Alþýðublaðið - 30.12.1959, Síða 13

Alþýðublaðið - 30.12.1959, Síða 13
n Jón Helgason: íslenzkt . mannlíf II. ISunn 1959. j Prentsmíðjan Oddi. í HÁVAMÁLUM segir: ’ ... bú er betra, I- þótt lítit sé, [> halr er heima hver, l þótt tvær geitr eigi 1 ok taugreftari sal, þat er þó betra en bæn. ' Ólafur prófessor Lárusson 1 segir um þessa vísu í sinni á- gætu bók Byggð og saga: ■ „Þessi skoðun á sér djúpar , rætur hjá kynflokki vorurn. . Hún hefur legið á bak við alla ■ skiptingu jarðanna hér á landi á öllurn öldum, og á vorum dögum á hún sinn ipikla þátt í aðstreymi unga fólksins til “ kaupstaðanna. Það er löngun- in-t'il að vera sjálfstæður, vera sinn eiginn herra og húsbóndi. . Margur maðurinn hefur átt þess einn kost, til að fullnægja þeirrí löngun sinni, að taka ■ eitthvert „hrakkotið“ og ger- ast þar kotungi. Sumir hafa borgað það sjálfstæði dýru - verði, með sulti og seyru, og jafnvel með lííi sínu, er harð- indin surfu að.“ Mér duttu þessi orð eða réttara sagt þessi ályktun ÓI- afs prófessors í hug, begar ég Ias þátt Jóns Helgasonar, er . hann nefnir Landsskuld af Langavatnsdal. Ævihlaup Sæ- mundar Pálssonar er einmtit skýr sönnun þessarar skoðun- ar. Lífsbarátta fólksins í Fyrstu undir- skriftir fríverz!■ unarsamnings LONDON, 29. des. (Reuter) Norðmenn og Bretar urðu í dag fyrstir til að staðfesta samning sjöveldanna um fríverzlunar- samband Evrópu, sem 90 mill- jónir manha munu á sínum tíma eiga aðild að. Arne Skaug, verzlunarmálaráðherra Norð- manna undirritað' samninginn fyrir hönd Norðmanna í Osló, en Heathcoat Amory, fjármála ráðherra, og Maudling, verzl- unarmálaráðherra, undirrituðu samninginn í London. Rabh Framhald af 11. síðu. KR í knattspyrnu hefðu seft í haust. —Kjarninn í liðinu hefur æft ágætlega, en þó eru nokkrir, sem lítið eða ekkert hafa þjálf- að. Yngstu leifemenn meistara- flokks hafa verið duglegastir, þjgjr kvæntu hafa ekki getað sott æfingar sem skyldi í haust, en.við vonumst, til að sjá þá alla eftir áramót, ekki mun veita af, Því að reikna á með harðri baráttu á knattspyrnumótum' næsta árs en varð á árinu, sem er að líða, sagði Sigurgeir að lokum. Vatnsnesi og síðar á nýbvggðu f jallakoti vestur á Langavatns dar er tilraun og framkvæmd fátæks fólks til þess að vera sjálfs sín. En Sæmundur galt þetta sjálfstæði því verði, sem hann átti eitt til var sitt eigið líf. er samt sem áður vegna þess að hún sýnir á ótví- ræðan hátt sjálfsbjargarvið- leitnl fólksins áður fyrr og löngunina til þess að hokra út af fyrir sig án þass þiggja styrk frá öðrum. Jón heldur vel á heimildum til þessa þáttar. Frásögn hans er skemmtileg og söguefni allt er vel mótað og skipulegt. Hon- um tekst hér eins og svó oft áður að steypa saman sundur- lausum heimildum og bregða upp svipmynd af því liðna sviði, sem hann ætlar sér að fá fra,m. Uppistaða vefsins er þjóðleg fræði eftirlátin af gengnum kynslóðum ásamt embættisbókum presta og sýslumanna. Hann gerir yfir- leitt ágæta grein fyrir sögu- fólki sínu og ekki sízt í þætt- inum af Landskuldinni á Langavatnsdal. Margir þættirnir í þessu bindi íslenzks mannlífs eru ekki síðri þáttunum í fyrra bindinu. Sagan af Jóni Franz, útilegumanni, er unnin eftir traustum heimildum og þeim gerð mun betri skil heldur en í þáttum þeim, sem áður hafa af honum verið ritaðir. Bak við þennan þátt eins og alla þætti Jóns er ótrúlega mikil vinna í söfnum, leit að heim- ildum og samræming þeirra. Alþýðlegir sagnaþættir eins og þessir hafa því mikla þýðingu fyrir ritun þjóðarsögunnar síð ar meir, því af þeim er hægt að draga ályktanir og jafn- framt varðveita þær heimild- ir, sem ella hefðu glatazt. Al- menningur í landinu skilur þetta vel. Hann les og er sólg- inn í þenna fróðleik og hamp- ar honum gjarnan í frásögum við dagleg störf. Fyrsti þáttur þessa bindis er um Gísla Brynjólfsson og Ástríði dóttur Helga G. Thord- ersen dómkirkjuprests og síð- ar biskups. Nefnist hann Ást á Landakotshæð. Heimildir að þessum þætti eru samandregn ar úr ýmsum áttum og tekst Jóni mjög vel að gera úr gund urlausum heimildum mjög skemmtilega ástarsögu og um leið að fullkomna þá mynd, sem áður var brugðið upp af þessu ágæta fólki. Margir aðr- ir þssejtir bókarinnar eru það merkír, að ég vildi gjarnan minnast á þá, en til þess hef ég ekki rúm. Bókin er snilldarlega útgef- in, prýdd teiknuðum myndum eftir Halldór Pétursson, Ég tel það til sérstakrar myrirmynd- ar að ltápan er bundin með. Ættu fleiri útgefendur að taka þann sið upp. Jón Gíslason. ÞARNA ER HÚN PJKIK neimsirægu eiga Iítið einkalíf, eins og sann ast á þessari mynd. Grace Kelly skrapp til London í verzlunarerindum ásamt furstanum manni sínum, og hvar sem þau sýndu siff spratt upp skari áhorf enda. Þau eru hér að koma út úr skartgrjpa- verzlun. "IlllIIIIIIIIIIIlHHIIIIIIIIIIIll 1111111111111111111111111111111 II1III11*1IIIIIIIIIIII*III**III*,,|IH,,I,Í^ dllHIIMIIHIIIIIIllHIIIIHIIIlHIIllIIIIHHIIIIIIIIIUIIIHHIIIiIIIIllIlIIIIílllIllIlIIIIIlHiIIIIIIHt BISKUPINN I GÖRDU Biskupinn í Görðum. Sendibréf 1810—1853. Finnur Sigmundsson bjó til prentunar. Bókfells- útgáfan. Keykjavík 1959. ÞAÐ er líklega ekki fyrr en maður er kominn yfir sextugt, sem sú gullöld ævinnar hefst, að manni gefur ekki gleðilaus an dag, þrátt fyrir algera ó- verðskuldun slíkrar náðar. Það liggur við, að manni detti í hug, að það sé eitthvert leyndardómsfullt galdraspil á bak við þetta sem raðar ein- hverjum fíngerðum fögnuði, eins og lostætum ábætisbita fyrir mann í lok hvers mæðu- sams dags. — Svo vafstur manns sjálfs og hinna, út af deginum í dag, að ég ekki tali um morgundaginn, sé kann- ski.ekki virði allrar fyrirhafn- arinnar. Og hvernig skal manni svo hlotnast þessi á- bætisbiti gleðinnar í lok hvers annadags og mæðu? Spyrjið ekki mig, Sigurð Einarsson í Holti. Spyrjið biskupinn í Görðum. Séra Árna Helgason stiptsprófast og biskup að nafnbót! Ég hef lengi látið mig gruna, að ein- stöku sinnum leyfi Guð mönn unum að horfa á spilin í sinni hendi, hið dularfulla spil mátt arins og góðleikans, sem ræð- ur öllu og skipar öllu að heil- agri vild sinni til lykta. Ein- staka mönnum, ekki öllum oss, því miður, eða því betur. Það er eftir því hvernig á það er litið. En þegar ég hafði lok- ið við að lesa bréf Árna Helga sonar stiptsprófasts til Bjarna Þorsteinssonar amtmanns á Stapa, æskufélaga hans, alda- vinar og skólabróður, fiöru- tíu ára trúnaðarbréfaskipti, svo- sem þau mega innilegust verða, lagði ég bókina frá mér með þessari tilfinningu: „Sjáum til, heillakarlinn, svo þú varst þá einn af þeim, sem fengu að horfa ofurlítið á spilin hjá Drottni! Og það þó Bjarni Thorarensen finndi „ekkert geistlegt“ hjá þér! — Kannski hefur snillingurinn Bjarni fundið undir niðri, að Drottinn þurfti fleiri manna við en geistlegra, og verið með nokkrum böggum af því, að brosmildi galdrakarlinn í Görðum virtist stundum eygja óþarflega langt og hafði mei'kilega farsæla hönd, þar sem um það var að ræða, að efla farsæíd og frið og góðan vilja með mönnum! Sjálfur hafði Bjarni svo vissulega fengið að sjá á spilin í hendi Drottins, er hann réð örlög Sæmundar Hólms og Odds Hjaltalíns opin fyrir augum íslenzkra manna, svo sem vér verðum að ætla að þau séu skráð í himinsins bók. En eft- ir lestur þessara bréfa, er mér sem ég sjái fyrir augum bros séra Árna Helgasonar yfir hinu mæðusama stríði Bjarna amtmanns og skálds, í því að koma lögum yfir lausamenn, lausingja, smá- þjófa og vesæla gr'pdeildar- menn um smámuni. afbrot gerð í neyð. Árni Helgason biskup gat sagt með fullkom- inni geðró: „Fóstursonur minn hefur átt barn með vinnukonu hjá okkur“. Og sjálfsagt hefur hann skírt barnið og verið öllum þrem, sem hlut áttu að máli vel, því hann segir: hjá mér vex allt villt. Börn og menn og gras og kál, gizka ég á. Það voru einstök þr!f í búi á Görðum þó að stiptsprófasturinn segi sjálfur svo frá, að skilding- ana reki ekki á fjörur í Görð- um — fremur en í Laugar- nesi. En hann segir líka um konu sína, hina síðari, að það sé aðdáunarvert hversu henni tekst að láta verða drjúgt úr því, sem hún hefur undir höndum til gjafa nauðstödd- um. „En það er líklega af því, hve tamt henni er að miðla“. Konan hét Sigríður, dóttir Hannesar Finnssonar bisk- ups, og er gaman að þessi at- hugasemd varðveitist, því slíkt er handarbragð fleiri kvenna í þeirri ætt. Og svo bætir Árni Helgason við í tig- inmannlegu skapi að sjálfum sér sögunni um karlinn, sem sagði: Gefðu Sólveig, ég get það ekki. „Biskupinn í Görðum“ er merkilega launskemmtileg bók. Mér fannst þegar ég hafði lesið hana, sem ég hefði setið á tali við öldungis ó- venjulega skemmtilegan mann. Þarna bregður fyrir aragrúa af fólki. Á öllu því hefur maður vitað nokkur deili, en enga persónu snertir Árni Helgason með penna sín um svo, að ekki blasi við ný vitneskja, stundum ekki stór- vægileg, en alltaf skemmti- leg, Hann er meinfyndinn, en fyndni hans er alls staðar græzkulaus, því að biskupinm í Görðum er vammlaus ma'ður og vítalaus, — hálærður og hvassgáfaður að vísu, — en göfugur og fágaður persónu- leiki, skírður í eldi margvís- legrar og djúptækrar mann- legrar reynslu. Bókin er stór- kostleg nærmvnd af HTi ís- lenzku þjóðarinnar á fyrra hluta 19. aldar, daglegUrn háttum hennar basli og strfði og einnig vonum hennar og umbrotum. Nærmynd, sem eí svo skýr, að allt blasir við augum, árferði, ' veðrátta, verzlunarhagir, daglegar á- stæður kotunganna, engu síð- ur en tilhaldslíf höfðingjanna og kaupmannanna í Reykja- vík. Jú, það var afbragðsgam- an að fá þessa bók nú fyrir jólin, og eiga þess kost að ltynnast svo náið manninum, sem verið hafði lærifaðir Framhald á 14. síðu. Alþýðublaði* — 30. des. 1959 |_3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.