Alþýðublaðið - 30.12.1959, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 30.12.1959, Blaðsíða 15
Rachel. Ég hefðl ekki átt að segja þér það, en mér sárnaði að þú hélzt að ég lygi að'þér“. „En... og það Carol!“ sagði hún eins og við sjálfa sig —, „og það meðan þú varst veikur og hjálparlaus11. „Það var óvenjulega gott tilefni, barnið mitt! Þú hefðir án efa gert það sama í henn- ar sporum!“ Hann brosti veiklulega og það jók enn á reiði hennar. 'Vian hafði orðið kryppl ngur á brúðkaupsferð- inni og treyst því að kona hans styddi hann á erfiðasta tíma lífs hans, þegar hann þarfnaðist ástar hennar meira en nokkru sinni fyrr... Og þá hafði Carol gefið öðrum ást sína . .. Hún hafði haldið að Carol væri trygg og sönn. Hún hafði litið upp 11 hennar og barist af fremsta megni gegn ást sinni hennar vegna .. og allan tímann hafði Carol ekki elskað manninn sinn, sem vp"ð að horfa unp á allt þetta. Án tillits til tilfinninga annarra hafði hún . .. „Elskan mín, vertu ekki svona þungbúin, kveiktu held ur í sígarettu fyrir mig,“ taut- aði Vían letilega. „Þó fortíðin hafi verið leiðinleg, þarf líð- andi s*und ekki að vera bað“. Og Rachel var jafn ham- ingjusöm og bún gat verið við slíkar aðs^æður unz skilaboð komu frá' lævn' Vians um að har.n æt.ti að koma í skoðun á spítalann og það ætti að skera hann upp ef allt væri í lagi. Vian grettí sig þegar hann sagði Rachel það. „Tíminn er útrunninn11, sagði hann burrlega. „'Við skulum hringja til Carol“. s'>eði hún en hann hristi höfuðið. „V ð bíðum unz allt er bú- ið. Þá er tími til bc,ss“. ,.En Vian, éff lofaði henni.. —mótmæl'i hún. „Það skiptir mig engu máli hverju þú lofaðir henni“, svar aði hann. . Ég vil að hún sé þar sem hún er. Auk bess er móðir hennar ekki góð enn“, bætti hann v ð. „Lofaðu mér að begja, Rav“. sagði bann biðjandi. „Ekki einu sinni segia frænku eða mömmu þinni það? Ég á að gcra þetta einn og ég vil fá að gera það einn“. „Þú erf eigingjarnari en allt“, sagði hún beiskjulega. „Þér er sama hvað alLr aðrir halda, er það ekki?“ „Nei, ekki sama, en ég þarf ekki alla hina“, ■'úuurkenndi hann og hún varð að snúa sér undan til að hann sæi ekki tárin í augum hennar. „Græturðu mín vegna, elsk- an mín?“ snurði hann í tón, sem hefði brætt íshjarta. „Ekki þín vegna, heldur vegna þín. Þú ert svo heimsk- ur, svo þrjóskur ...“ „Það er réfí! Skammaðu bara varnaHausan vesaling!“ „Farðu til helvítis“, stundi Rachel, en Vian hló aðeins hjartanlega. 23. Anna Mainwaring var ekki úr hættu íyrr en daginn seip 'Vian var skorinn upp, þó Carol vissi það ekki fyrr en tveim dögum seinna. Þegar hún fékk símskeytið frá Rachel varð hún fyrst feg- in en svo varð hún reið. Því hafð. Rachel ekki sagt henni að það ætti að skera Vian upp? Hún hafði sagt henni að gera það. Hafði hún glevmt því eða hafði Vian bannað henni það? Carol var þeim báðum reið, en sennilega átti Vian sök á því. Það var ekki hægt að skamma Rachel, ef hann hafði heimtað að kona sín fengi ekkert að vita. „Til hvers var það?“ spurði hann, þegar hún sagðist hafa verið lelð yfir að frétta það ekki. „Þú hefðir ekkert getað gert“. Og hún varð að viður- kenna það þó sárt væri. Yfirhjúkrunarkonan á sjúkrahúsinu sagði Carol að þrýstingurinn á hrygginn væri horfinn og að hann gæti gengið við staf eftir mánuð ef allt gengi vel. „Hann hefur verið óvenjulegur sjúkling- ur“, bætti hún við. „Alltaf í góðu skapi og hlýðinn“. Carol hafði veitt því eftir- tekt hve yfirhjúkrunarkonan var óvenju fögur! Vian var í góðu skapi og þegar hún fór að tala um ut- anlandsferð, þegar honum batnaði, varð hann hrifinn. „Ég er búinn að ákveða það Carol varð hugsað til hinnar stoltu aðalsfrúar í Blickling- ton. Það var gott að hún heyrði ekki til Vians! Svo hristi hún höfuðið. „Það getum við ekki gert henni!“ „Ég get það“, svaraði hann rólega. „En hún treystir á að þú... takir við. Hún vill að við... eignumst barn, Vian“. Það var ekki^ auðvelt að segja það. „Ég er hræddur um að mig langi ekki til að gera henni það til geðs, góða“. Carol hugsaði til Símons og safnaði öllu hugrekki síny. til að segja: „En mér til geðs, Vian?“ Það var erfitt að horfast í augu við Vian, en hún gerði það unz hann hló hjartanlega. fannst sér einni koma orð hans við. En hvað skyldi kona Vian Lorings segja, ef hún vissi að innan árs væri hún húsmóðir í Blicklington höllinni? Ólæknandi hafði læknirinn sagt. Það getur skeð hvenær sem er. Engar geðshræringar, engin æsing... „Já, já“, hugsaði Lady Daubenay. „Þannig var lífið ... og dauðinn“. 24. Rachel og Carol hittust á járnbrautarstöðinni á laugar- dagsmorgun. „Þetta var gaman“, brosti Carol meðan þær settust í sama klefa. „Miklu skemmti- legra en að fara ein. Ég hef svo sjaldan séð þig, Rachel. Segðu mér, var Vian góður NAN SHARP^ VÖLUNDARHÚS ÁSTARINNAR Hún leit aftur á skeytið sem hún hélt á í hendinni. „Uppskurðinum lokið, Allt gekk vel. . .“ Það var gott fyrir hann. Eftir nokkrar vik- ur gæti hann flakkað á ný. Myndi hann þá líta öðrum augum á hjónaband þeirra? Hún bjóst ekki við að það skeði kraftaverk með hann. Hún gæti aldrei gleymt því sem hann hafði sagt, en þau gátu lagt biturðina og vonzk- una að baki og byrjað lífið á nýjan leik. Hún skyldi gera sitt, hún skyldi aðeins vinna, þegar Vian væri að gera eitt- hvað og hún ætlaði að revna að öðlast aftur hamingju hveitibrauðsdaganna. Meðan hún var í Améríku hafði sársaukann út af sam- talinu við Símon lægt og við og við hafði henni tekist að brosa að því. Sárið myndi aldrei gróa, en kannske gat hún dulið það algjörlega. Og þannig hugsandi kom Carol aftur til manns síns. Hann var bjartsýnn og fram- tíðin leit vel út. Hann bað hana ekki afsökunar á að hafa ekki sagt henni hvenær ætti að skera hann upp. allt“, sagði hann. „Það kom maður að finna mig í gær. Hann vill að ég fari með sér til Perú í haust. Hann ætlar að grafa upp einhverja borg“, sagði hann til útskýringar. „Það verður skemmtilegt“. „Já, það verður það“, sagði Carol og leit hugsandi á hann. „Hvernig heldurðu, að honum lítist á að konan þín komi með?“ „Konan mín?“ Vian var skelfdur á svip. „í guðanna bænum! Maður fer ekki með óþarfa farangur í slík ferða- lög!“ „Ég skil“, sagði Carol. Hún varð ekki belnt meira hrifin af honum við að hann talaði um hana eins og óþarfa far- angur. „Ég tek aldrei konur með mér í ferðalög“, sagði maður hennar. „Það er ekki hægt“. „Ég skil“, sagði Carol aftur. „Og hvað gera konurnar þá á meðan mennirnir eru að heim- an?“ „Eignast fjölskyldu, hugsa ég“, sagði hann hugsunarlaust. „En það þarf ekki að vorkenna þér, þú getur skrifað“. Hún hugsaði sig um. „Langar þig til að e'gnast börn, Vian?“ spurði hún, en svar hans var stutt og laggott. „í guðanna bænum, nei!“ „Þú ert síðasti erfingi hall- arinnar“, minnti hún hann á. „Höllin er mér ekkert. Ég sel allt um leið og ég fæ það“, sagði frændi Éady Daubenay án hiks. Carol minntist ekki á það framar. Rachel kom einu sinni í heimsókn en þá var Carol ekki heima. Carol hélt að hún ætti mjög annríkt og bað hana ekki um að koma, heldur fór að heim sækja hana. En Rachel var óstyrk og æst og vildi lítið við hana tala. „Það er sennilega lífið hér í London, hún hefur svo lengi átt heima uppi í sveit“, sagði Vian þegar, Carol sagði honum það. „En hún var svo eirðarlaus“, sagði Carol. „Hún er slæm á taugum!“ „Konur og taugahrúgur!“ sagði Vian reiðilega. Lady Daubenay kom til Lon- don og bjó í nokkra daga hjá þeim. Carol kunni alltaf betur og betur við hana. Hún var kannske mikið fyrir að fá sín- um vilja framgengt, en hún var mannleg og góð og hafði mikla kímn'gáfu. „Ég vildi að þú kæmir að heimsækja mig, barn“, sagði hún í kveðjuskyni. „Því kem- urðu ekki um næstu helgi, með an Vian er ekki kominn heim?“ Það var erfitt að neita og Carol lofaði að koma. „Góð stúlka“, brosti Lady Daubenay. Ég vil að þér lærist að elska framtíðarhe'mili þitt“. Hún sagði Carol ekki hvers vegna hún hafði komið til Lon- don. Hún hafði verið hjá hjarta sérfræðingi og hann hafði sagt henni margt sem olli henni ó- róleika. En Lady Daubenay meðan ég var ekki heima?“ Hvað átti hún við? „Mjög góður“. svaraði hún stutt í spuna. „Það er gott“, sagði Carol. „Ég var hrædd um að hann hefði hrætt þig með geð- vonzkunni. Þakka þér fyrir hvað þú hefur verið góð við hann“. „Ég var ekkert góð“, sagði Rachel. „Ég vildi gera það sjálf“. „Já, þið Vian eruð svo and- lega skyld“, sagði Carol sak- leysislega. „Það hef ég oft séð“. Rachel tautaði eitthvað og snéri sér að glugganum. Carol talaði allan tímann og henni fannst Rachel ekki hlusta á sig. Það var auðséð að hún vildi vera í friði. Þegar þau komu til stöðv- arinnar beið Símon til að taka á móti Rachel. Hann ljómaði þegar hann sá Carol. „Þetta er nú að allar manns óskir rætist“, sagði hann og ljómaði af gleði. „Það var vel gert að taka hana með, Rac- hel“. Carol sagð'st vera að fara til hallarinnar. „Það var leitt“, svaraði hann og brosti vingjarnlega til hennar. — Gerðu þetta ekki, hugsaði Caro!. Ekki brosa svona, Símon, eins og ég hefði verið sú mannvera, sem þú þráðir mest að sjá þrátt fyrir allt það, sem skeð hefur. Alþýðublaðið —30. des. 1959 £5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.