt er — og illa er gert. ÁSTANDIÐ á togaraflotanum er hörmulegt. Drykkjuskapur sjómanna er svo mikill, að aldr- ei hefur þekkzt annað eins. Tog- ararnir láta seint og um síðir úr höfn — eftir leit að skráðum mönnum, sem ekki rriæta til skips. Menn eru algerlega óstarf hæfir fyrstu tvo sólarhringana að minnsta kosti. Það verður að gæta manna, standa vaktir yfir þeim svo að þeir fari sér eklq að voða. DRYKKJUSKAPUR þessará manna er brjálsemi. Hér er tví- mælalaust um einhvers konar fjöldageggjun að ræða. Eitt er að bragða áfengi og allt annað að drekka frá sér ráð og rænu, sóma sinn og æru, efni sín — og líf sitt. Ég minnist aðeins á þetta í dag, en ótrúlega hliótt er um þetta geigvænlega vandamál. Hér er efni í mikil og hlífðar- laus skrif og umræður. Það er ekki hægt að Þegja lengur. Hér er að vísu um vandamál ein- staklinga að ræða,- en þettá vandamál einstaklinganna er orðið þjóðfélagslegt vandamál. Hvað veldur þessum ósköpum? Er undirrótin of mikið frelsi? Liggur meinið í agaleysi? Og hvernig er hægt að koma við aga þegar ástandið er þannig, að margir bjóða í sama mann til vinnunnar? ÉG HEF SKRIFAÐ margar greinar í þetta blaö og lagt mitt lóð á vogarskálina til þesá að bæta kjör sjómanna. í dag geri ég kröfu til þeirra sjálfra. Þeir eru að fyrirgera rétti sínum. Þeir eru að eyðileggja það, sem braut ryðjendur þeirra hafa byggt upp. Þeir eru að eyða sóma sínumi sem einstaklingar — og seml stétt. I Hannes á horninu. J g — 30. des. 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.