Alþýðublaðið - 09.01.1960, Side 2
! Útgefandl: Alþýfiuflokkurlnn. — Framkvæmdastjóri: Ingóifur Kristjánsson.
— Kitstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi
ritstjórnar: Sigvaidi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björgvin GuSmundsson.
— Símai’: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906 — Að-
setur: Alþýðuhúsið. — Prentsmlðja Aiþýðubiaðsins. Hverfisgata 8—Í0. — i
j _ Áskriftargjald: kr. 35,00 á mánuði.
Gyðingahatur
FREGNIRNAR um endurvakningu Gyðinga-
haturs og nazisma víða um lönd vekja ugg hjá
hugsandi mönnum um allan hinn frjálsa heim. Hér
er um að ræða eitt viðurstyggilegast þjóðfélags-
vandamál síðari tíma, sem nazistar og f asistar gerðu
að truaratriði með skipulgsbundnum ofsóknum.
pyntingum og fjöldamorðum. Það var ósk manna,
að þessi draugur 'hefði að mestu eða öllu verið kveð
í inn niður í styrjöldinni, en svo virðist ekki vera.
Því miður lifir enn í glóðum á ýmsum stöðum,
og þarf það út af fyrir eki ekki að koma neinum á
ó vart. Verður vonandi tekið föstum tökum á slíku.
ekki sízt í Þýzkalandi, þar sem yfirgnæfandi meiri
hluti þjóðarinnar hefur með öllu hafnað nazisman- 1
um og því, er honum fylgdi, og margt gert til að 1
| bæta fyrir glæpi nazista gegn Gyðingum.
Hins vegar hlýtur það að vekja nokkra grun-
semd, að þessi faraldur skuli hafa sprottið upp ein-
mitt nú og náð svo skjótri og sérkennilegri út-
■ breiðslu. Er rík ástæða til að ætla, að hafi komm-
únistar ekki beinlínis hrundið þessum ófögnuði af
sbað, þá hafi þeir að minnsta kosti verið fljótir að
I hagnýta sér vandræðin. blása á eldana og reyna að
nota málið til að varpa óverðskulduðum skugga á
hið endurreista Vestur-Þýzkaland. Það er hinn
; pólitíski tilgangur þeirra.
Það er engin tilviljun, að pólskir kommúnistar
i grafa nú upp Gyðingalík og endurjarðsetja þau
i .með viðhöfn ásamt ræðum ujn stjórn Vestur-
Þýzkalands og árásum á endunyopnun Þjóðverja.
Fjölmörg fleiri dæmi sýna, að kommúnistar taka
ekki þátt í harmi yfir þessum viðburðum, heldur
gleðjast yfir þeim. Þeir reyna ekki að útrýma þess-
M sýkli — heldur ala hann á allan hátt.
Frá því var skýrt í heimsfréttum 24. desem-
ber og birt í mörgurn öruggum fréttablöðum, að
ofsóknir gegn Gyðingum séu studdar í blöðum
óg af opinberum ráðstöfunum í Sovétríkjunum.
Það eru aðeins fáar vikur síðan Gyðingakirkjan
; í Malakhova, skammt frá Moskvu, var brennd
óg íbúð eftirlitsmanns í Gyðingakirkjugarði
brennd með þeim afleiðingum, að kona hans
í fórst. Fleiri dæmi mætti nefna, sem sanna, að
Viðhorf kommúnista er í þessum efnum svipað
og hinna fyrri fóstbræðra þeirra. nazista.
Hér verður tvennt að gerast. Yfirvöld hver
! þess lands, þar sem Gyðingahatrið skýtur upp
•: koili, verða að gera ítrustu ráðstafanir til að
þurrka út og lækna þær þjóðfélagsmeinsemdir, er
íeiða til nazistísks hugarfars. Jafnframt þurfa
menn að vera á varðbergi fyrir tilraunum komm-
. únista til að nota þetta ástand í pólitískum til-
gangi og útbreiða þennan óhugnanlega eld.
9. janáar 1960 — Alþýðublaðið
•fo Til athugunar undir
feldinum.
ÍZ Fáránleg viðskipli.
i? Innheimtan á sölu-
skattinum.
i? Furðulegt misræmi.
K.S. SKRIFAR: „Einhver
sagði, að ráðherrar og hagfræð-
ingar lægju undir feldi. Þeir eru
að rannsaka efnahagsástæður
þjóðarinnar og gera tilraunir til
þess að finna lausn, sem hægt
sé að byggja upp nýja framtíð
eftir. — Það er gott og blessað
að slíkir menn leggi höfuðin í
bleyti, en ekki nægja sérfræð-
ingar svokailaðir. Heppilegt tel
ég að fólk út atvinnurekstri og
framleiðslu, verkafólk og at-
vinnurekendur, komi til skjal-
anna, annars óttast ég, að upp
verði hróflað dauðum súlnatöfl-
um og talnavísindalegum tindát
um, eins og þú munt hafa sagt
í haust.
ÉG VIL ekki fara að kenna
annes
lorninu
neinum neitt í þessum efnum.
En er ekki mikið af okkar ó-
gæfu í efnahagsmálum sprottið
af flækju, skipulagsleysi og
gramsi, liggur mér við að segja?
— Innflutningur til landsins, er
þrátt fyrir allskonar nefndir og
ráð undir litlu sem engu eftir-
liti. Jafnvel er flutt inn skran,
sem ekki er svo hægt að selja.
Nsegir í því sambandi að benda
á vörubifreiðaómyndir, sem
lengi hafa staðið í slúð og regni,
í veðri og vindum, í tugatali inn
við Suðurlandsbraut — og eng-
inn treystir sér til að kaupa.
ÞETTA eru austanfyrirjárn-
tjaldsbílar. Þeir hafa fengist fyr-
ir íslenzkar afurðir í vöruskipt-
um. Leyfist mér að spyrja. Borga
slík viðskipti sig? Er ekki betra
að liggja með fisk og fiskafurðir
óseldar heldur en að flytja inn
fyrir þær slíkt og þvílíkt skran?
Ég held það. Ég þekki ekki þess-
ar bifreiðar, en mér hefur verið
sagt, að allir hafi tapað á þeim
nema seljandinn erlendis, sem
fékk fyrir þær íslenzkar afurðir.
ÉG MINNIST hér aðeins á
þessar bifreiðar, en f jölda margt
annað er hægt að nefna, sem
fengist hefur fyrir íslenzkar af-
urðir, en reynst hefur hér, allt
að því, ónothæft — og nær alltaf
til stórskaða fyrir kaupandann,
hinn íslenzka almúgamann. —-
Þetta eru ill viðskipti — og
hljóta að skilja eftir sig_ slæm
spor í efnahagsmálum íslend-
inga. — Væri ekki rétt að at-
huga. þetta undir feldinum um
leið og hitt?
. * .t
ÞÁ ER það eitt enn. Það er
fyrir löngu orðið Ijóst, að einn
óvinsælasti skatturinn, sem hér
ríður húsum er söluskatturinn..
Fullyrt er, að hann komi svo ó-
jafnt niður, að engu tali taki —
og sé það ekki einleikið, Sagt
er, að allur söluskattur af 6]|a|'
Ausurlandi nema um 25 þús-
und krónum. Ennfremur er full-
yrt, að einn einasti viðskipta-
frömuður greiði einn fjórða af
öllum söluskatti, sem inn kemur
í Reykjavík. Það ,er þó ekki
vegna þess að heildarviðskipti
hans nerna einum fjórða af sölu-
skattsskyldúm rekstri -í höfuð-
borginni.
@ÉR hlýtur að vera um að
ræða einhverja megingalla á inn
heimtunni, sem verður að finna
lausn á. Það liggur líka í aug-
um uppi að meðan ástandið er
þannig, þá hlýtur skatturinn að
verða enn óvinsælli en hann ann
ars þyrfti að verða. — Einnig
ætti að athuga þetta mál undír
feldinum.
YFHtLEITT held ég, að nauð-
synlegt sé að gera ö.ll okkar við-
skipti einfaldari. Nú er svo kom-
ið, að aðalstarf margra þeirra,
sem veita viðskiptum eða at-
vinnurekstri forstöðu eru elt-
ingaleikur daginn út og daginn
inn. Það er ekki von á góðu“.
Hannes á horninu. I
*
Flestir hafa iesið svo marga glæpareyfara, að Scot-
land Yard er nokkuð, stem menn kannast allvel við, og
vita að rannsóknarlögreglan brezka er ötul og dugleg.
Myndin sýnir menn að starfi í umferðardeild Soctland
Yard. Lögreglumenn Istjórna bílum lögreglunnar gegn-
um talstöðvar og svara upþhringingum almennings.
ÞRÍR ungir söngvarar, sena
eru um það bil að leggja af stað
til frekara náms erlendis, héldu
söngskemmtun í Melaskólanumi
á þrettándanum. Snæbjörg Snæ
björnsdóttir söng eitt lag eftir
Strauss og 3 eftir Brahms. Hún
hefur mikla rödd, en lítt skól-
aða ennþá. Er ekki að efa, að
eftir meira nám verður húni
hinn ágætasti liðsmaður f söng-
sveit okkar. Sigurveig Hjalte-
sted söng lagaflokkinn Barna-
hefbergið eftir Moussorski,
flokk sjö laga, sem maður þarf
vafalaust að heyra oftar til að
kunna að meta.' Frúin hefur
þegar sýnt hvað í heniii býr og
menn urðu ekki fyrir vonbrigð-
um. Síðastur söng Sigurður
Björnsson Dichterliebe eftir
Schumann. Sigurður er auð-
heyrilega mjög músíkalskiir og
söng lagaflokkinn af smekkvísi
og með ágætum framburði.
Röddin er ekki sérlega mikil,
en falleg, þó er hún dálitið mjó
á efri nótunum miðað við fyll-
inguna á hinum neðri, Verður
fróðlegt að heyra hann næst
þegar hann kemur heim. Ragn-
ar Björnsson lék undir á píanó-
ið mjög smekklega, þó að hann
viidi gleyma' því með köflum,
að söngvarinn er aðalatriðið á
slíkum hljómleikum G. G. ,