Alþýðublaðið - 05.01.1960, Síða 14

Alþýðublaðið - 05.01.1960, Síða 14
r Avarp forsefc Framhald af 4. síðu. bítur, og öruggt að íslenzk þjóð fær nú notið gáfna sinna og hæfileika í vaxandi mæli. Það er margt óunnið með þessari þjóð, og þó torfbæir séu horfnir úr sögunni, þá er ýmislegt sem þarf að endur- byggja og endurbæta með hverri kynslóð. Það er ýmist, að ný kynslóð sættir sig ekki við að taka við óbreyttum arfi án nokkurrar tilbreyting- ar, og á mörgum verkefnum hefur vart verið snert af eldri kynslóðum. Þessa hvors- tveggja gætir bæði í verkleg- um og andlegum efnum. í skáldskap eigum vér mik- inn arf, sem ekki má týna, og þó verður að ávaxta. í flest- um öðrum listgreinum var áður fáskrúðlegt um að litast. Þó að verksviðið sé vítt og viðfangsefnin ótæmandi, þá get ég þó ekki varist þeirri hugsun, að ýmsir hinna yngri manna í listum og bókmennt- um „dependeri“, eins og Sveinn lögmaður Sölvason sagði, um of af þeim útlenzku. Öldur heimsmenningarinnar skella að vísu á vorum strönd- um, en það er löng leið og djúp yfir íslandsála, og lands- grunn og landslag ræður að rét.tu lagi miklu um veður og sjólag. Auk þess ráða menn nokkru um það, hvert kunn- átta og áhrif eru sótt, og ekki er sá Svartiskóli hollur, bar sem nemandinn gleymir sínu íslenzka nafni. Ýmsir gamlir brunnar á meginlandinu eru nú auk þess harla gruggugir eftir tvær heimsstyrjaldir, og ferskar lindir sprottnar fram á nýjum stöðum. Það verður engin list íslenzk, nema hún beri nokkurn keim þess jarð- vegs, sem hún vex í, að námi loknu, blæ íslenzkrar nátt- úru, þjóðlegra erfða og lífs- kjara. íslenzk menningarsaga hef- ur ekki ætíð verið samhliða eða samtímis v'ð erlenda menningarsögu. Hér er margt óunnið í öllum listgreinum, sem segja má að eldri meist- arar hafi aflokið í öðrum lönd um. Eyðurnar eru stórar. Eft- irstríðs örvinglun þurfum vér ekki að flytja inn ómelta. Hér ætti nú að vera endurreisn- artímabil í listum og bók- menntum, og er það raunar að ýmsu leyti. í þjóðsögum taka erlend minni á sig alís- lenzkan búning, og á þann veg vex og þróast þjóðararf- urinn. Þetta er máske hálf- kveðin vísa, en í ávarpi sem þessu er farið fljótt yfir sögu. Kvikfjárrækt, fiskveiðar og iðnaður er grundvöllur mann- sæmandi h'fs, eins og það er orðað, en fámenn þjóð á vís- ast meir undir skapandi list og andlegri menningu en stærri og voldugri þjóðir. Og það er ein af nýjársóskunum að framtíðin geti í þessum efnum orðið eins glæsileg og fortíðin gefur fyrirheit um. íslenzk stjórnskipunarsaga Islands hefur ekki heldur ætíð verið samtíða við aðrar þjóðir. Eitt sinn var hér þjóðveldi úti á íslandi, þó aðrir hefðu kon- ung á þeirri tíð. Og hvernig sem þau mál skipast í öðrum löndum — þá vitum vér öll af dýrkeyptri reynslu á Sturl- ungaöld, að jafnvel tilraun til einræðis hlýtur að bera vora fámennu þjóð í erlendar greipar. Þessi öld, sem senn fyllir sjötta tuginn, ber þess og greinilegan vott, að íslenzk þjóð er um margt sjálfstæð hringiða í tímans straumi. Þegar vér hugleiðum þær hörmungar, sem gengið hafa yfir margar þjóðir og berum saman við vor örlög á þess- um sömu árum nýrrar tækni, batnandi lífskjara og aukinn- ar fjölbrevtni á öllum svið- um þióðlífsins, þá vérður ekki séð að æskan eða þjóðin í heild þurfi að „líta reið um öxl“, heldur ber oss að þakka forsjóninni, að vér erum kom in nokkuð á leið, og biðja þess með bljúgum huga, að heill og hamingja megi fvlgja þjóð vorri á óförnum leiðum. Nýjársmánuðurinn er kenndur við þann guð, Janus, er hafði tvö andlit, og horfði, annað fram en hitt aftur. Sama gerum við um hver áramót, lítum fram og aftur á veginn. Að þessu sinni virð- ist mér vér höfum fulla á- stæðu til að bakka fyrir gamla árið, hver öðrum og forsjón- inni. Ókominn tími er jafnan óráðinn, en sum teikn eru betri en um síðustu áramót. Vér heyrum nú úr ýmsum áttum, að útlit sé betra í al- bióðamálum en undanfarið. Þjóðirnar eru að minnsta kosti farnar að talast við, og forustumenn að heimsækja hver annan. Vér vonum og biðjum að það beri árangur, svo friðsamur almenningur meðal allra þjóða geti dregið andann léttar. Og þó smærra sé, þá er það ein af nýársósk- unum. að ágreiningsmál vor við nágrannaþjóðir um helga dóma handritanna og frum- burðarrétt á landsgrunninu mesi leysast farsællega. Að svo mæltu árna ég öll- um landslýð árs og friðar, og bið Guð vors lands að gefa oss gott ár. Ár óvæntra Framhald af 16. síðu. Skotakonungur sprengdi sig í loft upp með kanónu, en Hinrik III. Englandskonung- ur bannaði parlamentið,enþað tórði þó lengur en konung- urinn. Og fyrir 8 öldum, 1160, kom hinn víðkunni Hrói höttur fyrst fram á sjónarsviðið. Framh. af 11 síðu. Þórðarson með flesta leiki, eða alls 40, en Grétar Norðfjörð er næstur með 30 leiki. Á árinu var unnið að bygg- ingarmálum félagsins, en for- maður bygginganefndar var Ögmundur Stephensen. Lokið var við teikningar af væntan- legu félagsheimili, og hafa þær hlotið samþykki íþróttafulltrúa ríkisins. Gísli Halldórsson arki- tekt gerði teikningarnar, en hann hefur verið félaginu mjög innan handar í, þessu máli. Hins vegar hefur svæði því, sem félaginu hefur verið ætlað og teikningarnar við miðaðaar, ekki verið úthlutað ennþá. Segja má að félagslífið í heild hafi verið allgott, hins vegar háir athafnasvæðisleysi og húsnæðisskortur mjög. í lok ræðu sinnar þakkaði for maður öllum þeim, sem stutt hafa félagið, bæði félögum og utanfélagsmönnum. Gat síðan eins og kvað á engan haliað með því, en það var Haraidur Snorrason, sem alltaf hefði ver ið búinn og boðinn til starfa. Að skýrslu formanns lokinni skýrði gjaldkerinn Haraldur Snorrason reikninga félagsins. Umræður urðu síðan allmiklar um skýrsluna og reikningana, og tóku þessir til máls: Eyjólfur Jónsson, Grétar Norðf jörð, Sig- urður Guðmundsson, Ögmund- ur Stephensen, Halldór Sigurðs son o. fl. Meðal tillagna, sem samþykkt ar voru, var að gefið skyldi út á næsta starfsári félgsblað. í stjórn voru kjörin: Óskar Pétursson, formaður, Halldór Sigurðsson, Magnús V. Pétursson, Haraldur Snorrason, Guðjón Oddsson, Helgi Emils- dóttir, Jón Pétursson Til vara: Börge Jónsson og Kristvin Kristinsson. Bjarni Bjarnason, sem sæti hefur átt í stjórninni undanfar- in ár, baðst eindregið undan því að vera í kjöri að þessu sinni. Grein Björgvins Framhald af 13. síðu. ári og minntist þess með glæsilegum fagnaði í Lido. Voru þar samankomnir 400 manns. Fyrir kosningarnar hélt sambandið og einstök félög útbreiðslufundi og sam bandið gaf út kosningahand- bækur. Blað SUJ, Sambands tíðindi. hefur einnig verið gefið út s. 1. ár sem undan- farin ár. Vígstaða flokks’ns, blaðs- ins og unghreyfingarinnar hefur ekki mörg undanfarin ár verið eins góð og einmitt nú. Ástæða er því til bjart- sýni nú við þessi áramót. Ef vel er unnið og vel á málum haldið getur árangurinn ár- ið 1960 orðið enn betri en s. 1. ár V:ð skulum strengja þess heit nú í upphafi hins nýja árs að vinna öll að því að svo verði. 5. janúar 1960 — Alþýðublaðið % væntanlegur til Reykjavíkur kl. 16.10 í dag frá íj: Khöfn og Glas- gow. Flugvéiin fer ti] Glasgow °g Khafnar kl. •SltáííSíSA-SSSS:5 8.30 í fyrramál- ið. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyr- ar, Blönduóss, Egilsstaða, Flateyrar, Sauðárkróks, Vest- mannaeyja og Þingeyrar. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Húsavíkur, fsa fjarðar og Vestmannaeyja. Loftleiðir. Saga er væntanleg kl. 7.15. Fer til Glasgow og London kl. 8.45. Pan American flugvél kom til Keflavíkur í morgun frá New York og hélt áleiðis til Norðurlandanna. Flugvél- in er væntanleg aftur annað kvöld og fer þá til New York. Ríkisskip. Hekla, var vænt- anleg til ísafjarð- ar í morgun á suð urleið. Esja var væntanleg til Ak- ureyrar í morgun. Herðubreið fer frá Reykjavík í dag austur um land til Borg arfjarðar. Skjaldbreið fer frá Reykjavík í dag vestur um land til Akureyrar. Þyrill er á leið til.Fredrikstad. Herj- ólfur fer frá Vestmannaeyj- um í kvöld til Reykjavíkur. Skipadeild SÍS. Hvassafell er í Stettin. Arn arfell fer væntanlega í dag frá Kaupmannahöfn áleiðis til Kristiansadn, Siglufjarð- ar, Akureyrar og Reykjavík- ur. Jökulfell er í Borgarnesi. Dísarfell er í Gufunesi. Litla- fell kemur í dag til Reykjavík ur frá ísafirði. Helgafell fer í dag frá Sete áleiðis til Ibiza. Hamrafell fór í gær um Gi- braltar á leið til Batum. Eimskip. Dettifoss fór frá Norðfirði í gærkvöldi til Hull, Grimsby, Amsterdam, Rostock, Gdynia og Ábo. Fjallfoss hefur vænt- anlega farið frá London í gær íil Hamborgar, Kaupmanna- hafnar og Stettin. Goðafoss kom«til Hull 3/1, fer þaðan til Antwerpen. Gullfoss fer frá Khöfn í dag til Leith, Thors- havn og Reykjavíkur. Lagar- foss^ fór frá Rvík í gærkvöldi til ísafjarðar. Reykjafoss fór frá Reykjavík í gærkvöldi til Siglufjarðar og Akureyrar. Selfoss fór frá Ventspils í gær tilReykjavíkur. Tröllafoss fór frá Vestmanpaeyjum 31/12 til Árhus, Bremen og Ham- borgar. Tungufoss fór frá Gautaborg 31/12, var vænt- anlegur til Keflavíkur í gær- kvöldi og þaðan til Akraness og Reykjavíkur. VeörÉðí Norðan gola eða kaldi víða léttskýjað. Frost 3—6 stig. iþriðjudagur Næturvarzla vikuna 2.—8. janúar er í Vesturbæjar apó- teki, sími 22290. Slysavarðstofan er opin all- an sólarhringinn. Læknavörð ur LR fyrir vitjanir er á sama stað kl. 18—8. Sími 15030. Úthlutað verður notuðum fatnaði til þess að sauma upp úr, á fimmtudag og föstudag 7. til 8. þessa mánaðar, að Túngötu 2, milli kl. 2 til 6. Mæðrastyrksnefnd. Vetrar- hjálpin. Opinberað hafa trúlofun sína ungfrú Gunnur Gunnars dóttir, Hringbraut 17, Hafn- arfirði, skrifst.stúlka á skrif- stofu Alþýðufl., Rvík, og Frið björn Hólm, Háagerði 53, Rvík. Kvenfélag Laugarnessókn- ar. Konur munið fundinn £ kirkjukjallaranum í kvöld —■ 5. jan. — kl. 8.30. Kvikmynd o. fl. til skemmtunar. Missögn slæddist í fréttina frá bæjarstjóranrfundinum í Vestmannaeyjum, sem skýrt var frá í blaðinu á gamlárs- dag. — Framsóknarmaðurinn sat hjá við umræddar atkv.- greiðslur. Skyndihappdrætti Glímu- félagsins Ármanns, sem draga átti í í dag, hefur verið frest- að af ófyrirsjáanlegum orsök- um til 29. febrúar nk. -o- 18.30 Amma segir börnunum sögu. 18.50 Framburðar- kennsla í þýzku. 19.00 Tónleikar: Harmonikulög. 20.30 Útvarps- sagan. 20.45 Frá bókmenntakynn ingu á verkum Jóhannesar úr Kötlum (hljóð- ritað- í Gamla bíói í fyrra mán uði). Guðmund- ur Böðvarsson skáld flytur erindi og Baldvin Halldórs- son, Þórarinn Guðnason, Þor- steinn Ö. Stephensen, Bryn- dís Pétursdóttir, Lárus Páls- son og Jóhannes skáld úr Kötlum lesa, Kristinn Halls- son syngur lög við ljóð skálds ins. 22.10 Tryggingamál. 22.30 Lög unga fólksins. 23.25 Dagskrárlok. -o- IIEILABRJÓTUR.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.