Alþýðublaðið - 30.12.1959, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 30.12.1959, Blaðsíða 7
Framlhald a£ 1. síðu. Btjórnaði þeirri vinnu. í sjó- prófum, sem fram fóru í gær, kvaðst hann ekki hafa séð Sæv- ar eftir það. Einn hásetanna varð þess var, er Sævar fór í sjóinn, og gerði þegar aðvart. Var skip- inu þegar snúið við og leit hafin. Heyrðu skipverjar hróp frá Sævari og steíndu á hljóð- ið. Sigurður Guðmundsson, 2. stýrimaður, átti vakt á stjórn- palli um þetta leyti. Lét hann þégar kasta útbyrðis tveim bjarghringjum, öðrum lausum en hinurn í línu, en án árang- urs. Jafnframt var tafarlaust skoíið út björgunarbáti með finim mönnum og stjórnaði Sigurður stýrhnaður honum. Kveðst hann hafa séð Sævari krcgða fyrir í bjarmanum frá Ijóskastara skipsins um það- leyti er bátnum var skotið út. Stýrði hann bátnum í þá átt, er Sævar hafði -sézt. Jón Hensley, háseti, kom auga á Sævar í 40—50 m. fjar- lægð, að því er hann telur, og varpaði sér til sunds úr bátn- um. Telur hann sig hafa átt 10 —15 m. eftir að Sævari, er hon um virtist sem Sævari væri að fatast sundið og sökkva. Samt tókst Jóni að ná taki á honum, en telur ao þá haí Sævar ver- ið orðinn meðvitundarlaust. Hélt Jón honum uppi um stund, en í þann mund er Benedikt Arason, háseti, kom syndandi á vettvang, missti Jón takið á Sævari og sást ekkert til hans eftir það. Höfðu bátsverjar rétt ár til Jóns og kastað til hans iínu meðan á þessu stóð, en hann hvorugu náð. Leitað var á þessum slóðum í um það bil tvær klukkustundir, en án árangurs. Þeir Jón Hensley, Máva- hlíð 6, 17 ára að aldri, og Benedikt Arason, Laugateig 16, 20 ára að aldri, sýndu þarna mikið snarræði og logðu sig í hættu til að bjarga félaga sínum, þó að ekki tækist. Siór var kald- ur og niðamyrkur á, þegar þetta gerðist. Voru þeir orðn ir alldasaðir, er þeir voru teknir aftur um borð í björg- unarbátinn, einkum þó Jón, Skotæfingar Framhald af 1. síðu. fyrir um, hveð ólátura þessum mundi vaida. Fengust að lokum þau svör frá bandarísku herstjórnirmi, að þessu yrði haldið áfram um öll jólin Þrátt fyrir það hættu spreng- ingarnar von bráðar og er talið, að lögreglustj órinn á Keflavík- urflugvelli hafi skorizt í leikinn og stöðvað æfingarnar. Þess má að lokum geta, að á aðfangadagskvöld kom til rysk- inga í svonefndum NCO-kiúbb á flugvellinum. EINS og allir munu vita, kvæníist íranskeisari skömmu fyrir jólin. Heit- ir drottning hans Farah Diba og var hún áður við nám í húsagerðarlist í París. Hitt munu færri vita, að meðan á dvöl hennar í París stóð var hún í miklu vinfengi við íslenzkan námsmann þar í borg, svo að ekki fór leynt. Myndin, sem er EKKI af hinni nýju íransdrottn- ingu, sýnir einn af kjól- unum, sem Jacques Este- rel, heimsfrægur tízku- frömuður, gerði í tilefni brúðkaupsins. WWMMWWMMMMWWWWWMWnWIWWWWWWMW sem var lengur í sjónum. Er talið, að von hefði verið um að bjarga Sævari, ef bjart hefði verið. Nokkru eftir að slys þetta varð, hrasaði einn skipverja í stiga og brothaði ristarbein annarrar handar. Var skipinu þá snúið til hafnar. Fóru sjó- próf fram í gærdag, eins og fyrr segir. Skipstjóri á B.v. Þor móði goða er Hans Sigurjóns- son. Staðfesti hann í viðtali við Alþýðublaðið, að 4—5 menn af skipshöfninni hefðu verið und- ir áhrlfum áfengis, er látið var úr höfn, en aðeins 2 þeirra tals vert ölvaðir. Er slíkt ekkert einsdæmi. Neyöarásfand á Kyrrahafseyjum Noumea, 29. des. (Reuter). NEYÐAKAÐSTOÐ var flýtt til hinna afskekktu Nýju He- brideseyja í suð-vestur Kyrra- hafi í dag, er steypiregn og rok jók á ringulreið þá, er hvirfil- vindur oili á eyjunum í nótt. Fregnir, sem bárust hingað til Nýju Kaledóníu í dag, segja, að Port Vila, stjórnaraðsetursborg in hafi verið því sem næst Þurrk uð út. Um 80% af borginni var jafn- að við jörðu — þar á meðal franskt sjúkrahús, sem sjúkling ar voru fluttir úr — og 90% af uppskeru eyjaskeggja hefur eyðzt. Engar tölur hafa verið gefnar upp um særða og látna. Nýju Hebrideseyjar liggja milli Solomonseyja og Fi.jieyja um 11 mílur fyrir austan Ástra- líu. íbúar eru um 53.000 talsins, þar af 49.000 innfæddir Melan- esar. Eyjarnar hafa verið taldar eitthvað m'esta hættusvæði í heimi fyrir kristna trúbo'b'a. Á Fijieyjum bjuggu menn sig í dag undir hvirfilbylinn, sem búizt er við að gangi yfir eyj- arnar í fyrramálið. Agúst selur í Bremerhaven TOGARINN Ágúst frá Hafn arfirði seldi afla sinn í Brem- erhaven í gær; 88 lestir af síld fyrir 54.800 mörk og 110 lestir af öðrum fiski fyrir 50.500 mörk. _________ Frá Mæðra- styrksnefnd í DAG er síðasti úthlutunar- dagur fatnaðar. Verður úthlut- að á Túngötu 2 kl. 2—6. um áramótin SAMKVÆMT upplýsingum frá Veðurstofunni eru líkur til norðanáttar sunnanlands um áramótin og nokkru kaldara veðri en undanfarna daga. — Sennilega verður þurrt veður hér í grennd, en hríðarveður fyrir norðan. Þetta stafar af djúpri lægð við vesturströnd Skotlands, sem hreyfist norður eftir milli ís- lands og Noregs. Hefur lægðin valdið hvassviðri og hlýindum á Bretlandseyjum. T. d. var 15 stiga hiti í Lundúnum kl. 5 í gærdag og víða 12 stig í Bret- landi. í gær var að ganga á með norðaustanátt á Vestfjörðum, an strekkingur, snjókoma og Á suð-austurlandi, Hornafirði og nágrenni, var t. d. 5 stiga Teheran, 29. des. (Reuter). ÍRANIR og írakir birtu í dag yfirlýsingar, þar sem sagði, að hvorugir æsktu vandræða vegna landamæradeilna ríkj- anna — en báðir væru undir það búnir að berjast, ef með þyrfti. Jafnframt sáust þess merki, að drægi úr spennu á deilusvæðinu við Persaflóa. Forsætisráðherra írans, Man- ushar Eghbal, sagði í Rawal- pindi í Pakistan, að stjórn hans 1 mundi biðja alla bandamenn sína, þar á meðal Bandaríkin, um hjálp, ef írakir hæfu stríð. í Bagdad bað utanríkisráð- herrann, Hashem Jawad, allan heiminn um að fordæma Írani fyrir að stofna friðnum í Aust- urlöndum nær í voða. Deilan er út af þriggja mílna landræmu nálægt olíustöðinni Abadan, sem írakir létu írönum eftir 1937. Eitt merki urtl minnkandi spennu er það, að shahinn og hin átta daga gamla brúður hans hafa ákveðið að fara í brúð kupsför sína til Kaspíahafs. — Höfðu Þau ekki lagt af stað í förina fyrr vegna spennunnar. Hins vegar er bent á, að sha- hinn muni geta haft .stöðugt símasamband við stjórnina og herforingja sína. Vísitalan 100 KAUPLAGSNEFND hefur reiknað vísitölu framfærslu- kostnaðar í Reykjavík 1. des. 1959 og reyndist hún vera 100 stig eða óbreytt frá, grun-ntölu vísitölunnar 1. marz 1959. hiti og rigning, þ. e. asahláka. Á Vestfjörðum var norð-aust an strekkngur, snjókoma og vægt frost. AUGUSTA, 29. des. (REUT- ER). Þjóðvegir í mið-vesturríkj- kynntu í dag, að þau mundu hefja „sjálfviljuga frestun“ á tilraunum með kjarnorkuvopn frá og með 1. janúar. í opin- berri tilkynningu segir, að Bandaríkjamenn telji sig samt frjálsa til að hefja tilraunir að nýju, en mundu ekki gera þsð, án þess að tilkynna heiminuna það fyrirfram. 1 tilkynning- unni eru Rússar sakaðir um að tefja v'ðræðurnar um banrt við tilraunum með kjamorku- vopn í Genf. FIMMTÁN bátar komu til Keflavíkur í gær með 2820 tunn ur síldar. Hringnótabátaruir þrír voru aflahæstir, Vonin með) 306 tunnur en hinir á 3. hundr- að hvor. Aflahæstur reknetafeát anna var Magnús Marteinssen með 235 tunnur, 6—7 bátar voru með yfir 200 tunnur, em veiðin var annars ákaflega jöfn °g 8®®. Allir fóru bátarnir út aftur. ALÞÝÐUBLAÐINU hef ur verið bent á, að frá- sögn þess af greiðslum til útvarpsstjóra fyrir upp- lestur hans úr bókum bv.vgist á alröngum upp- lýsingum. Samkvæmt beimildum frá útvarpinu 51 fær bann 150 krónur fyr- ir hvern upplestrarþátí, sem er lægsti og algeng- asti taxti útvarpsins fyrir slíka upplestra. Útvarps- stjóri hefur enga þóknun fengið sérstáklega fyrir umsjón með bókaþættin- um. Er því aðeins um að ræða lítið brot af þeirri upphæð, sem nefnd var í blaðinu í gær. S Alþýðttblaðið — 30. des. 1959

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.