Alþýðublaðið - 30.12.1959, Síða 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson
íslenzkir skíb
keppa í Sviss
MMHHMMHMWHMMHHW
DENIS Viollet, sem slas-
aSist mjög alvarlega í
flugslysinu við Miinchen,
þegaj- Manchester United
var á heimleið frá Búda-
pest fyrir tæpum tveim
árum og var vart hugað
líf, er nú orðinn einn bezti
Iiðsmaður Manchester
United. — Viollet, sem
áður lék vinstri innherja,
er nú orðinn miðherji liðs
ins. Skömmu fyrir jólin
var hann markahæsti leik
maður I. deildarinnar með
23 mörk.
WWWmWMMWWWWWWW
amenn
í jan.
KEPPNISTIMABIL ísleúzkra
skíðamanna hefst bráðlega eða
nánar tiltekið í byrjun janúar,
en þá taka tveir íslenzkir skíða-
menn þátt í stórmóti í Sviss.
Tíðindamaður íþróttasíðunn-
ar náði tali af Gísla Kristjáns-
syni, stjórnar.meðlim Skíðasam-
bands íslands, og fékk hjá hon-
um eftirfarandi upplýsingar:
I'
* EKU VIÐ ÆFINGAR
í SVISS
XJm þessar mundir dvelja
tveir íslenzkir skíðamenn við
æfingar í Zematt í Sviss, en
þar eru fyrsta flokks skilyrði til
æfinga, enda æfa þar margir
beztu skíðamenn Evrópu þessar
vikurnar. íslenzku skíðamenn-
irnir eru þeir Eysteinn Þórðar-
son, fR og Kristinn Benedikts-
son, ísafirði. Kristinn hefur
dvalið ytra síðan í október,
dvaldi fyrst í Danmörku og
vann þar, en hélt síðan suður á
bóginn. Eysteinn fór ekki utan
fyrr en um mánaðamótin nóv-
ember—desember.
* KEPPA FYRST
3. OG 4. JANÚAR
Fyrsta stórmót skíðamanna
fer fram í Adelboden í Sviss
dagana 3. og 4. janúar og þar
ætla Eysteinn og Kristinn að
keppa. Næst keppa þeir félagar
á móti í Wengen um helgina 10.
og 11. janúar, en þriðja mctið
verður hið fræga „Hahnenkam-
FYRSTA íþróttakeppni árs-
ins 1960 verður sennilega af-
mælismót KR í handknattleik,
en það fer fram 9. og 10. janúar
n.k.
Sigurgeir Guðmannsson, for-
renn“ í Kitzbúhel, sem háð
verður dagana 15. og 17. janú-
ar, en síðast þegar vitað var
höfðu 12 þjóðir skráð í það mót,
m, a. Svíar og Norðmenn, auk
íslendinga. Áður hefur aðeins
verið keppt í svigi og bruni á
móti þessu, en vegna Olympíu-
leikanna verður nú einnig
keppt í stórsvigi.
Ekki er vitað um fleiri mót,
sem Eysteinn og Kristinn taka
þátt í, en vel er það hugsanlegt,
Framhald á 14. síðu.
maður Handknattleiksdeildar
KR, skýrði okkur frá því í gær,
að þessu afmæ'Jismóti hefði alls
verið frestað fjórum sinnum af
ýmsum ástæðum — en nú von-
umst við til að geta haldið það,
sagði Sigurgeir.
, Mótið verður hraðkeppni
bæði í kvenna- og karlaflokki.
Ekki er enn vitað nákvæmlega
um þátttöku, en reikna má með
því, að öll liðin í Reykjavík og
FH í Hafnarfirði verði með og
ekki er að efa, að mót þetta
verður hið skemmtilegasta.
o
Við notuðum tækifærið og
spurðum Sigurgeir hvernig hin
ir sigursælu íslandsmeistarar
Framhald á 13. síðu.
Rabb viðK.R,
Eiysteinn Þórðarson í keppni erlendis.
Kutz hæftur
VLADIMIR KUTZ, heims-
methafi í 5 og 10 km hlaupum,
hefur nú ákveðið að taka ekki
þátt í keppnisíþróttum meir,
segir Moskvuútvarpið. — Vla-
dimir Kutz setti sitt fyrsta
heimsmet á móti á Central sta-
dion. í Moskvu 11. september
1956, en þá hljóp hann 10 km
á 28:30,4 mín. Tveim mánuð-
um síðar setti hann Olympíu-
met bæði í 5 og 10 km hlaupi,
en tímarnir voru 13:39,6 og
28:45,6 mín. Árið 1957 setti
hann svo nýtt heimsmet í 5 km
hlaupi á alþjóðlegu móti í Róm,
13:35,0 mín.
Erindi og ritgerðir
Einars H. Kvarans
Einar H. Kvaran. Eitt
veit ég. Erindi og ritgerð
ir um sálræn efní.
ÞAÐ er mikill fengur í því
að fá þetta úrval úr erindum
og ritgerðum Einars H. Kvar
ans. Hann var, eins og kunn-
ugt er, annar aðalbrautryðj-
andi spiritismans hér á landi.
Hinn var Haraldur Nielsson.
Fluttu þeir báðir fagnaðar-
boðskap andahyggjunnar með
miklum glæsibrag, enda varð
þeim mikið ágengt. En ólíkir
voru þeir um margt. í bók
þeirri, er hér um ræðir, hvgg
ég að sum einkenni Einars,
bæði sem manns og skálds,
komi vei í ljós.
„Þér skáldsins eldur í blóði
brann,
svo birti um auðnir og
klungur,
Þitt mál 1 farvegi raka
rann
sem rólegur straumur — en
þungur.
Þar tókust í hendur hreyst-
in og mildin,
hitinn og kuldinn, vitið og
snilldin".
Þannig var meðal annars
kveðið um Einar H. Kvaran
látinn, og hygg yg, að hér sé
ekkert ofmælt. Einar var allt
í senn: mikill vitsmunamaður,
mikill mannvinur og mikið
skáld. Hann afsannaði ræki-
lega í verkj þá villukenningu,
að boðun ákveðinna sanninda
og skáldskapur, kenni-
mennska og list, geti ekki far-
ið saman, og það var einmitt
vegna þess, hve mikið og gott
skáld hann var, að málflutn-
ingur hans varð svo áhrifa-
mikill sem hann reyndist
vera. —
Spxritisminn hefur átt
miklu gengi að fagna meðal
bióðar vorar, oe er það vel.
Því að bessi stefna horfir til
mannbóta. Að vísu er af ýms
um ástæðum nokkuð vandfar-
ið með hana, og það vissi og
viðurkenndi Einar H. Kvar-
an. En svo er um margt fleira,
og bað afsakar engan veginn
ýmsa m’svitra menn, sem eru
að kasta steini að stefnunni,
ýmist í nafni kristindómsins
eða svokallaðra vísinda. — Ég
hygg, að bæði sníritistar og
aðrir hafi gott af því að ganga
á fund Einars í þessari bók,
kynna sér sem rækilegast rök
hans og njóta leiðbeininga
hans á hinum vandrötuðu veg
um, sem hér er óneitanlega
um að ræða. Því að þó að nú
sé að vísu öldin önnur en þeg-
ar Einar og Haraldur lögður
fyrst til atlögu við fáviskuna
og fordómana, sitja þó hinir
andlegu bræður, trúarhrokinn
og vísindahrokinn, enn þá- cf
víða að völdum í sálun mann-
anna og rugla mjög ráð þeirra
í andlegum efnum.
„Stíllinn er maðurinn",
segja Frakkar 0g mun sann-
mæl' vera. Stíll Einars var
einstaklega viðfelldinn, hóf-
samur, fágaður, fjaðurmagnað
ur og öfgalaus, og þannig var
maðurinn. Ég kynntist honum
á síðustu árum hans. — Fáa
hef ég öldunga þekkt jaf'n
elskulega og mun hann jafn-
an verða mér minnisstæður.
Mér er b”í ljúft að mæla með
þessari bók, sem ber öll beztu
einkenni höfundar síns og
flytur boðskap, sem er vissu
lega í fög'u samræmi við eðli
og anda jólanna, sem nýlega
eru um garð gengin.
Gretar Fells.
Hóseigeiidur.
Önnumst alls konar
vatns og hitalagnir.
HITÁLAGNIR h.f.
Sími 33712 — 35444.
ÞÓRSCAFE
Dansleibur í kvöld
Alþýðublaðið — 30. des. 1959